Morgunblaðið - 08.06.1996, Síða 46

Morgunblaðið - 08.06.1996, Síða 46
46 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF • FORSETAKJÖR I DAG Svínsminni Frá Aðalsteini Davíðssyni: ORÐIÐ „svínsminni" er haft í Lax- dæla sögu (48. kafla) um það þegar menn þóttu gleyma mótgerðum og svívirðingum furðu fljótt. Því miður hefur það viðgengist að stjórnmálamenn hafi látið sér í | léttu rúmi liggja loforð sín og treyst i á skammvinnt minni og umburðar- lyndi kjósenda. Orðið „kosningalof- orð“ hefur einfaldlega fengið aðra j merkingu en orðið „loforð" en síst eykur það tiltrú á Alþingi eða eflir virðingu þess. Á síðari árum er virðingarleysi fyrir loforðum komið á mun hærra stig en að muna ekki það sem „lof- að var í hita leiksins". Einstaka þingmenn hafa skarað fram úr öðr- um í því að baka Alþingi Islendinga skömm á þennan hátt. Þessu hafa kennarar kynnst eftirminnilega enda er reynsla þeirra og vonbrigði kveikjan að þessu bréfi. Fyrir nokkrum árum fóru BHMR-menn í fyrsta sinn í verk- fall - eins og þjóðinni er enn í minni. Þeir gengu aftur til vinnu í það skiptið framar öðru út á loforð um að kjör þeirra skyldu leiðrétt út frá samanburði við kjör annarra stétta. Þessi loforð fengu verkfalls- menn raunar undirskrifuð. Loforð þessi gleymdust þrátt fyrir undir- skriftina. Næsta BHMR-verkfall leystist ekki með undirskrifuðum loforðum heldur með undirskrifuðum samn- ingum við fjármálaráðherra, Ólaf Ragnar Grímsson. Þegar þar að kom að samningamir öðluðust gildi átti hins vegar að svíkjast um að greiða eftir þeim en þeir voru þá áréttaðir með dómi. Þá beið fjár- málaráðherra eftir því að losna við þingið í sumarfrí og setti síðan bráðabirgðalög til að ógilda eigin samninga. Nú býður Ólafur Ragnar Gríms- son sig fram til forsetaembættis, sá maður, sem stóð fremstur í flokki á sínum tíma að ganga á grið og samninga. Það væri með endemum ef hann yrði kosinn í þetta virð- ingarembætti sem eins konar yfir- vörður stjómarskrár og þingræðis og sameiningartákn þjóðarinnar. Hann, sem svo herfilega gekk á orð sín þegar hann stóð fyrir því 1989 í fjarveru þingsins að misbeita lög- gjafarvaldi til að ógilda þá samn- inga sem hann hafði sjálfur undir- ritað nokkrum mánuðum fyrr. Framkoma sem þessi, að ganga á gerða samninga eftir geðþótta, hét áður fyrr griðrof, þeir sem breyttu svo hétu griðníðingar eða ódrengir eða jafnvel hvers manns níðingar. Það er líka alvarlegur hlutur að ijúfa orð sín og eiða. Það er nógu illt að geta ekki treyst lof- orðum. Ennþá verra er þegar undir- staða mannlegs samfélags, samn- ingar og reglur um samskipti eru hundsuð af fullkomnu samvisku- leysi, og það af þeirra hálfu sem ættu að standa vörð um lögin. Eins og málum var þarna háttað var engin afsökun eða réttlæting að svara „nauðsyn brýtur lög“. Hvert leiðir þróunin ef þetta eiga að verða leikreglur? Hvar endar það ef al- menningur hefur enga tryggingu fyrir þvf að stjórnvöld haldi samn- inga og lög eða virði dóma? Nú er nauðsyn að menn taki sig á. Nú þarf að sanna að þjóðin hafi mannsminni en ekki svínsminni. Stöndum eftir getu vörð um lög og samskiptareglur siðmenntaðs þjóð- félags. Veljum orðheldinn dreng- skaparmann, karl eða konu, á for- setastól á meðan því embætti verð- ur haldið uppi. AÐALSTEINN DAVÍÐSSON, Löngubrekku 11, Kópavogi. Til umhugsunar fyrir íslensku þjóðina Frá Sigurgeiri Ólafssyni: UNDANFARIÐ, hefur Guðrún Pét- ursdóttir, forsetaframbjóðandi, hamrað á því, að það hljóti að vera fótakefli fyrir frambjóðendur til for- setakosninga, að hafa verið þátt- takendur í stjórnmálum. Nú er það svo, a.ð einn af fyrstu opinberu stuðningsmönnum Guðrúnar Pét- ursdóttur, var Þorsteinn Pálsson, ráðherra í ríkisstjórn Davlðs Odds- sonar. Varla getur það nú talist ópólitískur stuðningur. Gott og vel. Það sem Guðrún Pétursdóttir hefur svo snyrtilega forðast að nefna, er það að hún sjálf ferðaðist um alla Vestfirði með ræðuhöldum og póli- tískum áróðri fyrir síðustu kosning- ar, í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins! í þætti Hannesar Hólmsteins (hug- myndafræðings hennar) og Marðar, lýsti hún því yfir, að „hún hefði gengið í Sjálfstæðisflokkinn af lífs- skoðun“. Guðrún, er þetta að vera ópólitískur frambjóðandi til emb- ættis forseta Islands? Hvílík hræsni! Þú fæddist með silfurskeið Engeyj- arættarinnar i munninum og ert frambjóðandi Þorsteinsarms Sjálf- stæðisflokksins. Þú ert allt annað en ópólitísk. Ættarveldið, sem þú ert í forsvari fyrir, á tvo ráðherra í núverandi ríkisstjórn, þá Halldór Blöndal og Björn Bjarnason, frænd- ur þína og stuðningsmenn! Þú ert afkomandi og merkisberi Thors- og Engeyjarættanna, sem eru bakbein Sjálfstæðisflokksins og kolkrabb- ans og varla verða flokkaðar ópóli- tískar. Eða hvað? Ætlar þú, Guðrún Pétursdóttir, að bjóða íslensku þjóð- inni upp á þann málflutning, að þú sért ópólitískur frambjóðandi? Er það raunverulega skoðun þín, að íslenska þjóðin, sé samansafn bjálfa sem eru ófærir um að mynda sér vitsmunalegar skoðanir, byggðar á upplýsingu og þekkingu? Þinn mál- flutningur hefur til þessa verið hel- ber dónaskapur við alla landsmenn. Það þarf meira en skröksögur og blekkingar til að sannfæra þjóðina. Ég skora á þig að koma hreint til dyranna og fletta af þér hræsni- skápunni. Þú getur engu því tapað sem þú hefur ekki nú þegar gert, því að eins og málum er nú kömið, er þitt framboð byggt á ósannind- um. SIGURGEIR ÓLAFSSON, Hörgsholti 27, Hafnarfirði. blabib - kjarni málsins! Sjábu hlutina í víbara samhengi! lands, landsliðsflokki, sem lauk á mánudaginn í Garðabæ. Jón Viktor Gunnarsson (2.180), yngsti keppandinn á mót- inu; hafði hvítt og átti leik gegn þeim elsta, Sævari Bjarnasyni (2.305), alþjóðlegum meist- ara. 31. Hxf7+! (Vonandi hefur engum dottið í hug að valda h peðið með 31. Hh2??, sem leyfir 31. -Dfl+) 31. - Kxf7 32. Dxg6+ - Kf8 33. Df6+ (Velur örugga vinningsleið, en stysta leiðin var 33. Bh4! Og svartur er mát í mest fimm leikjum) 33. - Ke8 34. Dxh8+ - Kd7 35. Dh7+ - Kc6 36. Dd3 - Hc4 37. h6 og svart- ur gafst upp. HÖGNIHREKKVÍSI 1//& A&/t/f97 i/er/Á niiur/ðepcfcir f " Farsi SKAK llmsjón Margeir Pétursson Hvítur mátar i átta leikjum STAÐAN kom upp á Eim- skipsmótinu, Skákþingi ís- VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: Iauga@mbl.is Þakkir til Bústaðasóknar VIÐ undirritaðar viljum færa kærar þakkir til sóknarprests, organista og „kærleikskvennanna" fyrir ógleymanlega mið- vikudaga ásamt ferðum vor og sumar undir frá- bærri leiðsögn Áslaugar Gísladóttur. Við vitum að allir sem hafa tekið þátt í þessu saman þakka hjartanlega. Guð blessi ykkur öll. Marta, Ingibjörg, Sigrún. Virðingarleysi KONA, sem er að selja Mðina sína og er búin að setja hana á sölu, hringdi til Velvakanda. Hún vill kvarta yfir slæmri umgengni þeirra sem koma að skoða Mð- ina. Hún gerir sér að sjálf- sögðu grein fyrir því að fólk verður að fá að koma og sjá íbúðina til að geta gert upp hug sinn varð- andi sölu, en hún sagði að kumt af þessu fólki gengi um eins og það ætti þegar heima þama. Það sendir börnin inn í bamaherbergin til að leika sér og virðist ekki gera sér grein fyrir því að þetta sé heimili fólks heldur ein- ungis eitthvert húsnæði sem því sé fijálst að ganga um eftir vild. Konan vill benda fólki á að fara hægar í sakimar þegar það kemur til að skoða Mðir þar sem fólk býr í og heldur sitt heimili. Tapað/fundið Frakki tapaðist STUTTUR frakki hefur líklega verið tekinn í mis- gripum á Kaffi Óperu laugardaginn 11. maí sl. Frakkinn er ljós á litinn. Sú sem hefur tekið frakkann í misgripum er vinsamlegast beðin um að hringja í síma 557-9098. Handprjónaður poki tapaðist LÍTILL, handpijónaður poki, útpijónaður með myndum af ijómm kind- um, tapaðist í Aflagranda eða nágrenni í lok apríl. Pokinn er grænleitur á litinn og kindurnar vom fjólubláar. í pokanum era þijár steinvölur. Pokans er sárt saknað vegna þess að hann var skímargjöf. Ef einhver hefur fundið pokann vinsamlegast hringið í síma 562-7510. Budda tapaðist BRÚN budda tapaðist annaðhvort við Hólmasel í Breiðholti eða strætis- vagni nr. 11 á milli kl. 12 og 1 sl. föstudags- kvöld. í henni var skápa- lykill, bankakort, varalit- ur og peningar. Buddan sjálf er lítil kubbsleg leð- urbudda með tveimur hólfum. Finnandi er vin- samlega beðinn að skila buddunni, og hafa sam- band í síma 557-8838. Fríða. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um af- mæli, brúðkaup, ættarmót o.fl. lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingamar þurfa að berst með tveggjaúaga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fýrir helgar. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329 sent á netfangið: gusta@mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Dagók Morgunblaðsins, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Víkveríi skrifar... AÐ getur verið erfitt og dýrt á köflum að vera grænmetis- neytandi á íslandi en það er að minnsta kosti aldrei einhæft. Sveifl- urnar í framboði á tegundum, gæð- um, ferskleika og ekki síst verði eru það miklar að neytándinn veit aldrei að hverju hann gengur. Nú er genginn í garð sá tími að framboð íslensks grænmetis er það mikið að verð er orðið vel viðráðan- legt fyrir almennt launafólk. Vík- verji fékk einhvetja bestu tómata í Nóatúni á dögunum sem hann hefur séð svo mánuðum skiptir. Stórir, bragðmiklir, safaríkir og á góðu verði. xxx VÍKVERJI rak í þessum sama verslunarleiðangri augun í að byrjað væri að selja frosið og hálf- bakað franskt bakkelsi í stórmörk- uðum. Þessar vörur hafa verið á boðstólum hér um nokkurt skeið en einungis í sérverslunum. Þar sem Víkverji tilheyrir þeim hópi sem í gegnum árin og margar Frakklands- heimsóknir hefur ánetjast smjör- hornum (crðissants) og súkkulaði- brauðum að ekki sé minnst á löngu, mjóu „baguette“-franskbrauðin er það himnasending að geta gengið að þessum vörum vísum í stórmörk- uðunum, þar sem daglegar nauð- synjar eru oftast keyptar. Þótt smjörhorn og „snittubrauð" séu vissulega seld í flestum íslensk- um bakaríum er hreinlega ekki um sama hlutinn að ræða. Víkveiji leggur það því gjarnan á sig að klára baksturinn sjálfur á smjör- hornunum fyrir franska helgar- morgunverðinn. XXX AÐ eru ekki allir sammála um ágæti þeirrar „fótboltaveislu" sem nú er að hefjast. Gera má ráð fyrir því að á mörgum heimilum og jafnvel vinnustöðum muni almenn starfsemi leggjast niður í lengri og skemmri tíma á meðan. Sem betur gerir hins vegar fjölgun sjónvarps- stöðva það að verkum að þeir sem ekki myndu kenna þessa uppákomu við „veislu" af neinu tagi geta hald- ið sálarró sinni. HVER þjóð hefur sína siði. ís- lendingar telja það ekki í frá- sögur færandi að veiða og snæða hvali og seli þó svo að í mörgum öðmm ríkjum flokki flestir slíkt und- ir villimennsku. Hér á íslandi myndi líklega fólk rísa upp til handa og fóta ef hafnar yrðu veiðar á smáfugl- unum sem gleðja okkur yfír sumarið með söng sínum. I sumum ríkjum á meginlandi Evrópu eru hins vegar smáfuglarnir okkar flokkaðir sem sælkeramatur sem menn leggja mikið á sig til að komast yfir. 1 franskri matarbók, sem Víkveiji fletti á dögunum, var til að mynda að finna margar upp- skriftir að hvemig matreiða mætti þresti og einnig var tekið fram að lóa teldist vera einhver gómsætasti fugl sem til væri og hefði notið vin- sælda allt frá sautjándu öld. Hrossa- gaukur nýtur einnig nokkurra vin- sælda og er yflrleitt matreiddur á sama hátt og skógarsnípa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.