Morgunblaðið - 08.06.1996, Side 47

Morgunblaðið - 08.06.1996, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ1996 47 I DAG BRIDS Árnað heilla Umsjón Guðmiinriur Páll Arnarson „KOM EKKI spaði út?“ „Jú, jú.“ „Við hnekktum fjórutn hjðrtum með spaða út.“ „Þau vinnast alltaf." Vestur gefur, AV á hættu. Norður ♦ 875 V D87652 ♦ G 4 ÁD6 Vestur Austur ♦ KDG ♦ 6432 V G93 III ¥ 4 ♦ D32 ♦ Á754 ♦ 8542 Suður ♦ KG97 ♦ Á109 V AKIO ♦ K10986 ♦ 103 Vestur Norður Austur Suður Pass 2 tíglar* Pass 4 lauf** Pass 4 tíglar*** Pass 4 Hjörtu Pas? PágL_ Pass * Veikir tveir í háiit (Multi). ** Biður um yfírfærslu í hálitinn. *** Eins og um er beðið. GULLBRUÐKAUP. I dag, laugardaginn 8. júní, eiga fimmtíu ára hjúskaparaf- mæli hjónin Fjóla Bjarna- dóttir og Oddbergur Ei- ríksson, Grundarvegi 17, Ytri-Njarðvík. Þau verða að heiman í dag. 50 ÁRA afmæli. í dag, laugardaginn 8. júní, er fimmtugur Gunnar Hjal- talín, löggiltur endur- skoðandi, Sævangi 44, Hafnarfirði. Hann og eig- inkona hans Helga R. Stéf- ánsdóttir, taka á móti vin- um og vandamönnum 1 Kaffi Reykjavík milli kl. 16 og 19 í dag, afmælisdag- inn. Hlutavelta Útspil: Spaðakóngur. Vinnast alltaf? Það er nú það. Þrír sagnhafar töpuðu hjartageiminu á landsl- iðsæfingu síðastliðna helgi, en aðeins einn fékk tíu slagi: Jón Baldursson. Jón drap strax á spaða- ás, fór inn í borð á hjarta- drottningu og spilaði tígli. Austur dúkkaði og Jón stakk upp kóng. Spilaði síð- an tíguláttu og henti spaða úr borði. Austur átti þann slag á tígulás og spilaði spaða yfir til vesturs, sem sendi lauf í gegnum blind- an. Jón lét lítið og austur fékk á gosann. Hann spilaði spaða, sem Jón trompaði í borði, fór heim á hjarta og spilaði tígli. Þegar tígul- drottningin birtist var björninn unninn. Hún var trompuð, farið heim á hjarta og laufdrottningu kastað niður í frítígul. Gat vörnin gert betur? Hvað gerist ef austur sting- ur strax upp tígulás? Vörnin getur þá tekið tvo slagi á spaða, en eftir sem áður vinnst spilið ef sagnhafi trompsvínar fyrir tíg- uldrottningu, En því skyldi hann gera það frekar en svína laufdrottningu? (Vestur spilar auðvitað laufi eftir að hafa tekið á DG í spaða og neyðir sagnhafa til að taka strax ákvörðun.) Vissulega er um ágiskun að ræða, en sagnhafi hefur eina vísbendingu að styðjast við. Austur doblaði ekki fjóra tígla, sem hann hefði kannski gert með ÁD. Lá llÉÉs&l mi ÞESSAR duglegu stúlkur héldu hlutaveltu nýlega og færðu Krabbameinsfélagi Islands ágóðann sem varð 3.550 krónur. Þær heita Selma, Tinna, Katrína og Guðrún. ÞESSIR duglegu krakkar héldu tombólu nýlega og færðu Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra ágóðann sem varð 5.793 krónur. Þau heita Vala Olavsdóttir Hafstað, Halldór S. Viktorsson og Sæinundur S. Viktorsson. Pennavinir SAUTJÁN ára finnsk stúlka vill skrifast á við 16-20 ára pilta og stúlkur: Hanna Rinne, Auríngonkatu 6A3, 02210 Espoo, Finland. NÍTJÁN ára norsk stúlka með áhuga á tónlist o.fl.: Camilla Aarö, Marcus Thranes Gt. 17, 3045 Drammen, Norway. LEIÐRÉTT Nafn féll niður í INNGANGI að minn- ingargreinum um Jón Þor- kelsson frá Arnórsstöðum, sem birtist í blaðinu mið- vikudaginn 4. júní sl., féll niður nafn systur Jóns. Hún heitir Margrét Þorkelsdóttir og býr á Skjöldólfsstöðum í Jökuldal. INDVERSK kona, búsett í Danmörku, á fertugsaldri. Getur ekki áhugamála: Helene Chrístensen, Hejreskovalle 2B 2TV, 3050 Humlebæk, Denmark. TUTTUGU og niu ára sænskur karlmaður vill skrifast á við 18-30 ára konur: Pontus Tollesson, Bergsv&gen 8, S-457 30 Tanumshede, Sveríge. TUTTUGU og sjö ára jap- önsk kona í Kanada með áhuga á bréfaskriftum, vídeói, bókmenntum, ferða- lögum, ljósmyndun, teikn- ingu o.fl.: Ayako Yamamoto, P.O. Box 20186, Grantham Post Office, St. Catharines, ON L2M 7W7, Canada. SAUTJÁN ára bandarísk stúlka með áhuga á ljóðlist, útivist, kvikmyndum, tón- list o.fl.: Jenny Harp, 5134 E. 69th St., Indianapolis, IN 46220, U.S.A. TUTTUGU og fjögurra ára Ghanastúlka með áhuga á matseld, biblíufræðum, ferðalögum, tónlist o.fl.: Yvonne Smith, P.O. Box 897, Cape Coast, Castle Road, Ghana. TUTTUGU og níu ára bandarískur karlmaður með íslandsáhuga auk áhuga á útivist, íþróttum, o.m.fl: Brad E. Davis, 1112 Hooverview Dríve, Westerville, Ohio 43082, U.S.A. STJÖRNUSPA cftir Franccs Drakc I TVIBURAR Afmælisbarn dagsins: Þú kemur vel fyrir þig orðiíræðu ogriti og hefur áhuiga á þjóðmálum. Hrútur (21. mars- 19. apríl) ** Þú eyðir frístundunum í dag með ástvini og fjolskyldu og sinnir málefnum heimilisins. En í kvöld sækir þú sam- kvæmi. Naut (20. apríl - 20. máí) Itm Þú þarft tima útaf fyrir þig í dag til að sinna éinkamálun- um. En þvgar kvöldar váerí við hæfi að bjóða ástvini út. Tvíburar (21. maí - 20. júnf) 4» Þig langar að skemmta þér í dag og reyna eitthvað nýtt. En farðu að engu óðslega og varastu óhóflega eyðslu þeg- ar kvöldar. Krabbi (21. júnf - 22. júlí) HS6 Reyndu að koma til móts við óskir ástvinar í dag þótt þú hafir haft annað í huga. Breytingin verður ykkur báð- um til góðs. Ljón (23. júlf - 22. ágúst) Þú kemur miklu í verk árdeg- is, og getur því slakað á þeg- ar á daginn líður. Svo eiga ástvinir mjög ánægjulegt kvöld saman. Meyja (23. ágúst - 22. september) 3Í Þú nýtur þín í félagslífinu í dag, og sjálfstraust þitt fer vaxandi. Taktu enga áhætti í fjármálum, sem þú sérð eftir siðar. Vog (23. sept. - 22. október) Þig langar að heimsækja staði, sem þú hefur ekki kom- ið á áður, og ferðalag er í uppsiglingu. Sumir eignast nýja tómstundaiðju. Sporddreki (23. okt. - 21. nóvember) Þér gefst betri tími til að sinna verkefni, sem legið hefur á hakanum að undan- fömu. Varastu óþarfa af- brýðisemi í garð ástvinar. Bogmaóur (22. nóv. - 21. desember) Láttu ekki smámuni sem engu skipta spilla góðu sam- bandi við ástvin í dag. Reyndu að sýna meiri skiln- ing og umburðarlyndi. Steingeit (22. des. - 19.janúar) Hugsaðu vel um fjármuni þína, því óhófleg eyðsla getur valdið þér áhyggjum síðar, Góð skemmtun þarf ekki að vera dýrkeypt. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðh Þú ert eitthvað eirðarlaus árdegis, en úr rætist á skemmtilegum vinafundi, þar sem þér berast ánægjulegar fréttir. Fiskar (19. febrúar- 20. mars) Þú þarft að hugsa betur um fjármálin, því þú hefur til- hneigingu til að eyða meiru en þú aflar. Ættingi getur gefið góð ráð. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Hjartans þakkir sendi ég til dœtra minna og tengdasona fyrir stórkostlega veislu. Einnig þakka ég öllum, sem glöddu mig með gjöfum, blómum og skeytum d níutiu ára afmœli mínu. Guð blessi ykkur öll. Sigríður Jónsdóttir, Garði, Mývatnssveit. O Folaldakjöt á grillidl taðreykt hangikjöt og lambagrillkjöt frá kr. 498,- kg. kr. 459,- kg Folaldakjöt á grillið er nýjung sem hefúr heldur betur slcgið í gegn. Um . helgina er Benni hinn kjötgóði með ljúfengt folaldagrillkjöt, bragðgott taðreykt hangikjöt, ostafylltar steikur og margt fleira á góðu verði. _ * Landsfræga áleggið hans Benna er ennþá á gamla góða verðinu þínu. 0 Nýr lax-iprengitilb. ..bu kaupir eitt kq af ýsuflokum og fa kr. 369 kg þu kaupir eitt kg af ýsuflokum og færð annað frítt Fiskbúðin Okkar hefur stuðlað að lægra vöruverði og býður landsins mesta úrval af fiski. Um helgina er boðið upp á nýjan lax á sprengitilboði kr. 369,- kílóið, fallega Rauðsprettu, glænýja smálúðu, sjósiginn fisk, grá- sleppu, fiskibökur, grillpinna, svartfiiglsegg, Háf og Tindabykkju. KOLAPORTIÐ .skemmtilegt og hagkvæmt TILKYNNING FRA DÓMSMÁLARÁÐUNEYTINU um ísetningu ökurita sem skráir aksturs- og hvíldartíma ökumanna. Dómsmálaráðuneytið hefur gert samkomulag við Vegagerðina um framkvæmd reglna um aksturs- og hvíldartíma ökumanna í innanlands- flutningum. Nokkur verkstæði hafa verið faggilt til að annast frágang ökurita í bifreiðir og önnur eru á lokastigi faggildingar. Ekkert á að vera því til fyrir- stöðu að eigendur (umráðamenn) bifreiða, sem ber skylda tll að hafa viðurkenndan ökurita í bifreiðinni og ekki hafa þegar látið viðurkenna hann á faggiltu verkstæði, láti gera það. Lögregla og vegaeftirlitsmenn munu fylgjast með að gengið verði frá viðurkenndum ökurita í bifreiðir sem skulu hafa slíkan búnaö og að öllum reglum um aksturs- og hvíldartíma verði framfylgt. Eftirfylgnin verður þessi: a. Frá og með 1. júlí nk. skal eigandi (umráðamaður) bifreiðar hafa látið ganga frá ökurita í hana á faggiltu mælaverkstæði, eða a.m.k. vera með skriflega staðfestingu í bifreiðinni um að hann hafi frátekinn tíma á slíku verkstæði til að láta ganga frá ökurita í bifreiðina. b. Frá og með 1. ágúst nk. skal eigandi (umráðamaður) bifreiðar hafa látið ganga frá ökurita í bifreiðina á faggiltu mælaverkstæði. Fyrst um sinn verður eftirfylgnin mest á þeim svæðum þar sem mæla- verkstæði hafa verið samþykkt og gagnvart þeim bifreiðum og öku- mönnum, sem eru í langakstri. Vegagerðin og lögregla hafa heimild til að fresta aðgerðum í landshlutum þar sem eigendur (umráðamenn) þifreiða hafa ekki haft aðstöðu til að fá ökurita viðurkennda í bifreiðir, enda sé bif- reiðin þá ekki notuð utan þess svæðis. Til þess að komast hjá óþægindum eru eigendur (umráðamenn) bif- reiða sem falla undir þá skyldu að hafa viðurkenndan ökurita í ökutækinu til að skrá aksturs- og hvíldartíma ökumanna á skráningarblað, eindregið hvattir til að hlíta í öllu reglum, sem dómsmálaráðuneytið hefur gefið út um aksturs- og hvíldartíma o.fl. í innanlandsflutningum og við flutning innan Evrópska efnahagssvæðisins, sbr. reglugerð nr. 136/1995. Vegagerðin mun veita allar nánari upplýsingar um framkvæmd regln- anna, ísetningu á ökuritum og eftlrlit með aksturs- og hvíldartíma öku- manna. Dómsmálaráðuneytið, 4. júní 1996. F.h.r. <$Tc;wí!vL (■ U 0

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.