Morgunblaðið - 08.06.1996, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ1996 47
I DAG
BRIDS
Árnað heilla
Umsjón Guðmiinriur Páll
Arnarson
„KOM EKKI spaði út?“
„Jú, jú.“
„Við hnekktum fjórutn
hjðrtum með spaða út.“
„Þau vinnast alltaf."
Vestur gefur, AV á
hættu.
Norður
♦ 875
V D87652
♦ G
4 ÁD6
Vestur Austur
♦ KDG ♦ 6432
V G93 III ¥ 4
♦ D32 ♦ Á754
♦ 8542 Suður ♦ KG97
♦ Á109
V AKIO
♦ K10986
♦ 103
Vestur Norður Austur Suður
Pass 2 tíglar* Pass 4 lauf**
Pass 4 tíglar*** Pass 4 Hjörtu
Pas? PágL_ Pass
* Veikir tveir í háiit (Multi).
** Biður um yfírfærslu í hálitinn.
*** Eins og um er beðið.
GULLBRUÐKAUP. I dag,
laugardaginn 8. júní, eiga
fimmtíu ára hjúskaparaf-
mæli hjónin Fjóla Bjarna-
dóttir og Oddbergur Ei-
ríksson, Grundarvegi 17,
Ytri-Njarðvík. Þau verða
að heiman í dag.
50
ÁRA afmæli. í dag,
laugardaginn 8. júní,
er fimmtugur Gunnar Hjal-
talín, löggiltur endur-
skoðandi, Sævangi 44,
Hafnarfirði. Hann og eig-
inkona hans Helga R. Stéf-
ánsdóttir, taka á móti vin-
um og vandamönnum 1
Kaffi Reykjavík milli kl.
16 og 19 í dag, afmælisdag-
inn.
Hlutavelta
Útspil: Spaðakóngur.
Vinnast alltaf? Það er nú
það. Þrír sagnhafar töpuðu
hjartageiminu á landsl-
iðsæfingu síðastliðna helgi,
en aðeins einn fékk tíu
slagi: Jón Baldursson.
Jón drap strax á spaða-
ás, fór inn í borð á hjarta-
drottningu og spilaði tígli.
Austur dúkkaði og Jón
stakk upp kóng. Spilaði síð-
an tíguláttu og henti spaða
úr borði. Austur átti þann
slag á tígulás og spilaði
spaða yfir til vesturs, sem
sendi lauf í gegnum blind-
an. Jón lét lítið og austur
fékk á gosann. Hann spilaði
spaða, sem Jón trompaði í
borði, fór heim á hjarta og
spilaði tígli. Þegar tígul-
drottningin birtist var
björninn unninn. Hún var
trompuð, farið heim á
hjarta og laufdrottningu
kastað niður í frítígul.
Gat vörnin gert betur?
Hvað gerist ef austur sting-
ur strax upp tígulás? Vörnin
getur þá tekið tvo slagi á
spaða, en eftir sem áður
vinnst spilið ef sagnhafi
trompsvínar fyrir tíg-
uldrottningu, En því skyldi
hann gera það frekar en
svína laufdrottningu?
(Vestur spilar auðvitað laufi
eftir að hafa tekið á DG í
spaða og neyðir sagnhafa
til að taka strax ákvörðun.)
Vissulega er um ágiskun
að ræða, en sagnhafi hefur
eina vísbendingu að styðjast
við. Austur doblaði ekki
fjóra tígla, sem hann hefði
kannski gert með ÁD.
Lá llÉÉs&l mi
ÞESSAR duglegu stúlkur héldu hlutaveltu nýlega og
færðu Krabbameinsfélagi Islands ágóðann sem varð
3.550 krónur. Þær heita Selma, Tinna,
Katrína og Guðrún.
ÞESSIR duglegu krakkar héldu tombólu nýlega og
færðu Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra ágóðann
sem varð 5.793 krónur. Þau heita Vala Olavsdóttir
Hafstað, Halldór S. Viktorsson og
Sæinundur S. Viktorsson.
Pennavinir
SAUTJÁN ára finnsk
stúlka vill skrifast á við
16-20 ára pilta og stúlkur:
Hanna Rinne,
Auríngonkatu 6A3,
02210 Espoo,
Finland.
NÍTJÁN ára norsk stúlka
með áhuga á tónlist o.fl.:
Camilla Aarö,
Marcus Thranes Gt. 17,
3045 Drammen,
Norway.
LEIÐRÉTT
Nafn féll niður
í INNGANGI að minn-
ingargreinum um Jón Þor-
kelsson frá Arnórsstöðum,
sem birtist í blaðinu mið-
vikudaginn 4. júní sl., féll
niður nafn systur Jóns. Hún
heitir Margrét Þorkelsdóttir
og býr á Skjöldólfsstöðum
í Jökuldal.
INDVERSK kona, búsett í
Danmörku, á fertugsaldri.
Getur ekki áhugamála:
Helene Chrístensen,
Hejreskovalle 2B 2TV,
3050 Humlebæk,
Denmark.
TUTTUGU og niu ára
sænskur karlmaður vill
skrifast á við 18-30 ára
konur:
Pontus Tollesson,
Bergsv&gen 8,
S-457 30 Tanumshede,
Sveríge.
TUTTUGU og sjö ára jap-
önsk kona í Kanada með
áhuga á bréfaskriftum,
vídeói, bókmenntum, ferða-
lögum, ljósmyndun, teikn-
ingu o.fl.:
Ayako Yamamoto,
P.O. Box 20186,
Grantham Post Office,
St. Catharines,
ON L2M 7W7,
Canada.
SAUTJÁN ára bandarísk
stúlka með áhuga á ljóðlist,
útivist, kvikmyndum, tón-
list o.fl.:
Jenny Harp,
5134 E. 69th St.,
Indianapolis, IN 46220,
U.S.A.
TUTTUGU og fjögurra ára
Ghanastúlka með áhuga á
matseld, biblíufræðum,
ferðalögum, tónlist o.fl.:
Yvonne Smith,
P.O. Box 897,
Cape Coast,
Castle Road,
Ghana.
TUTTUGU og níu ára
bandarískur karlmaður
með íslandsáhuga auk
áhuga á útivist, íþróttum,
o.m.fl:
Brad E. Davis,
1112 Hooverview
Dríve,
Westerville,
Ohio 43082,
U.S.A.
STJÖRNUSPA
cftir Franccs Drakc
I
TVIBURAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú kemur vel fyrir þig
orðiíræðu ogriti
og hefur áhuiga
á þjóðmálum.
Hrútur
(21. mars- 19. apríl) **
Þú eyðir frístundunum í dag
með ástvini og fjolskyldu og
sinnir málefnum heimilisins.
En í kvöld sækir þú sam-
kvæmi.
Naut
(20. apríl - 20. máí) Itm
Þú þarft tima útaf fyrir þig
í dag til að sinna éinkamálun-
um. En þvgar kvöldar váerí
við hæfi að bjóða ástvini út.
Tvíburar
(21. maí - 20. júnf) 4»
Þig langar að skemmta þér
í dag og reyna eitthvað nýtt.
En farðu að engu óðslega og
varastu óhóflega eyðslu þeg-
ar kvöldar.
Krabbi
(21. júnf - 22. júlí) HS6
Reyndu að koma til móts við
óskir ástvinar í dag þótt þú
hafir haft annað í huga.
Breytingin verður ykkur báð-
um til góðs.
Ljón
(23. júlf - 22. ágúst)
Þú kemur miklu í verk árdeg-
is, og getur því slakað á þeg-
ar á daginn líður. Svo eiga
ástvinir mjög ánægjulegt
kvöld saman.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) 3Í
Þú nýtur þín í félagslífinu í
dag, og sjálfstraust þitt fer
vaxandi. Taktu enga áhætti
í fjármálum, sem þú sérð
eftir siðar.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þig langar að heimsækja
staði, sem þú hefur ekki kom-
ið á áður, og ferðalag er í
uppsiglingu. Sumir eignast
nýja tómstundaiðju.
Sporddreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þér gefst betri tími til að
sinna verkefni, sem legið
hefur á hakanum að undan-
fömu. Varastu óþarfa af-
brýðisemi í garð ástvinar.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember)
Láttu ekki smámuni sem
engu skipta spilla góðu sam-
bandi við ástvin í dag.
Reyndu að sýna meiri skiln-
ing og umburðarlyndi.
Steingeit
(22. des. - 19.janúar)
Hugsaðu vel um fjármuni
þína, því óhófleg eyðsla getur
valdið þér áhyggjum síðar,
Góð skemmtun þarf ekki að
vera dýrkeypt.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þú ert eitthvað eirðarlaus
árdegis, en úr rætist á
skemmtilegum vinafundi, þar
sem þér berast ánægjulegar
fréttir.
Fiskar
(19. febrúar- 20. mars)
Þú þarft að hugsa betur um
fjármálin, því þú hefur til-
hneigingu til að eyða meiru
en þú aflar. Ættingi getur
gefið góð ráð.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Hjartans þakkir sendi ég til dœtra minna og
tengdasona fyrir stórkostlega veislu. Einnig
þakka ég öllum, sem glöddu mig með gjöfum,
blómum og skeytum d níutiu ára afmœli mínu.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Jónsdóttir,
Garði,
Mývatnssveit.
O Folaldakjöt á grillidl
taðreykt hangikjöt og lambagrillkjöt frá kr. 498,- kg.
kr. 459,- kg
Folaldakjöt á grillið er nýjung sem hefúr heldur betur slcgið í gegn. Um
. helgina er Benni hinn kjötgóði með ljúfengt folaldagrillkjöt, bragðgott
taðreykt hangikjöt, ostafylltar steikur og margt fleira á góðu verði.
_ * Landsfræga áleggið hans Benna er ennþá á gamla góða verðinu þínu.
0 Nýr lax-iprengitilb.
..bu kaupir eitt kq af ýsuflokum og fa
kr. 369 kg
þu kaupir eitt kg af ýsuflokum og færð annað frítt
Fiskbúðin Okkar hefur stuðlað að lægra vöruverði og býður landsins
mesta úrval af fiski. Um helgina er boðið upp á nýjan lax á sprengitilboði
kr. 369,- kílóið, fallega Rauðsprettu, glænýja smálúðu, sjósiginn fisk, grá-
sleppu, fiskibökur, grillpinna, svartfiiglsegg, Háf og Tindabykkju.
KOLAPORTIÐ
.skemmtilegt og hagkvæmt
TILKYNNING FRA
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTINU
um ísetningu ökurita sem skráir aksturs- og
hvíldartíma ökumanna.
Dómsmálaráðuneytið hefur gert samkomulag við Vegagerðina um
framkvæmd reglna um aksturs- og hvíldartíma ökumanna í innanlands-
flutningum.
Nokkur verkstæði hafa verið faggilt til að annast frágang ökurita í
bifreiðir og önnur eru á lokastigi faggildingar. Ekkert á að vera því til fyrir-
stöðu að eigendur (umráðamenn) bifreiða, sem ber skylda tll að hafa
viðurkenndan ökurita í bifreiðinni og ekki hafa þegar látið viðurkenna
hann á faggiltu verkstæði, láti gera það.
Lögregla og vegaeftirlitsmenn munu fylgjast með að gengið verði frá
viðurkenndum ökurita í bifreiðir sem skulu hafa slíkan búnaö og að öllum
reglum um aksturs- og hvíldartíma verði framfylgt.
Eftirfylgnin verður þessi:
a. Frá og með 1. júlí nk. skal eigandi (umráðamaður) bifreiðar
hafa látið ganga frá ökurita í hana á faggiltu mælaverkstæði,
eða a.m.k. vera með skriflega staðfestingu í bifreiðinni um að
hann hafi frátekinn tíma á slíku verkstæði til að láta ganga frá
ökurita í bifreiðina.
b. Frá og með 1. ágúst nk. skal eigandi (umráðamaður) bifreiðar
hafa látið ganga frá ökurita í bifreiðina á faggiltu mælaverkstæði.
Fyrst um sinn verður eftirfylgnin mest á þeim svæðum þar sem mæla-
verkstæði hafa verið samþykkt og gagnvart þeim bifreiðum og öku-
mönnum, sem eru í langakstri. Vegagerðin og lögregla hafa heimild til að
fresta aðgerðum í landshlutum þar sem eigendur (umráðamenn) þifreiða
hafa ekki haft aðstöðu til að fá ökurita viðurkennda í bifreiðir, enda sé bif-
reiðin þá ekki notuð utan þess svæðis.
Til þess að komast hjá óþægindum eru eigendur (umráðamenn) bif-
reiða sem falla undir þá skyldu að hafa viðurkenndan ökurita í ökutækinu
til að skrá aksturs- og hvíldartíma ökumanna á skráningarblað, eindregið
hvattir til að hlíta í öllu reglum, sem dómsmálaráðuneytið hefur gefið út
um aksturs- og hvíldartíma o.fl. í innanlandsflutningum og við flutning
innan Evrópska efnahagssvæðisins, sbr. reglugerð nr. 136/1995.
Vegagerðin mun veita allar nánari upplýsingar um framkvæmd regln-
anna, ísetningu á ökuritum og eftlrlit með aksturs- og hvíldartíma öku-
manna.
Dómsmálaráðuneytið, 4. júní 1996.
F.h.r.
<$Tc;wí!vL (■
U 0