Morgunblaðið - 12.06.1996, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C/D/E
131. TBL. 84.ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
NATO-herlið
verði áfram
Dole lætur
af þing-
mennsku
BOB Dole, forseti bandarísku öld-
ungadeildarinnar, sagði í gær af
sér þingmennsku til að geta ein-
beitt sér af fullum krafti að kosn-
ingabaráttunni vegna forseta-
kosninganna í haust. Dole hefur
setið 35 ár á Bandaríkjaþingi og
verið leiðtogi repúblikana í öld-
ungadeildinni í ellefu ár. Ahorf-
endapallar í þinginu voru þétt-
setnir er Dole flutti lokaræðu
sína. Risu gestir úr sætum að
henni lokinni og hylltu Dole ásamt
þingmönnum með lófataki þrárt
fyrir bann við slíku í þinginu.
Phil Gramm, er keppti við Dole
um að verða útnefndur forseta-
efni repúblikana, sagði í ræðu að
Dole væri „mesti þingmaður síns
tíma“ og myndi skipa veglegan
sess í sögu þingsins. Á myndinni
gengur Dole til þingfundar ásamt
Newt Gingrich, forseta fulltrúa-
deildarinnar.
Boðar stöðugleika eftir
Tsj etsj níj u-samkomulag
í Bosníu
Sarajevo. Reutcr.
YFIRMAÐUR NATO-herliðsins í
Bosníu sagði í gær, að hugsanlega
yrði liðið að vera þar lengur en
áætlað hafði verið. Eru þessi um-
mæli talin besta vísbendingin til
þessa um að vestræn ríki séu að búa
sig undir að framlengja friðargæsl-
una.
Haft er eftir vestrænum stjórnar-
erindrekum, að þótt stefnt sé að
kosningum í Bosníu í haust, verði
nauðsynlegt að hafa friðargæsluiiðið
í landinu langt fram á næsta ár til
að tryggt sé, að staðið verði við frið-
arsamningana.
Að undanförnu hafa vestrænir
ráðamenn talað opinskátt um, að
herliðið, 60.000 manns, verði áfram
í Bosníu en þetta mál er mjög við-
kvæmt í Bandaríkjunum vegna for-
setakosninganna þar í haust. Bill
Clinton, forseti Bandaríkjanna, hét
því í desember að kalla bandaríska
herliðið, 20.000 manns, heim innan
árs og það verður erfitt fyrir hann
að hætta við það.
20.000 manna lið
Sir Michael Walker hershöfðingi
og yfirmaður NATO-herliðsins sagði
aftur á móti í Sarajevo í gær, að
ekki yrði komist hjá því öllu lengur
að taka þetta mál til umræðu.
Virðast ráðamenn í Kanada og
Frakklandi tilbúnir til að styðja
áframhaldandi dvöl herliðsins en
Michael Portiilo, varnarmálaráð-
herra Bretlands, sagði í gær, að
Bretar myndu ekki hafa sitt herlið
áfram í Bosníu nema Bandaríkja-
menn gerðu það einnig. Vestrænir
hernaðarsérfræðingar telja nauð-
synlegt að hafa um 20.000 manna
lið áfram í Bosníu.
Reuter.
Fríverslun ekki
forgangsatriði
Washington. Reuter.
BANDARÍKJAMENN telja það ekki
forgangsatriði að ná fríverslunar-
samningi við Evrópu, að mati setts
aðstoðarutanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, Johns Kornblum.
Kornblum sagði á fundi í gær, að
þótt mikið væri rætt og ritað um slík-
an samning, væri „þetta ekki neitt
sem við teljum vera mikilvægasta
verkefni okkar nú. Við teljum mun
mikilvægara að sinna þeim málefnum
sem enn stía okkur í sundur.
Við höfum kosið þá aðferð, sem
við og vinir okkar í Evrópu höfum
komið okkur saman um, að einbeita
okkur að þeim sviðum þar sem raun-
verulegra úrbóta er þörf fremur en
leita altækra kenninga um hvernig
bæta megi ástandið í einu stóru
skrefi," sagði Kornblum.
Evrópskt sjónvarp
Hafna
hertum
kvótum
Lúxemborg. Reuter.
RÁÐHERRARÁÐ Evrópu-
samþandsins útilokaði í gær í
eitt skipti fyrir öll að hertir
yrðu kvótar á bandariskt sjón-
varpsefni í útsendingum evr-
ópskra sjónvarpsstöðva. Var
ákveðið að tilskipun um sjón-
varpsmál frá árinu 1989 skyldi
standa óbreytt.
Evrópuþingið hefur lagt
áherslu á að settar verði
strangari reglur til að vernda
framleiðendur evrópsks sjón-
varpsefnis gegn bandarískri
samkeppni. Samkvæmt lögun-
um frá 1989 á um helmingur
sjónvarpsefnis að vera evrópsk
framleiðsla en þó einungis
„þar sem því verður við kom-
ið“. Verður það orðalag
óbreytt.
Þá hafa ráðherrarnir hafnað
kröfum Evrópuþingsins um að
nýjar tegundir fjölmiðla falli
undir lögin og að settar verði
sérstakar tölvuflögur í sjón-
varpstæki er geri foreldrum
kleift að koma í veg fyrir að
börn þeirra horfi á tiltekna
þætti.
Reuter
BORIS Jeltsín Rússlandsforseti sveiflar sverði er hann fékk að
gjöf er hann heimsótti kósakkaborgina Novotsjerkassk í gær.
Borís Jeltsín Rússlandsforseti með
forskot í enn einni skoðanakönnun
Moskvu. Reuter.
BORIS Jeltsín, forseti Rússlands, hét
kjósendum í gær stöðugleika, næði
hann kjöri, en atburðir í Tsjetsjníju
báru því vitni að erfitt verður að
fylgja eftir friðarsamkomulaginu,
sem samningamenn Rússa og tsjetsj-
enskra aðskilnaðarsinna undirrituðu
á mánudag.
Óháð félagsfræðistofnun, sem til
þessa hefur birt skoðanakannanir,
er bentu til að Gennadí Zjúganov,
forsetaframbjóðandi kommúnista,
hefði forskot á Jeltsín, greindi í gær
frá því að nýjasta könnun hennar
sýndi að forsetinn hefði nú sigið fram
úr. Samkvæmt könnuninni, sem tók
til 6.000 rússneskra kjósenda, nýtur
Jeltsín fylgis 40 af hundraði, en Zjúg-
anov 31 af hundraði. Stofnunin er
sögð gera einna ábyggilegustu skoð-
anakannanirnar í Rússlandi.
Nokkuð er síðan aðrar kánnanir
gáfu til kynna að Jeltsín hefði tekið
forystuna.
Áð minnsta kosti sex særðust þeg-
ar sprengjur sprungu í tvígang við
bílalest samningamanna uppreisnar-
manna og alþjóðlegra sáttasemjara,
sem voru á leið frá viðræðunum við
Rússa í bænum Nazran í Ingúsjetíu,
sem liggur að Tsjetsjníju, til Grozní.
Friðarsamkomulaginu er ætlað að
binda enda á 18 mánaða átök í
Tsjetsjníju. Samkvæmt því skulu
rússneskir hermenn kvaddir brott frá
Tsjetsjníju fyrir ágústlok og tsjetsj-
enskir skæruliðar eiga að afvopnast.
Talið er að samkomulagið auki
sigurlíkur Jeltsíns jafnvel þótt það
leiði ekki til varanlegrar lausnar.
Sprengjutilræði í Moskvu
Þrír létu lífið er sprengja sprakk
í neðanjarðarlest í Moskvu í gær.
Júrí Luzhkov, borgarstjóri Moskvu,
sagði hryðjuverkamenn er vildu
trufla kosningarnar á sunnudag bera
ábyrgð á sprengingunni.
■ Fylgislaus en neitar/22
Ný stjórn í Færeyjum
Þórshöfn. Morgunblaðid.
EDMUND Joensen, leiðtogi Sam-
bandsflokksins, myndaði nýja land-
stjórn á Færeyjum í gær en fyrri
stjórn hans missti meirihluta sinn á
lögþinginu í síðustu viku eftir að jafn-
aðarmenn gengu úr stjórn.
Fyrir utan Sambandsflokkinn á
Fólkaflokkurinn aðild að stjórninni
auk Sjálfstjórnarflokksins ogtveggja
óháðra vinstrimanna, sem á sínum
tíma voru kosnir á þing fyrir Verka-
mannahreyfinguna.
Ekki hafði enn verið gengið end-
anlega frá ráðherralista í gær en í
færeyskum fjölmiðlum voru miklar
vangaveltur um að John Petersen frá
Fólkaflokki tæki við embætti sjávar-
útvegsráðherra eða jafnvel fjármála-
ráðherra. Stjórnin liefur stuðning 17
lögþingsmanna af 32.