Morgunblaðið - 12.06.1996, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 1996
AÐSENDAR GREINAR • FORSETAKJÖR
MORGUNBLAÐIÐ
Hvað gerir Olafur
Ragnar í sumar?
í 10. GREIN stjórn-
arskrárinnar stendur:
„Forseti vinnur eið
eða drengskaparheit
að stjórnarskránni, er
hann tekur við störf-
um.“
Gera verður ráð
fyrir því sem mögu-
leika að Ólafur Ragn-
ar Grímsson verði
kosinn forseti. Fyrir
dómi hefur hann lýst
því yfir að hann trúi
ekki á guð. Því varð
hann lögum sam-
kvæmt að vinna
drengskaparheit til að
staðfesta framburð sinn í mikil-
vægu dómsmáli. Sjálfur hefur
hann nýlega sagt, oftar en einu
sinni, að hann hafi ekki viljað
leggja hönd á helga bók í þessu
máli af því að um hafi verið að
ræða „borgaraleg réttarhöld“. Á
íslandi hefur aldrei verið neitt til
sem heitir borgaraleg réttarhöld.
Maður horfír á það undrandi og
hryggur á það, að forsetafram-
bjóðandi skuli bera svona bull á
borð til þess að tala
sig út úr þeirri sjálf-
heldu, að hafa annað-
hvort skýrt rangt frá
fyrir dómi, eða segja
þjóðinni nú ósatt um
trú sína.
Ef Ólafur Ragnar
Grímsson verður kjör-
inn forseti, leiðir það
af 10. grein stjórnar-
skrárinnar, að hann
mun aftur standa
frammi fyrir þeirri
spurningu hvort hann
trúi á guð. Þjóðin á
rétt á því að hann segi
henni svarið fyrir
kosningar. Ætlar hann, ef hann
verður forseti, að segja að hann
trúi ekki á guð eins og hann gerði
fyrir dómi? Eða ætlar hann að
segja að hann trúi á guð og sveija
trúarlegan eið og viðurkenna þar
með, að hann hafi sagt ósatt fyrir
rétti?
MAGNÚS ÓSKARSSON
Höfundur er hæsta■
réttarlögmaður.
Magnús
Óskarssonm
Stökktu til
Benidorm
25. júní
fyrir kr. 29*932
í 2 vikur
ÍBókaðu
Við seljum nú síðustu sætin til Benidorm y
25. júní og bjóðum þér einstakt ferðatilboð tflCðaO -
þar sem þú getur notið þess besta í yndislegu efu
veðri á Benidorm í júní.
Þannig gengur það fyrir sig:
Við höfum tryggt okkur viðbótargistingu á frábærum kjörum.
Þú bókar á mánudag eða þriðjudag og tryggir þér sæti og gistingu
og fimm dögum fyrir brottför hringjum við í þig og segjum þér
hvar þú gistir í fríinu.
29.932
Verð kr.
M.v hjón með 2 börn, 2-11 ára, 2 vikur.
Skattar innifaldir.
39.960
Verð kr.
M.v 2 fullorðna í íbúð, 25. júní, 2 vikur.
Skattar innifaldir.
VISA
EIMSFERÐ
Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 562 4600.
- kjarni málsins!
Hæfastur fram-
bjóðenda
„SKRIPALÆTI",
„leynistarfsemi og
bellibrögð,, — þessi
„sjálfumglaði fram-
bjóðandi“ ætlar að
„laumast bakdyrameg-
in í forsetabústaðinn á
Bessastöðum“.
„Tildurherra“ lætur
hengja upp af sér
„skartmyndir" og
skoðar forsetakjörið
sem „einskonar feg-
urðarsamkeppni", en
„mistök“ hans og „víxl-
spor“ sýna og sanna
„að honum er ekki
treystandi til að rækja
það embætti sem hann
keppir að og ætlast til að honum
sé trúað fyrir“.
„Einn aðalhvatamaður klofnings-
ins“ í flokki sínum, og hefði enginn
samflokksmaður hans þá „látið sér
detta í hug að hann mundi styðja"
hann „til mestu valda á íslandi", —
„við sem þekktum aðkomuna" eftir
að hann lauk störfum sem fjármála-
ráðherra hefðum aldrei trúað því
að „sá maður sem þá lét af völdum
... mundi reyna að þrengja sér inn
í æðsta valdasæti þjóðarinnar".
„Sjálfsdýrkunin og metnaðarlöng-
unin hefur auðsjáanlega slegið hann
algerri blindu.“ -
Þetta eru nokkur af þeim ummæl-
um sem viðhöfð voru um frambjóð-
anda í „einHVerri hörðustu orrahríð
sem fram hefur farið á síðum Morg-
unblaðsins", eins og Matthías Jo-
hannessen komst að orði.
Frambjóðandinn hafði verið þátt-
takandi í stjórnmálum,
meðal annars sem íjár-
málaráðherra og for-
sætisráðherra. Meðal
þess sem haft var gegn
honum í kjörinu var
íslandsbankamáíið
1930, þingrofið 1931,
ferill hans í ljármála-
ráðuneytinu í heims-
kreppunni, lausn kjör-
dæmamálsins, flokka-
skipti og hinar svo-
nefndu „Spánarmút-
ur“.
Frambjóðandinn var
Ásgeir Ásgeirsson, og
má lesa þessi ummæli
meðal annarra í hinni
ágætu ævisögu hans eftir Gylfa
Gröndal _ (Forlagið 1992). Sjálfur
svaraði Ásgeir þessum málflutningi
svo í framboðsræðu í útvarpi þrem-
ur dögum fyrir kosningar:
„Kosningahríð þeirri sem nú
gengur yfir mun senn slota. Hríðin
er svörtust í blöðum og yfir höfðum
nokkurra stjórnmálamanna sem enn
skiija ekki hið sérstaka eðli forseta-
kosninga. En almenningur hefur séð
til sólar — bændur, sjómenn, iðnað-
armenn, verkamenn og aðrar stéttir
— furðu heiðskírt er víða. Þjóðin
lítur á forsetakjör sem heilaga
skyldu, sem hún mun rækja eftir
bestu samvisku og sannfæringu, og
spyr um það eitt: hver sé hæfastur.“
Einn stuðningsmanna hans sagði
þetta í ræðu daginn fyrir kjördag:
„Það er lýðræði að óskir fólksins
og vilji þess ráði. Það er röng að-
ferð að láta valdboð að ofan frá
Misnotkun for-
setaembættisins
ÞAÐ VAR fróðlegt
að fylgjast með Ólafi
Ragnari Grímssyni for-
setaframbjóðanda á
Stöð 2 að kvöldi hins
fimmta þessa mánaðar.
Þar fullyrti hann að
sjálfur væri hann flest-
um hæfari til að fara
með hlutverk forseta
Islands við stjómar-
myndanir. Sagðist
hann ekki einungis hafa
mikla þekkingu á hlut-
verki forseta íslands
vegna fyrri starfa sinna
heldur einnig sem mik:
ill „fræðimaður". í
þessu máli, sem flestum
öðrum, er reynslan traustari heimild
um Ólaf Ragnar Grímsson en sú
mynd sem hann sjálfur reynir nú
að draga upp af sér.
Hlutleysi Ólafs Ragnars
í fyrra var Ólafur Ragnar Gríms-
son formaður Alþýðubandalagsins.
Að loknum kosningum í apríl ákváðu
Framsóknarflokkur og Sjálfstæðis-
Glœsileg
kristallsglös
ímíklu
úrvali \
fch SILFURBÚÐIN
Kringlunni 8-12 • Sími 568 9066
- Þar fœröu gjöfina -
flokkur að mynda ríkis-
stjórn. Var sú ákvörðun
tilkynnt opinberlega og
stóðu á bak við hana
40 þingmenn af 63.
Ólafur Ragnar lagði
afar hart að formanni
Framsóknarflokksins,
Halldóri Ásgrímssyni,
að ijúfa samninginn við
Sjálfstæðisflokkinn og
efna til vinstri stjórnar.
Halldór neitaði þessu
alfarið. Daginn eftir
lagði Halldór til við for-
seta íslands að for-
manni Sjálfstæðis-
flokksins yrði falið að
mynda ríkisstjórn með
Framsóknarflokki. Hvað gerist þá?
Þá gengur margnefndur Ólafur
Ragnar á fund frú Vigdísar Finn-
bogadóttur og hvetur hana eindregið
til að hunsa þessa tillögu Halldórs
en fela Halldóri sjálfum að mynda
vinstri stjórn, allt aðra stjórn en
Framsóknarflokkurinn og meiri hluti
Alþingis vildu. Persónulegar skoðan-
ir Ólafs á „sögulegu tækifæri" til
* Skrifstofu- og
rekstrarvörur
• Plasthúðun - innbinding
• Vélar - tæki - búnaður
• Prentborðar - dufthylki
- blekfyllingar
ISO-9000 gæðatrygging
• Leiðir til sparnaðar
J. ÓSTVRLDSSON HF.
Skipholti 33, 105 Reykjovík, sími 533 3535.
Haraldur
Johannessen
knýja fólkið til fylgis. Flest okkar
eru í flokki. Það er gott að vera
góðir flokksmenn, en flokksþrælar
viljum vér ekki vera. ... Látum
kosningarnar á morgun verða ævar-
andi áminningu til allra þeirra sem
vilja beygja vilja fólksins og sann-
færingu. Látum morgundaginn
verða lofgjörð til lýðræðisins."
Þetta var Gunnar Thoroddsen,
28. júní 1952.
Af fjölmörgum athyglisverðum
umsögnum um feril Ásgeirs Ás-
geirssonar leyfi ég mér að vekja
athygli á þessum orðum Ólafs Jó-
hannessonar í Tímanum 12. október
1972:
„Um stjórnmálastörf Ásgeirs Ás-
geirssonar verður sjálfsagt deilt, og
dómar felldir, svo sem um starfsemi
annarra þeirra er á því sviði standa.
Um hitt hygg ég að öll þjóðin sé
sammála að hann hafi rækt sitt
langa forsetastarf svo sem best varð
á kosið. Þar naut hann sín vel, vann
sér hvarvetna traust og virðingu,
jafnt heima sem erlendis, jafnt í
konungssölum sem á alþýðuheimil-
um. Má og segja að hann hafi verið
vel undir það búinn að takast for-
setastarf á hendur. Auk meðfæddra
eiginleika hafði hann mikla og
margháttaða starfsreynslu og stað-
góða þekkingu á fólki og þjóðarhög-
um. Með virðulegri framkomu og
eðlislægri háttvísi rækti hann hið
vandasama þjóðhöfðingjastarf smá-
þjóðar og kom ætíð fram á þann
hátt að Islandi var sómi að.“
Tímarnir hafa vissulega breyst á
þeim 44 árum sem liðin eru frá for-
setakjörinu 1952. Sjálfur var ég
ekki einusinni fæddur þegar þetta
gerðist. Þó þykir mér eitthvað und-
arlega kunnuglegt við frásögn Gylfa
Gröndals af forsetakjöri hins um-
deilda stjórnmálamanns, Ásgeirs
Ásgeirssonar.
MÖRÐUR ÁRNASON
Höfundur er íslenskufræðingur.
að mynda vinstri stjórn áttu að
ganga framar þingræðinu og vilja
meirihluta Alþingis. Þetta dæmi
ætti að vera lýsandi um það hlut-
leysi sem Ólafur Ragnar Grímsson
telur eðlilegt af forseta íslands og
hvers má vænta af honum í hlut-
verki forseta sem hingað til hefur
ekki þurft að gera ráð fyrir að vera
gagnrýndur fyrir störf sín.
„Sögulegu tækifærin"
En ekki er ástæða til að láta að-
ild hans að myndun ríkisstjórnarinn-
ar 1988 ógetið. Þá tók hann þátt í
því að fá forseta Islands til að heim-
ila myndun ríkisstjórnar án þess að
forseti vissi hvaða þingmenn styddu
hana. Þegar sú stjórn var mynduð
fyrir orð væntaniegra ráðherra naut
stjórnin ekki meirihluta á Alþingi
en varð að treysta á stuðning „huldu-
manna“ Stefáns Valgeirssonar.
Gekk þannig í eitt og hálft ár með
tilheyrandi hrossakaupum þar til
vinstri stjórnin keypti Borgaraflokk-
inn til liðs við sig eins og menn
muna. Þessi ríkisstjórnarmyndun
árið 1988 átti einnig að vera „sögu-
legt tækifæri" til að mynda vinstri
stjórn og því þótti Ólafi og hans
mönnum ekki tiltökumál þó eitthvað
vantaði upp á meirihlutann að baki
ríkisstjórninni. Það þótti ekki heldur
tiltökumál þótt þetta „sögulega
tækifæri" yrði þjóðinni gríðarlega
dýrt og látið væri reika á reiðanum
í fjármálum. Tilgangurinn helgaði
öll meðul og gífurlegur og eftir-
minnilegur hallarekstur, sjóðasukk
og svikin loforð við launafólk, svo
dæmi af afrekum þessarar dæma-
lausu stjórnar séu tekin, virtust ekk-
ert draga kjarkinn úr kokhraustum
þáverandi fjármálaráðherra Ólafi
Ragnari.
Þetta eru vísbendingar um það
sem fólk getur átt í vændum takist
Ólafi Ragnari Grímssyni að verða
kjörinn forseti íslands. Hætt er við
að tilgangurinn muni helga ýmis
meðul næst þegar „sögulegt tæki-
færi“ til að láta einhvern pólitískan
draum Ólafs Ragnars rætast.
HARALDURJOHANNESSEN,
Vesturgötu 41, Reykjavík.
Höfundur er háskólanemi.