Morgunblaðið - 30.06.1996, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Sendiherra-
skipti hjá
Bandaríkja-
mönnum
SENDIHERRA Bandaríkjanna,
Parker Borg, lætur bráðlega af
störfum. Nýr sendiherra, Dav
Mount, sem er háttsettur starfsmað-
ur í bandaríska utanríkisráðuneyt-
inu, mun væntanlega taka við í lok
ágúst. Samkvæmt upplýsingum frá
blaðafulltrúa bandaríska sendiráðs-
ins flyst Parker Borg til í starfí sam-
kvæmt venjum bandarísku utanrík-
isþjónustunnar, en eiginkona hans
hefur verið skipuð sendiráðsritari í
sendiráði Bandaríkjanna í Kuala
Lumpur í Malasíu.
Árekstur við
Kúagerði
BIFREIÐ af gerðinni Fiat Uno
var ekið í veg fyrir jeppa á
Reykjanesbraut, skammt vest-
an við Kúagerði um tíuleytið í
gærmorgun. Fiat-bifreiðin var
á leið til Reykjavíkur og sneri
ökumaður við á veginum þegar
hann ók fram á bifreið kunn-
ingja síns í vegkantinum. “
Taldi ökumaðurinn að bíll
kunningjans hefði bilað og
hugðist koma honum til aðstoð-
ar. Hins vegar vildi ekki betur
til en svo að þegar hann sneri
bíl sínum við keyrði hann í vég
fyrir jeppabifreið sem var á leið
til Keflavíkur. Farþegi í Fiat-
bifreiðinni var fluttur á sjúkra-
hús í Keflavík en fékk að fara
heim að skoðun lokinni að sögn
lögreglu. Skemmdist bifreiðin
mikið og þurfti að draga hana
af slysstað.
Tveir bátar
vélarvana
BÁTURINN Víkingur ÞH varð
vélarvana 7 mílur norður af
Öndverðarnesi um kl. 3 aðfara-
nótt laugardags, en hann var
á leið til Raufarhafnar. Björg-
unarbátur Slysavarnafélagsins
á Rifi, Gísli J. Johnsen, fór
bátnum til aðstoðar og dró
hann til Tálknaíjarðar. Um kl.
átta á laugardagsmorgun ósk-
aði báturinn Berglín SH eftir
aðstoð. Hann var þá vélarvana
í Patreksfjarðarflóa. Björgun-
arbátur Slysavarnafélagsins á
Patreksfírði, Farsæll, fór og
dró hann til Patreksfjarðar.
Bílvelta
við Svínavatn
BÍLL valt í Grímsnesi við
Svínavatn á föstudag og hafn-
aði á hvolfí ofan í skurði. Hjón
yoru í bílnum og voru þau flutt
til skoðunar á Sjúkrahúsið á
Selfossi en þau reyndust
ómeidd. Erfiðlega gekk að ná
bílnum upp úr skurðinum þar
sem hann var fastur í vatni og
drullu. Fyrst var reynt að ná
honum upp með krana en ár-
angurslaust. Þá var fenginn
trukkur frá Svínavatni sem
festi sig og þurfti jarðýtu til
að iosa fyrst hann og síðan
bílinn upp úr skurðinum. Bíllinn
er þó ekki talinn mikið
skemmdur eftir óhappið.
Eldur í gámi
ELDUR kom upp í gámi sem
stóð við hús Lýsis hf. við
Grandaveg í Reykjavík
snemma í gærmorgun. Eldur-
inn hafði náð að brjóta sér leið
gegnum glugga á húsinu þegar
slökkvilið mætti á staðinn. Að
sögn varðstjóra í slökkviliðinu
munaði litlu að eldurinn næði
að læsa sig í húsið. Mestar lík-
ur eru taldar á að kveikt hafí
verið í gámnum.
FRÉTTIR
Ríkisstjórnin kaupir Sóleyjargötu 1
Sóleyjargata 1. Morgunbiaðið/Goiii
Skrifstofa forseta-
embættisins verður flutt
RÍKISSTJÓRN íslands hefur fest
kaup á Sóleyjagötu 1, sem var í
eigu Gísla Arnar Lárussonar.
Ætlunin er, samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins, að skrif-
stofur forsetaembættisins, sem
eru í stjórnarráðinu, flytjist að
Sóleyjargötu 1, en í því húsi hafa
áður búið tveir fyrrverandi for-
setar lýðveldisins, þeir Sveinn
Björnsson og dr. Kristján Eld-
járn.
Gísli Örn Lárusson, sem átt
hefur Sóleyjargötu 1 í nokkur
ár og búið þar, kveðst mjög sátt-
ur við þessa sölu, en engar upp-
lýsingar fást um hvert kaupverð-
ið er. „Eg er mjög sáttur við
þessa niðurstöðu, því þarna hafa
tveir fyrrum forsetar lýðveldis-
ins, þeir Sveinn Björnsson og
Kristján Eldjárn búið,“ sagði
Gísli Órn. Hann kvaðst telja það
vel við hæfi að þetta hús komist
í eigu ríkisins og þar verði starf-
semi tengd forsetaembætti.
Ekki mun liggja fyrir, hvenær
ætlunin er að forsetaembættið
fly^jist úr stjórnarráðinu í Sóleyj-
argötu 1. Það rými sem losnar í
stjórnarráðinu við flutningana
verður, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins, nýtt fyrir starf-
semi forsætisráðuneytisins, sem
hefur að sögn, búið við þröngan
kost í mörg ár.
Kosningaskrifstofur forsetaframbjóðenda í gær
Eftirvænting og spenna
Morgunblaðið/Golli
Skoðanakönnun DV
Sjálfstæðisflokkurinn
fengi níu borgarfulltrúa
MIKIL eftirvænting og spenna var
ríkjandi á kosningaskrifstofum for-
setaframbjóðenda á kjördag. Kosn-
ingaskrifstofa Ástþórs Magnús-
sonar var þó iokuð þegar Morgun-
blaðið kom þar að. Á skrifstofum
Guðrúnar, Péturs og Ólafs var
boðið upp á akstur á kjörstað, og
virtust nokkuð margir hafa hug á
að nýta sér þá þjónustu.
Kristín Einarsdóttir á kosninga-
skrifstofu Guðrúnar Agnarsdóttur
í Ingólfsstræti sagði að fjöldi fólks
hefði komið á skrifstofuna á kjör-
dag til að sýna samstöðu. Kristín
sagði að Guðrún hefði fundið fyrir
mikilli uppsveifiu að undanförnu,
og að það endurspeglaðist í
stemmningunni á kjördag.
Á kosningaskrifstofu Ólafs
Ragnars Grímssonar á Hverfisgötu
var nokkuð rólegt þegar Morgun-
blaðið átti þar leið hjá um kl. 11.30.
Ólafía Rafnsdóttir, kosningastjóri
Ólafs, sagði að stuðningsmenn
hefðu hist snemma að morgni kjör-
dags til að skipuleggja daginn og
að hópur fólks hefði farið í eftirlit
á kjörstöðum, til talningar og í
akstur kjósenda á kjörstað. Hún
sagði að allir væru mjög hressir
og stemmningin góð.
Sigurður Amórsson á kosninga-
skrifstofu Péturs Kr. Hafstein í
Borgartúni sagði að stöðugur
straumur af fól'ki hefði verið á
skrifstofuna um morguninn. Fjöldi
fólks var á þönum við að svara f
síma, skipuleggja akstur á kjörstað
og bjóða veitingar. Sigurður sagði
að hópur manna hefði unnið dag
og nótt síðustu vikur og fundið
fyrir mikilli stígandi sem vonandi
skilaði sér í kjörkassana.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN í
Reykjavík hlyti 9 borgarfulltrúa
kjörna og 56,4% atkvæða, sam-
kvæmt skoðanakönnun DV sem
blaðið birti í gær. R-listinn fengi 6
fulltrúa, samkvæmt könnuninni og
43,6% atkvæða. Úrtakið í skoðana-
könnuninni var 424 kjósendur í
Reykjavík, þar af 216 kariar og 208
konur. Könnunin var gerð á
fimmtudagskvöldið og var gerð af
markaðsdeild Frjálsrar fjölmiðlunar
hf.
í borgarstjórnarkosningunum
28. maí 1994 hlaut R-listinn 53%
atkvæða og 8 borgarfulltrúa, en
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 47%
atkvæða og 7 borgarfulltrúa.
Ef einungis er miðað við þá sem
tóku afstöðu í könnunninni sögðust
56,4% ætla að styðja Sjálfstæðis-
flokkinn og 43,6% kváðust styðja
R-listann. 42,7% aðspurðra sögðust
styðja Sjálfstæðisflokkinn, 33%
sögðust styðja R-listann, 20% voru
óákveðnir og 4,3% neituðu að svara.
Fleiri karlar styðja Sjálfstæðis-
flokkinn, samkvæmt könnuninni en
konur eru í meirihluta í stuðnings-
mannaliði R-listans.
A
► 1-56
Ör mannréttindaþróun
á íslandi
►Löggilding mannréttindasátt-
mála Evrópu og staðfesting breyt-
inga á stjómarskrá hafa áorkað
miklu. /10-12
Spilling og siðleysi í
súmóhringnum
►Fram hafa komið ásakanir um
spillingu og svall sumra súmó-
glímukappaJapana. /12
Daglegt brauð
í Danmörku
►Sagt frá lífskjörum fjögurra
manna danskrar millistéttar fjöl-
skyldu. /18
Dýrin búa
í burstabæ
►Austur í Laugarási í Biskups-
tungum gefur að líta dýragarð þar
sem hvert dýr á sinn bæ. /22
Fjölþættur strengur
►í Viðskiptum/atvinnulífí er rætt
við Hauk Garðarsson, fram-
kvæmdastjóra Strengs hf. /24
B
► 1-32
Skrautlegar flugur og
stórir laxar
►Pétur Steingrímsson í Laxárnesi
er gamalreyndur veiðimaður og
snjall fluguhnýtari. /1,2,16-17
Á rölti um Kairó
► í Kairó í Egyptalandi búa um
18 milljónir manna. Þar er fjöldi
veitingahúsa og smáverslana. /5
Skyndikynni af
landi Kastrós
►Það eru aðeins um 160 km sem
skilja að Bandaríkin og kommún-
istaríkið Kúbu. /6
Mynd af
meinleysismanni
►Breska poppsveitin Pulp kemur
til landsins í dag og heldur tón-
leikahéráþriðjudag. /8
c
FERÐALOG
► 1-4
Lífið í Eyjum breytist
► Þegar ferðamannatíminn hefst
breytist svipmót Vestmannaeyja
og fískibærinn fær alþjóðlegan
svip. /1
Búkarest
►Höfuðborg Rúmeníu er borg
mikilla andstæðna. /2
Í9 BÍLAR
► 1-4
Lengri og þyngri flutn-
ingabílar
►Rætt er um að leyfa 7 metrum
lengri flutningabíla í ESB en nú
ergert. /1
Reynsluakstur
►Volkswagen Caravelle með dísil-
vél er ferða- og fjölnotabíll. /4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak
Leiðari 28
Helgispjall 28
Reykjavíkurbréf 28
Skoðun 30
Minningar 32
Myndasögur 40
Bréf til blaðsins 40
Ídag 42
Brids 42
Stjömuspá
Skák
Fólk í fréttum
Bió/dans
íþróttir
Útvarp/sjónvarp
Dagbók/veður
Mannlífsstr.
Kvikmyndir
Dægurtónlist
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-6
42
42
44
46
50
52
55
lOb
12b
14b