Morgunblaðið - 30.06.1996, Side 9

Morgunblaðið - 30.06.1996, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1996 9 FRÉTTIR Listahátíð í Reykjavík lýkur á þriðjudag 22.000 gestir hafa keypt sér aðgang GESTIR á Listahátíð hafa verið um 22.000 að sögn Signýjar Páls- dóttur framkvæmdastjóra, sem er 2.000 meira en á síðustu hátíð. Att er við þá sem keypt hafa að- gang að tilteknum viðburðum og gestir á myndlistarsýningar því undanskildir. Búið var að selja 1.600 miða í gærdag á tónleika sinfóníuhljómsveitarinnar í Berlín að Signýjar sögn og bjóst hún við að gestir gætu orðið 2.000. Atriði hátíðarinnar voru 54, það er 20 tónlistaratriði, níu sem flokk- ast undir sviðslist og 25 mynd- listarsýningar. Vinsælustu við- burðirnir voru tónleikar Evgenís Kissins, Davids Bowies og Bjark- ar. Þá sótti fjöldi gesta sýningu Sirkus Rónaldó og Tangódans í Loftkastalanum segir Signý. Yfir 5.000 miðar voru seldir á tónleika Bowies í Laugardalshöll og gestir í Háskólabíói á tónleikum Kissins voru 1.061. Ekki hlýddu jafn margir á sön'g- list heimskórsins eða 1.300 manns en búist var við 2.800-3.000 gest- um í sæti Laugardalshallarinnar á slíkan viðburð. Morgunblaðið/Golli SINFÓNÍUHLJÓMSVEITIN í Berlín hélt tónleika í Laugardals- höll í gær. Hér sést hljómsveitin á æfingu ásamt stjórnanda sínum Vladimir Ashkenazy. Landsbankinn minnist 110 ára afmælis Tilboðsbréf vegna fjármagns- tekjuskatts LANDSBANKINN hyggst bjóða viðskiptavinum sínum nýtt innl- ánsform, svokölluð afmælisbréf, í tilefni af 110 ára starfsafmæli bankans. Bréfin verða boðin í júlí- mánuði og eru bundin í eitt ár. Brynjólfur Helgason aðstoðar- bankastjóri Landsbankans segir að bréfin beri 11 % vexti fyrri hluta binditímans, það er til áramóta, og 3% fram á mitt næsta ár. Þau eru óverðtryggð. „Þetta þýðir að fólk þarf að borga lægri fjármagnstekjuskatt en ella þvi hann leggst ekki á fyrr en um áramót," segir hann. Viðskiptastofa sett á fót Einnig er verið að setja á fót svokallaða viðskiptastofu. „Þarna sameinum við innlenda og erlenda íjárstýringu bankans og bjóðum beinni og virkari samskipti við fyrirtæki, einkum stærri viðskiptavini. Við munum upplýsa viðskiptavini okkar á næstu vikum og mánuðum um það hvernig hægt er að nýta sér þjónustu bankans í gjaldeyrisviðskiptum, framvirkum viðskiptum, afleiðuviðskiptum og fleiru svo dæmi séu tekin,“ segir hann. Brynjólfur segir þessa nýbreytni í samræmi við það tilboðsumhverfi sem banka- og fjármálaþjónusta hafi verið að færast inn í að undan- förnu og harðari samkeppni. Landsbankinn hefur lengst af verið banki atvinnuveganna og segir Brynjólfur þær breytingar helstar í starfseminni að sam- keppni sé orðin virkari á öllum sviðum. Fyrst á innlánsmarkaði í kjölfar vaxtafrelsis fyrir rúmum tíu árum og síðan í útlánum síð- astliðin 1-2 ár. Nýjungar kynntar mánaðarlega Hann vill ekki meina að við- skiptavinum bankans hafi farið fækkandi, þvert á móti hafi þeim fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár. Um 160.000 einstaklingar eiga viðskipti við bankann ef miðað er við þá sem eiga ávísanareikninga eða sambærilega reikninga að Brynjólfs sögn. Brynjólfur segir einnig á döfinni nýjungar í starfsemi bankans sem kynntar verði í hvetjum mánuði til áramóta. Verði þær kynntar jafnóðum. Þá verður boðið upp á kaffi og meðlæti í öllum útibúum bankans á afmælisdaginn. SUMARFERÐ ELDRI BORGARA í DÓMKIRKJUSÓKN Efnt verður til sumarferðar eldri borgara á vegum Dómkirkjunnar miðvikudaginn 3. júlí. Farið verður frá Dómkirkjunni kl. 13, ekið að Breiðabólsstað í Fljótshlíð, kaffi drukkið á Hvolsvelli. Þátttaka tilkynnist í síma 562 2755 mánudaginn 1. júlí og þriðjudaginn 2. júlí kl. 9—12 fyrir hádegi. Þátttökugjald kr. 600,-- Sóknarnefnd. Júlítilboð Heimsferða til Benidorm frá kr. 39.932 Viðbótaríbúðir 16. og 30. júlí Við seljum nú síðustu sætin til Benidorm OS í júlímánuði. Hér eru í boði afbragðs gisti- staðir og nú bjóðum við sérstakt kynningar- tilboð á aðalgististaðnum okkar, E1 Faro, sem býður betri aðbúnað en þú átt að venjast á Benidorm. Einnig höfum við fengið viðbótargistingu þann 16. júlf á Central Park, góðum íbúðum með frábærri staðsetningu í hjarta Benidorm. 39.932 Laus sæti h í ágúst Tryggðu þér sæti í ágúst meðan enn er \ laust 30. júlí - laus sæti 6. ágúst - 4 sæti 13. ágúst - 11 sæti 20. ágúst- 16 sæti 27. ágúst- 12 sæti Verð kr. M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, 2., 9. og 16. júlí, E1 Faro/Central Park. Verð kr. 49*960 M.v. 2 í íbúð, E1 Faro/Central Park, 2., 9., og 16. júlí. Stökktu til Benidorm 9. júlí frá kr. 29.932 Fyrir þá sem vilja taka sénsinn þá geta þeir tryggt sér ferðina á ótrúlegu verði; þú bókar í 2 eða 3 víkur og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir í fríinu. Verð kr. 29.932 m.v. hjón með 2 börn. Verð kr. 39.960 m.v. 2 í íbúð, 2 vikur. VISA HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 562 4600.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.