Morgunblaðið - 30.06.1996, Qupperneq 21
A plús, auglýsingastofa ehf. / Athygli ehf.
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1996 21
Hvers vegna er bannad ad
selja ungmennum tóbak?
► Þau kaupa ekki
tóbak sjálf og byrja
síóur aö reykja.
► Af þeim er létt þeirri
raun að aðstoöa við
tóbakskaup foreldra
og annarra aðstandenda.
i Þau venjast síður við að
kaupa og hafa um hönd
skaðleg ávanaefni á sama
hátt og nauðsynjavöru.
Heilsan er
dýrmætasta auðlind okkar
„Ný lög um tóbaksvarnir eru yfirlýsing um aö
löggjafinn og stjórnvöld framfylgi heilbrigöis-
áætlun sem Alþingi samþykkti voriö 1991.
Þar er kveðið á um aö efla baráttu gegn
reykingum og fyrir réttindum þeirra sem ekki
reykja eöa vilja segja skiliö viö tóbakið.
Sérstakt fagnaöarefni er að meö nýju
lögunum meira en þrefaldast fjárveitingar til
tóbaksvarna. Þannig verða til ráöstöfunar yfir
þrjátíu milljónir króna á næsta ári, miðað viö
óbreytta sölu og óbreytt verð, en heföu
aðeins verið níu milljónir króna samkvæmt
fyrri lögum. Þessum fjármunum veröur ekki
síst variö til fræöslu og kynningarstarfs.
Notkun tóbaks kallar þjáningar yfir ótrúlega
marga landsmenn og sérfræöingar áætla aö
rekja megi eitt dauösfall af hverjum fimm til
reykinga. Því yngri sem menn eru þegar þeir
byrja aö nota tóbak, því meiri hætta er á
alvarlegu heilsutjóni af þess völdum. Ýmislegt
bendir til þess _aö reykingar barna og
unglinga hafi aukist á ný. Viö því veröur aö
bregðast. Heilsan er dýrmætasta auðlindin
sem við eigum. Meö nýjum tóbaksvarna-
lögum verjum viö þá auðlind enn frekar."
heilbrigöismálaráöherra
Ný lög
um tóbaksvarnir ganga í gildi á morgun, 1. júlí 1936
Helstu
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
Tóbaksvarnanefnd
► Reykingar eru alveg bannaðar:
1. i grunnskólum, leikskólum og hvers kyns dagvistum barna og
húsakynnum sem aetluö eru til félags-, íþrótta- og tómstundastarfa
barna og unglinga.
2. í framhaldsskólum og sérskólum.
3. Á heilsugæslustöðvum, í læknastofum og annars staöar
þar sem veitt er heilbrigöisþjónusta. Þaö á þó ekki viö um
íbúöarherbergi vistmanna á hjúkrunar- og dvalarheimilum.
4. Á sjúkrahúsum, en leyfa má þó reykingar sjúklinga.
► Framlög til tóbaksvarna aukast úr 0,2% í 0,7% af brúttósölu tóbaks.
► Skylt er aö merkja sígarettupakka meö upplýsingum um tjöru- og
nikótíninnihald tóbaksins.
► Öll notkun heföbundinna tóbaksvörumerkja er bönnuö í auglýsingum og hvers
kyns umfjöllun um einstakar vörutegundir í fjölmiölum yfirleitt, nema beinlínis
sé veriö að upplýsa um skaösemi tóbaksnotkunar.
► Skylt er aö hafa reyklaus svæöi á matsölustööum og kaffihúsum.
Stórt skref
til heilsuverndar
Í
I i