Morgunblaðið - 30.06.1996, Qupperneq 24
24 SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Haukur Garðarsson.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FJOLÞÆTTUR
STRENGUR
vmapn/javiNNUiJF
Á SUNNUDEGI
►Haukur Garðarsson, framkvæmdastjóri Strengs hf.,
fæddist í Fljótshlíð 1954, en fluttist ungur til Selfoss og
ólst þar upp. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1974 og kenndi eftir það einn vetur í Gagnfræða-
skóla Akureyrar. Hann lauk BS-prófi í byggingarverk-
fræði frá Háskóla íslands 1979 og MS-prófi í verkfræði frá
DTH í Kaupmannahöfn 1981. Haukur hóf störf hjá Verk-
fræðistofunni Streng 1982. Fyrirtækinu var breytt í hlutafé-
lagið Streng 1992 og hefur Haukur verið framkvæmda-
stjóri þess síðan. Kona Hauks er Ragnhildur Guðmundsdótt-
ir hjúkrunarfræðingur og eiga þau fjóra syni.
eftir Guðna Einarsson.
Verkfræðistofan Strengur
var stofnuð 1982 af
Skúla Jóhannssyni verk-
fræðingi og sérhæfði sig
strax á tölvusviðinu. Hugbúnaðar-
smið og þjónusta við hugbúnað
hefur verið meginviðfangsefni.
Strengur hf. var stofnaður upp úr
verkfræðistofunni 1992 og hefur
fyrirtækið vaxið í áranna rás. Það
flutti nýlega í 2.200 fermetra hús-
næði við Armúla 7, starfsmenn eru
51, nær allir sérmenntaðir í tölvu-
fræðum og viðskiptum. Að sögn
Hauks Garðarssonar framkvæmda-
stjóra hefur fyrirtækið ávallt skilað
hagnaði. Undanfarin ár hefur verið
jöfn veltuaukning, um 20% á ári,
og velti fyrirtækið 260 milljónum
króna í fyrra.
Eigendur Strengs hf. eru stofn-
andinn Skúli Jóhannsson og á hann
stærstan hlut, aðrir hluthafar eru
Haukur Garðarsson, Snorri Berg-
mann og Guðmundur Kolka sem
allir starfa hjá fyrirtækinu. Þá á
danskur samstarfsaðili Strengs,
Navision Software, hlut í fyrirtæk-
inu.
Windows útgáfa af Fjölni
Sala og þjónusta á viðskiptahug-
búnaðinum Fjölni (Navision) er
burðarásinn í rekstri Strengs hf.
og stendur undir um tveimur þriðju
af veltu fyrirtækisins. Hugbúnaður-
inn er danskur að uppruna og kem-
ur frá Navision Software. Þessi
hugbúnaður er seldur víða um heim
og nýtur mikillar útbreiðslu í Dan-
mörku og Þýskalandi. Þá er hann
einnig í sókn í Bandaríkjunum og
víðar. Starfsmenn Strengs hf. hafa
þýtt hugbúnaðinn á íslensku og lag-
að að íslenskum bókhaldslögum og
reikningsskilavenjum. Mikil vinna
er fólgin í því að sníða hugbúnaðinn
að þörfum hinna einstöku viðskipta-
vina og að skrifa hugbúnaðarlausn-
ir í því sambandi.
Að sögn Hauks væri nær að tala
um Fjölni (Navision) sem upplýs-
ingakerfi en viðskiptahugbúnað.
Vinsældir kerfisins byggjast ekki
síst á því hve skilvirkt það er í að
veita margs konar upplýsingar.
„Menn geta séð ýmsar hliðar á
rekstrinum sem hjálpar þeim við
ákvarðanatöku,“ segir Haukur.
„Eigandi matvöruverslunar getur
strax séð út frá sölu og kostnaði
hvort reksturinn skilar hagnaði eða
er með tapi. í harðri samkeppni
leiðir þetta til hagkvæmni og lægra
vöruverðs.“
Um 1.100 íslensk fyrirtæki nota
nú hugbúnaðinn Ejölni (Navision)
og bætast um 150 ný í hópinn á
hveiju ári. Meðal stórra notenda
má nefna Póst og síma, Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna, ÁTVR,
OLÍS, Hans Petersen, Bónus og
Bílanaust. Strengur heldur utan um
nýþróun og rekstur á kerfunum.
Haukur segir að í september komi
hér á markað ný útgáfa af Fjölni
(Navision) fyrir Windows 95. Þessi
útgáfa hefur hlotið góða dóma við-
skiptavina Navision erlendis og sér-
staka gæðavottun frá Microsoft,
útgefanda Windows hugbúnaðar.
Varð Navision Financials, eins og
Windows útgáfan heitir, fyrsta við-
skiptakerfið í heiminum sem fær að
bera merki Windows 95. Starfsmenn
Strengs hf. vinna nú að þýðingu og
aðlögun þessarar nýju útgáfu hug-
búnaðarins fyrir íslenska markaðinn.
Dýrmæt tenging á markað
Margir notendur Fjölnis (Navisi-
on) óskuðu eftir að geta notað svo-
nefnda SQL gagnagrunna með við-
skiptakerfunum. SQL er stöðluð
uppsetning á geymslu og framsetn-
ingu upplýsinga. Gagnasöfnin, sem
sett eru upp með þeim hætti, geta
verið mjög umfangsmikil og geymt
upplýsingar af öllu tagi. Allt frá
árinu 1992 hefur Strengur unnið
að því í samvinnu við Navision
Software að smíða hugbúnaðar-
tengingu milli SQL gagnagrunna
og Fjölnis (Navision).
Nú er þessari vinnu lokið og teng-
ingin komin á markað. Mikil vinna
hefur farið í þennan hugbúnað og
er mikið í hann lagt, að sögn Hauks.
„Hinn dæmigerði viðskiptavinur hér
á landi er með allt frá einum og
upp í tuttugu samtímanotendur.
Helstu kaupendur eru stór fyrirtæki
með 100 til 200 samtímanotendur
og jafnvel fleiri. Fyrstu stóru fyrir-
tækin eru að taka þetta í notkun.
Til dæmis er OLÍS með alla bók-
haldsvinnslu sína í Fjölni og tengir
hana við Informix SQL gagna-
grunn. Við erum líka að selja þenn-
an hugbúnað til útlanda. Þessa dag-
ana er verið að ganga frá stórum
samningi við danska símafélagið
TeleDanmark um sölu á SQL teng-
ingum fyrir 77 afgreiðslustaði í
Danmörku," segir Haukur.
Mörg egg í körfunni
Þriðjungur af veltu Strengs hf.
kemur frá öðrum þáttum en þeim
sem tengjast Fjölni (Navision). Þar
er stærst forritun af ýmsu tagi,
sala á SQL gagnasafnskerfmu In-
formix, miðlun upplýsinga úr
Hafsjó og Dow Jones Telerate við-
skiptaupplýsinga, dreifing Morgun-
blaðsins og sala aðgangs að gagna-
safni þess á alnetinu.
Starfsmenn Strengs hafa glímt
við fjölbreytt forritunarverkefni.
Haukur nefnir til dæmis upplýs-
ingakerfi um færð á vegum fyrir
Vegagerðina. I kerfinu birtist Is-
landskort á tölvuskjá og má sam-
stundis sjá ástand vega og hvort
þeir eru opnir eða lokaðir. Upplýs-
ingar um færð á vegum, veður og
umferð streyma síðan stöðugt úr
umferðarkerfinu í textavarp Sjón-
varpsins. Eins var samið forrit sem
safnar upplýsingum um flugumferð
fyrir textavarpið. Þá hefur Strengur
unnið mikið í forritun fyrir Hús-
næðisstofnun, Veðdeild Landsbank-
ans, Landsvirkjun og Póstgíróstof-
una svo nokkuð sé nefnt.
Haukur segir að notendum upp-
lýsingabankans Hafsjávar, Dow
Jones Telerate og lesendum Morg-
unblaðsins á alnetinu fjölgi stöðugt.
Upplýsingabankinn Hafsjór veitir
áskrifendum aðgang að ýmsum
gagnalindum. Til dæmis þjóðskrá,
bifreiðaskrá, fasteignaskrá, upplýs-
ingum um kvótastöðu fiskiskipa,
upplýsingum um flugumferð og
færð á vegum.
Strengur er umboðsaðili Dow
Jones Telerate, fyrirtækið miðlar
viðstöðulaust fjölbreyttum upplýs-
ingum um gengi gjaldmiðla og verð-
bréfa í kauphöllum heimsins, heims-
markaðsverð á ýmsum hrávörum
svo sem málmum og olíu svo fátt
eitt sé talið. Helstu viðskiptavinir
hafa verið fjármálastofnanir og fyr-
irtæki.
Strengur annast einnig miðlun
Morgunblaðsins á alnetinu og sölu
aðgangs að gagnasafni blaðsins.
Haukur segir að gagnasafnið hafi
fengið mjög góðar viðtökur. „Þarna
er búið að opna almenningi nýja
vídd í upplýsingaleit og heimildaöfl-
un,“ segir Haukur.
Starfsmenn Strengs fá að finna
fyrir því ef einhver misbrestur verð-
ur á dreifingu blaðsins á alnetinu.
„Um daginn klikkaði eitthvað í sam-
bandinu hjá okkur og sunnudags-
mogginn kom ekki inn á netið á
tilsettum tíma,“ segir Haukur.
„Daginn eftir fékk ég harðort bréf
frá lesanda blaðsins í Dubai í Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum.
Hann var reiður yfir því að hafa
ekki getað gengið að blaðinu síriu
vísu á tilsettum tíma þarna mitt i
eyðimörkinni! Ég get vel skilið hann
því ég veit hvað það getur verið
sársaukafullt að fá ekki blaðið á
réttum tíma á morgnana. Það virð-
ist því ekki skipta máli hvort út-
burði seinkar hér heima eða í
Dubai.“ Haukur nefnir annað dæmi
um lesanda vestur í Ameríku. Sá
skrifaði og sagði frá því að þegar
blaðhausinn rann upp á skjáinn í
fyrsta sinn þá fann hann fyrir vitum
sér ilm af nýupphelltu íslensku
kaffi!
Ungt starfslið
Haukur Garðarsson er þriðji elsti
í hópi rúmlega fimmtíu starfsmanna
Strengs og þó ekki nema 42 ára
gamall. Meðalaldur starfsmanna er
aðeins 30 ár. Margir þeirra byijuðu
mjög ungir og hafa unnið lengi hjá
fyrirtækinu. Haukur segir að for-
svarsmenn Strengs hafi lagt
áherslu á að halda yfirbyggingu
fyrirtækisins í lágmarki og skipurit-
ið sé mjög flatt. „Við kappkostum
að byggja upp góðan starfsanda og
höfum lagt áherslu á að ráða hæft
starfsfólk sem hefur frumkvæði og
jákvætt hugarfar," segir Haukur.
Haukur segir að góður starfsandi
sé einkar mikilvægur. Það eru gerð-
ar miklar kröfur til starfsfólksins
og oft mikið á það lagt. Hugbúnað-
argerð er krefjandi starf og mikil
nákvæmnisvinna. Það er þensla á
þessum markaði og verður að borga
vel fyrir gott starfsfólk, að sögn
Hauks.
Starfsmenn Strengs eru með
öflugt starfsmannafélag sem stend-
ur fyrir ýmsum skemmtunum utan
vinnutíma. Þar má telja utanlands-
ferðir og ferðir innanlands, bæði á
bílum, reiðhjólum og vélsleðum.
Árlega er farið í mikla vorferð og
hafa skátar í Garðabæ séð um und-
irbúninginn. I fyrra var farið í Þjórs-
árdal þar sem starfsmennirnir voru
látnir leysa ýmsar þrautir. í vor var
farið í ferð yfir Langjökul á vélsleð-
um og skíðum.
Strengur er nú til húsa í Ármúla
7, en þangað flutti fyrirtækið í byrj-
un mars í vetur. „Áður vorum við
á tveimur stöðum í miðbænum og
á Ártúnshöfða með aðstöðu," segir
Haukur. „Það er mikill munur að
vera hér á einum stað. Við leggjum
höfuðáherslu á góða þjónustu. Auk-
ið húsnæði hefur gert okkur kleift
að ráða fleira fólk og veita þar með
betri þjónustu."
Dótturfyrirtækið Skyggnir
I fyrra stofnaði Strengur hf.
ásamt Eimskip hf. fyrirtækið