Morgunblaðið - 30.06.1996, Side 36
36 SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1996
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
4
MARGRÉT
JÓNSDÓTTIR
+ Margrét Jóns-
dóttir var rædd
á Stokkseyri 6. júlí
1904. Hún lést á
Sjúkrahúsi Reykja-
víkur 18. júní síð-
astliðinn. Foreldr-
ar hennar voru
Þórdís Bjarnadótt-
ir (d. 1961) og Jón
Adólfsson (d.
1945), útgerðar-
maður og siðar
kaupmaður. Systk-
ini Margrétar voru
Ingveldur (d.
1968), Bjarni (d.
1993) og Kristín (lést í barn-
æsku). Arið 1924 giftist Mar-
grét Hilmari Stefánssyni (d.
1965), bankastjóra Búnaðar-
bankans. Þeirra börn voru
Þegar ég var bam þá óttaðist ég
það einna mest að amma mín hyrfi
mér sjónum, að hún kæmi ef til
vill ekki heim einn daginn, og ég
yrði skilin eftir ein og umkomulaus
í þessum heimi. Þetta var ótti bams-
ins við allt það dularfulla í lífínu —
sorg og missi og dauðann. í æsku
var amma stöðugleiki minn; hún
hélt heimsmyndinni saman. Ef
amma hvarf þá hrapaði ég.
Þá vissi ég ekki að amma mín
Margrét Jónsdóttir, myndi lifa nær
út þessa öld, yrði rúmlega 91 árs
gömul. Ég vissi ekki að ég yrði svo
rík að eiga hana að svo lengi. Það
var ekki aðeins öryggiskenndin sem
hún veitti sem var dýrmæt heldur
líka lífsgleði hennar og lífsþekking.
Amma var gædd þeim einstaka
hæfíleika að geta séð inn í kjama
hlutanna; hún gaf ávallt góð ráð
því hún skildi mikilvægi hins hreina
einfaldleika. Þegar við unga fólkið
í kringum hana flæktum málin, þá
leiddi hún okkur beinustu leiðina
að lausn. Ef óskiljanlegar áhyggjur
sliguðu okkur þá kom hún okkur
til að hlæja. Ef vinnan eða skólinn
virtust okkur ofviða þá sýndi hún
okkur hreint og beint hver skylda
okkar var, við okkur sjálf og samfé-
lagið. Ef slóst upp á vinskapinn
meðal kunningja þá benti hún okk-
ur á mikilvægi hreinskiptni, að
segja það sem okkur bjó í bijósti.
Stefán (d. 1991) og
Þórdís. Stefán var
kvæntur Sigríði
Kjartansdóttur
Thors. Dætur
þeirra eru Agústa,
Margrét og Inga.
Þórdís var tvígift.
Fyrri maður henn-
ar var Gunnar
Ragnarsson og áttu
þau eina dóttur,
Margréti. Þau
skildu. Síðari mað-
ur Þórdísar var
Karl Magnús Magn-
ússon (d. 1969). Þau
eignuðust einn son, Hilmar
Stefán (d. 1987).
Útför Margrétar fór fram frá
Fossvogskapellu 26. júní í kyrr-
þey að ósk hinnar látnu.
Amma þoldi ekki hræsni og sýndar-
mennsku. Hún kenndi mér að hrein-
skilni er mikil dyggð.
Ég held að amma hafí verið
„skyggn", í veraldlegum skilningi
þess orðs, eins og listamaður er
skyggn. Þegar ég minnist ömmu
nú þá koma upp í huga mér línur
úr ensku Ijóði; þær eru settar fram
eins og heilræði og hvetja okkur til
að sjá heiminn allan í litlu sand-
komi og himnaríki sjálft í fögru
blómi. Amma skynjaði töfrana í því
smáa og í því áþreifanlega í þessum
heimi. Hún gaf oft í skyn við mig
að hún hefði kosið að leggja stund
á málaralist, hefði sá kostur verið
til staðar þegar hún var ung. Ég
er líka sannfærð um að hefði hún
lifað á tímum kvenréttinda þá hefði
hún helgað sig listinni af jafnmikl-
um krafti og hún gaf sig fjölskyldu
sinni og öllu því sem henni þótti
vænt um.
Umhyggja ömmu fyrir blómum,
dýrum og börnum var eins konar
listsköpun, bæði fögur og kærleiks-
rík. í stað þess að mála náttúruna
tók amma beinan þátt í fegrun
hennar, einsog umhverfíslistamað-
ur. Garðamir hennar vöktu ávallt
mikla athygli, sérstaklega garður-
inn á Sólvallagötu 28, sem líktist
meira sælureit í Suðurlöndum en
gróðri norðursins. Enda fékk sá
garður margsinnis viðurkenningu
t
Systir okkar, mágkona, amma, lang-
amma og móðursystir,
LILJA VIGDÍS BJARNADÓTTIR,
Hrafnistu,
Reykjavik,
verður jarðsungin frá Áskirkju, þriðju-
daginn 2. júlí kl. 15.
Sigmundur Bjarnason,
Magnús Jóhann Bjarnason, Sigurfljóð Ólafsdóttir,
Ólöf Lilja Sigurðardóttir, Karen Jara Pálsdóttir,
Gunnur Salbjörg Friðriksdóttir.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim,
sem vottuðu okkur samhug og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar eiginkonu
minnar, móður okkar, ömmu og
langömmu,
JÓHÖIMNU BÁRU JÓHANNSDÓTTUR,
Háagerði 63.
Sérstakar þakkir færum við læknum og
hjúkrunarfólki, sem liðsinntu henni í
langvarandi veikindum, einnig heima-
hlynningu Krabbameinsfélagsins, sem líknuðu henni síðustu
stundirnar, fyrir ómetanlega hjálp og hlýhug.
Jón Guðni Guðnason,
Ólafur Bjarni Sigurðsson,
Magnús Jóhann Sigurðsson,
Hanna Heiðbjört Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
hjá Reykjavíkurborg og á sjötta
áratugnum, verðlaun sem fegursti
skrúðgarður borgarinnar.
En það var ekki eingöngu um-
hverfíð sem geislaði í návist ömmu
heldur stafaði af henni sjálfri mikl-
um persónutöfrum. Margir ættingj-
ar og vinir, jafnt ungir sem gamlir,
hafa haft á orði við mig hve gagn-
teknir þeir voru af persónu hennar,
bæði æskuljóma hennar og reisn
hennar á efri árum. Amma var
vissulega einstaklega falleg og tign-
arleg kona. Að skoða gamlar mynd-
ir af henni var eins og að skoða
listaverk.
Ljómi jarðneskrar fegurðar varð-
veitist í hugsun og verkum manna.
En er til annars konar fegurð, sköp-
uð og skynjuð eftir dauðann, á
æðra sviði en því veraldlega? Þó
amma héldi sinni bamstrú í hjarta
sínu þá efaðist hún oft um svör
kristinnar trúar við gátum lífsins.
Hún spurði mig stundum hvort ég
tryði á eilíft líf, hvort ég héldi að
annars konar tilvist tæki við af
þessari. Ég gat aðeins stutt hana
í von hennar um að einn dag myndi
hún finna aftur þá horfnu — for-
eldra, systkini, eiginmann, son og
dótturson, og aðra ættingja og vini
— og að hún mætti blessa þá með
návist sinni. Slíkir endurfundir
væm hennar himnaríki.
Margrét Gunnarsdóttir.
Kveðjustundir em alltaf erfíðar
og svo er einnig nú, þegar ég kveð
föðurömmu mína og nöfnu, Mar-
gréti Jónsdóttur. Enn dýpra er það
tóm, sem myndazt hefur vegna
þess margbrotna og skömlega per-
sónuleika, sem hún geymdi. Hún
teng'di okkur, sem þekktum hana,
við gamla tíma með frásögnum og
vitneskju frá æskustöðvum sínum
á Stokkseyri en fylgdi okkur þó inn
í nútíðina án þess að gráta það
liðna.
Hjá þessarri glæsilegu konu var
aldrei nein ládeyða, oftast fylgdi
henni gleði, stundum stormar en
aldrei ládeyða. Hún veitti alltaf
höfðinglega og heimilið gæddi hún
töfrandi glæsileika, sem var sniðinn
að hennar eigin útliti og fasi. Heim-
ili hennar var opið og gestkvæmt,
því þar nutu allir fallegs umhverfís,
örlætis og hennar stórskemmtilega
frásagnarmáta, þar sem allt var
gætt lífí og kryddað með hnyttnum,
rammíslenzkum orðtökum, fágæt-
um og fyndnum lýsingarorðum og
ekki sízt látbragði, sem enginn
stóðst. Það var oft gaman hjá ömmu
og hún reyndi að gera hvert atvik
og jafnvel hveija skyldu að ævin-
týri. Æskuminningar tengdar henni
eru óteljandi og víst er, að amma
Margrét er ein ógleymanlegasta
kona, sem ég hef þekkt.
Með andláti Margrétar er farinn
skörungur, sem brotnaði aldrei þótt
oft hafí á móti blásið á langri ævi.
Hún bjó yfír lífskrafti og seiglu, sem
ekkert gat beygt nema loks hár
aldur og löngun til að hitta aftur
þá sem hún unni. Ég get ekki ann-
að en samglaðst henni yfír þeim
endurfundum.
Þegar ég kveð hana fínn ég til
söknuðar en jafnframt stolti yfír
hennar mikla krafti og mannkost-
um. Ég bið Guð að blessa hana og
minningu hennar.
Margrét Þ. Stefánsdóttir.
S
§
I
O
I
m
o
^(DaCía
..ef&i bara bBómabúð,
Fersk blóm og
skreytingar
við öll tœkifæn
Opið til kl.lO öll kvöld
Persónuleg þjónusta
Fákafeni 11, s/'mi 568 9120
0101*101*10
S
I
S
I
s
I
§
I
s
JÓHANNA BÁRA
JÓHANNSDÓTTIR
+Jóhanna Bára
Jóhannsdóttir
fæddist á Akureyri
12. júní 1921. Hún
lést á heimili sínu í
Reykjavík 18. júní
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Bústaðakirkju
27. júní.
Kveikt er ljós við ljós
burt er sortans svið.
Angar rós við rós
Opnast himins hlið.
(Stefán frá Hvítadal.)
Þetta er ljóðið sem hún amma
mín sendi mér síðast hinn 19. febr-
úar nú í ár. — Á afmælisdeginum
mínum, ásamt útsaumuðu eldhús-
handklæði sem er svo fallegt, eins
og allt sem hún tók sér fyrir hendur.
Mínar fyrstu minningar af ömmu
eru frá því er ég var fímm ára
gömul stúlka, en þá fluttist hún
ásamt afa og Hönnu frænku í sveit
og var ég hjá þeim í mörg sumur
og varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi
að eiga góða og hjartahlýja ömmu
að í mörg ár.
Hún amma mín kenndi mér
margt og hún gaf sér alltaf tíma.
„Faðir vorið“ var meðal bænanna
sem hún kenndi mér og innprentaði
mér að biðja. Hún kenndi mér líka-
að lesa og skrifa. Ekki má heldur
gleyma handavinnuuppfræðslunni.
Hún var sönn amma, sem sagði
mér sögur. Líka frá því hvernig líf-
ið hafði verið í bemsku
hennar og eigi get ég
gleymt öllum ferðalög-
unum með ömmu og
afa mínum um landið
okkar og þeim fróðleik
sem ég bý að eftir þau.
Seinna þegar ég
fullorðnaðist eignaðist
ég lítinn son og sagan
endurtók sig. Hún
amma mín kenndi hon-
um allt það sama, sem
hún hafði kennt mér
og sagt.
Við Daði eigum góð-
ar minningar um
ömmu, sem var alltaf tilbúin að
hlusta og leiðbeina okkur um lífið
og tilveruna. Hún var líka alltaf að
gefa okkur sín handunnu verk.
Elsku amma mín!
Góður Guð geymi þig!
Við geymum fallegar minningar
í hugum okkar!
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífs-
ins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleym-
ist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynn-
ast þér.
(Ingibj. Sig.)
Elsku afí minn, Óli frændi, pabbi,
og Hanna, við sendum ykkur inni-
legar samúðarkveðjur.
Ykkar
Margrét Bára, Daði Freyr
og Friðþjófur.
HARALDUR S.
SIG URÐSSON
+ Haraldur Snæland Sig-
urðsson fæddist í Gíslholti
í Reykjavík hinn 15. febr-
úar 1914. Hann lést á Landspít-
alanum 14. júní síðastliðinn og
fór útför hans fram frá Foss-
vogskirkju 27. júní.
FÖSTUDAGINN 14. júní
hringdi faðir minn, Gunnar, í mig
og færði mér þær sorgarfréttir að
afí væri látinn.
Þar sem ég bý erlendis hafði
ég heyrt af heilsu afa í gegnum
fjölskyldu mína, en afí og ég
skrifuðumst mikið á. Bréf mín til
hans voru þó mun fleiri en hans
til mín og ástæðan fyrir því, eins
og hann sjálfur skrifaði í sínum
bréfum, var að hann var farinn
að sjá illa og varð fljótt þreyttur
í hendinni. En alltaf skrifaði hann
að hann væri hress og að ég skyldi
ekki hafa áhyggjur af honum, sem
lýsir afa mjög vel. Hann var sá
seigasti og sterkasti maður sem
ég hef kynnst og kvartaði aldrei.
Afí hafði stórt hjarta og var
mjög gjafmildur til þeirra sem
honum var annt um. Hann var
bæði mjög gott skáld og góður
teiknari og áttum við það áhuga-
málið saman. Samræður okkar
voru alltaf skemmtilegár með
sterkum skoðunum og stutt í hlát-
ur. Þeirra sakna ég nú þegar.
Afí minn, mikið ertómt að koma
heim og fara ekki í heimsókn til
þín eins og venjulega. En ég veit
að amma tók vel á móti þér. Sendu
henni mínar kveðjur. Ég þakka
þér fyrir samfylgdina í þessu lífí.
Hvfldu í friði.
Elín Margrét.
Birtíng afmælis- og
• •
minnmgargrema
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar end-
urgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kringl-
unni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akur-
eyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi í númer
5691181.
Framvegis verður við það miðað, að um látinn einstakling birtist
ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd en lengd annarra greina um
sama einstakling er miðuð við 2.200 tölvuslög eða um 25 dálksenti-
metra í blaðinu. Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til
þijú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en
ekki stuttnefni undir greinunum.
Lokað
verður á morgun, mánudaginn 1. júlí, vegna útfarar
JÓNU ÖLLU AXELSDÓTTUR.
Hársnyrtistofa Irisar.
Iris Gústafsdóttir.
€
Í
i
i
€
C
i
í
I
i
i
i
i
i
<
(
i
(
(
(
(
(