Morgunblaðið - 30.06.1996, Síða 40

Morgunblaðið - 30.06.1996, Síða 40
40 SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir M C és ES?AE>Æ.FA MG i AÐÍ 5AKLEVSISLEGA ÓT ) c O ■* j GRETTlR, PAE> V/ILL WST EKkCI SVO 7|L AO þó VITU? HVER ÞAD VAR SEM " rr-^ TÆMÞl ÍSSKAPINH Dn svona | fS?M. PAVÍ& 11- °> Ferdinand Gettu hvað, Kalli... ég náði í öllum Ja, ég fékk „MN“ í öllu... „Með naumindum." fögunum... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Með vinsemd og virðingu Frá Björk Hauksdóttur: VIÐ GÖNGUM nú til ópólitískra kosninga og veljum okkur þjóðhöfð- ingja. Máttur og vald þessa embætt- is er fyrst og fremst áhrifavald. Það vald, hlýtur að falla niður máttvana og dautt njóti hann ekki virðingar. Við hljótum að verða að nenna að hlusta á þjóðhöfðingja okkar. Eða hvað? Við íslendingar viljum geta sagt við börnin okkar með vin- semd og virðingu í röddinni: „Þarna fer forsetinn yfir íslandi.“ Geta sest niður og liðið nokkuð notalega sem skynsemisverum, undir ávarpi for- seta, en allt hugsandi fólk gerir greinarmun á lýðskrumi mælsku- manna og annarra þeirra mælsku- manna sem eiga innstæðu fyrir því sem þeir segja. Innstæðu sem lýsir andlegum burðum og þroska, víðsýni og framsýni og síðast en ekki síst góðu mannviti. Eftir kosningar til embættis forseta íslands viljum við geta sameinast um persónu sem við treystum og gerir okkur sýnilegri meðal þjóðanna. Er okkur til sóma í samstarfi þeirra á milli, beinir sjón- um að afurðum okkar og hugmynd- um, hæfni og þekkingu og síðast en ekki síst eyjunni sjálfri, okkur sem hér búum, menningu okkar og list- sköpun. Til þeirrar persónu sem í það hlutverk velst hljótum við að gera þá kröfu að hún kunni að tala fallegt mál sem lýsir fijóum huga, tærri og rökfastri hugsun. Við þurf- um í þetta embætti Ijóngreindan ein- stakling, heillandi og vakandi en umfram allt íslenskan. Með íslensk- an „elegans" og íslenskan stíl. Sér- stakan íslenskan forseta. Þannig kandídat höfum við í Guðrúnu Agn- arsdóttur. Okkar talsmaður verður að tala fyrir þeim gildum sem við virðum sjálf. Kynna okkur einsog við erum og viljum vera meðal annarra þjóða heima og heiman. Það eru jú gömul sannindi og ný að „menningin selur saltfiskinn". Eða hvað viljum við vera? Hvernig? Við þessu eigum við vafalítið og sem betur fer marglit og mismunandi svör. Þó held ég að við viljum öll byggja á raunverulegri sjálfsvirðingu og innri styrk sem þjóð í fjölskyldu þjóðanna. Þann styrk sækjum við aldrei í tækifæris- sinnað froðusnakk. Kjósum ekki yfir okkur forseta sem brýtur niður þennan styrk með flatneskju og doða. Sameinumst um Guðrúnu Agnarsdóttur sem við þekkjum af vönduðum vinnubrögðum og góðum verkum, alltaf málefnaleg, alltaf glæsileg. Við erum alltof miklir prakkarar í okkar þjóðarsál til að elta kosningaspár einsog skynlausar skepnur í hjörð. Notum lýðréttindi okkar til þess sem þau eru ætluð, verum sjálfum okkur samkvæm. Það er ekki rétt að forseti þessar- ar þjóðar skipti litlu sem engu máli. En við verðum sjálf að geta tekið mark á orðum hans ef við eigum að geta sagt við börnin okkar: „Sjáðu! Þarna er forsetinn yfir ís- landi. Usss! Hlustum!" BJÖRK HAUKSDÓTTIR, Holtsgötu 22, Reykjavík. Samanburður við Danmörku? Frá Ólafi Reyni Guðmundssyni: UNDANFARIÐ hefur mikið verið fjallað um lífskjör í öðrum löndum. Lífskjör í Danmörku hafa ennfremur rækilega verið borin saman við lífs- kjör hér á landi. Á hinn bóginn er allur samanburður í eðli sínu ákaflega erfiður. Á það sér- staklega við um þá aðstöðu þegar þjóð- félög eru borin saman. Fjárhagsleg skynsemi. í rekstri þeirra er mismikil og stundum er hún einfaldlega ekki Ólafur Reynir Guðmundsson höfð að leiðarljósi. Allar þjóðir eiga við einhver vandamál að stríða hvort sem þau felast í atvinnuleysi, lágum launum, verðbólgu eða einfaldlega ótryggu efnahagsástandi. Og þótt sumar þjóðir hafi sparsemi að leiðarljósi nota aðrar hvert tækifæri til þess að auka almenna neyslu. Síðast en ekki síst er slök framleiðni víða alvar- legt vandamál. Af þessu má ljóst vera, að samanburður á lífskjörum þjóða hlýtur ávallt að vera mjög erf- iður og jafnframt umdeilanlegur og gildir þá einu um hvaða þjóðir ræðir. Líklega vegur þó þyngst að gengi þjóða er mjög fallvalt. Lífskjör eru gjaman háð talsverðum breytingum milli ára. E.t.v. er hægt að bera sam- an viss grundvallaratriði en þá aðeins ef til lengri tíma er litið. Síðan má spyija hvaða mæli- kvarða beri að nota? Er t.d. réttlæt- anlegt að bera okkur saman við þær þjóðir sem greiða hæst tímakaup í heiminum? Er e.t.v. eðlilegra að horfa til meðallauna í Evrópu? Við samanburð skal bera saman hluti sem eru sambærilegir. En hvenær eru þjóðfélög sambærileg? Söguleg tengsl íslands og Danmerkur rétt- læta ekki efnahagslegan samanburð milli landanna tveggja. Sá mælikvarði sem er notaður hveiju sinni ræður útkomu saman- burðarins. Það er þ.a.l. grundvallar- atriði að þjóðir með sams konar efn- hag séu bornar saman. Fiskveiðiþjóð- ir séu þannig bomar saman við aðr- ar fiskveiðiþjóðir og iðnaðarsamfélög séu borin saman við önnur iðnaðar- ríki. Segja má, að það sé jafnumdeil- anlegt að bera saman iðnaðar- og fískveiðiþjóð eins og að bera saman olíu- og landbúnaðarríki. Að auki er afar umdeilanlegt að bera saman land, sem nýskriðið er úr kreppu, við land sem hefur ekki búið við hlið- stæða efnahagslægð. Er sanngjamt að bera saman árangur tveggja hlaupara - ef aðeins annar þeirra er heill heilsu? ÓLAFUR R. GUÐMUNDSSON, laganemi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.