Morgunblaðið - 30.06.1996, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Háskólabíó
Heimasíða Barb Wire
http://vortex.is/pamela
„EKKI SEGJA VINAN"!!
:
HASKOLABIO
SÍMI 552 2140
IAN
HART
ART
MALIK
taiekking.
blekkir o'
sjálfan s|
P Rlj
FUGLABURIÐ
Leslie Nielsen fer á kostum í hlutverki sínu sim Drakúla greifi
i sprenghlægilegri gamanmynd frá gríngreifanum Mel
Brooks. Nielsen og Brooks gera hér stólpagrín að
þjóðsögunni um blóðsuguna ógurlegu. Þú munt aldrei líta
blóðsugur sömu augum eftir þessa mynd!!!
Sýnd kl. 5, 7, 9 oq 11. B.i 12 ára.
Nýr kennari i skóla fyrir vandræðaunglinga fær eldskírn í því að
takast á við vandræðaunglinga sem eru eins og eimreiðar á fullri
ferð til glötunar. Allar venjulegar leiðir til að ná til krakkana eru
fánýtar og þá er um að gera að reyna eitthvað nýtt.
Aöalhlutverk: lan Hart (Backbeat) og Art Malik (True Lies).
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
ÞYSKALAND - TEKKLAND KL. 18.00
BEIN ÚTSENDING Á BREIÐTJALDI!!
Fyrirtaks safnplata
TÓNLIST
Geisladiskur
STONE FREE
Tónlist úr leikritinu Stone Free.
Flytjendur eru meðal annars Jón
Ólafsson hljómborðsleikari, sem
einnig stýrði upptökum, Daníel Ag-
úst Haraldsson, Eggert Þorleifsson,
Emilíana Torrini og Ingvar Sigurðs-
son sem syngja, Guðmundur Péturs-
son sem leikur á gítar og syngur,
Stefán Hjörleifsson sem leikur á gít-
ar, Róbert Þórhallson sem leikur á
bassa og Jóhann Hjörleifsson sem
leikur á trommur og bakraddasöng-
konumar Margrét Vilhjálmsdóttir
og Guðlaug Elisabet Ólafsdóttir.
Lögin em eftir ýmsa, þar á meðal
Jimi Hendrix, Melanie Safka, Paul
Simon, Bob Dylan og fleiri. Japís
gefur út. 44,35 mín., 1.999 kr.
ÞAÐ HEFUR gefist vel að gefa
út gamla tónlist endurupptekna
og hefur tíðkast frá örófi. Ýmist
er að menn hafa reynt að túlka
KVIKMYNPIR
Bíóhöllin/Bíóborgin
KLETTURINN
„THE ROCK“ ★ ★ ★
Leikstjóri: Michael Bay. Framleið-
endur: Don Simpson og Jerry
Bmckheimer. Aðaihlutverk: Sean
Connery, Nicholas Cage, Ed Harr-
is. Hollywood Pictures. 1996.
SÖGUÞRÁÐURINN í hasar-
myndunum frá Hollywood gerist æ
villtari. Lítum á Klettinn, nýjustu
(og síðustu) sumarsprengjuna frá
framleiðendadúettnum Don Simp-
son og Jerry Bruckheimer. Hópur
úrvalshermanna úr bandaríska
landgönguliðinu kemur sér fyrir á
fangaeyjunni Alcatraz við San
Francisco ásamt gislum og hótar
að dreifa eiturefnum yfir borgina
ef ríkið greiðir ekki ijölskyldum
látinna hermanna bætur og þeim
sjálfum ríflegan lífeyri. Stjórnvöld
senda sinn eigin úrvalsflokk að
bijótast inn í fangelsið en í honum
eru m.a. óreyndur eiturefnafræð-
ingur, sem varla getur stafað orðið
gamalt lag á nýjan hátt eða reynt
að fara sem næst upprunalegri
útsetningu og útgáfu. Gott dæmi
um verk þar sem menn þræddu
meðalveginn var tónlistin úr Hár-
inu sem kom út fyrir tveimur
árum, en vaskur hópur tónlistar-
manna endurgerði hana skemmti-
lega og breytti veigalitlu verki í
bráðskemmtilega plötu. Á nýút-
kominni plötu sem heitir Stone
Free og á er tónlist sem heyrist
víst í samnefndu leikriti Jims Cart-
wrights, sem frumsýnt var í Borg-
arleikhúsinu fyrir skemmstu, er
aftur á móti farin sú leið að fara
eins nærri upprunalegri útgáfu og
unnt er. Það tekst og víða allvel,
enda valinn maður í hverju rúmi,
og fyrir vikið er platan prýðileg
skemmtun, þó meira hefði verið
gaman að heyra ný efnistök eða
átakameiri túlkun.
Mikið söngvaraval er á plötunni
og þar fara fremst í flokki Emil-
íana Torrini og Daníel Ágúst Har-
aldsson. Emilíana fer hreinlega á
kostum á plötunni. Á stöku stað
árás, og gamall breskur njósnari,
eini maðurinn sem tekist hefur að
stijúka frá Alcatraz. Svo er bara
að halla sér aftur og fylgjast með
flugeldasýningunni. Þú þarft ekki
að hafa áhyggjur af langsóttum
söguþræðinum, þú hefur engan
tíma til að pæla í honum fyrr en
einhverntíman í næstu viku.
Það er kannski vegna þess að
Kletturinn er forkunnarskemmti-
leg hasarmynd og það skiptir
minnstu máli um hvað hún fjallar.
Hún minnir jafnvel á klassískar
stríðsmyndir eins og Arnarborgina;
óvinnandi virki, illskeyttur óvinur,
úrræðagóð valmenni. Hasarinn er
auðvitað talsvert meiri en það er
ekki endilega meiri spenna. Fyrir
myndbandabyitinguna hefði Klett-
urinn líkt og Arnarborgin í gamla
fer hún þó tæpt, til að mynda er
falsettan í mærðarrullunni Sounds
of Silence brothætt og ekki alveg
hrein, en á móti kemur að hún
syngur White Rabbit og fleiri lög
frábærlega; hún er tvímælalaust
komin í hóp helstu söngkvenna,
en enn bið eftir því að hún skapi
eitthvað nýtt.
Daníel Ágúst kemst líka víða
vel frá sínu, en víða reynir um of
á takmarkaða rödd hans. Eggert
Þorleifsson skráir sig líklega seint
söngvara í símaskrá, en hann
syngur Sooner or Later passlega
illa; var ekki sagt um höfundinn
að hann syngi eins og belja sem
fest hefði löpp í gaddavír?
Ingvar Sigurðsson kemur einnig
skemmtilega á óvart, en hann hef-
ur reyndar áður sýnt ágæta takta
fyrir framan hljóðnemann. Guð-
mundur Pétursson er aftur á móti
ekki öfundsverður af að fara í föt
Jimi Hendrix í söng, því þó hann
nái gítarleiknum af snilld, á hann
nokkuð í land með sönginn.
Jón Ólafsson sannar enn að
daga verið endursýnd í tætlur. Og
líkt og gömlu stríðsmyndirnar eru
Simpson/Bruckheimer myndirnar
dýrðaróður til hermennsku af
hverskonar tagi. í síðustu mynd
þeirra var kafbátaáhöfn sett í dýrl-
ingatölu („Crimson Tide“). Þeir
hafa áður lofað og prísað flugher-
inn („Top Gun“). Nú er komin röð-
in að sérsveitunum. Jafnvel ill-
mennin í sérsveitunum, þeir sem
hóta að myrða milljón manns með
eiturefnum takið eftir, eiga margir
(ekki allir) samúð áhorfandans af
því þeir fengu slæma útreið eftir
Víetnamstríðið.
Leikstjórinn, Michael Bay („Bad
Boys“), kann að raða saman bfla-
eltingarleik með hámarks eyði-
leggingarmætti og halda uppi bul-
landi hraða í frásögninni hlaðinn
enginn kemst með tæmar þar sem
hann hefur hælana í endurgerð;
víða fer hann ótrúlega nærri upp-
runalegri útgáfu laganna, vel
studdur af snilldarleik Guðmundar
Péturssonar, en lagið sem hann
syngur geldur fyrir slakan fram-
burð. í því Iagi leikur hann reynd-
ar bráðskemmtilega á píanó og svo
er víðar á plötunni að hann fer
vel með.
Upplýsingar sem fylgja með
lögunum eru eflaust vel þegnar
þeim sem ekki þekkja til, en þær
hefði mátt lesa betur yfir („ballaða
sem skýrð er éftir frægri grúpp-
íu“). Einnig er vafaatriði hvort
rétt sé að segja My Sweet Lord
eftir George Harrison, því eins og
fram kemur í bæklingnum með
disknum var höfundarréttur
dæmdur annað.
Stone Free er fyrirtaks safn-
plata fyrirtaks laga frá sjöunda
áratugnum. Hún bætir að vísu
engu við lögin og þeir sem þegar
eiga lögin finna varla mikla þörf
til að kaupa hana. Allir aðrir, og
þeir eru fjölmargir, ættu að hafa
af henni mikið gaman og fyrir þá
fær hún bestu meðmæli.
Árni Matthíasson
þungavopnum. Líkt og Tony Scott,
uppáhaldsþasarleikstjóri framleið-
endanna hingað til, kemur hann
úr auglýsingabransanum og
treystir á hraðar klippingar, mjúka
birtu og endalausar nærmyndir til
að koma frásögninni beint í æð.
Hann hefur með sér tvo öndvegis-
leikara sem hjálpa myndinni mikið.
Sean Connery er eini raunverulegi
kletturinn í Klettinum. Hlutverk
hans er meira en lítið reyfarakennt
en hann er alltaf aktraustur í
hverju sem hann lendir. Hann er
líka glettilega önug föðurímynd
Nicholas Cage, sem leikur hinn
óreynda eiturefnasérfræðing er
mannast heilmikið í Alcatraz. Cage
er vandaður og góður leikari og
fer létt með rulluna og gefur henni
kómískt og mannlegt yfirbragð.
Hann verður seint talinn í liði með
Rambó. Að auki er Ed Harris fínn
í tvíbentu hlutverki.
Svo hér er á ferðinni sumaraf-
þreying eins og hún gerist best.
Kletturinn er afbragðs skemmti-
efni. Það ætti engum að leiðast
frekar en venjulega í Alcatraz.
Arnaldur Indriðason
BJÖRGVIN varð í öðru
sæti í alþjóðlegri söngv-
arakeppni í Tyrklandi.
Björgvin
í öðru sæti
BJÖRGVIN Halldórsson náði
öðru sæti í alþjóðlegu söngv-
arakeppninni í Pamukkele sem
fór fram 20.-23. júní. Alls voru
16 þjóðir sem tóku þátt í keppn-
inni og varð söngkona frá Búlg-
aríu í fyrsta sæti og söngvari
frá Ástralíu í því þriðja.
Björgvin söng tvö lög í
keppninni. Lagið Núna sem
hann söng í söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva á ír-
landi í fyrra og tyrkneska lagið
Muptelayim söng hann bæði á
ensku og á frummálinu, en lag-
ið er eftir þekktan tyrkneskan
höfund. Meðal þeirra þjóða sem
tóku þátt í keppninni voru ítal-
ía, Bandaríkin, írland, Brasilía,
Kúba, Litháen, England,
Þýskaland, Spánn, ísrael og
Tyrkland. Keppninni var sjón-
varpað beint í Tyrklandi, Búlg-
aríu og Grikklandi.
Pamukkele-söngvarakeppn-
in er hluti af fjögurra daga
listahátíð sem er haldin árlega
í Tyrklandi.
Björgvin hefur ákveðið að
hljóðrita tyrkneska lagið á
næstunni. Var honum boðin
þátttaka í næstu keppni í Tyrk-
landi. Einnig þáði hann boð um
að taka þátt í áströlsku söngva-
keppninni og Cavan-söngva-
keppninni á Irlandi.
ARASIN A
ALCATRAZ