Morgunblaðið - 30.06.1996, Síða 50
50 SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ístórfljóti
Með froskalappir og flotholt
Gunnlaugur
Rögnvaldsson
skrifar
Ekki nema fullhuga mönnum
dytti í huga að kasta sér í
straumharða á eða stórfljót, hang-
andi aftan í plast-
fiotholti með froska-
lappir á fótunum.
Við svo erfiðar að-
stæður að hvorki
kajakar né gúmmíbátar eiga mögu-
leika að komast klakklaust í gegn.
En við þessar aðstæður hófu menn
að stunda áhugmál, sem orðið er
að keppnisíþrótt á Spáni, í Frakk-
landi og víðar. Keppnisíþrótt sem
hófst í ísköldum og þröngum jökul-
ám við rætur frönsku alpanna, þar
sem venjulegir bátar komust ekki
leiðar sinnar. Ævintýramenn létu
ekki sér ekki segjast og fundu upp
nýstárlegan búnað til að komast
jökulárnar, sama hvað tautaði og
raulaði.
Á 38 km stórfljóti, sem rennur
um Pallars Sobira í Lleida, skammt
frá Barcelona á Spáni, eru stundað-
ar alls kyns vatnaíþróttir. Fjölmörg
fyrirtæki annast ferðamenn sem
vilja reyna sig í fljótinu á gúmmí-
bátum, en um 70 gúmmíbátar eru
til taks á hveijum degi. Áin þykir
sú besta fyrir ævintýrsiglingar í
Evrópu og skiptist í bæði létt og
erfið svæði. Þarna má meðal ann-
ars finna Ramon Barrber, spánska
meistarann í hinni ört vaxandi
keppnisíþrótt, sem kölluð er „hyd-
rospeed" í Evrópu. Hann vinnur
sem leiðsögumaður hjá fyrirtæki
sem dregur nafn sitt af snjómannin-
um ógurlega úr Himalaya-fjöllun-
um, Yeti Emotions. Því stýrir Jordi,
sem er mikill ævintýramaður og
hefur farið niður straumhörðustu
ár og klifíð mörg af hæstu fjöllum
heims. Árlega skipuleggur hann
ævintýraferðir á fjarlægar slóðir
fyrir Evrópubúa. „Þessi íþrótt er
enginn barnaleikur og allt annað
en að á sigla kajak eða gúmmíbát.
Það er stöðug hætta á meiðslum,
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Ofurhugi í stórfljóti
ÞAÐ kostar kjark og áræði að kasta sér í straum-
harða á eða stórfljót, hangandi aftan í plasthylki
með froskalapplr á fótunum.
þótt iðkandinn sé í
þykkum blautbún-
ingi með sérstakri
vörn fyrir fæturna,
sem eru í mestri
hættu að verða fyrir
hnjaski," sagði Jordi
í samtali við Morgun-
blaðið.
„Menn verða að
stjórna förinni með
fótunum og með því
að breyta afstöðu
flotholtsins, þegar
, SPÁNSKI melstarinn, Ram-
on Barrber, er hér í þykkum
blautbúningi, með froska-
lappir, hjálm og plastþot-
una, sem hann þeytist á nið-
ur fljótin hraðast Spánverja.
við á. Oft missa menn stjórn á þessu
og þeytast yfir flúðir á fullri ferð
án þess að fá við nokkuð ráðið.
Best er að byija varlega, í litlum
straum. Keppt er á þrennan hátt,
í kapp við klukkuna 5 km leið og
sömu vegalengd í gegnum fyrirfram
ákveðið hlið, eins og í stórsvigi. Þá
keppa Frakkar að komast sem hrað-
ast 500 metra vegalengd í miklum
straumi. Keppendur skoða árnar vel
fyrir keppni og ákveða siglingalín-
una, en hlutirnir fara ekki alltaf
eins og ætlast er til. Til þess eru
aðstæður of breytilegar. Þessi íþrótt
reynir gifurlega á styrk manna,
lungu og kjark. Það er enginn óhult-
ur, sama hvað vanur hann er, því
óvæntar flúðir og breyttar aðstæður
eru alltaf á næsta leyti. Barrber er
geysilega fær og stingur aðra af
við erfiðustu aðstæður, þannig að
kajakmenn og vanir stjórnendur
gúmmíbáta blikna," sagði Jordi.
Klettakast
ÖNNUR ævintýramennska í
Leida-héraðinu í nágrenni
Pallars er að renna sér í 9
mm blautgalla niður lækj-
arsprænur í þröngum
klettagljúfrum, eftir hæfi-
lega langt klifur eða göngu-
ferð.
í forystu til framtíðar
Menntun er mikilvœg undirstaða jyrir
öflugt atvinnulíf og sjálfstteði þjóðarinnar.
Landsbanki Islands hefur staðið við hlið
námsmanna og stofnaði fyrstur islenskra
hanka sérhæfða þjónustu fyrir námsmenn
Námuna. Náman veitir sveigjanlega
þjónustu sem er sniðin að þötfum nams
manna og á hverju ári er úthlutað styrkjum
til náms á Islandi og erlendis.
Með ungufólki
til bjartari framtíðar
Við lítum svo á að nám sé fjárfesting til framtíðar og á námsárunum
aðstoðar bankinn námsmenn við fjármögnun og veitir þjónustu og öryggi -
til þess að námið beri sem mestan ávöxt. Náman, námsmannaþjónusta
Landsbankans, sparar námsmönnum tíma og umstang. I Námunni er hægt að
fá ráðgjöf og tekið er tillit til þess að námsmenn, ungt fólk sem er að byggja
upp fyrir framtíðina, þurfa aðstoð við að mæta óvæntum útgjöldum.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna