Morgunblaðið - 02.07.1996, Page 1
112 SÍÐURB/C
147. TBL. 84. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Ólafur Ragnar Grímsson
kj örínn forseti Islands
Hlaut 40,9%
greiddra atkvæða
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, nýkjör-
inn forseti Islands, og eiginkona
hans, Guðrún Katrín Þorbergsdóttir,
hittu frú Vigdísi Finnbogadóttur á
Bessastöðum í gær. Vigdís sýndi
eftirmanni sínum húsakynnin á for-
setasetrinu og kynnti hann og eigin-
konu hans fyrir starfsfólki forseta-
embættisins. Ólafur Ragnar tekur
við embætti forseta 1. ágúst næst-
komandi.
Ólafur Ragnar var kjörinn fimmti
forseti íslands í kosningunum sem
fram fóru síðastliðinn laugardag.
Hann hlaut 68.370 atkvæði eða
40,9% greiddra atkvæða. Pétur Kr.
Hafstein fékk 48.863 atkvæði eða
29,2%, Guðrún Agnarsdóttir fékk
43.578 atkvæði eða 26% og Ástþór
Magnússon fékk 4.422 atkvæði eða
2,6%. Auð eða ógild atkvæði voru
2.101 eða 1,3%.
Á kjörskrá í kosningunum voru
194.707 kjósendur og greiddu
167.334 atkvæði. Kjörsókn var
85,9%, sem er nokkuð minna en í
forsetakosningunum 1980 þegar
90,5% kjósenda greiddu atkvæði.
Strax þegar fyrstu tölur birtust,
skömmu eftir að kjörstöðum hafði
verið lokað kl. 22, var ljóst að Ólaf-
ur Ragnar myndi sigra í kosningun-
um. Hann hlaut flest atkvæði fram-
bjóðenda í öllum kjördæmum. Stuðn-
ingur við hann var nokkuð meiri á
landsbyggðinni en á höfuðborgar-
svæðinu.
Tími sátta og samstöðu
Fljótlega eftir að fyrstu tölur í
kosningunum lágu fyrir fór Ólafur
Morgunblaðið/Sverrir
Á MILLI þijú og fimm þúsund manns komu saman við heimili Ólafs Ragnars og Guðrúnar Katrínar á Barðaströnd á Seltjarnarnesi
daginn eftir kosningarnar. Mannfjöldinn fagnaði nýkjörnum forseta með klappi og húrrahrópum.
Ragnar til fundar við stuðningsmenn
sína sem biðu hans á Hótel Sögu.
Honum var fagnað vel og lengi af
fjölda fólks.
Síðar um kvöldið, þegar þau hjón
komu öðru sinni í Súlnasal, rétt fyr-
ir klukkan eitt, flutti Ólafur Ragnar
15 mínútna langa ræðu. Hann þakk-
aði stuðningsmönnum sínum um allt
land fyrir stuðninginn. Hann þakk-
aði einnig meðframbjóðendum sín-
um, Pétri Hafstein, Guðrúnu Agn-
arsdóttur og Ástþóri Magnússyni,
fyrir heiðarlega og drengilega fram-
komu.
Undir lok ræðu sinnar vék Ólafur
Ragnar að næstu verkefnum og
sagði: „Auðvitað skil ég vel að á
þessu kvöldi, þessari nóttu, viljum
við fagna, en mig langar að lokum
til að setja fram þá ósk að hvert og
eitt ykkar sem hér eru í kvöld og
hvert og eitt ykkar sem heima sitjið
eða eru saman komin úti um land,
virðið þá ósk mína að taka af heilum
hug um hönd þeirra sem aðra hafa
stutt í þessu kjöri. Nú fer í hönd
tími sátta og samstöðu. Hvað sem
líður afstöðu okkar í kosningum til
embættis forseta íslands, er sú
skylda öllu æðri að vera íslendingur
og virða embætti forseta íslands."
Nýkjörnum forseta hafa borist
fjöldi skeyta og heillaóska víðsvegar
að. Pétur Hafstein, Guðrún Agnars-
dóttir og Ástþór Magnússon hafa
sent honum skeyti og óskað honum
velfarnaðar í starfi. Honum hafa
einnig borist góðar kveðjur frá for-
sætisráðherra, fyrir hönd ríkisstjórn-
ar íslands og biskupnum yfir íslandi.
■ Forsetakosningaruar
2/6/10/11/12/14/16/34/35.
Rússlandsforseti kom fram í sjónvarpi eftir að hafa ekki sést í fimm daga
Enn vangaveltur
um heilsu Jeltsíns
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
kom fram í sjónvarpi í Rússlandi í
gær, tveimur dögum fyrir seinni
umferð forsetakosninganna á
morgun, eftir að hafa ekki sést í
fimm daga en frammistaða hans
nægði ekki til að eyða efasemdum
um heilsu hans og getu til að stjórna
landinu næstu fjögur árin.
Jeltsín sat bak við skrifborð og
flutti tveggja mínútna ávarp og var
ekki að sjá að þar færi sami maður
og fyrir nokkrum vikum svipti af
sér jakkanum og steig villtan dans
á rokktónleikum I kosningaherferð
sinni.
„Eg veit nákvæmlega hvað ber
að gera, ég hef viljann, styrkleikann
og ákveðnina til þess að gera
þetta," sagði Jeltsín fremur hásri
röddu. „Það, sem nú vantar, er
ykkar stuðningur.“
„Hann er við slæma
heilsu, það er ljóst“
Jeltsín var skýrmæltur en virtist
stífur og talaði ekki af tilfinningu.
Opinbera skýringin á hvarfi Jeltsíns
var sú að hann hefði verið sár í
hálsi eftir erfiða kosningabaráttu
fyrir kosningarnar á morgun en í
gær sögðu embættismenn að hann
hefði verið kvefaður.
Gennadí Zjúganov, leiðtogi
kommúnista og andstæðingur
Jeltsíns í seinni umferð kosning-
anna, krafðist þess áður en Jeltsín
kom fram að gerð yrði rækileg
grein fyrir heilsu forsetans í opin-
berri skýrslu eftir að hann hefði
aflýst fjölda funda, þar á meðal
viðræðum við ráðamenn í Úkraínu
og Moldóvu.
„Hann er við slæma heilsu, það
er alveg ljóst,“ sagði Zjúganov.
Jeltsín er 65 ára gamall og fékk
tvisvar vægt hjartaáfall í fyrra.
Ekki er vitað til þess að Zjúganov
eigi við heilsuvanda að stríða.
■ Jeltsín líkt við/29
Reutcr
JELTSÍN á fundi með ráð-
gjöfum sínum í gær.
Naumur
sigur
múslima
Mostar. lleuter.
FLOKKUR Alja Izetbegovic,
forseta Bosníu, sigraði naum-
lega í borgarstjórnarkosning-
um, sem fram fóru í Mostar
um helgina. Búist er við að
lokatölur berist á morgun.
Að sögn talsmanna ESB er
talið að stjórnarflokkur músl-
ima, Virkt lýðræði, hljóti 19
sæti í borgarstjórn en Lýðræð-
issamband Króata hljóti 18.
Er ESB tók við stjórn borg-
arinnar fyrir um ári, var hvor-
um flokki um sig úthlutað 16
sætum, en fimm voru til skipt-
anna fyrir aðra flokka, t.d.
Serba. Svo virðist sem þeir
komi engum manni að.
■ Vilja herða atlöguna /27