Morgunblaðið - 02.07.1996, Síða 16

Morgunblaðið - 02.07.1996, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FORSETAKJÖR Forsetaframbjóðendumir Pétur Kr. Hafstein, Guðrún Agnarsdóttir og Ástþór Magnússon óskuðu nýkjömum forseta til hamingju þegar Morgunblaðið ræddi við þau um úrslit kosninganna. Ólafur Ragnar Grímsson gaf í gær ekki kost á viðtali við Morgunblaðið. Astþór Magnússon Mjög ánægður með úrslitin ÁSTÞÓR Magnússon segist vera mjög ánægður með úrslit forseta- kosninganna þótt hann hefði auð- vijtað viljað sja meira fylgi við sig. „Eg held að ÓJafur verði fínn í þetta,“ segir Ástþór. Hann segist ánægður með að áætlun Sjálfstæðisflokksins um að koma Pétri Kr. Hafstein í stól for- seta hafi mistekist. „Þama var verið að ota Petri fram til að reyna að hindra að Ólafur kæmist að. Maður heyrir úr öllum áttum að hringt hafi verið í sjálfstæðisfólk og það beðið um að kjósa Pétur. Þetta er brot á lýðræði og ég er ánægður að þetia tókst ekki. En auðvitað hefur þessi barátta komið niður á þeim fjölda sem hefði vilj- að styðja mín baráttumál. Ég veit þess dæmi að fólk kaus Ólaf til að tryggja að Pétur næði ekki kjöri," segir Ástþór. Aðspurður hvort fylgi Ólafs hefði komið honum á óvart sagði Ástþór svo ekki vera. „Ég held að kosningabarátta mín hafi hjálpað honum. Ég lagði ríka áherslu á að það mætti ekki gefa kolkrabbanum forsetastólinn. Ég vil að það sé lýðræðislega kjörinn forseti í emb- ætti, ekki einhver sem túlka mætti sem strengjabrúðu valdhafa í land- inu. Ég skora á fólk að sýna nýjum forseta stuðning því ég tel okkur íslendinga eiga mikil verkefni fyr- ir höndum næstu fjögnr árin við undirbúning leiðtogafundar. Þá er mikilvægt að samstaða sé um mál- efnin og að fólk fylki sér á bakvið forsetann til að hann geti leitt fundinn. Hornsteinninn sem ég lagði fram er tákn þess að Friður 2000 er eign allrar þjóðarinnar. Nú er mikilvægt að byrja að mynda samstöðu með þjóðinni um þetta málefni þannig að hægt verði að mynda samstöðu í heiminum um að halda leiðtogafund á íslandi árið 2000 sem mun marka upphaf- ið að nýjum tímum," segir hann. Nú þegarkosningaraar eru að baki segist Ástþór ætla að halda áfram að byggja upp starfsemi Friðar 2000. „Eg er bara á byrj- unarreit og mun halda ótrauður áfram.“ ^ ^ Morgunblaðið/Golli PETUR og Inga Ásta Hafstein á kosninganótt á Hótel íslandi ásamt Valgerði Bjarnadóttur kosn- ingastjóra og fleiri stuðningsmönnum sinum. ÞEGAR Pétur Kr. Hafstein var inntur eftir viðbrögðum við úrslit- um forsetakosninganna sagðist hann fyrst af öllu vilja óska ný- kjörnum forseta til hamingju og sagðist vona í einlægni að honum myndi takast að skapa þann frið og sátt um embætti forsetans sem nauðsynlegt væri. Pétur sagði að nú að aflokinni kosningabaráttunni væri sér efst í huga þakklæti til þeirra þúsunda íslendinga sem gengið hefðu fram fyrir skjöldu og stutt sig og Ingu Ástu með margvíslegum hætti. „Það er dýrmæt reynsla og fjár- sjóður sem við munum búa að til æviloka," sagði Pétur. Aðspurður hvort hann væri sáttur við fylgið sem hann hefði hlotið í kosningunum sagðist Pét- ur telja að hann hefði fengið góð- an stuðning. Fyrir það væri hann þakklátur og fyrir það að hans Pétur Kr. Hafstein Oskar nýkjörnum forseta til hamingju málflutningur um embætti forseta Islands hefði fengið góðan hljóm- grunn. „Ég lagði megináherslu á stöðu og hlutverk forsetans í þjóð- lífinu og mér sýnist að sú umræða hafi skilað góðum árangri.“ Um fylgi Ólafs Ragnars sagði Pétur að það hefði farið mjög nærri þvi sem skoðanakannanir höfðu sagt til um og það hefði því ekki komið svo mjög á óvart. „Hins vegar hafði ég hugboð um að það yrðu meiri breytingar síðustu dag- ana en raunin varð á. Ég var mjög bjartsýnn en tel engu að síður að þetta hafi verið mjög góður stuðn- ingur sem ég hlaut á skömmum tíma. Ég var nær óþekktur þegar ég kom fram fyrir rúmum tveimur mánuðum og er að því Ieyti afar sáttur við tilveruna. Ég hef enda þá fullvissu að stuðningsmenn mínir hafi lagt sig fram eins og frekast mátti verða og unnið vel og drengilega að þessari kosn- ingabaráttu. Það er það sem skipt- ir raunverulega mestu máli.“ Pétur sagðist myndu nú taka aftur við störfum sínum í Hæsta- rétti „eins og ekkert hafi í skor- ist“. # ^ Morgunblaðið/Asdís GUÐRUN Agnarsdóttir vakti á kosninganótt með stuðningsmönnum sínum á Hótel Borg. Hér er hún ásamt Kristinu Einarsdóttur og Valgerði Sverrisdóttur. GUÐRÚN Agnarsdóttir sagði í gær að sér væri þakklæti efst í huga. Þakklæti fyrir að hafa feng- ið tækifæri til að fara víða um land og kynnast mörgu góðu fólki og lífinu í landinu, þakklæti til alls þess góða fólks sem hefði lagt á sig ómælda sjálfboðavinnu „til að fylkja sér um þennan málstað og mig sem erindreka hans. Það hefur verið ógleymanlegt að fá að taka þátt í þessu ævintýri, kynnast svona mörgu nýju, hug- myndaríku og duglegu fólki og treysta böndin við gamla ættingja og vini“. Guðrún sagði að þótt það væru ákveðin vonbrigði að hafa ekki náð settu marki þá fyndist henni standa upp úr sá mikli ávinningur sem hefði orðið, bæði fyrir þau málefni og þau lífsgildi sem hún stæði fyrir. „Ég fagna innilega þeirri miklu umræðu sem fram fór um mín áherslumál og því hvað þessi mikla vinna sem fólkið lagði á sig bar mikinn árangur. Á stutt- um tíma jókst fylgið alveg gífur- Guðrún Agnarsdóttir Þakklæti efst í huga lega, fór úr 4% í tæp 30% sem er mjög vel af sér vikið og ég er viss um að hefðum við haft aðeins lengri tíma þá hefðu niðurstöð- urnar jafnvel orðið talsvert aðr- ar.“ Guðrún sagði að í sínum huga væru engar neikvæðar tilfinning- ar. Hún fagnaði þvi að samskiptin og viðkynningin við hina fram- bjóðendurna hefðu verið góð og kosningabaráttan sem slík mjög skemmtilega. „Þannig að eftir á að hyggja eru bara jákvæðar hugsanir í mínum huga,“ sagði Guðrún. „Það er bara spurning hvernig maður getur nýtt allan þennan sterka og jákvæða lifs- kraft til þess að bæta samfélagið, því það var það sem við lögðum af stað með.“ Guðrún sagðist ánægð með fylgi sitt og ánægð með það fólk sem stæði að sér. „Það er gott og já- kvætt fólk og ég vona að okkur lánist, annað hvort hvert í sínu lagi eða öll saman, að leggja eitt- hvað gagnlegt af mörkum til að bæta samfélagið. Það var það sem fyrir okkur vakti.“ Aðspurð um það hvort hún hefði einhveijar mótaðar hugmyndir um það hvert framhaldið gæti orðið sagði Guðrún að þetta væru hugmyndir sem skytu upp kollin- um þegar hún fyndi fyrir sam- stöðu og stuðningi. „Maður finnur þörf fólksins til að gera eitthvað meira því auðvitað vildu flestir sjá sinn fulltrúa verða forseta. Ég óska auðvitað Ólafi Ragnari og hans fjölskyldu til hamingju með sigurinn og vona að þeim farnist vel og gæfa og friður megi verða þeirra hlutskipti á forsetastóli." Morgunblaðið/Jón Svavarsson KOSNINGAVAKA Ástþórs Magnússonar var á Pianóbarnum. Hér er hann ásamt unnustu sinni, Hörpu Karlsdóttur, og dóttur sinni Ölmu Björk. Við bjóðum okkar trúföstu viðskiptavinum 30% afslátt af öllum okkar vel þekktu gæðavörum: HIGH DESERT drottningarhunang, blómafrjókorn og Propolls, ALOE VERA frá JASON og Dr. Guttorm Hernes dag- og næturkrem gegn húðvandamálum. TILBOÐIÐ GILDIR FRA OG MEÐ ÞRIÐJUDEGI 2. JÚLÍ TIL OG MEÐ LAUGARDEGI 6. JÚLÍ. Þeir víðshipravinir. sem ehHi eíga Hosf á að heimsæhja ohhurá tTmahilinu. geta einnig nýlt sér filboðið meö pvT að panta gegn póslhröfu. Visa eða Euro. Pönrunarsímar: SGB 8S93 oq 8S4 2117. Borgarhringiunni. Þorpínu. 2. hæfi. Símar 8S4 8117 8 S86 8S93.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.