Morgunblaðið - 02.07.1996, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FORSETAKJÖR
Forsetaframbjóðendumir Pétur Kr. Hafstein, Guðrún Agnarsdóttir og Ástþór Magnússon óskuðu
nýkjömum forseta til hamingju þegar Morgunblaðið ræddi við þau um úrslit kosninganna. Ólafur Ragnar
Grímsson gaf í gær ekki kost á viðtali við Morgunblaðið.
Astþór Magnússon
Mjög ánægður með úrslitin
ÁSTÞÓR Magnússon segist vera
mjög ánægður með úrslit forseta-
kosninganna þótt hann hefði auð-
vijtað viljað sja meira fylgi við sig.
„Eg held að ÓJafur verði fínn í
þetta,“ segir Ástþór.
Hann segist ánægður með að
áætlun Sjálfstæðisflokksins um að
koma Pétri Kr. Hafstein í stól for-
seta hafi mistekist. „Þama var
verið að ota Petri fram til að reyna
að hindra að Ólafur kæmist að.
Maður heyrir úr öllum áttum að
hringt hafi verið í sjálfstæðisfólk
og það beðið um að kjósa Pétur.
Þetta er brot á lýðræði og ég er
ánægður að þetia tókst ekki. En
auðvitað hefur þessi barátta komið
niður á þeim fjölda sem hefði vilj-
að styðja mín baráttumál. Ég veit
þess dæmi að fólk kaus Ólaf til að
tryggja að Pétur næði ekki kjöri,"
segir Ástþór.
Aðspurður hvort fylgi Ólafs
hefði komið honum á óvart sagði
Ástþór svo ekki vera. „Ég held að
kosningabarátta mín hafi hjálpað
honum. Ég lagði ríka áherslu á að
það mætti ekki gefa kolkrabbanum
forsetastólinn. Ég vil að það sé
lýðræðislega kjörinn forseti í emb-
ætti, ekki einhver sem túlka mætti
sem strengjabrúðu valdhafa í land-
inu.
Ég skora á fólk að sýna nýjum
forseta stuðning því ég tel okkur
íslendinga eiga mikil verkefni fyr-
ir höndum næstu fjögnr árin við
undirbúning leiðtogafundar. Þá er
mikilvægt að samstaða sé um mál-
efnin og að fólk fylki sér á bakvið
forsetann til að hann geti leitt
fundinn. Hornsteinninn sem ég
lagði fram er tákn þess að Friður
2000 er eign allrar þjóðarinnar.
Nú er mikilvægt að byrja að mynda
samstöðu með þjóðinni um þetta
málefni þannig að hægt verði að
mynda samstöðu í heiminum um
að halda leiðtogafund á íslandi
árið 2000 sem mun marka upphaf-
ið að nýjum tímum," segir hann.
Nú þegarkosningaraar eru að
baki segist Ástþór ætla að halda
áfram að byggja upp starfsemi
Friðar 2000. „Eg er bara á byrj-
unarreit og mun halda ótrauður
áfram.“
^ ^ Morgunblaðið/Golli
PETUR og Inga Ásta Hafstein á kosninganótt á Hótel íslandi ásamt Valgerði Bjarnadóttur kosn-
ingastjóra og fleiri stuðningsmönnum sinum.
ÞEGAR Pétur Kr. Hafstein var
inntur eftir viðbrögðum við úrslit-
um forsetakosninganna sagðist
hann fyrst af öllu vilja óska ný-
kjörnum forseta til hamingju og
sagðist vona í einlægni að honum
myndi takast að skapa þann frið
og sátt um embætti forsetans sem
nauðsynlegt væri.
Pétur sagði að nú að aflokinni
kosningabaráttunni væri sér efst
í huga þakklæti til þeirra þúsunda
íslendinga sem gengið hefðu fram
fyrir skjöldu og stutt sig og Ingu
Ástu með margvíslegum hætti.
„Það er dýrmæt reynsla og fjár-
sjóður sem við munum búa að til
æviloka," sagði Pétur.
Aðspurður hvort hann væri
sáttur við fylgið sem hann hefði
hlotið í kosningunum sagðist Pét-
ur telja að hann hefði fengið góð-
an stuðning. Fyrir það væri hann
þakklátur og fyrir það að hans
Pétur Kr.
Hafstein
Oskar
nýkjörnum
forseta til
hamingju
málflutningur um embætti forseta
Islands hefði fengið góðan hljóm-
grunn. „Ég lagði megináherslu á
stöðu og hlutverk forsetans í þjóð-
lífinu og mér sýnist að sú umræða
hafi skilað góðum árangri.“
Um fylgi Ólafs Ragnars sagði
Pétur að það hefði farið mjög
nærri þvi sem skoðanakannanir
höfðu sagt til um og það hefði því
ekki komið svo mjög á óvart. „Hins
vegar hafði ég hugboð um að það
yrðu meiri breytingar síðustu dag-
ana en raunin varð á. Ég var mjög
bjartsýnn en tel engu að síður að
þetta hafi verið mjög góður stuðn-
ingur sem ég hlaut á skömmum
tíma. Ég var nær óþekktur þegar
ég kom fram fyrir rúmum tveimur
mánuðum og er að því Ieyti afar
sáttur við tilveruna. Ég hef enda
þá fullvissu að stuðningsmenn
mínir hafi lagt sig fram eins og
frekast mátti verða og unnið vel
og drengilega að þessari kosn-
ingabaráttu. Það er það sem skipt-
ir raunverulega mestu máli.“
Pétur sagðist myndu nú taka
aftur við störfum sínum í Hæsta-
rétti „eins og ekkert hafi í skor-
ist“.
# ^ Morgunblaðið/Asdís
GUÐRUN Agnarsdóttir vakti á kosninganótt með stuðningsmönnum sínum á Hótel Borg. Hér er
hún ásamt Kristinu Einarsdóttur og Valgerði Sverrisdóttur.
GUÐRÚN Agnarsdóttir sagði í
gær að sér væri þakklæti efst í
huga. Þakklæti fyrir að hafa feng-
ið tækifæri til að fara víða um
land og kynnast mörgu góðu fólki
og lífinu í landinu, þakklæti til
alls þess góða fólks sem hefði lagt
á sig ómælda sjálfboðavinnu „til
að fylkja sér um þennan málstað
og mig sem erindreka hans. Það
hefur verið ógleymanlegt að fá
að taka þátt í þessu ævintýri,
kynnast svona mörgu nýju, hug-
myndaríku og duglegu fólki og
treysta böndin við gamla ættingja
og vini“.
Guðrún sagði að þótt það væru
ákveðin vonbrigði að hafa ekki
náð settu marki þá fyndist henni
standa upp úr sá mikli ávinningur
sem hefði orðið, bæði fyrir þau
málefni og þau lífsgildi sem hún
stæði fyrir. „Ég fagna innilega
þeirri miklu umræðu sem fram fór
um mín áherslumál og því hvað
þessi mikla vinna sem fólkið lagði
á sig bar mikinn árangur. Á stutt-
um tíma jókst fylgið alveg gífur-
Guðrún
Agnarsdóttir
Þakklæti
efst í huga
lega, fór úr 4% í tæp 30% sem er
mjög vel af sér vikið og ég er viss
um að hefðum við haft aðeins
lengri tíma þá hefðu niðurstöð-
urnar jafnvel orðið talsvert aðr-
ar.“
Guðrún sagði að í sínum huga
væru engar neikvæðar tilfinning-
ar. Hún fagnaði þvi að samskiptin
og viðkynningin við hina fram-
bjóðendurna hefðu verið góð og
kosningabaráttan sem slík mjög
skemmtilega. „Þannig að eftir á
að hyggja eru bara jákvæðar
hugsanir í mínum huga,“ sagði
Guðrún. „Það er bara spurning
hvernig maður getur nýtt allan
þennan sterka og jákvæða lifs-
kraft til þess að bæta samfélagið,
því það var það sem við lögðum
af stað með.“
Guðrún sagðist ánægð með fylgi
sitt og ánægð með það fólk sem
stæði að sér. „Það er gott og já-
kvætt fólk og ég vona að okkur
lánist, annað hvort hvert í sínu
lagi eða öll saman, að leggja eitt-
hvað gagnlegt af mörkum til að
bæta samfélagið. Það var það sem
fyrir okkur vakti.“
Aðspurð um það hvort hún hefði
einhveijar mótaðar hugmyndir
um það hvert framhaldið gæti
orðið sagði Guðrún að þetta væru
hugmyndir sem skytu upp kollin-
um þegar hún fyndi fyrir sam-
stöðu og stuðningi. „Maður finnur
þörf fólksins til að gera eitthvað
meira því auðvitað vildu flestir sjá
sinn fulltrúa verða forseta. Ég
óska auðvitað Ólafi Ragnari og
hans fjölskyldu til hamingju með
sigurinn og vona að þeim farnist
vel og gæfa og friður megi verða
þeirra hlutskipti á forsetastóli."
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
KOSNINGAVAKA Ástþórs Magnússonar var á Pianóbarnum.
Hér er hann ásamt unnustu sinni, Hörpu Karlsdóttur, og dóttur
sinni Ölmu Björk.
Við bjóðum okkar trúföstu viðskiptavinum 30% afslátt af
öllum okkar vel þekktu gæðavörum: HIGH DESERT
drottningarhunang, blómafrjókorn og Propolls, ALOE VERA
frá JASON og Dr. Guttorm Hernes dag- og næturkrem gegn
húðvandamálum.
TILBOÐIÐ GILDIR FRA OG MEÐ
ÞRIÐJUDEGI 2. JÚLÍ TIL OG MEÐ
LAUGARDEGI 6. JÚLÍ.
Þeir víðshipravinir. sem ehHi eíga Hosf á að heimsæhja
ohhurá tTmahilinu. geta einnig nýlt sér filboðið meö pvT
að panta gegn póslhröfu. Visa eða Euro.
Pönrunarsímar: SGB 8S93 oq 8S4 2117.
Borgarhringiunni. Þorpínu.
2. hæfi. Símar 8S4 8117 8 S86 8S93.