Morgunblaðið - 02.07.1996, Side 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Kosningar í Mongólíu
Stórsigur lýð-
ræðissinna
Reuter
SARA Netanyahu, ásamt eig'inmanni sínum, Benjamin Netanya-
hu. Barnfóstra þeiiTa hjóna segist hafa verið rekin vegna deilu
um viðbrennda súpu.
Rekin barnfóstra setnr
Netanyahu í bobba
Jerúsalem. Reuter.
BENJAMIN Netanyahu, nýkjör-
inn forsætisráðherra ísraels,
fékk að reyna það í gær, mánu-
dag, að lífið getur verið erfitt
fyrir fjölskyldumann í hans
stöðu, er barnfóstra sem rekin
hafði verið úr þjónustu fjölskyld-
unnar leysti frá skjóðunni í út-
varpsviðtali.
Hin 21 árs gamla Tanya Shaw,
sem ættuð er frá Suður-Afríku,
sagði fréttamönnum að Sara, eig-
inkona Netanyahus, hafi á sunnu-
daginn hent sér á götuna og kall-
að sig „morðingja" í kjölfar deilu
vegna viðbrenndrar súpu.
Barnfóstran sagði í útvarpi
ísraelska hersins að Sara væri
haldin hreinlætisæði og hefði
gert henni að þvo sér stöðugt um
hendurnar og hafi látið soninn
Yair Netanyahu sitja klukku-
stundum saman í sófa til refsing-
ar fyrir að óhreinka teppi.
Á sunnudaginn hefði Sara kall-
að sig inn úr garði, þar sem hún
var að gæta sonarins Yair og
öskrað á sig fyrir að hafa látið
súpu brenna við og „næstum valda
eldi“. Hún hafi þá stungið upp á
því að fara með tveggja vikna
uppsagnarfresti. Þá hafi Sara
sagt: „Þar sem þú ætlar að yfir-
gefa börnin mín ertu eins og
morðingi."
Skrifstofa Netanyahus hafnaði
því að gefa út opinbera yfilýsingu
vegna málsins en vísaði til orða
sem höfð voru eftir í dagblaðinu
Maariv, þess efnis að barnfóstran
væri óstöðug persóna, að sögn
öryggisvarða.
Shaw vísaði slikum ásökunum
á bug og sagði útvarpinu. „Ef
einhver er óstöðugur er það hún
(Sara).... Ef ég er svona óstöðug,
hvemig stendur þá á því að hún
lét mig annast börnin sín í hálft
ár?“
Hin 35 ára gamla Sara Net-
anyahu er þriðja eiginkona for-
sætisráðherrans og hefur sýnt
áhuga á að leika óvenjulega virkt
opinbert hlutverk. f kosningabar-
áttunni var henni og bömunum
tveimur óspart teflt fram.
Ulan Bator. Reuter.
FLOKKUR stjórnarandstöðu Mon-
gólíu, Lýðræðiseiningarsamtökin,
vann yfirburðasigur í kosningum
sem fram fóru í landinu á sunnu-
dag. Fyrrverandi kommúnistar, sem
hafa stjórnað hinu risastóra steppu-
landi sleitulaust síðastliðin 75 ár,
biðu þar með algjöran ósigur.
Lýðræðissinnar hlutu 48 af 76
sætum á þjóðþingi Mongóla, Stóra
Húralnum, og komu þessi úrslit
þeim sjálfum á óvart, jafnt sem
erlendum sendimönnum. í síðustu
kosningum árið 1992, sem voru
fyrstu fijálsu kosningarnar í land-
inu, hlaut stjórnarandstaðan ein-
ungis 6 af hundraði atkvæða.
Lýðræðiseiningarsamtökin sam-
eina í kosningabandalagi tvo helztu
stjómarandstöðuflokka Mongólíu,
Þjóðlega lýðræðisflokkinn og Sós-
íaldemókrata. Formaður samtak-
anna, Enkhsaikhan, sagði úrslitin
sérstaklega mikilvæg. „Við erum
að beina sjónum mongólsku þjóðar-
innar inn í næstu öld.“
Hinir fyrrverandi kommúnistar,
skipulagðir í Byltingarflokki mong-
ólskrar alþýðu, þurftu að þola að
hinn yfirgnæfandi 70 sæta meiri-
hluti þeirra væri skorinn niður í 23
sæti.
Formaður sósíaldemókrata,
Gonchigdoij, sagði í viðtali að nú
væri Mongólía „í fyrsta sinn í nú-
tímasögunni lýðræðisleg“. „Við höf-
um axlað þunga ábyrgð en við erum
ánægðir með að verkefnið er okk-
ar,“ sagði Gonchigdoij, sem hafði
efnt til áhlaups til að fella forsætis-
ráðherrann Purevdoij. „Við höfum
gert samning við þjóðina og nú
munum við framkvæma þann
samning."
Hinir sigruðu fyrrverandi komm-
únistar neituðu að tjá sig opinber-
lega um kosningaúrslitin.
Vestrænir stjórnmálaskýrendur
segja kosningarnar hafa farið heið-
arlega fram, en úrslitin hafi komið
öllum á óvart, ekki sízt stjórnarand-
stöðunni sjálfri. Greinilegur munur
væri á kosningahegðan yngri og
eldri kjósenda. Hinir eldri hefðu enn
treyst á fyrrverandi kommúnista
en yngra fólkið hefði fremur kosið
stjórnarandstöðuna, sem hafi í
kosningabaráttunni auglýst hraðari
efnahags- og stjórnarfarsumbætur.
Hraðlestrarnámskeið
Vilt þú lesa meira, en hefúr ekki nægan tíma?
Vilt þú vera vel undirbúin(n) fyrir námið í haust?
Sumarnámskeið í hraðlestri hefst 17. júlí n.k.
Lestrarhraði þátttakenda Ijórfaldast að jafiiaði.
Við ábyrgjumst að þú nærð árangri!
Skráning er í síma 564-2100.
HRAÐLESTRARSKÖLJINISÍ
MONGÓLSKIR kjósendur, íklæddir hefðbundnum litríkum klæð-
um, sjást hér raða sér upp til að skrá sig fyrir þingkosningarnar
á sunnudag. Þetta var í annað sinn sem frjálsar kosningar fóru
fram í landinu eftir fall kommúnistastjórnarinnar árið 1990.
Kýpurdeilan tekin upp í Strassborg
Rannsaka ásakanir
um mannréttinda-
brot Tyrlga
Strassborg. Reutcr.
KÝPUR vann
áfangasigur
gegn Tyrklandi
í gær, mánudag,
þegar Mann-
réttindanefnd
Evrópu sam-
þykkti að rann-
saka ásakanir
um mannréttindabrot frá því að
hernám Tyrkja hófst árið 1974,
sem skipti eyjunni í tvennt.
Nefndin mun rannsaka ásak-
anir um að Tyrkir séu ábyrgir
fyrir mannréttindabrotum í
tengslum við innrás þeirra 1974.
Meðal annars ásaka Kýpverjar
Tyrki um hvarf 1.619 manna, sem
enn séu ófundnir frá innrásinni,
170.000 grískir
Kýpverjar séu
enn sviptir að-
gangi að eignum
sínum og grískir
Kýpverjar sem
búi á norður-
hluta eyjarinnar
sæti ómannúð-
legri meðferð.
Ef nefndinni tekst ekki að
koma á friðsamlegu samkomulagi
deiluaðila og kemst að þeirri nið-
urstöðu að Tyrkir hefðu framið
mannréttindabrot, verður málinu
vísað til ríkisstjórna aðildarríkja
Evrópuráðsins eða til Mannrétt-
indadómstóls Evrópu í Strass-
borg.
Lekií
Tsjernó-
býl
LÍTILL skammtur af geisla-
virkum efnum slapp út í and-
rúmsloftið í Tsjernóbýl-kjarn-
orkuverinu, þar sem versta
kjarnorkuslys sögunnar átti
sér stað fyrir tíu árum. Verk-
fræðingur í stöðinni sagði að
leki hefði uppgötvast á föstu-
dag, hann hefði verið lítill og
engin hætta hefði skapast.
Loka á kjarnorkuverinu fyr-
ir aldamót og hafa sjö helstu
iðnríki heims lofað að styrkja
lokunina með framlögum að
andvirði þriggja milljarða doll-
ara (um 200 milljarða ís-
lenskra króna).
Dýralyf vin-
sælt í Svíþjóð
DEYFILYF, sem notað er á
hunda og ketti í skurðaðgerð-
um, nýtur nú mikilla vinsælda
meðal sænskrar æsku í reif-
samkvæmum og teknó-nætur-
klúbbum, að því er sænska
dagblaðið Svenska Dagbladet
greindi frá í gær.
Lyfið er talið hættulegt og
sagt að of stór skammtur geti
valdið hjartaáfalli.
Lyfið nefnist ketamín og
sagði ungur maður í viðtali við
blaðið að auk þess að missa
stjórn á líkamanum hefði jafn-
vægisskynið horfið og sér
hefði fundist sem höfuðið hefði
losnað frá búknum eftir að
hafa tekið lyfið.
Grammið af lyfinu kostar
15.000 íslenskar krónur á göt-
unni.
Nýr forseti
Dóminik-
anska lýð-
veldisins
MIÐJU-
MAÐUR-
INN Leonel
Femandez
sigraði
naumlega í
annarri um-
ferð forseta-
kosninganna
í Dóminik-
anska lýð-
veldinu á
sunndag, að því er tilkynnt var
í gær.
Fernandez tekur við emb-
ætti 16. ágúst af Joaquin Ba-
laguer, sem setið hefur í sjö
kjörtímabil og mátti ekki bjóða
sig fram til endurkjörs.
Biblíueign
fangelsissök
DÓMSTÓLL í Singapore
dæmdi í gær 72 ára gamla
ömmu, Yu Nguk Ding, í fang-
elsi fyrir að eiga Biblíuna og
prentað efni, sem Vottar Je-
hóva gefa út, en sá söfnuður
er bannaður þar.
Greint verður frá því í dag
hversu þunga refsingu Yu
hlýtur. Samkvæmt lögum
Singapore um óæskilegar út-
gáfur á hún yfir höfði sér
tveggja ára fangelsi. Vottar
Jehóva voru bannaðir í Sin-
gapore árið 1972 vegna þess
að félagar í söfnuðinum neit-
uðu að gegna herþjónustu.
Leonel
Fernandez.