Morgunblaðið - 02.07.1996, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ1996 31
Listahátíð á ekki bara
að falla fólki í geð,
heldur einnig ögra því
Hvert er hlutverk listahátíða? 0 g hvað er alþjóðleg listahátíð? Þess-
um spumingum og flei svarar Bergljót Jónsdóttir, stjómandi Lista-
hátíðarinnar í Björgvin, í samtali við Þröst Helgason sem sótti
hátíðina þetta árið. Bergljót segir að listahátíðir þurfí að kynna
fólki eitthvað nýstárlegt en um leið efla þá listastarfsemi sem
fyrir er í eigin landi.
Ijósmynd/Eirik Hagesæter
BERGLJÓT Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Listahátíðar í Björgvin, hefur vakið athygli fyrir rögg-
sama sljórnun hátíðarinnar og fyrir að fara ekki troðnar slóðir.
BERGLJÓT Jónsdóttir tók við
stöðu framkvæmdastjóra Listahá-
tíðarinnar í Björgvin fyrir rúmu
ári. Hátíðin er haldin í lok maí á
ári hverju og var þetta fyrsta há-
tíðin sem Bergljót hefur umsjón
með. Hún segir að það taki tíma
að breyta hátíð sem þessari og
gefa henni nýtt yfirbragð. Samn-
ingur Bergljótar gildir til ársins
1999 en möguleikar eru á fram-
haldsráðningu ef svo ber undir.
Starf Bergljótar felst ekki aðeins
í listrænni stjórnun hátíðarinnar
heldur einnig fjárhagslegri stjórn-
un. Hátíðin stendur í 12 daga og
bauð í ár upp á 130 viðburði. Síð-
astliðin ár hafa áhorfendur verið
um 40.000 ár hvert.
Bergljót er fædd árið 1954. Hún
lauk píanókennaraprófi frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík árið
1974. Árið 1978 lauk hún M.A.-
prófi í tónlistarkennslu í Banda-
ríkjunum og hóf síðan kennslu hér
á landi. Hún gegndi starfi fram-
kvæmdastjóra íslensku tónverk-
amiðstöðvarinnar frá 1986 til
1994 og var framkvæmdastjóri
listahátíðarinnar, Sólstafa, sem
haldin var hér á landi á síðasta ári
í tengslum við þing Norðurlanda-
ráðs. Einnig vann hún að undir-
búningi kynningar á norrænni tón-
list í Bretlandi á þessu ári.
Hlutverk listahátíða
Þann tíma sem Bergljót hefur
verið í Björgvin hafa störf hennar
vakið þó nokkra athygli. Fjölmiðl-
ar hafa sagt stjórn hennar á hátíð-
inni röggsamlega og að hún fari
ekki troðnar slóðir í listrænni
stjórnun. Sjálf segist hún leggja
mikla áherslu á að hlutverk hátíð-
arinnar sé skýrt og vel skilgreint,
það sé grundvöllurinn að heil-
steyptri hátíð. Telur hún að það
sé örugglega nokkur misbrestur á
því að menn velti nægilega fyrir
sér hlutverki listahátíða sem
haldnar séu vítt og breitt um heim-
inn og spretta nú á dögum upp
eins og gorkúlur á haug.
„Það er nauðsynlegt að gera sér
grein fyrir til hvers er verið að
halda listahátíð og hvaða hópum
hún á að þjóna? Margar þessar
hátíðir voru stofnaðar rétt eftir
seinna stríð á fimmta og sjötta
áratugnum. Þá var fólk hungrað
í menningu, það langaði til að
heyra meira og sjá meira en það
sem var í næsta nágrenni. Tæknin
var ekki orðin jafngóð og nú,
menn áttu heldur ekki jafnauðvelt
með að ferðast; því var það góð
lausn að safna listafólki saman á
einn stað og efna til hátíðar.
Hátíðirnar sem eiga rætur sínar
að rekja til þessa tíma, svo sem
eins og sú í Avignon, Edinborg
og Björgvin, voru stofnaðar til að
fullnægja sterkri þörf fyrir aukið
listalíf. En það má velta því fyrir
sér hvort þær hafi breyst í sam-
ræmi við þá þróun sem orðið hefur
í þjóðfélaginu. Helstu breytingarn-
ar felast í því að hátíðirnar hafa
stækkað, atriðum á þeim hefur
flölgað o.s.frv. Ég held því að það
sé mjög þýðingarmikið í dag að
taka upp þessa spurningu: Hvers
vegna höldum við listahátíð?
Svarið er ekki einfalt en ljóst
er að hátíð af þessu tagi getur
ekki verið endurtekning á því sem
er að gerast hér allt árið um kring,
þannig má hún ekki vera samsett
af hefðbundinni hljómleika- og
leikhúsdagskrá í samþjöppuðu
formi. Hún ætti að bjóða upp á
eitthvað sem fólki í tiltekinni borg
gæfist annars ekki kostur á að sjá
og heyra. Eitt af hlutverkum lista-
hátíðar á með öðrum orðum að
vera að kynna fólki eitthvað nýst-
árlegt; hún á ekki aðeins að falla
fólki í geð, heldur einnig ögra því.
Það er einnig mikilvægt að lista-
hátíð hafi hvetjandi áhrif á lista-
og menningarstarfsemi í því landi
sem hún er haldin. Sömuleiðis
þarf hún að kynna innlenda list
og listamenn fyrir umheiminum;
sjónvarps- og útvarpsupptökur eru
mikilvægar í því samhengi.
Og það er reyndar ekki síður
mikilvægt að kynna innlendu lista-
mennina betur fyrir löndum sínum;
í þeirri viðleitni okkar hefur reynst
vel að sýna þá í nýju og óvæntu
ljósi. Sem dæmi má nefna að við
fengum Truls Mork, einn kunnasta
og færasta sellóleikara Noregs, til
að vera á hátíðinni í heila viku og
halda nokkra tónleika með erlend-
um og innlendum vinum sínum,
eins og við kölluðum það; hann
safnaði með öðrum orðum saman
nokkrum frábærum tónlistarmönn-
um til að leika með sér, sumum
hafði hann leikið með áður en öðr-
um ekki. Hin hefðbundna leið hefði
verið að hann hefði haldið eina eða
tvenna einleikstónleika og síðan
ekki söguna meir. Með þessu fær
fólk hins vegar ekki aðeins að heyra
hann spila í öðru samhengi en áður
heldur einnig leika verk sem hann
myndi annars ekki flytja.
Þetta sama var gert á bók-
menntasviðinu þar sem skáld hátíð-
arinnar, Herbjerg Wassmo, kom
ekki aðeins fram á upplestrum sjálf
heldur hafði líka umsjón með upp-
lestrarkvöldi þar sem kynntar voru
fjórar norrænar skáldkonur. Hún
fékk þannig tækifæri til að stofna
til samræðna við önnur skáld og
um leið varð dagskráin áhugaverð-
ari og fjölbreyttari. Svipuð dag-
skrá, bara viðameiri, var skipulögð
með tónskáldi hátíðarinnar, Lasse
Thoresen. Samstarfíð við hann
leiddi meðal annars til þess að heil
Gamelan hljómsveit kom til Björg-
vinjar og flutti tónlist sem kynnt
var af Lasse Thoresen.
Listamennirnir sjálfir hafa verið
mjög ánægðir með þessa tilbreytni
og þarf það ekki að koma á óvart.
Tónlistarmenn eru til dæmis ótrú-
lega oft í þeirri aðstöðu að vera
að spila sömu efnisskrána á hveij-
um tónleikunum á fætur öðrum.
Svona tækifæri taka þeir því opn-
um örmum.
Ég held reyndar að það megi
skipta listahátíðum í tvennt eftir
því hvað þær taka þetta hlutverk
sitt alvarlega og sinna því vel, að
vinna með listamönnum og lista-
stofnunum í því landi sem þær
eru. Ég hef heyrt því borið við að
það sé ekkert nýtt að bjóða upp á
innlenda listamenn en menn verða
auðvitað að hafa hugmyndaflug
til að gera það með þeim hætti
að það verði spennandi."
Finnst þér Listahátíð í Reykja-
vík hafa gegnt þessu hlutverki
sínu nægilega vel í gegnum tíðina?
„Eitt af meginhlutverkum
Listahátíðar í Reykjavík finnst
mér að ætti að vera að kynna ís-
lenska list og listamenn með nýj-
um og forvitnilegum hætti og
leggja þá meiri áherslu á gæði en
magn. Þó verður maður að hafa
það í huga við skipulagningu á
svona hátíðum að hlutfall erlendra
gesta verður sjaldan hærra en
15%. Á Björgvinjarhátíðinni seljast
um 10% miða til erlendra gesta.“
Hvað er að vera alþjóðlegur?
Bergljót hefur lagt áherslu á
hugtakið alþjóðlegur í kynningu
sinni á hátíðinni í Björgvin en hún
segir ennfremur að það sé mjög
mismunandi hvaða skilning menn
leggja í það. „Það hefur verið til-
hneiging til að kalla þær listahá-
tíðir alþjóðlegar sem bjóða upp á
listamenn sem hafa ferðast á milli
New York, London, París, Berlínar
og fleiri borga og haldið tónleika.
Ég skil þetta orð ekki þannig. Að
mínu mati er ekki nóg að hafa
Norður-Evrópu og Bandaríkin
undir þegar halda á alþjóðlega
listahátíð; slík hátíð verður að
bjóða upp á viðburði frá fleiri og
framandlegri menningarsvæðum,
frá Asíu, Afríku og Suður-Amer-
íku, svo eitthvað sé nefnt. Það er
alltaf verið að tala um að heimur-
inn sé að verða minni og minni,
tæknin geri það að verkum en
hvað vitum við um það sem í dag
er að gerast í menningarlífi þeirra
heimsálfa sejn ég taldi upp hér
að framan. Ég held það sé harla
lítið enda held ég að streymi upp-
lýsinga um listir og menningu sé
afskaplega lélegt milli heimsálfa.
Við skipulagningu Björgvinjar-
hátíðarinnar hef ég lagt áherslu á
að kynna menningu framandi
landa. í ár kom til að mynda víet-
namskur danshópur fram á hátíð-
inni og vakti óskipta athygli. Einn-
ig söng líbanska nunnan, systir
Marie Keyrouz, sem hefur vakið
athygli í Vestur-Evrópu fyrir ein-
staka túlkun sina á austrænni
kirkjutónlist. Við kynntum einnig
tónlist frá Indónesíu og fleira
mætti nefna.“
Svona er Björgvin -
skilgreining hátíðar
Bergljót segir mjög vinsælt að
tala um að listahátíðir eigi að vera
sérstakar og einkennandi fyrir
borgirnar sem þær eru haldnar í.
„Fólk vill hafa sína listahátíð öðrú-
vísi en í öðrum borgum. Svona er
Björgvin, vill fólk geta sagt á
meðan Listahátíðin stendur yfir.
Það er því mikilvægt að við gerum
okkur grein fyrir að hvaða leyti
við erum sérstök og nýtum okkur
það við skipulagningu hátíðarinn-
ar.
Á hátíðinni í ár lögðum við
áherslu á miðaldamenningu en
hún var einmitt mjög sterk í Björg-
vin. Hér höfum við líka nokkrar
miðaldabyggingar þar sem við
fluttum bæði tónlist frá þessum
tíma og nýrri tónlist. Með þessum
hætti getur fólk fengið ákveðna
sýn inn í það sem var að gerast
hér á þessu tímabili í sögu borgar-
innar. Og um leið erum við a.ð
tengja fortíð og nútíð.
Þemu hátíðarinnar
Listahátíðin í Björgvin vinnur
með ákveðin þemu. Tvö megin-
þemu voru í tónlistardagskrá
hennar í ár, ungir tónlistarmenn
og miðaldir. „Við getum ekki bara
einblínt á síðustu þrjú hundruð ár
í menningarsögunni," segir Berg-
ljót, „heldur verðum við að reyna
að kynna það besta úr allri listá-
sögunni. í ár lögðum við sérstaka
áherslu á miðaldamenningu. Þáð
hefur á síðustu árum blossað upp
mikill áhugi á miðöldum, bæði
miðaldafræðum og -menningu, én
það er ekki aðalástæðan fyrir því
að við tökum þetta þema upp. Mér
þykir það einfaldlega vera mikil-
vægt að við vitum hvaðan við erum
komin, að við þekkjum söguna,
fáum aðeins víðari sýn á fortíð
okkar.
Við höfum því ekki aðeins verið
að halda tónleika þar sem miðalda-
tónlist hefur verið flutt heldúr
höfum við líka stofnað til fyrir-
lestra á undan þeim þar sem fræði-
menn hafa fjallað um verkin óg
tímabilin sem þau eru samin á.
Þetta hefur mælst ágætlega fyrir,
aðsóknin hefur verið allt frá 30
til 100 manns á hveijum fyrir-
lestri. Fyrirlestrahaldið höfum víð
unnið í samvinnu við háskólann
hér í Björgvin en þetta er í fyrsta
sinn sem hátíðin vinnur með skól-
anum.
í ár lögðum við áherslu á að
kynna unga norska tónlistarmenn
í sérstakri tónleikaröð sem fram
fór á Troldhaugen, heimili Griegs.
í Noregi er fjöldi góðra ungra tón-
listarmanna og ég tel mikilvægt
að þeir fái tækifæri til að auka
hróður sinn með því að koma fram
á þekktri listahátíð ásamt viður-
kenndum listamönnum.
Borgarbúar jákvæðir
Að sögn Bergljótar þykir Björg-
vinjarbúum mjög vænt um hátíð-
ina. „Það heyrast alltaf einhveijar
gagnrýnisraddir á hveiju ári um
að þetta og hitt hefði mátt vera
betra, og þannig verður það allt-
af, en það vill samt engin missa
hátíðina. Við fáum mikinn stuðn-
ing af fyrirtækjum í borginni sem
eru áhugasöm um að efla listalífið
og sjá sér reyndar einnig beinlínis
hag í því að hafa hátíðina í borg-
inni. Þegar hátíðin lenti í fjárhags-
vanda fyrir nokkrum árum síðan
var það þannig ekki ríkið sem kom
henni til bjargar heldur fyrirtækin
í borginni.
Opinber framlög til hátíðarinnar
eru aðeins 40% af þeirri upphæð
sem við höfum til umráða hvert
ár, núna var upphæðin 200 millj-
ónir íslenskra króna. Afganginn
fáum við frá fyrirtækjum og af
miðasölu. Hlutfall opinberra
styrkja er því óvenju lágt miðað
við það sem gerist og gengur.
Þetta mundi aldrei ganga upp
nema vegna þess hvað viðhorf
borgarbúa og fyrirtækja hér í
borginni og nágrenni er jákvætt.
Ég efast um að þetta myndi ganga
upp annarsstaðar, þetta myndi að
minnsta kosti örugglega ekki
ganga heima á íslandi."