Morgunblaðið - 02.07.1996, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ1996 49
MINNINGAR
LILJA VIGDIS
BJARNADÓTTIR
+ Lilja Vigdís
Bjarnadóttir
var fædd í Akureyj-
um í Helgafellssveit
á Breiðafirði 26.
maí 1906. Hún and-
aðist á Hrafnistu í
Reykjavík sunnu-
daginn 23. júní síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Ólöf Sigmundsdótt-
ir húsfreyja frá
Akureyjum (f. 2.
júní 1878, d. 29.
sept. 1957) og
Bjarni Jónsson út-
vegsbóndi frá Sellátri (f. 27.
feb. 1868, d. 19.des. 1929). Þau
hjón eignuðust átta börn og
komust sex þeirra til fullorðins-
ára en þau voru: Jón sjómaður
í Reykjavík (f. 7.sept. 1900, d.
17. sept. 1948), Salbjörg ráðs-
kona (f. 30. okt. 1901, d. 14.
mars. 1956), Andrea kennari (f.
1. ágúst 1903, d. 23. nóv. 1988),
Lilja Vigdís, sem hér er minnst,
Sigmundur skipasmiður í Hafn-
arfirði (f. 14. sept. 1910) og
Magnús skipasmiður í Hafnar-
firði (f. 9 nóv. 1911), síðar fædd-
ust, drengirnir,
Iiannes og Gunnar
sem báðir dóu í
frumbernsku. Lilja
Vigdís ólst upp í
Akureyjum hjá for-
eldrum sínum og
systkinum. Hún var
einn vetur í barna-
skóla á Hellissandi
hjá móðursystur
sinni Ingveldi Sig-
mundsdóttur og síð-
ar í húsmæðraskóla
á Blönduósi vetur-
inn 1930-1931, þá
24 ára gömul. Hún
vann við ýmis störf m.a. við
fiskverkun og kaupavinnu.
Seinna vann hún við sauma
fyrst hjá Gefjun á Akureyri og
síðar hjá Andrési klæðskera, í
Reykjavík, en þar kynntist hún
eiginmanni sinum Haraldi Guð-
mundssyni klæðskera (f. 9. okt.
1903, d. 29. des. 1980). Þeim
hjónum varð ekki barna auðið
en Lilja Vigdís gekk Ólöfu
Lilju, frænku sinni, í ömmustað.
Lilja Vigdís verður jarðsungin
frá Áskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Hún Lilja, ömmusystir okkar og
ippáhaldsfrænka, er dáin. Minn-
ngarnar eru margar og þær
itreyma fram því Lilja hefur verið
partur af tilveru okkar svo langt
sem við munum. Elstu minningarn-
a.r eru frá Eiríksgötu 33 þar sem
nún bjó ásamt Haraldi eiginmanni
sínum í það lítilli íbúð að okkur
fannst sem kvæðið um litlu Gunnu
ng litla Jón hlyti að hafa verið sam-
ið um þau hjón, sem bæði voru
frekar lágvaxin.
Við systkinin sóttum ung í að
vera hjá Lilju frænku sem hafði
einstaklega góða nálægð. Á Eiríks-
götunni lékum við okkur með dóta-
kassann, sátum niðri í kompu og
sögðum hvort öðru sögur í myr-
krinu eða renndum okkur niður
stífbónaðar tröppurnar frammi á
gangi. Þegar við urðum þreytt á
að leika okkur fórum við inn í eld-
hús og fengum appelsínu með mola
í okkur til hressingar. Lilja, sem
var mjög starfssöm og féll aldrei
verk úr hendi, lét okkur krakkana
ekki tefja sig frá störfum, hún
sneið, saumaði, bakaði og þreif og
við krakkarnir nutum þess að fylgj-
ast með henni vinna og fá að taka
þátt í því sem hún var að gera.
Þó að íbúðin væri lítil gilti það
sama um hana og hjartarými þeirra
hjóna að þar var alltaf nóg pláss
fyrir aðra enda leið varla sá dagur
að ekki liti einhver inn. Sumir
stoppuðu stutt, svona rétt litu inn
í kaffi, aðrir þáðu matarbita og enn
aðrir gistu um lengri eða skemmri
tíma. Þau hjón tóku vel á móti öll-
um og alltaf voru dregnar fram
veitingar, kökur eða grjónagrautur
og ýsa, allt eftir því á hvaða tíma
dagsins var og alltaf vildi Lilja
hafa nóg. Þó að Lilja hafi alla tíð
tekið höfðinglega á móti gestum
þá var aldrei bruðlað með neitt og
engan vitum við sem farið hefur
betur með. Meira að segja appels-
ínubörkur og grautarafgangar fóru
ekki í ruslið heldur var börkurinn
notaður í heimsins besta marmelaði
og afgangurinn af hafragrautnum
frá morgninum fór í lummur um
miðjan daginn og gömlu svörtu
ttt
Krossar
á leiði
J&fMbjMý®r
Safnaðarheimili
Háteigskirkju
Sími:
551 1399
flauelsbuxunum var ekki heldur
hent því upp úr þeim saumaði Lilja
fallegar barnasmekkbuxur.
Skemmtileg er minningin um það
þegar hún ætlaði að hressa upp á
gamla hvíta skyrtu af Haraldi sem
var orðin nokkuð snjáð. Lilja keypti
grænan fatalit og litaði skyrtuna í
eldhúsvaskinum heima en skyrtan
hrinti frá sér öllum lit svo eftir sat
hvít skyrta með fallega grænum
tölum.
Lilja og Haraldur voru einstak-
lega samhent hjón sem báru mikla
virðingu hvort fyrir öðru. Þau ferð-
uðust mikið og nutu þess að skoða
landið sitt og gleðjast saman yfir
snilldarverkum náttúrunnar. Einn
er sá staður sem var þeim hjart-
fólgnari en aðrir en það er Vala-
ból, lítill blettur í norðanverðum
Valahnúkum. Gróðurblettur sem
félagar úr Farfuglum hafa ræktað
upp allt frá árinu 1942 og svo
vænt þótti þeim um þennan stað
að þau eyddu þar brúðkaupsnótt
sinni í helli þann áttunda október
1949.
Seinna þegar Lilja var orðin
ekkja og aldurinn farinn að færast
yfir flutti hún á Hrafnistu í Reykja-
vík. Þó að starfsþrekið væri farið
að dvína féll henni ekki verk úr
hendi þar frekar en fyrr. Þau níu
ár sem Lilja bjó á Hrafnistu stund-
aði hún handavinnu af miklu kappi.
Svo mikils virði var handavinnan
henni að hún missti varla dag úr
í handavinnustofunni. Þar naut hún
leiðsagnar frábærra kvenna sem
aðstoðuðu hana við erfiðustu hlut-
ina sem margir hveijir eru algjör
listaverk. Lilja, sem alla tíð var
bæði lítillát og hógvær, vildi þakka
þessum góðu konum hversu vel
tókst til hjá sér en þær hlógu bara
að því og sögðu hana eiga allan
heiðurinn. Síðar nutu svo vinir og
ættingjar listfengi Lilju því allt sem
hún gerði gaf hún og svo handlag-
in var Lilja að Hrafnista fékk hana
til að vefa þijú stór veggteppi sem
nú prýða veggi heimilisins.
Nú er hún frænka okkar farin
sína síðustu ferð og við vitum að
hún hlakkaði til þeirrar ferðar.
Minningarnar eigum við sem eft-
ir lifum um hógværa konu sem
breiddi um sig kyrrlátri gleði hvar
sem hún fór.
Hanna Björg og Andri Helgi.
P E R L A N
Slmi 562 0200
TllIIIIIIlf
^ulSarmo^ríálœlr]"
íunandi mynsfur, vönduo vinna.
553 6929 Og 883 8736
Blánmslqfa
Suðurlandsbraul 10
108 Reykjavík • Sími 5531099
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um
Skreytingar fyrir öll tí
• . Gjafavöru
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 - sími 587 1960
10% staðgreiðsluafsláttur
á legsteinum úr graníti, marmara o.fl. teg.j
Verð frá kr. 340
S ÓLSTEINAR
t
Bróðir okkar,
andaðist 30. júní.
KRISTJÁN SIGURÐSSON,
Meðalholti 5,
Sigurþór Sigurðsson,
Sigurður G. Sigurðsson,
Einar Sigurðsson,
t
Elskulegur faðir okkar og tengdafaðir,
BRYNJÓLFUR BRYNJÓLFSSON
vélstjóri,
Álfaskeiði 24,
Hafnarfirði,
andaðist á heimili sínu að morgni 1. júlí.
Synir og tengdadætur.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma
SIRREY KOLBEINSDÓTTIR,
Bröttukinn 7,
andaðist þann 28. júní.
Útförin auglýst síðar.
Björn Kristjánsson,
Kolbrún B. Björnsdóttir, Ómar Morthens,
Ásta María Björnsdóttir, Steinn Steinsen,
Birgitta Ö. Björnsdóttir, Jóhannes Skagfjörð Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
JÓHANNA S. ÍVARSDÓTTIR,
Furugrund 66,
Kópavogi,
andaðist í Sjúkrahúsinu á Akranesi
sunnudaginn 30. júní.
Jarðarförin auglýst síðar.
Þorvaldur Magnússon,
Árni R. Þorvaldsson, Valgerður Sumarliðadóttir,
Magnús S. Þorvaldsson, Þóra Ó. Þorgeirsdóttir,
Halldór B. Þorvaldsson, Aida S. Ottosdóttir,
Magnús í. Þorvaldsson, Kolbrún Haraldsdóttir,
Guðni Þ. Þorvaldsson, Sigurlaug S. Pálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HALLGRÍMUR HALLDÓRSSON,
frá Hraungerði,
Álftaveri,
Grettisgötu 55b,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum sunnudaginn 30.
júní.
Sigrún Hallgrimsdóttir,
Bryan Allen Smith,
Halla Marie Smith,
Valgerður Hallgrímsdóttir, Torfi Dan Sævarsson,
Ármann Snær Torfason.
Opið kl. 13-18 alla virka daga
Nýbýlavegi 30, Dalbrekkumegin, Kópavogi, sími 564 3555.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
systir, amma, langamma og langalan-
gamma,
GUÐNÝ BRYNHILDUR
JÓAKIMSDÓTTIR,
Skúlagötu 78,
andaðist í Landspítalanum laugardag-
inn 29. júní.
Rósa Jónsdóttir, Hallgrímur Þorsteinsson,
Ásta Jónsdóttir, Valur S. Franksson,
Magnea Jónsdóttir, Guðmundur Jóhannsson,
Álfheiður E. Jónsdóttir,
Jón Jónsson,
Anna Jónsdóttir, Þórður Bjarnason,
Örn Stefánsson
systkini, barnabörn, barnabarnabörn
og langalangömmubarn.