Morgunblaðið - 02.07.1996, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ1996 57
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Bókstafstrú vísinda
Frá Þorkeli Ágúst Óttarssyni:
20. JÚNÍ birtist grein undir nafninu
„Er guð dauður?" Þar svara tveir
ungir eyjapeyjar grein um að Darw-
inskenningin sé villukenning og
ljúka greininni með því að benda á
að hverjum hugsandi manni sé það
ljóst að maðurinn skapaði Guð en
ekki öfugt! Þeir saka alla þá sem
trúa öðruvísi um ofstæki og skipa
þeim á bekk með glæpasinnuðum
sértrúarsöfnuðum. Þessi grein þeirra
á að vera andsvar við ofstæki og
fáfræði en því ver og miður virðast
þeir falla í sömu gryíjuna og þeir
eru að vara við.
Mín skoðun er sú að margir öfga-
sinnaðir sértrúarsöfnuðir eiga sök á
því trúleysi sem ríkir í heiminum í
dag. Ofstæki þeirra, heldni í gamlar
kreddur og lög sem eru mannanna
tilbúningur, sem og oft á tíðum
valdafíkn og fordómar hafa fælt
margt vel gefið og hjartahreint fólk
frá trúarbrögðum. Þar sem það fann
ekki skjól undir væng trúarinnar
leitaði það á vit vísinda. Æ síðan
hefur bilið á milli vísinda og trúar-
bragða verið að stækka. Fólki finnst
það verði að velja á milli (að það
heldur) þessara tveggja ósamræm-
anlegu póla og hvor hópurinn hefur
skörnm á hinum. En spurningin er
hvort trú og vísindi séu andstæðir
pólar. Mín skoðun er sú að svo sé
ekki og að trú og vísindi séu aðeins
tvær hliðar á sama málinu, óaðskilj-
anlegar og báðar manninum nauð-
synlegar
Ástæðurnar fyrir því að það virð-
ist vera ómælishaf á milli vísinda
og trúarbragða eru margar og mun
ég telja upp tvær þeirra hér.
1. Trúarrit fást við málefni er við-
koma andlegu lífi mannsins en vís-
indi fást við veraldlega hlið hans.
Þannig leggur trúin aðaláherslu á
andleg sannindi á meðan vísindin
leggja megináherslu á veraldleg
sannindi. Hvoru tveggja eru mann-
inum nauðsynleg. Án vísinda höfum
við ofstæki, sem er aðeins annað
form ofbeldis. Án trúar höfum við
taumlausa efnis- og vísindahyggju
sem kann sér ekki siðferðilegt hóf
og gengur áfram í brjálsemi í nafni
vísinda. Þetta er ástæðan fyrir því
að kjarnorku- og sýklavopn eru
framleidd, náttúran er menguð og
hryllilegar tilraunir eru framkvæmd-
ar á lifandi fólki eins og gert var í
síðari heimsstyijöldinni.
2. Trúarritin voru oft að útskýra
flókin mál fyrir fáfróðu fólki, mál
sem það hafði engan grunn tii að
skilja. Hvernig hefði verið hægt að
útskýra atómið og frumuna fyrir
fólki sem vissi ekki betur en að jörð-
in værin flöt, því miklu síður að út-
skýra flókið ferli sköpunarinnar.
Ferli sem er reyndar svo flókið að
vísindin eru alltaf að finna nýja hluti
sem afsanna það sem áður var talið
víst, svo það er líklega langt í að
við höfum „allan" sannleikann um
þetta mikla leyndarmál. Rétt eins
og faðir útskýrir hlutina fyrir barni
sínu í einföldu máli og oft í dæmisög-
um, útskýrðu trúarritin þessi erfiðu
mál í einfölduðu máli og dæmisögum
fyrir fáfróðu fólki fortíðar. Það
merkilega er að þegar maður lærir
að lesa úr dæmisögunum sér maður
að þar er (að mestu leyti) sama sag-
an og vísindin eru að boða í dag.
Umburðarlyndi
Ég er baha’íi og í baha’i trúnni
er lögð áhersla á umburðarlyndi fyr-
ir skoðunum annarra og að vísindi
og trúarbrögð fari hönd í hönd. Einn-
ig boðar hún að Guð hafi vissulega
skapað heiminn og allt sem í honum
er en að þær sögur sem finnast í
trúarbókum séu táknrænar og beri
ekki að taka bókstaflega. Vissulega
átti þróun sér stað en sú þróun var
ekki tilviljunarkennd heldur ákvörð-
uð frá upphafi. Það að það átti sér
stað þróun afsannar á engan hátt
tilvist Guðs! (hér er ekki átt við
gamlan mann uppí skýjum með
skegg og stóra bók, Guð getum við
aldrei skilið eða gefið mynd). Hveij-
um getur dottið það í hug að halda
því fram að heimurinn og allt sem
í honum hrærist sé tilviljun ein?
Nokkrir vísindamenn reiknuðu út
líkurnar á því að líf hafi verið tilvilj-
un ein og komust að þeirri niður-
stöðu að talan var stjarnfræðileg.
Það eru álíka miklar líkur og að
hvirfilbylur myndi ganga yfir rusla-
haug og þeyta honum upp með þeim
afleiðingum að úr yrði farþegaþota
á flugi. Nú getur hver hugsandi
maður velt því fyrir sér hvort hann
trúi að það gæti gerst. i
Kviknaði lífið í leir?
Þótt þróun hafi átt sér stað er
ekki þar með sagt að við höfum
verið apar. Sú staðreynd að við litum
út eins og apar einhvern tíman á
þroskaferli okkar gerir okkur ekki
að öpum, ekkert frekar en að sú
staðreynd að mannsfóstur líkist hal-
akörtu gerir það ekki að halakörtu.
Það er hægt að tína margt til sem
sýnir djúpa og fólgna visku Biblíunn-
ar en þar sem þetta er aðeins stutt-
ur pistill verður það að bíða betri
tíma. Samt get ég ekki staðist að
benda á eitt. Nýjustu niðurstöður
vísindanna eru þær að lífið kviknaði
ekki í hafinu heldur líklega í leir.
Þegar maður skoðar önnur trúarrit,
þar á meðal Biblíuna, kemst maður
að því að þar er talað um að Guð
hafi skapað manninn úr leir. Gæti
verið að hér sé um meira en tilviljun
að ræða?
Strákamir frá Eyjum gleyma því
í grein sinni að þótt það sé ekki
hægt að sanna tilvist Guðs vísinda-
lega er ekki heldur hægt að afsanna
hana og síðast þegar ég vissi var
ekkert talið rangt þar til það hefur
verið afsannað. Kenningin um að
maðurinn sé kominn af öpum hefur
Fjandvinir
á prestastefnu
ekki enn verið sönnuð, hinn týndi
hlekkur er enn ófundinn (þar með
er ég ekki að afneita kenningum
Darwins um þróun, en hann sagði
ekki helminginn af því sem honum
er eignað, til dæmis það að við höf-
um verið apar eða að Guð hafi ekki
skapað okkur). Hver er þá munurinn
á þessum tveim kenningum? Þær eru
báðar ósannaðar og hvorugar af-
sannaðar, önnur hefur bara meira
til síns máls á andlega sviðinu á
meðan hin dvelur nær eingöngu á
því veraldlega.
Önnur mistök sem strákarnir gera
er að þeir skipa öllum trúarbrögðum
á sama bekk og dæma þau út frá
öfgafullum og sjaldgæfum dæmum.
Með því að nota sömu aðferð gæti
ég vel afneitað vísindunum með öllu,
með því að benda á slæmar hliðar
þeirra og rangar niðurstöður. Hver
heilvita maður sér að slíkur vinnu-
háttur er ekki uppbyggjandi og langt
frá því að þjóna tilganginum, sem
hlýtur að vera að komast að sann-
leikanum.
Sönnuð og afsönnuð vísindi
Þessi öld hefur séð svo mörg
kraftaverk í nafni vísinda að hún
er farin að trúa þeim í einu og öllu.
Hægt væri að tala um bókstafstrú
Frá Guðna Björgólfssyni:
ÞEIR eru einkennilegir, krókóttir
og margslungnir þeir vefir og þræð-
ir sem snúnir eru innan þjóðkirkj-
unnar á þessari tíð. Og þau eru
ekki síður eftirtektarverð þau við-
brögðin sem við margvíslegum „tíð-
indum“ úr þessari stofnun berast
og þá ekki sízt í fjölmiðlum. Og lít-
ill er hann munurinn orðinn á fyrri
öldum og því sem gerist á þessari.
Eitt hefur alls ekkert breyst, —
mannlegt eðli er og verður samt
við sig, Hatur, óvild, öfund; þetta
grær allt á einni og sömu rótinni.
Og þó svo að reynt sé að koma
hlutunum lævíslega fyrir þá vita
flestir hve langt er frá seinasta bisk-
upskjöri.
Hvort munu ekki þær hendur
sem vígðar voru og þau heit sem
vísindanna í þessu efni. Um leið og
ný uppgötvun kemur fram er henni
tekið sem heilögum sannleik og fáir
þora að mótmæla ægilegum mætti
hennar og yfirráðum. Það vill gleym-
ast að næstum því á hveijum degi
er verið að sanna og afsanna hluti
í nafni vísindanna. Fyrir um einni
og hálfri öld var gefin út yfirlýsing
um að það væri búið að finna allt
upp sem hægt væri að finna upp. Á
þeim tíma fannst vísindamönnum
þeir hafa allan sannleikann. Hve
margir hlutir hafa verið afsannaðir
síðan þá? Enn í dag virðist maðurinn
lítið sem ekkert hafa lært, nefnilega
það að við munum aldrei hafa allan
sannleikann. Það sem er satt í dag
verður það kannski ekki á morgun
og líklega ekki eftir nokkrar aldir.
Oft þegar ég les um vísindalegar
niðurstöður heyri ég í kennurum
framtíðarinnar iesa yfir nemendum
sínum „þannig töldu menn þetta
vera um aldamótin 2000 en við vitum
betur núna“.
Forðumst ofstæki og bókstafstrú
bæði innan trúarbragða sem og í vís-
indum. Að lokum vil ég láta hér fylgja
með orð sem krotuð voru á vegg í
ónefndri borg. Þar stóð: „Guð er
dauður" og undir var skrifað „Nietzc-
he“. Fyrir neðan hafði síðan einhver
annar bætt við: „Nietzche er dauður“
og undir var skrifað „Guð“.
ÞORKELL ÁGÚST ÓTTARSSON,
Nóatúni 18, Reykjavík.
Sambyggðar
trésmíðavélar
Hjólsagir,
bandsagir,
spónsugur,
LAUGAVEGI 29
slmar 552 4320 - 552 4321 • 552 4322
gefin voru sem slíkt verk vinna létt-
væg fundin verða á hinum efsta
degi. Hvort mun ekki það vígða
vatn sem stökkt verður til helgunar
blóðlitað í höndum slíkra manna, —
þeirra manna sem ganga gegn eig-
in réttlætisvitund, eru tilbúnir að
segja það réttlæti sem er ranglæti;
snúa öllu á haus í orðræðu sinni.
Svo er að sjá sem hin íslenzka
þjóðkirkja sé í fjörbrotum sínum.
Hún er sjálfri sér sundurþykk; rót
hennar er spillt orðin, feyskin og
lúin af amstri; önd hennar er þreytt.
Henni hæfir bezt úr því sem komið
er að minnast kristnitökunnar um
aldamótin með því að fullkomna
verkið, sofna svefninum langa og
leggja sjálfa sig niður.
GUÐNI BJÖRGÓLFSSON,
Reykhólaskóla, Krókfjarðarnesi.
Honda Civic 5 dyra 90 hestöfl
traustur fjölskyldubíll
Honda Civic 3ja dyra 90 hestöfl
glæsilegur sportbíll
Honda Accord 1.8i 115 hestöfl
uppfyllir kröfur vandlátra
sumartilboö
fallegustu bílarnir nú meö meiri búnaöi
1.384.000.-
staögreitt á götuna
innifaliö umfram staðalbúnað
- álfelgur
- vindskeið
- þjófavörn
- samlitir stuðarar
1.3W.000.-
staögreitt á götuna
innifalið umfram staðalbúnað
- álfelgur
- þjófavörn
- geislaspilari
- 1 50 w hátalarar
1.749.000.-
staögreitt á götuna
innifalið umfram staðalbúnað
- álfelgur
- vindskeið
- þjófavörn
Umboösaöilar Honda
á Akureyri: Höldur hf., Tryggvabraut 12, S: 461 3000
á Egilsstöðum: Bíla- og Búvélasalan ehf., Miöási 19, S: 471 2011
í Keflavík: Bílasalur Suöurnesja., Grófinni 8, S: 421 1200
(H
VATNAGARÐAR24
S: 568 9900