Morgunblaðið - 12.07.1996, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Siglufirði. Morgunblaðið.
Siglfirðingar kvarta yfir mengun og lykt til Hollustuverndar
„Peningalyktin“
óæskileg lungna- og
ofnæmissj úklingum
SLÆM lykt og reykmettað loft
frá loðnuverksmiðju SR-mjöls
hefur legið yfir Siglufirði undan-
farna daga. Kvartanir hafa borist
til Hollustuverndar ríkisins og
kom Jóhann Guðmundsson,
starfsmaður Hollustuvemdar, til
Siglufjarðar til að lita á aðstæður
og mun hann síðar gefa skýrslu
um ástandið.
Jóhann sagði að mengunin
gerði heilbrigðu fólki ekki mein.
Hinsvegar væri hún afar hvimleið
og óæskileg fólki með lungnasjúk-
dóma og ofnæmi. Hann sagði að
á Siglufirði væri mengunarvarna-
búnaður til staðar og sú saga, sem
gengið hefði fjöllunum hærra um
að hann hefði verið fjarlægður,
væri röng. Jóhann sagði ennfrem-
ur að miðað við núverandi ástand
væri hægt að komast skrefi fram-
ar í mengunarvörnum í bænum,
en það væri að fjárfesta í nýjum
þurrkurum. Það væri líklega fjár-
hagsdæmi upp á 600-700 milljónir
króna.
Hreinsunarbúnaður verk-
smiðjunnar er staðsettur við skor-
stein hennar og felst hreinsunin
á reyknum í því að sjó er dælt á
reykinn og þar með eiga óæskileg
efni, sem vera kunna í honum,
að sitja eftir.
Árvissar kvartanir
Þórður Andersen, verksmiðju-
stjóri SR-mjöls á Siglufirði, segir
kvartanir fólks, íbúa jafnt sem
ferðamanna, nánast árvissar, en
mengunin nú stafi aðallega af
óhagstæðri vindátt. Reykinn leggi
yfir bæinn og talsverður hiti í
lofti magni upp „peningalyktina".
Þurrkarar loðnuverksmiðjunn-
ar á Siglufirði, sem eru þrír að
tölu, eru fráárinu 1946 ogþað
mun hafa verið á döfinni að fá
nýja, en að sögn Þórðar mun sú
fjárfesting eitthvað dragast
vegna uppbyggingar SR-mjöls á
nýrri loðnuverksmiðju í Helguvík.
Með nýjum og betri þurrkurum
ætti reykurinn alveg að hverfa,
en einhver lykt myndi ætíð verða
til staðar.
Stillur dögum saman
Loðnuverksmiðja SR-mjöls á
Siglufirði er stærsta loðnuverk-
smiðja landsins, byggð í kringum
1930 og getur brætt allt að 1.600
tonn af loðnu á sólarhring. Stað-
setning hennar með tilliti til
reykjar- og lyktarmengunar er
afar slæm og víst er að ef byggja
ætti verksmiðjuna í dag, yrði hún
að öllum líkindum ekki staðsett
inni í Siglufirði sökum þess hve
fjörðurinn er þröngur og veður-
fari þannig háttað að stillur geta
ríkt dögum saman eða þá hægur
norðan andvari líkt og verið hefur
undanfarið og þá umlykur reykj-
armengunin bæinn.
Það sem af er sumarvertíðinni
hafa borist um fjórtán þúsund
tonn í verksmiðjuna. Mjög góð
veiði hefur verið á miðunum,
reyndar allt of góð, að sögn Þórð-
ar og eru skipin skyldug til að
bíða í 54 tima eftir komu í höfn.
Bijóti þau þessa reglu, fá þau
ekki löndun hjá SR-mjöli í næsta
túr. Er þetta gert til þess að auð-
velda verksmiðjum að hafa undan
og vinna ferskara og betra hrá-
efni. Undanfarið hafa verið
brædd 1.200-1.300 tonn á sólar-
hring og er sumarloðnan, sem
full er af átu, mun verri til
bræðslu og geymsluþol hennar
mun styttra.
Heílbrigðisráðuneytið
Veðurstofa
« / • n* / • j
fai fjarveit-
ingu til frjó-
mælinga
DAVÍÐ Gunnarsson, ráðuneytis-
stjóri í heilbrigðisráðuneytinu, seg-
ir að í ráðuneytinu sé mikill áhugi
á því að hafnar verði markvissar
ftjómælingar og að upplýsingar
um mælingarnar verði aðgengileg-
ar almenningi. Hann segir mikil-
vægt að sú stofnun sem annist
mælingarnar, t.d. Veðurstofa ís-
lands, fái fasta fjárveitingu frá rík-
inu.
Formaður Samtaka gegn astma
og ofnæmi, Hannes Kolbeins, hefur
vakið máls á brýnu hagsmunamáli
ofnæmissjúklinga að fá niðurstöður
mælinga á frjókornum í andrúms-
lofti oftar en vikulega. Davíð
segir að málið verði tekið fyrir í
ráðuneytinu og unnið í samvinnu
við umhverfisráðuneytið og Veður-
stofuna. Unnið verði að framgangi
málsins eins vel og frekast sé unnt
en ekki sé ljóst hvenær formlegt
samstarf um mælingar geti hafist.
Hann segir hugsanlegt að bíða þurfi
Ú'árlagagerðar til að fá heimild fyr-
ir fjárveitingu.
-----♦------
Akureyrarbær ákveð-
ur að selja hlut í ÚA
Fjórðungur
árúman
milljarð
MEIRIHLUTI Framsóknarflokks
og Alþýðuflokks í bæjarstjóm Ak-
ureyrar hefur náð samkomulagi um
sölu á hluta af hlut bæjarins í Út-
gerðarfélagi Akureyringa. Hlutur
bæjarins nemur nú um 53%.
Gert er ráð fyrir að bærinn nýti
ekki forkaupsrétt sinn í hlutafjár-
útboði, sem nú stendur yfir, en
bæjarstjóra verður falið að ganga
til samninga við stjórn ÚA um að
félaginu verði framseldur forkaups-
rétturinn. Þá er bæjarstjóra falið
að bjóða til sölu hlut, sem eftir
hlutafjáraukningu mun nema um
24,6% af heildarhlutafé í félaginu.
■ Heimamenn fá/12
Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir
STAÐSETNING loðnuverksmiðjunnar er ekki heppileg. Almennt er talið að slíkri verksmiðju yrði að öllum Iíkindum valin önnur stað-
setning ef byggja ætti upp í dag vegna þess hve fjörðurinn er þröngur og veðurfari þannig háttað að stillur geta ríkt dögum saman.
Framkvæmdastj óri SÍ A um auglýsingu með fáklæddum stúlkubörnum
Talin afar ósmekkleg
AUGLÝSING frá versluninni
Cosmo, sem sýnir fáklædd stúlku-
börn í faðmlögum, hefur vakið
hörð viðbrögð og hafa fjölmargir
haft samband við Samband ís-
lenskra auglýsingastofa til að mót-
mæla birtingu hennar.
Sólveig Ólafsdóttir fram-
kvæmdastjóri SÍA segir að þeir
sem hafí haft samband við skrif-
stofu sambandsins, telji auglýsing-
una afar ósmekklega.
Óviðurkvæmileg notkun barna
„Þama eru nær nakin stúlku-
börn í auglýsingu frá verslun sem
selur föt fyrir fullorðna, og fólki
fínnst að verið sé að nota börnin
á óviðurkvæmilegan hátt. í sam-
keppnislögum eru ákvæði þar sem
gert er ráð fyrir að fara mjög var-
lega þegar börn eru notuð í auglýs-
ingar, og meginreglan hefur verið
sú að bömin komi viðkomandi
máli við, komi þau fram í slíkum
auglýsingum. Erfitt er að sjá að
svo sé í þessu tilviki, því telpumar
virðast settar í samhengi sem ekki
hæfir,“ segir Sólveig.
Hún segir þorra þeirra sem hafi
haft samband vera mæður barna
á svipuðum aldri og stúlkumar í
auglýsingunni.
„Þeim var mjög brugðið og
fannst að verið væri að nota fá-
klædd börn í söluskyni. Sjálfri
fínnst mér þetta mjög ósmekklegt
og hef yfirleitt fengið sömu við-
brögð frá fólki sem starfar í aug-
lýsingafaginu. Ég efast í raun um
að nokkur auglýsingastofa hefði
sett upp mynd af þessu tagi, og
er alveg viss um að auglýsingin
sé ekki unnin á auglýsingastofu,
enda er hún ómerkt þar sem hún
hefur birst,“ segir hún.
Hægt að kæra eða kvárta
Sólveig kveðst hafa bent fólki á
að til væm færar leiðir til að mót-
mæla auglýsingunni, meðal annars
að kæra birtingu hennar fyrir siða-
nefnd SÍA og/eða kvarta til Sam-
keppnisstofnunar vegna þess að
hún misbjóði siðferðiskennd fólks.
Fólk geti líka haft samband við
þá fjölmiðla sem birt hafa auglýs-
inguna til að óska eftir að hún
verði ekki birt í óbreyttri mynd.
SÍA geti hins vegar ekki bannað
auglýsingar.
Auglýsingu frá annarri fata-
verslun, sem birst hefur síðustu
daga og sýnir hóp kviknaktra karl-
manna, segir Sóiveig ekki hafa
vakið samsvarandi viðbrögð og
myndin af telpunum.
„Menn geta haft skiptar skoðan-
ir á því hvort sýna á nokkurn svona
fáklæddan í auglýsingum eða ekki,
en ég held að höfuðástæða þess
að fólk reiðist ekki yfir auglýsing-
unni með strákunum sé sú að þar
á fullorðið fólk í hlut. Fólk sættir
sig hins vegar ekki við óeðlilega
notkun á bömum,“ segir Sólveig.
Dennis
fær nýjan
gervifót
DENNIS Kovacevic, bosníski
pilturinn sem missti fót þegar
hann steig á jarðsprengju rétt
hjá bænum Bihac í fyrra, fékk
nýjan gervifót hjá Stoðtælqa-
þjónustunni Ossuri hf. í gær.
Var mótuð ný hulsa og mátaði
pilturinn fótinn á Grand Hótel.
Dennis, sem er 15 ára, missti
fótinn þegar hann steig á jarð-
sprengju þar sem hann var á
ferð yfir akur og leiddi hjól
sitt. Þó stríðinu sé lokið, stafar
fólki enn ógn af földum
sprengjum og töluvert er um
slys af þessu tagi, að sögn
Dennis.
Eyþór Bender markaðsstjóri
Össurar hf. hitti Dennis af til-
viljun á sjúkrahúsi í Zagreb
fyrir hálfu ári og ákvað að út-
vega honum gervifót. Síðan er
gamli gervifóturinn orðinn of
rúmur. Guðmundur Jakobsson
stoðtælgasmiður hjá Össuri hf.
segir að stúfar rýrni fyrsta
árið eftir slys, og því sé þörf á
.. Morgunblaðið/Golli
KATRIONA Inglis, stoðtækjafræðingur hjá Ossuri hf., mótar
nýja hulsu á fót Dennis, en eins og sjá má missti hann fótinn
mitt á milli hnés og ökkla.
að skipta um fót á nokkurra
mánaða fresti fyrsta árið. Eftir
þetta þurfi drengurinn að
skipta um fót eftirþvi sem
hann vex og mun Össur hf. út-
vega honum fót eftir vexti.
Dennis var mjög ánægður
með nýja fótinn þar sem hægt
er að hreyfa ökklann, en það
hefur Dennis ekki reynt siðan
slysið gerðist. Hann tók því til
fótanna og hljóp í nokkra
hringi á nýja fætinum. Einnig
rættist ósk hans um að geta
hjólað aftur og af því tilefni
gaf Orninn hf. honum reiðhjól.
Dennis fer heim aftur á laug-
ardaginn en áður mun hann
sigla niður Hvítá.