Morgunblaðið - 12.07.1996, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 12.07.1996, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens BG EG VANUfZ A& FA&A I GUFHJBAE) /V>EE> KAfc-TÖFLUM 0(3 IAU!C{ Ljóska - Ég tapaði! Ég tapaði öllu sem - Ég tapaði öllu! - Tíu bréfklemmur! Ég er ríkur! ég átti! BREF TLL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reylqavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Hver stal sjóðnum? Fyrirspurn til Neytendasamtakanna? Frá Tryggva Hjörvar: ÉG SNÝ mér til ykkar, þar sem mér er farið eins og fleirum, að þá sjaldan ég skil ráðuneytismenn, þá trúi ég þeim ekki. Erindið er í beinu framhaldi af því sem heilbrigðisráðherra til- kynnti í útvarpi í gær 7.7. 1996: „Að nú skyldi sett á sjúkrasamlags- gjald, undir öðru nafni og sem nef- skattur. Gjaldið sé „aðeins" tvöþús- und og eitthvað krónur og leggist jafnt á alla sem vilja vera með. Annars skulu þeir sko fá að borga fyrir sín veikindi." Gjaldið leggst líka á þá sem lítil sem engin laun hafa vegna veikinda sinna. Sam- kvæmt hefðinni hækkar þetta gjald fjórfalt á næstu sex árum. Á sama tíma verður dregið úr niðurgreiðsl- um í núverandi kerfi uns þeim verð- ur hætt. Það má vera að einhverjum finnist ég gefa mér hæpnar forsend- ur, en reynslan er ólygnust. Nú er það svo að á mínum upp- vaxtarárum voru til sjúkrasamlög sveitarfélaganna og í Sjúkrasam- lag Reykjavíkur greiddi ég mín gjöld frá 16 ára aldri og tók þar með þátt í samtryggingu fólksins til niðurgreiðslu lyfja og læknis- kostnaðar. Mér þótti þetta sjálf- sagt og gott. Þar kom að stjórnmálamenn sáu ofsjónum yfir þessu fjármagni sem ekki var undir þeirra stjóm, og settu í lög að þessar greiðslur gengju til Tryggingarstofnunar ríkisins í gegn um skattkerfið. Þeir hækkuðu gjöldin auðvitað í leiðinni til að standa undir aukinni pappírsvinnu. Nokkru síðar voru greiðslurnar felldar beint inn í skattana, hækk- aðar í leiðinni og sú skýring gefin að þá þyrftu þeir ekki að borga sem minnst mættu sín. Allt er þetta gott og blessað, en hvað eru þessar greiðslur háar í dag, framreiknað- ar, og það sem meira er, hvar er sjóðurinn? Ég hef búið mér til sögu um hvers vegna sjúkrasamlögunum var komið yfír á ríkið. Bændur í minni hreppum hafa séð ofsjónum yfir því að þurfa að greiða fyrir þetta lið sem ekki nennti að vinna og því stillt greiðslum til sjóðsins í hóf. Svo hefur einhver bóndinn lagst á spítala og sjóðurinn farið á haus- inn. Þá hefur verið hlaupið í þing- manninn og hann síðan hlaupið í sinn ráðherra og hans menn búið tii sínar skýringar til þess að koma heila klabbinu yfír á ríkið. (Já, ég horfði á þættina „Já ráðherra“) Sem sagt, frá næstu áramótum borgum við í tvö sjúkrasamlög, þetta nýja fer sömu leið í Hítina og eftir 30-40 ár kemur upp það þriðja. TRYGGVI HJÖRVAR, eldri, Austurbrún 35, Reykjavík. Upplýsingar um Alnetstengingu við Morgunblaðið Tenging við heimasíðu Morgunblaðsins Til þess að tengjast heimasíðu Morgunblaðsins, sláið inn slóðina http://www.centrum.is/mbl/ Hér liggja ýmsar almennar upp- lýsingar um blaðið, s.s netföng starfsmanna, upplýsingar um hvernig skila á greinum til blaðs- ins og helstu símanúmer. Morgunblaðið á Alnetinu Hægt er að nálgast Morgun- blaðið á Alnetinu á tvo vegu. Annars vegar með því að tengjast heimasíðu Strengs hf. beint með því að slá inn slóðina http://www.strengur.is eða með því að tengjast heimasíðu blaðsins og velja Morgunblaðið þaðan. Strengur hf. annast áskriftar- sölu Morgunblaðsins á Alnetinu og kostar hún 1.000 krónur. Sending efnis Þeir sem óska eftir að senda efni til blaðsins um Alnetið noti netfangið: mbl@centrum.is. Mikilvægt er að lesa vandlega upplýsingar um frágang sem má finna á heimasíðu blaðsins. Það tryggir öruggar sendingar og einnig að efnið rati rétta leið í blaðið. Senda má greinar, fréttir og myndir eins og fram kemur á heimasíðu blaðsins. Mismunandi tengingar við Alnetið Þeir sem hafa Netscape/Mos- aic-tengingu eiga hægt um vik að tengjast blaðinu. Einungis þarf að slá inn þá slóð sem gefin er upp hér að framan. Þeir sem ekki hafa Netscape/ Mosaic-tengingu geta nálgast þessar upplýsingar með Gopher- forritinu. Slóðin er einfaldlega slegin inn eftir að forritið hefur verið ræst. Mótöld Heppilegast er að nota a.m.k. 14.400 baud-mótald fyrir Netscape/Mosaic tengingar. Hægt er að nota afkastaminni mótöld með Gopher-forritinu. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.