Morgunblaðið - 12.07.1996, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 12.07.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1996 15 VIÐSKIPTI Stóraukin umsvif hjá Vátryggingarfélaginu Skandia hf. Iðgjöldinjukust um 30% fyrstu 5 mánuði ársins VÖXTUR Vátryggingarfélagsins Skandia hf. hefur verið mjög ör að undanförnu, og jukust bókfærð ið- gjöld fyrstu fimm mánuði þessa árs um tæp 30% frá sama tíma í fyrra. Þessi aukning kemur í kjölfar um 45% iðgjaldaaukningar milli áranna 1994 og 1995. Félagið hefur ráðið marga nýja starfsmenn til sín að undanfömu og er nú svo komið að húsnæðið á Laugavegi 170 rúmar ekki lengur alla starfsemina. Hefur aðstaða sölusviðs tryggingafélagsins því verið flutt í Nóatún 17, 3. hæð, að því er fram kemur í frétt frá félaginu. Á sölusviði munu starfa 23 trygg- ingaráðgjafar og verður áhersla lögð á persónulega þjónustu og ráðgjöf, þar sem leitast verður við að sér- sníða tryggingar að þörfum hvers viðskiptavinar. Móttaka og þjónusta við viðskiptavini Skandia verður eft- ir sem áður að Laugavegi 170, en þar verða þjónustudeild, tjónadeild og aðrar stoðdeildir vátryggingarfé- lagsins. Eftirtaldir hafa verið ráðnir til starfa hjá félaginu síðustu mán- uði.^ • ÁGÚSTA Hjaltadóttir hefur verið ráðin þjónustufulltrúi í þjón- ustudeild Vátryggingarfélagisins Skandia. Ágústa er leikskólakennari frá Fósturskóla íslands og mun jafnramt ljúka B.ed gráðu frá Kenn- araháskóla íslands veturinn 1997. Hún starfaði síðast hjá Félagsmála- stofnun Kópavogs, en hefur m.a. starfað sem aðstoðarleikskólakenn- ari 1989-93, sem sölumaður hjá heildversluninni Forval hf. 1984-86 og sem skrifstofumaður hjá ríkisfé- hirði 1976-81. Ágústa er 38 ára og tveggja bama móðir. Ágústa • BJÖRN Gunnlaugsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Skan- dia. Bjöm er fæddur árið 1968, stúdent frá Menntaskólanum í Kópavogi 1988 og viðskiptafræð- ingur frá Háskóla Islands 1994 af markaðssviði. Hann starfaði sem markaðsfulltrúi verslunarmiðstöðv- arinnar Kringlunnar 1992-94 en nú síðast hjá Vífilfelli, sem vöru- stjóri matvæladeildar 1994- 95 og forstöðumaður markaðsrannsókna 1995-96. Eiginkona Björns er Bríet Birgisdóttir hjúkrunarfræðinemi og eiga þau eitt barn. • GISLI Jón Magnússon hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sölusviðs Vátryggingafélagsins Skandia. Gísli Jón er fæddur í Reykjavík árið 1956. Hann hefur starfað hjá Tryggingamiðstöðinni hf. frá 1979 við sölu- og tjónaupp- Gísli Jón gjör, nú síðast sem yfirmaður tjóna- deildar. Auk þess hefur Gísli Jón unnið að íþrótta- og æskulýðsstörf- um sl. 15 ár m.a. sem knattspyrnu- þjálfari. Hann er kvæntur Helgu Bernhard flugfreyju og eiga þau þrjú börn. • HARALDUR Gunnarsson ver- ið ráðinn fulltrúi í tjónadeild. Hann hefur undanfarin ár starfað hjá heildversluninni Hegas hf., en áður m.a. sem háseti og bátsmaður hjá Eimskip og Ríkisskipum. Harald- ur er þrítugur að aldri, kvæntur Rögnu Ársælsdóttur bankaritara hjá íslandsbanka og eiga þau tvö börn. • KARL Eggertsson hefur verið ráðinn tryggingaráðgjafi sölusviðs Vátryggingafélagsins Skandia. Karl lauk námi í rafeindavirkjun Sigtryggur Haraldur árið 1982 og meistaranámi í sömu grein árið 1984. Auk þess stundaði hann nám í tölvufræði, stærðfræði og þýsku á árunum 1991-96. Hann starfaði frá 1994-96 að markaðs- málum í Evrópu fyrir bandaríska fyrirtækið Nu Skin Int, en áður hefur hann m.a. unnið á markaðs- sviði hjá atvinnurekstrardeild Tryggingamiðstöðvarinnar um tveggja ára skeið og sem innkaupa- og markaðsstjóri hjá Tölvusölunni í Reykjavík 1984-91. Eiginkona Karls er Sigríður Huld Garðars- dóttir og eiga þau þijú börn. • SIGTRYGGUR Sigtryggsson hefur verið ráðinn kerfisfræðingur við tölvudeild Skandia hf. Sigtrygg- ur er fæddur 4. maí 1971 og hefur nýlokið námi í kerfisfræði við Tölvuháskóla Verslunarskóla Is- lands. ESB sigrar Jap- ani í viskístríði BrUssel. Reuter. INNFLUTNINGUR á evrópsku viskí, gini, koníaki og öðru áfengi til Japans kann að verða fijálsari vegna úrskurðar Alþjóðaviðskipta- stofnunarinnar, WTO, þess efnis að japanskir áfengistollar séu óhóflega háir. Framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins sagði að WTO hefði komizt að raun um að áfengi fram- leiddu í Japan væri gert hærra undir höfði en innfluttu áfengi. ESB hvetur til þess að japönsk- um lögum verði breytt og segir að athyglinni verði bráðlega beint að svipuðum höftum á áfengisvið- skiptum í Kóreu og Chile. „Þessar niðurstöður eru mjög góðar fréttir fyrir evrópska áfengisframleiðslu," sagði við- skiptastjóri ESB, Sir Leon Brittan. Japanskir tollar á innfluttu áfengi eru sex sinnum hærri en á áfengi sem framleitt er í Japan að sögn ESB. Sala á evrópsku viskí til Japan minnkaði um 25% í 11,5 milljónir lítra 1994-1995. Japanar flytja inn aðeins 8% af því áfengi sem þeir neyta saman- borið við 30% innflutning annarra iðnríkja. Bandaríkjamenn flytja inn 35% þess áfengis sem þeir neyta og Ástralíumenn 73%. ESB hefur átt í níu ára viskí- stríði við Japana. Deilunefnd gömlu GATT stofnunarinnar kvað upp úrskurð óhagstæðan Japönum 1987 og leiddi hann til breytinga á tollakerfi Japana. ESB taldi úr- skurðinn ekki ganga nógu langt og kærði Japana fyrir WTO fyrir ári. BMW setur Þjóð- veija yfir Rover ROVER MG RV8 sportbíll. Frankfurt. Rcuter. BMW hefur ákveðið að skipa Þjóðveija, Walter Hasselkus, yfir- mann brezku ein- ingarinnar Rover Group. Hasselkus hef- ur verið yfirmað- ur vélhjóladeildar BMW og tekur við nýja starfinu 1. september af John Towers sem hætti störfum 1. júní. BMW hefur leitað að brezkum stjórnanda í starfíð, en leggur áherzlu á að skipun Hasselkus tákni ekki stefnubreytingu og að Rover muni halda brezku yfir- bragði sínu. „Rover verður eftir sem áður brezkt fyrirtæki,“ sagði talsmaður BMW. „Heildarstefna fyrirtækis- ins verður óbreytt. Bílasérfræðingar eru ekki eins vissir og segja að skipun þýzks yfirmanns bendingu um vaxandi óþolinmæði með tap hja Rover og að BMW muni taka meiri þátt í stjórn brezka fyrirtækisins. Hasselkus var yfírmaður BMW íBretlandi 1980-1984 ogvareinn- ig yfírmaður starfsemi fyrirtækis- ins í Suður-Afríku 1984-1989. BMW tók við rekstri Rover 1994 og hefur ráðizt í miklar fjárfest- ingar til að auka gæði. Á árinu 1995 einu saman námu fjárfest- ingar BMW í Rover 1.2 milljarða marka eða 788.6 milljónum punda. Þó er enn tap á Röver og stjórn- arformaður BMW, Bernd Pisch- etsrieder, býst ekki við að Rover skili hagnaði fyrir árið 2000. O Fyrsti söludagur: Sölutímabil: Vafnverð: Lánstími: Einingar: Gjalddagar: Verðtrygging: Innköllun: Sölufyrirkomulag: Annað: IÐNLANASJOÐUR Almennt skuldabréfaútboð 1. flokkur 1996 12. júlí 1996 12. júlí 1996 - 27. desember 1996 Fl. 1996/1A Fl. 1996/1B Fl. 1996/lC Fl. 1996/1D Fl. 1996/lE 0 - 1.500 milljónir króna 0 - 1.500 milljónir króna 0 - 1.500 milljónir króna 0 - 1.500 milljónir króna 0 - 1.500 milljónir króna Skuldabréfm eru til 10 ára með lokagjalddaga 15. júlí 2006 Bréfín verða seld í 1, 5 og 10 milljóna króna einingum. Gjalddagar afborgana og vaxta eru 15. júlí ár hvert, í fyrsta sinn 15. júlí 1997 og í síðasta sinn 15. júlí 2006. Bréfm eru verðtryggð miðað við vísitölu neysluverðs Iðnlánasjóður getur innkallað bréfin frá og með 5. gjalddaga. Fyrst í stað verða einungis seld bréf í flokki 1/1996A. Nafnvextir og ávöxtunarkrafa í flokki 1/1996A verða ákveðnir um leið og sala hefst, en nafnvextir og ávöxtunarkrafa bréfa í öðrum flokkum verða ákveðnir síðar. Ef að breytingar verða á markaðsaðstæðum og þeirri ávöxtunarkröfu sem gerð er til skuldabréfanna verður sölu hætt í flokki 1/1996A, en sala hafin á bréfurn í flokki 1/1996B og nafnvextir þeirra bréfa ákveðnir þá, og svo koll af kolli. Það er því óvíst að seld verði bréf í öllum flokkum. Þegar sölu í hverjum flokki lýkur verður Verðbréfaþingi íslands tilkynnt um nafnverð seldra bréfa í þeim flokki og einnig hverjir nafnvextir bréfa í næsta flokki á eftir verða. Utboðslýsing og önnur gögn um útboðið og Iðnlánasjóð liggja frammi hjá Kaupþingi hf. sem hefur urnsjón með útboðinu og annast sölu bréfanna. Sótt hefur verið urn skráningu skuldabréfanna á Verðbréfaþing íslands. Kaupþing hf. Ifíggilt verðbréfafyrirtœki Kringlunni 5 Sími: 515-1500

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.