Morgunblaðið - 12.07.1996, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.07.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ1996 21 Sýningar á verkum Snorra Sturlusonar í Reykholti Einhver snjallasti sagnaritari miðalda „MÉR fínnst Snorri Sturluson ekki vera eins kunnur í veröldinni eins og hann ætti skilið, því það leikur eng- inn vafí á því að hann var einhver allra snjallasti sagnaritari í heiminum á miðöldum," segir dr. Jónas Krist- jánsson sem mun flytja erindi um Snorra Sturluson í hinni nýju Reyk- holtskirkju sunnudaginn 14. júlí. Einnig munu Þorleifur Hauksson og Gunnar Stefánsson lesa úr Heims- kringlu og Snorra-Eddu og hefst dagskráin klukkan 14. Tilefnið er opnun sýningar á verkum Snorra Sturlusonar á jarð- hæð hinnar nýju Reykholtskirkju, en í Snorrastofu í Reykholti verður jafnframt opnuð sögusýning sem séra Geir Waage hefur safnað til. Á sýningunni í Reykholtskirkju verða m.a. sýndar ljósmyndir úr handritum Snorra og ýmsar útgáfur bóka hans, bæði á íslensku og þýð- ingar. Einnig verða til sýnis útgáfur á forníslensku auk bóka um Snorra Sturluson ritaðar af fræðimönnum. Páll á Húsafelli mun leggja til nokkur verka sinna á sýninguna, en efniviður höggmynda hans er steinar úr náttúrunni. I Reykhoiti hefur aðstaða fyrir gesti verið stóraukin og telur Jónas enga vanþörf á, því ijöldi ferða- manna er geysimikill. „Þetta lítur allt miklu betur út og allt annað að koma þarna síðan þessar bygg- ingar komu.“ HIN nýja Reykholtskirkja verður vígð í lok þessa mánaðar. SNORRI Sturluson. Teikning eftir Christian Krohg úr norskri Heimskringluútgáfu frá 1899. Þess er ekki vænst að íslending- ar verði í meirihluta gesta í Reyk- holti í sumar frekar en endranær en Jónas vonast samt til að sem flestir íslendingar leggi leið sína þangað og skoði sýninguna. — Sýna íslendingar menningar- arfleifð sinni tómlæti? „Já, en það er ekki einsdæmi í heiminum. Ég hef orðið var við það víða í frægum söfnum erlendis að það eru aðallega útlendir gestir sem koma að skoða þau.“ Snorri Sturluson var uppi milli 1178-1241 og var goðorðsmaður á miðri Sturlungaöld þegar einar mestu væringar í íslensku stjórn- málalífi gengu yfir með mannvígum og ófriði. Margir telja Snorra höf- und Egils sögu, en hann skrifaði svo vitað sé Olafs sögu helga hina sérstöku, Heimskringlu og Snorra- Eddu. Háttatal er eina varðveitta kvæði Snorra en getið er um kvæði eftir hann sem nú eru glötuð. Það sem flestum þykir án efa spennandi við heimsókn í Reykholt er sú staðreynd að Snorri var högg- vinn þar á heimili sínu, en þar átti í hlut handbendi Noregskonungs sem taldi Snorra landráðamann eft- ir að hann fór í óleyfi til íslands árið 1239. ■ GENISTA Mclntosh hefur ver- ið skipuð næsti forstjóri Konung- legu bresku óperunnar og er hún fyrst kvenna til að gegna stjórn- unarstöðu hjá stóru ríkisleik- og tónlistarhúsunum í Bretlandi. Mclntosh, sem er 49 ára, hefur að undanförnu gegnt starfi fram- kvæmdastjóra breska þjóðleik- hússins. Mclntosh tekur við af Sir Jeremy Isaacs, sem var aðal- leikhússtjóri, en Mclntosh mun ekki fá þann titil og heldur ekki sambærileg laun og Isaacs. ■ TIL stendur að koma högg- myndum fyrir á Trafalgar-torgi í London. Verkin eiga að vera dæmi um það besta sem bresk höggmyndalist hefur upp á að bjóða og stendur til að velja fimm verk sem sýnd verða á torginu, eitt í senn. Verða verkin, sem verða bæði ný og gömul, sýnd í allt að ár. Búist er við að kostnaður við þetta nemi um eitthundrað og fimmtíu milljónum ísl. kr. Eyja hugans SÝNING Árna Rúnars Sverrissonar stendur nú yfir í Galleríi Horninu. Nefnir hann hana Eyju hugans. Árni Rúnar tók sveinspróf í húsa- smíði árið 1977 og stundaði nám við Myndlistarskólann í Reykjavík 1984-1985 auk þess sem hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands árið 1988. Árni hefur haldið þrjár einkasýning- ar, á Mokka, í Portinu og í Ásmund- arsal. Þá tók Árni þátt í samsýning- unni stefnumót trúar og listar - andinn í Hafnarborg í fyrra. Á sýningu Árna að þessu sinni eru 22 myndir, allar olía á striga og segist Árni leita fanga í ís- lenskri náttúru. Sýningu Árna Rúnars lýkur þann 17. júlí. EITT verka Árna Rúnars Sverrissonar. ARTHUR A’Avramenko myndlistarmaður. A’Avramenko sýnir í Hafnarborg ARTHUR A’Avramenko, list- málari frá Úkraínu, opnar sýn- ingu á verkum sínum í Hafnar- borg, menningar- og listastofn- un Hafnarfjarðar, laugardag- inn 13. júlf kl. 14. Arthur hóf ungur að nema málaralist heima í Úkraínu og fór siðan í framhaldsnám í lista- skólanum í St. Pétursborg. Hann hélt sína fyrstu einkasýn- ingu í Poltava í Úkraínu árið 1968, síðan í Moskvu og St. Pétursborg 1990-1991 ogí Belgrad 1991. Eftir dvöl í París hélt hann til Kaupmannahafnar þar sem hann hefur unnið síð- an. Hann hefur haldið fjölda málverkasýninga í Danmörku frá árinu l992. Arthur hefur dvalist á íslandi mikinn hluta síðasta árs, m.a. að Listamið- stöðinni í Straumi í Hafnar- firði. Hann sýnir afrakstur þeirrar vinnu á sýningu sinni í Hafnarborg. Kaupmannahöfn var valin listaborg Evrópu 1996 og mun Arthur sýna verk sín á átta stöð- um í borginni af því tilefni, m.a. mun hann taka þátt í ár- legri sýningu í Gallerie Drag- höj. Sýning Arthurs stendur til 29. júlí nk. Opnunartími er frá kl. 12-18 alla daga nema fimmtudaga, en þá er opið til kl. 21 og þriðjudaga er lokað. A nýju Olísstööinni á horni Sæbrautar og Sundagaröa 2kr. afsláttur af hverjum eldsneytislítra. Að auki r2. kr. sjálfsafgreiðslu afsláttur. Kynning á Char-Broil, amerísku gæðagasgrillunum kl 13-19 alla daga. * Við setjum grillið saman og sendum það heim til þín. * Fullur gaskútur fylgir með. * Vönduð grillsvunta fylgir hverju gasgrilli. „Villt og grænt“ fræpoki fylgir hverri áfyllingu. Fylltu tankinn á Sæbrautinni, taktu fræpoka með þér í fríið og leggðu landinu lið. Börnin fá nýju Ollabókina*. Full bók af tróðleik og skemmtun fyrir börn á öllum aldri. 'A Jtwöin öií^öir entias}. léttir þér lífið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.