Morgunblaðið - 12.07.1996, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 12.07.1996, Blaðsíða 46
j \ \ I \ I I í I I I íf I í 46 FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ GADD Myndin er hlaöirí nyjust.iíu tæknibrellum sem vo'l u|jpl ALIEN 2 HÁSKOLABIO SÍMI 552 2140 Háskólabíó FRUMSYNING: BILKO LIÐÞJALFI DAN AYKROYD STEVE MARTIN Frábær gamanmynd með einum vinsælasta gamanleikaranum í dag. Steve Martin fer á kostum sem Bilko liðþjálfi, sleipasti svikahrappurinn i bandariska hernum. Bilko myndi selja ömmu sína efhann væri ekki þegar búinn að leigja hana út! Sýndkl. 5, 7, 9 og 11.10. PAMELA AND B A T M A Nl-P Sýnd kl. 6.45 og 9.15. Sýnd kl. 4.50. HELGARMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA Velsk spenna og finnskurfuni ENN ER það ríkissjónvarpið sem leyf- ir sér þann munað að bjóða upp á óvenjulegt kvikmyndaval þessa helg- ina. I kvöld getum við séð tveggja ára gamla sálfræðilega spennumynd frá Wales sem heitir Auga fyrir auga (Wild Justice, RÚV ►22.15) en leik- stjóri hennar, Paul Turner, hefur verið útnefndur til Óskarsverðlauna. Mynd- ina hef ég ekki séð en hún virðist forvitnileg. Á sunnudagskvöld er á dagskrá finnsk bíómynd með þeim þjála titli Akvaariorakkaus, einnig frá árinu 1994 (RÚV ►22.20 ★ * 'A). Sjónvarpið nefnir myndina Ást í búri, en þegar hún tók þátt í Norrænu kvikmyndahátíðinni hér í Reykjavík nefndist hún, að mig minnir, Ástir Söru. Sara er ung stúlka sem lendir í togstreitu milli kynhvatar og ástardrauma og gerir leikstjórinn, Claes Olsson, sem einnig er kunnur af heimildarmyndum sínum, lífí henn- ar áhugaverð ef ekki fullnægjandi skil. Fyrir utan Kryddlegin hjörtu á Stöð 2, sem gerð er sérstök grein fyrir hér í dálkinum, er myndaúrvalið þessa helgina í léttvægari kantinum, sem kannski er ekki óeðlilegt miðað við árstíma. Stöð 3 sýnir í kvöld frumraun þeirrar ágætu Tamla-Motownsöng- konu Diönu Ross í sjónvarpsmynda- leik, þar sem er Úr náttmyrkri (Out O&Darkness, Stöð 2 ►21.10). Diana Ross, sem áður hefur komist sæmilega frá leik í bíómyndum á borð við Lady Sings The Blues, spreytir sig hér á að túlka hversdagsvanda geðklofa- sjúklings og þykir standa sig vel und- ir stjórn gamalreynds sjónvarpsleiks- stjóra, Larrys Elikann. Hrollvekja kvöldsins á Sýn er þriðja framhaldið af ágætri varúlfamynd Joes Dante, The Howling, frá 1981, en þessi - Öskur úlfsins (The Howling IV, Sýn ►21.00 ★) - er sú versta af alls sex myndum í þessari syrpu og er varla þess virði að eyða tíma í hana neína til að sjá hvernig reynt er að láta Suður-Afríku, þar sem myndin er tekin, sýnast vera Kaliforníu! Skræfurnar á sömu stöð (Wimps Sýn ►23.30 Yítr) er ósköp aumin- gjaleg berrassamynd frá reyndum leikstjóra aumingjalegra berrassa- mynda, Chuck Vincent. Einn af sögufrægustu leikstjórum Bandaríkjanna, Howard Hawks, á mynd á dagskrá ríkissjónvarpsins ann- að kvöld, laugardag. Það er Á indí- ánaslóðum (The Big Sky, RÚV ►22.20) vestri frá 1952 um hættulegan leiðangur upp Missouri- fljótið undir stjórn gamla harðjaxlsins Kirks Douglas. í þessari ævintýra- mynd upp á gamla móðinn er Hawks því miður ekki upp á sitt allra besta, jafnvígur sem hann var á gamanmynd- ir á borð við Bringing Up Baby, vestra eins og Rio Bravo eða sakamálamynd- ir eins og The Big Sleep. En samt ★ ★★. Á undan leikur gamalkunnur bandarískur sjónvarpsgrínisti, Bob Newhart kannski sjálfan sig - grín- ista á niðurleið, í Skemmtikraftarnir (The Entertainers RÚV ►20.40) Arnold Schwartzenegger og Emma Thompson eru jafn misheppnuð í mis- heppnaðri gamanmynd, Lilli (Junior Stöð2 ►21.05 ★) um ófrískt vöðva- fjall. Vísindaskáldskapurinn Rafrás- armaðurinn (Circuitry Man Stöð 2 ►22.55) þykir þokkaleg fyrir sinn hatt (Martin og Potter gefa ★ ★ ★) og gat af sér framhald. En síðan má slappa af og njóta þeirrar notalegu rómantísku gamanmyndar Svefnlaus í Seattle (Sieepless in Seattle Stöð 2 ►0.30 ★★★) með Tom Hanks og Meg Ryan. Fyrir utan tvær mynd- ir með Faye Dunaway (sjá hér til hlið- ar) sýnir Stöð 3 á laugardagskvöld bandaríska sjónvarpsmynd, Mála- vafstur (Roe vs. Wade Stöð 3 ►20.20) byggða á þekktu dóms- máli frá áttunda áratugnum um rétt ungrar konu til fóstureyðingar. Maltin segir hana í meðallagi góða, en leik- stjórinn, Gregory Hoblit, stóð sig vel við gerð fyrstu bíómyndar sinnar, Pri- mal Fear, sem nú er sýnd í Háskólá- bíói. Á sunnudag eru forvitnilegar síð- kvöldsmyndir Stöðvar 2, Siðleysi (Da- mage, Stöð 2 ►23.20 ★ ★ ★ 'A), gerð af Louis heitum Malle með Jer- emy Irons í kunnuglegu hlutverki bresks stjórnmálamanns sem missir niður um sig, og svo Sýnar, Dóttir Rebekku (Rebecca’s Daughter Sýn ►23.20) eftir leikiti Dylans Thomas, en um hana hef ég engar upplýsingar. Árni Þórarinsson. Kryddlegin hjörtu sérflokki þessa helgina rétt eins og um síðustu helgi - er ein af rómönsku myndunum sem Stöð 2 sýnir á föstudögum í júlímánuði. Krydd- legin hjörtu (Stöð 2, föstudagur ►20.55) er mexíkósk nautnaveisla, byggð á frægri og samnefndri skáldsögu eftir Laura Esquível. Myndin er gerð 1992 af þáverandi eiginmanni skáldkonunnar, leikstjóranum og leikaranum Alfonso Arau, og einkennist af því töfraraunsæi sem þekkt er úr römönsk- um bókmenntum. Draumar, ímyndun og veruleiki eru eitt í þessari skemmti- legu og litríku frásögn af konu sem flýr ofríki móður sinnar inn í galdraheim matargerðarlistarinnar. ★ ★ ★ Faye Dunaway FAYE DUNAWAY er í aðalhlutverki í tveimur myndum á Stöð 3 á laugar- dagskvöldið, IMágrannar (The People NextDoor ►21.55) ogÁstarraunir (Scorchers ►0.10, Martin og Porter gefa ★ ★) en hvorug telst til bestu verka hennar. Dunaway, sem nú er hálfsextug, hefur heldur misst fótanna á framabrautinni seinni árin og verið óheppin með myndaval. Sérgrein hennar, ailt frá Bonnie og Ciyde (1968), hefur verið að leika flagð und- ir fögru skinni, en eftir því sem aldur- inn setur mark sitt á fegurðina situr flagðið eitt eftir. Þær bestu áTNT Jailhouse Rock (1957) Trúlega besta mynd Elvis Presley, þar sem hann leikur tugthúslim sem verður rokkstjarna. Leikstjóri Richard Thorpe. (Föstudagur ►21.00)^ ★ ★ Shaft (1971) ogShaft's Big Score (1972) Tvær dæmigerðir fulltrúar svörtu hasarmyndanna frá byrjun átt- unda áratugarins með Richard Roundtree í hlutverki einkaspæjar- ans Shafts. Leikstjóri Gordon Parks. (Föstudagur ►22.45 og ►0.35) ★★'/: Zabriskie Point (1970) ítalski meistarinn Michelangelo Antonioni fór til Bandaríkjanna til að lýsa því þjóðfélagi á hippatím- anum. Forvitnileg en rennur út í sandinn - bókstaflega. (Laugar- dagur ►22.00) ★ ★ Point Blank (1967) Klassísk og harðneskjuleg spennu- mynd eftir John Boorman með Lee Marvin í hefndarhug. (Sunnudag- ur ►20.00)*^ Lolita (1962) Stanley Kubrick leikstýrir furðu- legri skopádeilu eftir sögu Vladim- irs Nabokov um ástir prófessors James Mason og táningsstúlkunn- ar Sue Lyon. Peter Sellers fer á kostum f aukahlutverki. (Sunnu- dagur ►22.00) ★★★

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.