Morgunblaðið - 12.07.1996, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.07.1996, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Héraðsdómur hafnar kröfum Borgarapóteks um ógildingu á lyfsöluleyfi Lyfju hf. Heilbrigðisráð- herra sýknaður Morgunblaðið/Golli JÓN Þór Þórhallsson, forstjóri Skýrr, Finnur Ingólfsson, iðnað- ar- og viðskiptaráðherra, og Sveinn Hannesson, framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins, kynntu TED útboðsbankann í gær. TED útboðsbankinn eykur möguleika íslenskra fyrirtækja Upplýsingar um útboð á EES svæðinu HÉRAÐSDÓMUR sýknaði í gær heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra af kröfum Vigfúsar Guð- mundssonar, eiganda Borgarapó- teks, um ógildingu á tveimur nýjum lyfsöluleyfum í Lágmúia og Skip- holti. Ennfremur voru þau Ingi Guðjónsson og Guðríður Einars- dóttir, sem hlutu þessi leyfi, sýknuð af kröfum um að þau yrðu ógilduð. Ingi er annar af eigendum Lyfju hf. en Guðríður hyggst setja á stofn apótek í Skipholti. Eins og fram hefur komið tók Vigfús við rekstri Borgarapóteks 1. janúar 1995. Um haustið 1995 varð ljóst að tveir lyfjafræðingar, þeir Ingi Guðjónsson og Róbert Melax, hefðu uppi áform um að stofna nýja lyfjabúð í Lágmúla, eða í innan við 200 metra fjarlægð frá Borgarapóteki. Vigfús lýsti því yfir gagnvart heilbrigðisráðherra að veiting nýs lyfsöluleyfis svo nærri Borgarapóteki yrði til þess að kippa fótunum undan rekstri fyrirtækis- ins. Sérstaklega kæmi þar til að hin áformaða lyfjabúð yrði staðsett beint á móti heilsugæslustöð þess hverfis sem Borgarapótek þjónar. Borgarráð lagðist ekki gegn þessu lyfsöluleyfi á þessum stað til Inga Guðjónssonar né heldur að veitt yrði lyfsöluleyfi til Guðríðar í Skip- holti. Voru leyfin veitt í apríl sl. Vigfús höfðaði mál á hendur FOKKER-flugvélaverksmiðjumar eru orðnar eftirsóttar á ný vegna tilkynningar rússneska Jakovlev fluginaðarfyrirtækisins um að það hyggist kaupa Fokker fyrir lok þessa árs. Hollenzka efnahagsráðuneytið segir að fram hafi komið ný iðnfyr- irtæki, sem kunni að koma Fokker til bjargar, en neitar að nefna nöfn. Talsmaður Fokkers, Luuc van Zijp, sagði að meðal biðlanna væru iðnfyrirtæki, sem tilheyrðu ekki fyrirtækjasamtökum sem þegar hefðu látið í ljós áhuga á verksmiðj- unum. Rússar hafa lítið samband haft við Fokker síðan í apríl og athyglin hefur aðallega beinzt að þremur hollenzkum framkvæmdamönnum Jaap Rosen Jacobson, Joep van den Nieuwenhuyzen og Willem van heilbrigðisráðherra og þeim Inga og Guðríði í júní og krafðist ógild- ingar á umræddum lyfsöluleyfum. Var málshöfðunin byggð á því að ákvarðanir heilbrigðisráðherra um veitingu lyfsöluleyfanna brytu í bága við það ákvæði lyfjalaga þar sem fjallað er um fjarlægð milli lyfjabúða. Ráðherra hafi ekki byggt ákvarðanir sínar um þessar leyfis- veitingar á sjálfstæðu og málefna- legu mati, m.a. ekki lagt mat á íbúafjölda að baki þeim nýju lyfja- búðum sem sótt var um og fjarlægð þeirra frá næstu lyfjabúð. í 20. grein lyfjalaga segir m.a. um þetta efni: „Umsóknir um ný lyfsöluleyfi skal ráðherra senda við- komandi sveitarstjórn tíl umsagnar. Við mat umsagnar skal m.a. stuðst við íbúafjölda að baki lyfjabúðinni og fjarlægð hennar frá næstu lyfja- búð. Leggist umsagnaraðili gegn veitingu nýs leyfis er ráðherra heimilt að hafna umsókninni.“ Þessu ákvæði var bætt inn í lög- in í meðförum heilbrigðis: og trygg- inganefndar alþingis. í athuga- semdum var tekið fram að breyting- unni væri ætlað að koma í veg fyr- ir að rekstrargrundvelli apóteka í dreifbýli yrði stefnt í hættu eins og hagsmunaaðilar óttuðust með óbreyttu frumvarpi. Afar mikilvægt sé að tryggð verði örugg lyfjadreif- ing um land allt. Kooten - sem hver um sig reynir að fá stuðning annarra fjárfesta. Aðeins Rogen Jacobson er talinn koma til greina og vegna þrýstings- ins frá Rússum hefur hann lagt að skiptastjórum Fokker að ræða til- lögur sem hann hefur lagt fram - ekki aðeins um flugvélaverksmiðj- umar heldur allar deildir fyrirtækis- ins. Viðhalds- og viðgerðadeildir Fokkers komust hjá gjaldþroti og hollenzka verkfræðifyrirtækið Stork NVB rannsakar starfsemi þeirra og hugleiðir tilboð í þær. Steijn sagði að Joep van den Nieuwenhuyzen, sem kunnur er fyrir að taka við rekstri fyrirtækja, hefði enn ekki lagt fram áþreifan- legar tillögur og plötusnúðurinn Willem van Kooten hefði ekki feng- ið fjársterka aðila til liðs við sig. Tilgangur laganna að auka atvinnufrelsi í dómnum er m.a. vísað til þess að þegar virt séu markmið lyfjalaga um aukið fijálsræði og samkeppni í lyfjadreifingu verði að túlka breyt- ingu þá sem gerð var á umræddu ákvæði á þann veg að með henni sé verið að vernda hagsmuni íbúa í dreifbýli sérstaklega. Hugsunin sé sú að rekstrargrundvelli apóteks, sem fyrir sé í dreifbýli, verði ekki kippt undan því með tilkomu nýs apóteks, enda myndi það geta leitt til þess að starfsemi beggja apótek- anna legðist niður, og íbúar á við- komandi svæði yrðu þannig án þessarar þjónustu. Jafnframt verði að telja fullljóst að tilgangur laganna sé umfram allt að auka atvinnufrelsi ogtryggja með því hagsmuni neytenda betur en áður var, en ekki þeirra lyfsala sem starfandi voru við gildistöku laganna, nema að því leyti sem hagsmunir þeirra og neytenda fari saman. Vigfús Guðmundsson var dæmd- ur til að greiða þeim Inga Guðjóns- syni og Guðríði Einarsdóttur 250 þúsund króna málskostnað hvoru um sig. Málskostnaður heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra fellur hins vegar niður. Dóminn kvað upp Helgi I. Jónsson, héraðsdómari. Hlutabréf- in rjúka áfram upp VERULEGAR hækkanir urðu á gengi hlutabréfa enn á ný í gær og hækkaði Þingvísitalan um 1,7%. Heildarviðskipti dagsins námu alls um 71 milljón króna. Mestar hækkanir urðu á hlutabréfum í Lyfjaverslun Is- lands hf., íslandsbanka hf..og SR-mjöli hf. Þannig urðu við- skipti með bréf í Lyfjaverslun íslands á genginu 3,2, sem er 6,7% hækkun, íslandsbanka- bréf seldust á genginu 1,77, sem er um 5,4% hækkun og bréf í SR-mjöli fóru upp um 5,1%, eða í 2,7. Dæmi voru einnig um lækk- un á gengi bréfa, því hlutabréf í Sláturfélagi Suðurlands seld- ust á genginu 1,8, sem er 5,2% lækkun frá síðustu viðskiptum. IÐNAÐAR- og viðskiptaráðuneytið, Samtök iðnaðarins og Skýrr kynntu í gær upplýsingamiðlunina Tender Electronic Daily. í TED, gagna- banka Evrópusambandsins birtast daglega útboð í fleiri hundruð verk, bæði verklegar framkvæmdir og innkaup á vegum opinberra aðila. Með aðild að EES samningnum er íslenskum fyrirtækjum heimilt að senda inn tilboð í auglýst útboð og keppa við önnur evrópsk fyrir- tæki um verk. Jafnframt eru íslensk stjórnvöld skuldbundin til að bjóða út opinber vörukaup, framkvæmdir og þjónustu á evrópska efnahags- svæðinu. Umboðsaðili bankans á íslandi er Skýrr og íslensk fyrirtæki geta nýtt sér þjónustu TED útboðsbank- ans á alnetinu í gegnum þá. Undanfarinn tvö ár hafa Skýrr og Ríkiskaup verið í samstarfi um íslenska útboðsbankann, Útboða. Þar birtast íslensk útboð og niður- stöður þeirra. Fram kemur hvert útboðið var, hveijir buðu og hver fékk það. Með því að fylgjast með útboðsupplýsingum er hægt að sjá hvað aðrir eru að bjóða í verk og jafnvel hægt að nýta sér upplýs- ingar til þess að leiða getum að því hvenær samkeppnisaðilar eru ólík- legir til að gera tilboð vegna ann- arra verkefna. íslenski markaðurinn ekki nægjanlega stór Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sagði á kynning- arfundinum, „að með bættri stöðu íslenskra fyrirtækja opnist fleiri möguleikar fyrir þau að hasla sér völl á Evrópumarkaði. Því íslenski markaðurinn er ekki nægjanlega stór fyrir íslensk fyrirtæki með mikla afkastagetu." Sveinn Hannesson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, sagði í ræðu sinni, að „eftir að hafa fylgst með TED útboðsbank- anum í nokkurn tíma hefðu þeir hjá Samtökum iðnaðarins sann- færst um að þar væri að finna mörg áhugaverð útboð, sem íslensk fyrirtæki ættu möguleika á að bjóða í. Fyrirtæki innan vébanda samtak- anna sýndu gagnabankanum mik- inn áhuga og því var ákveðið að gera tilraun til eins árs um upplýs- ingaflokkun og miðlun til iðnfyrir- tækja.“ Samstarf um aðstoð við áhugasama aðila Skýrr sér til þess að aðgengileg- ar upplýsingar um öll þau útboð sem íslenskir aðilar hafa rétt á að bjóða í liggi fyrir. Samtök iðnaðarins leita að áhugaverðum útboðum, afla ítar- legra upplýsinga um þau fyrir þá sem þess óska og sjá um að miðla þessum upplýsingum til félags- manna sinna og annarra sem áhuga hafa. Iðnaðarráðuneytið mun styrkja verkefnið fjárhagslega. Jón Þór Þórhallsson, forstjóri Skýrr, segir markmiðin með TED einkum vera tvö; að efla sameigin- lega markaðinn innan EES svæðis- ins og eins að efla viðskipti með upplýsingar á tölvutæku formi.“ Daglega berast um 300 útboð í TED útboðsbankann víðsvegar að úr Evrópu og í heildina eru mörg þúsund útboð í gangi innan hans. Ahugi á Fokker eykst á ný Amsterdam. Reuter. Mikil verðlækkun - Mikil verðlækkun - Mikil verðlækkun! hófet í morgun kl. 9

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.