Morgunblaðið - 12.07.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1996 39
ORRI frá Þúfu er líklegur til stórra afreka á sviði kynbótanna,
hér fer hann með afkvæmahóp sínum sem fram kom á fjórðungs-
mótinu á Gaddastaðaflötum.
GLÍMA frá Laugarvatni er nú komin í hópheiðursverðlaunhrossa, eigandinn Bjarni Þorkelsson situr
Guma en eiginkona hans Margrét Hafliðadóttir heldur í Glímu. Gústaf Loftsson situr Limru, Þor-
kell Bjarnason situr Blakk og Þorkell Þorkelsson situr stóðhestinn Galdur.
Breiðfylking
góðra hrossa
HESTAR
Gaddstaðaflatir
KYNBÓTAHROSSÁ
FJÓRÐUNGSMÓTI
Eitt hundrað þijátíu og sex kynbóta-
hross komu fram í einstaklingsdómi
á fjórðungsmótinu. Auk þess hlutu
tólf hross viðurkenningu fyrir af-
kvæmi, fjórir stóðhestar og átta
hryssur.
FLESTIR virðast sammála um að
kynbótasýningin á Gaddstaðaflötum
í síðustu viku hafi verið ein sú besta
sem getið hefur að líta á fjórðungs-
móti. Mörg góð hross komu þar fram
en hinsvegar hafi vantað afgerandi
stjörnur inn í heildarmyndina til að
fullkomna skemmtunina sem kyn-
bótasýningin vissulega var. Hrossin
voru vel sýnd í nánast öllum tilvikum
og undirstrikar þetta mót samferða
framfarir reiðmennsku og ræktunar.
Dómar kynbótahrossa hófust á mið-
vikudag og var lokið síðdegis á
fimmtudag. Föstudagurinn var dag-
ur kynbótahrossanna þar sem aðeins
var á dagskránni yfirlitssýning kyn-
bótahrossa frá morgni og fram á
kvöld er við tóku kappreiðar. Var
þar um að ræða sannkallaða veislu
fyrir unnendur kynbótahrossa og
óhætt að segja að þessi frumraun
hafi gefist vel. Í það minnsta vant-
aði ekki fólk í brekkuna þennan eftir-
minnilega dag.
Fótagerðin aðal Anga
Angi frá laugarvatni hlaut nú
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi sem
góður áfangi eftir örlítið grýtta braut
að takmarkinu. Hægt og sígandi
hafa afkvæmi hans verið að sanna
sig og kynbótagildi föður síns. Ef
litið er yfir einkunnir kynbótamatsins
á Anga má sjá að hans sterkustu
póstar eru fótagerðin, hófar og höfuð
en hann hefur mikla yfírburði yfír
aðra hesta hvað fótagerðina varðar.
Brokkið virðist sterkast af hæfileik-
unum. Að öðru leyti er hann nokkuð
jafn á þeim vængnum nema hvað
geðslagseinkunn hans er nokkuð fyr-
ir neðan meðallag. Er það kannski
sá þáttur sem hefur helst dregið úr
vinsældum Anga meðal hrossarækt-
enda. Angi hefur aldrei verið tísku-
hestur heldur hefur notkun hans
verið jöfn það sem af er og vissulega
ætti þessi vegtylla að ýta undir frek-
ari notkun hans. Óhætt er að segja
að Angi sé farsæll hestur með 129
stig fyrir 39 afkvæmi og vel að heið-
ursverðlaunum kominn.
Tveir hestar, Orri frá Þúfu og Pilt-
ur frá Sperðli hlutu 1. verðlaun fyrir
afkvæmi. Orri sýnu hærri með 139
stig fyrir 39 afkvæmi en Piltur með
123 stig fyrir 43 afkvæmi. Er þetta
í góðu samræmi við fyrirferð
afkvæmanna á vettvangi hetsasýn-
inga og keppni ýmiskonar síðustu
árin. Þróunin virðist nokkuð svipuð
hjá afkvæmum Pilts og Anga þ.e.
þau fara frekar rólega af stað en
fullyrða má að sýningin nú vakti
verðskuldaða athygli og lyftir klárn-
um í áliti. Sérstaklega virðist töltið
í afkvæmunum gott eins og kemur
fram í dómsorðum; „töltið best sem
er rúmt og fjaðurmagnað". Fyrir
tölt fær hann 129 stig. Utkoma Pilts
fyrir byggingu er ekki eins góð og
fyrir hæfileika, bak og lend kemur
þar best út en þar fær hann 125 stig.
Erfðaprinsinn í röðum
stóðhesta
Orri frá Þúfu hefur verið að slá í
gegn allt frá því hann kom fyrst fram
fjögra vetra og má segja að hann
hafi gert það nú. Orri hefur svim-
andi háa einkunn í kynbótamatinu
og þykir hann mjög líklegan til að
velta feðgunum Hrafni og Þokka úr
sessi áður en langt um líður. Ef litið
er á byggingu ber þar hæst einkunn
fyrir hófa, 163 stig, og virðist Orri
þar flytja góða erfðavísa frá föður
sínum Otri. Stökkið stendur hæst af
hæfileikum 154 stig, fegurð í reið
153, töltið 145, vilji 142, brokk 140,
geð 122. Eru þetta hreint út sagt
ótrúlegar tölur og ljóst að hér er
ekki ferðinni neinn meðaljón. En það
sem skyggir kannski helst á af-
kvæmasýningu Orra en yljaði mörg-
um um hjartarætur um leið, er að
klárinn sjálfur bar af afkvæmum sín-
um!
Svipað átti sér stað þegar Platon
frá Sauðárkróki kom fram með af-
kvæmum sínum. Vakti klárinn slíka
athygli fyrir fasmikla framgöngu að
menn gleymdu jafnvel að skoða það
sem máli skipti, afkvæmin. Platon
hlaut 119 stig fyrir afkvæmi og önn-
ur verðlaun.
Tvær hryssur hlutu heiðursverð-
laun fyrir afkvæmi, þær Glíma frá
Laugarvatni og Brana frá Kirkjubæ.
Brana sem nú er 24 vetra gömul
var sýnd í reið og virðist ótrúlega
vel á sig komin. Upp úr stóð af
hennar hópi drottning Rauðhetta frá
Kirkjubæ sem heillaði mótsgesti enn
á ný þótt óþjálfuð væri. Af afkvæm-
um Glímu bar mest á hinum fax-
prúða Guma frá Laugarvatni sem
kom afar vel fyrir hjá eiganda sínum
Bjarna Þorkelssyni, svo vel að eftir
var tekið.
Flokkur stóðhesta sex vetra og
eldri er gott dæmi um stjörnuleysið
í kynbótasýningum. Þar voru
samankomnir margir prýðilega góð-
ir hestar en enginn þeirra skar sig
verulega úr. Hrossarækt gengur að
sjálfsögðu ekki út á stjörnufans en
jiví er ekki að neita að stjörnurnar
hleypa lífi í sýningarnar og halda
áhuganum vakandi. Logi frá Skarði
stóð efstur sem kunnugt er en þrátt
fyrir prýðilega frammistöðu fór
EYDÍS frá Meðalfelli var
lengi vel með forystu af þeim
þremur hryssum sem börðust
um efsta sætið i flokki
hryssna sex vetra og eldri en
hafnaði að iokum i öðru sæti.
Knapi er Svanhvít Kristjáns-
dóttir.
ákaflega lítið fyrir honum og ekki
frítt við að sumum þætti hann eilít-
ið hátt dæmdur. Eigi að síður virð-
ast margir sammála um að hann sé
vel að fyrsta sætinu kominn og er
hægt að taka undir þá skoðun. Jór
frá Kjartansstöðum lenti í svipaðri
aðstöðu á landsmótinu ’94 þegar
hann stóð efstur fimm vetra stóð-
hesta, enginn virtist taka eftir hon-
um þrátt fyrir ágæta frammistöðu.
Nú hafnaði hann hinsvegar í öðru
sæti á eftir Loga og er ekki annað
að heyra en það veiti honum meiri
umræðu og kynningu en fyrsta sæt-
ið á landsmóti. Virðist sem menn
hafi nú veitt því athygli að þetta
væri bara býsna spennandi hestur.
Víkingur frá Voðmúlastöðum kemur
þar næstur með sína tíu fyrir tölt
en eins og vænta má hafa menn
skiptar skoðanir um það hvort hann
ætti það fyllilega skilið eða hvort
hann ætti að vera í 9,8 eða jafnvel
9,5. Ekki fer þó milli mála að hestur-
inn er feiknagóður töltari, takturinn
nánast 100%, rýmið ótæmandi en
mætti kannski fjaðra örlítið meira
gegnum skrokkinn. Þessir þrír efstu
hestar eru allir með 9 eða þar yfír
fyrir tölt sem er mikill styrkur í
ræktunarstarfinu. Af öðrum hestum
mætti nefna Nökkva frá Vestra-
Geldingaholti, líklegast eitt hæst
dæmda afkvæmi Anga. Vekur hann
athygli fyrir mikinn prúðleika og
fas, fær háar einkunnir fyrir skeið,
vilja og fegurð í reið. Athygli vekur
hversu margir hestanna fá háar ein-
kunnir fyrir byggingu og er það
sannarlega gleðilegt hversu vel mið-
ar á þeim vettvangi.
Frami vel gerður
Frami frá Ragnheiðarstöðum var
einn fímm vetra hestanna sem vakti
nokkra athygli. Er þar á ferðinni
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
ANGI frá Laugarvatni er nú kominn í raðir heiðursverðlauna-
hesta, það Þorklell Bjarnason sem situr hestinn sem er framan
við afkvæmahópinn.
afar vel gerður hestur að byggingu
til. Er með 8,36 í meðaleinkunn en
8,12 fyrir hæfileika. Hæst ber ein-
kunn fyrir fótagerð 9,8 og þótt hann
sé kenndur við Ragnheiðarstaði er
hann hreinræktaður Laugvetningur
þ.e. undan Guma og Krás frá Laug-
arvatni enda skín það nokkuð vel
út úr byggingareinkunnum hans.
Mjög algengt er að Laugarvatns-
hrossin fái frekar lágt fyrir bak og
lend (beint bak), hátt fyrir fótagerð,
frekar lágt fyrir réttleika en hátt
fyrir hófa. Hjá Frama eru þessar
einkunnir í sömu röð 7,3-9,8-7,5-
8,5. Betra tölt myndi vissulega
styrkja þennan hest sem kynbótgrip
en hann er nú bara fimm vetra og
hefur alla möguleika á að bæta þar
um. Af öðrum hestum mætti nefna
Jarl frá Búðardal sem er með hæstu
einkunn fimm vetra hesta fyrir
hæfileika 8,47. Er þar á ferðinni
bráðflinkur hestur sem lyftir vel
fótum, töltir og brokkar vel. En
hann er líka næst lægstur fyrir
byggingu 7,74. Þá kom Ásaþór frá
Feti vel fyrir, sérstaklega þó í rækt-
unarhópssýningu. Þar er á ferðinni
fallegur klárhestur með tölti. Þá
má geta Galsa frá Ytri-Skógum en
hann er með 9 fyrir bæði tölt og
brokk og yfir átta fyrir byggingu.
Skeiðið út hjá fjögurra vetra
hrossum
Vonin fylgir fjögurra vetra hestun-
um því ekki er ætlast til mikils af
þeim þótt stundum springi þeir út
þegar hæst ber og verði stjörnur.
Ekkert slíkt gerðist nú þótt víst sé
að þarna voru á ferð hestar sem eiga
eftir að gera garðinn frægan. Tveir
efstu hestamir vöktu mesta athygli
og umtal. Eiður frá Oddhóli stóð
efstur, afbragðs töltari með góðu
brokki og lofandi skeiðgripum.
Ágæta byggingareinkunn, m.a. 9,5
fyrir fótagerð. Roði frá Múla var
heldur lægri í það heila en þó áþekk-
ur í mörgum atriðum en talsvert
framfallegri hestur og því reisulegri
í allri framgöngu. Hér mætti einnig
nefna Skorra frá Gunnarsholti sem
er bróðir Roða, báðir undan Orra frá
Þúfu. Þessir þrír náðu einir yfir átta
í einkunn af fjögra vetra hestum.
Skeiðskakstur var minna áberandi í
þessum flokki en oft áður og er það
vel. Svo skrýtið sem það er þá virð-
ast flestir sammála um í orðræðum
milli manna að fella skeið út úr dómi
fjögra vetra hrossa en af einhverjum
sökum er það ekki gert. Er ekki orð-
ið tímabært að láta til skarar skriða
í þeim efnum?
Hörð keppni hryssna
Ekki verður annað sagt en keppni
efstu hryssna í sex vetra flokknum
hafí verið spennandi allt frá forskoð-
un fram til síðustu stundar. Randalín
frá Torfastöðum og Eydís frá Meðal-
felli höfðu skipst á um að hafa foryst-
una en á síðustu stundu skaust Kór-
ína frá Tjarnarlandi upp fyrir þær
og hirti gullið. Þátttaka Kórínu á
þessu móti var mjög til umfjöllunar
meðal mótsgesta en hún var sem
kunnugt er efst á fjórðungsmóti á
Austurlandi á síðasta ári. Nú gerist
það að knapinn á Kórínu verður
meðeigandi í hryssunni og þar með
öðlast hún eða eigendurnir öllu held-
ur rétt til senda hana á fjórðungs-
mót á Suðurlandi. Þetta fór fyrir
bijóstið á mörgum og talið að hér
væri um málamyndagjöming að
ræða til þess eins að tryggja hryss-
unni rétt á Suðurlandi. Talið er að
um fleiri slík tilfelli hafi verið að
ræða og sýnir þetta kannski betur
en annað að eignarhaldsákvæðin i
bæði gæðingakeppni og kynbótasýn-
ingum halda ekki og þar með til-
gangslaust að viðhalda þeim. Sem
kunnugt er verður þetta næst síðasta
fjórðungsmótið sem haldið verður en
eitthvert nýtt kerfí tekið upp sem
enginn veit á þessari stundu hvernig
verður. Er því tilgangslítið að gera
mikið mál út af hlutum sem þessum
þar sem allt kerfíð verður í uppnámi
innan tíðar.
Seljum ekki vaxtarbroddinn
Yngri hryssurnar þóttu góðar og
líklegar til góðra afreka ef ekki á
keppnisbrautinni þá i haganum við
folaldseignir og kynbætur. Þöll frá
Vorsabæ efst af fimm vetra hryssum
en Vigdís frá Feti efst í flokki fjögra
vetra hryssna. Hrossarækt Brynjars
Vilmundarsonar á Feti vakti verð-
skuldaða athygli á þessu mót en
hann var með bæði hryssur og stóð-
hesta auk ræktunarhópssýningu.
Ánægjulegt þegar menn uppskera
ríkulega þegar mikið er lagt undir.
Margt fleira mætti segja og skrifa
um kynbótasýninguna á Gaddstáða-
flötum. Sýningu þar sem mörg jafn-
góð hross komu fram sem endur-
speglar mikinn og víðtækan styrk
ræktunarstarfsins. Þótt vel gangi er
full ástæða til að hvetja menn til
dáða því margt er óunnið enn á þess-
um vettvangi. Vonandi bera menn
gæfu til að halda eftir eitthvað af
þessum góðu hryssum í landinu til
viðhalds stofninum og áframhaldandi
framfara.
Valdimar Kristinsson