Morgunblaðið - 12.07.1996, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 12.07.1996, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ1996 31 ÞORBJÖRG S. GÍSLADÓTTIR + Þorbjörg S. Gísladóttir fæddist á Helluvaði í Mývatnssveit 27. nóvember 1930. Hún Iést á heimili dóttur sinnar að- faranótt 4. júlí síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Gísli Árnason frá Skútustöðum, f. 31.3. 1899, d. 1.9. 1963, og Sigríður Sigurgeirsdóttir frá Helluvaði, f. 31.3. 1904, d. 6.5. 1980. Þorbjörg giftist 23. október 1954 eftirlifandi eiginmanni sínum Jóni Árna Sigfússyni frá Vogum, f. 23.10. 1929. Börn þeirra eru Sigríður, gift Jóhanni Jónssyni og eiga þau tvær dæt- ur; Sólveig, gift Benedikt Svein- björnssyni og eiga þau fjögur börn; Erna, í sambúð með Jóni Guðmundssyni og eiga þau þrjá syni og Gísli Rafn, giftur Bryndísi Kristjánsdóttur og eiga þau tvo syni. Utför Þorbjargar fer fram frá Reykjahlíðar- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Skuggi leið yfir ský dró fyrir sól að kveldi. En á hásumarmorgni lífið aftur fæddist í æðra veldi. Eins og allir dagar eiga sér morg- un eiga þeir jafnframt allir kvöld, og lífið á sína morgna og sín kvöld í eilífri hringrás tímans. Enginn veit á morgni lífsins hvenær dagur er að kveldi kominn því það er svo misjafnt hve langur dagurinn er á þeirri ferð er jarðlíf nefnist. Öll vit- um við þó að að því kvöldi kemur er „faðirinn æðsti“ kallar á börnin heim til sín í föðurgarð og úthlutar þeim öðrum og nýjum verkefnum, þó ætíð komi það okkur sem eftir erum jafn mikið á óvart, jafnvel þó við höfum gert okkur grein fyrir að senn liði að kveldi. „Ber er hver að baki nema sér bróður eigi,“ segir gamalt íslenskt máltæki og held ég að það lýsi best tilfinningum mínum og barna minna er við í dag kveðjum Þor- björgu S. Gísladóttur. Ég hitti fyrst þá mætu konu á heimili hennar og Jóns Árna í Víkurnesi sumarið 1990 er ég kom í heimsókn til dóttur minnar Bryndísar sem þá var trúlof- uð einkasyni þeirra hjóna, Gísla Rafni. Af j)eim Obbu og Jóni Árna var mér fagnað sem gömlum vini, þó kynni okkar væru engin áður og ég þeirra aðeins heyrt að góðu getið. Eins og ætíð er ný tengsl myndast blandast fleiri fjölskyldu- meðlimir inn í þau og því kom þar að það var ekki aðeins mér sem var fagnað hér heldur og yngri börnum mínum sem voru þar um lengri og skemmri tíma við vinnu. Oft hafa þau minnst á þá tíma með gleði og trúlega eru fleiri en við sem minn- ast með hrærðum huga og þökk þess sem notið var í Víkurnesi og hve gott var þar að vera. Obba var ekki aðeins fyrirmynd- ar húsmóðir og einstök matmóðir heldur móðir allra sem vakin og sofin hugsaði um allt og alla. Erill- inn var mikill, vinnudagarnir oft langir hjá húsmóðurinni í Víkurnesi - hvert ár þrekvirki. En þó var eins og þessi ljúfa og umhyggjusama móðir allra hefði aldrei neitt að gera, því hún átti ætíð nægan tíma fyrir fjölskyldu, vini, gesti og gang- andi. Þannig eru hetjur hversdags- ins. Af alúð og umhyggju var starf- að við sérhvert verkefni og með ró og æðruleysi mætt sérhverju því sem dagur lífsins bar í skauti sér. Það húmaði að kveldi fyrir einu og hálfu ári þegar veikindi Obbu uppgötvuðust. Æðrulaus og róleg tók hún við því verkefni sem öðrum. Að áliðinni nótt hins 4. júlí sl. var skyndilega kvöldsett og nýr morg- unn risinn. Ríkidæmi okkar felst oft í því að kynnast mannkostum fólks. Mín forréttindi eru að mega nú þakka fyrir dóttur mína Bryn- dísi, sem fékk notið þess að vera samferða þessari einstöku konu litla stund sem tengdamóður og ömmu sona sinna, og einnig Arnar Rafn sem þótti óskaplega vænt um ömmu sína Obbu. Öll hefðum við óskað að sú samferð hefði mátt vera lengri, en „Guð ræður þó mennirnir álykti“. Fyrir hin börnin mín og sjálfa mig þakka ég fyrir það vega- nesti sem hún gaf okkur af gæðum sínum og mannkostum. Elsku fjölskylda, Jón Árni, börnin þín, tengdabörn og barnabörn. Guð gefi ykkur styrk og kærleika nú til að létta ykkur sorgina. Megi gjaf- irnar, ykkar sameiginlegi íjársjóð- ur, sem hún gaf ykkur og skilur nú eftir meðal ykkar, vera það leið- arljós sem lýsir ykkur um ókomna morgna og kvöld í hringrás lífsins á móður jörð. Ragnhild Hansen. Blessa þú Drottinn bænir barna þinna frá jarðardölum og himnasölum þær mætast megi í geislaflóði, faðirinn góði. (Á.S.) Nokkrar minningar um mágkonu mína Þorbjörgu. Obba var hún kölluð. Nú hefur hún kvatt okkur í bili, eftir mikil veikindi. Ótrúlegt var, hve mikinn styrk hún hafði og gaf raunar frá sér. Hún notaði vel góðu stundirnar sem hún fékk. Hringdi þá úr rúm- inu í vini sína. Obba gladdist yfir velgengni barna sinna og barna- barna og fylgdist með þeim af áhuga, var svo glöð þegar hún sagði frá. Fjölskyldan hefur staðið þétt saman alla tíð og ekki síst í veikind- um Obbu. Hún veitti henni alla þá hjálp og elsku sem í hennar valdi stóð og ég veit að það hefur verið Obbu kærast af öllu. Við systkinin og frændfólkið vor- um í nánu sambandi. Við óskuðum þess að hún fengi dálítinn tíma, fengi að fara heim í Víkurnesið sitt. Það fékk hún. Það var á laugardag fyrir hvítasunnu, að sólin tók að skína. Fáninn var dreginn að húni í Víkurnesi. Jón Árni var kominn með Obbu sína heim. Saman átti fjöiskyldan hátíðisdaga sem gaf þeim öllum mikið. Mágkona mín var fínleg og falleg kona. Jón Árni og hún áttu ríkulegt líf. Tónlistin skipaði stóran sess og þeim þótti undurgaman að dansa og dönsuðu fallega, svo gaman var að horfa á. Obba var svo létt í spori og þegar. þau gengu hlið við hlið, hjónin, tók hún gjarnan ofurlítið hopp, eða dansspor. Þau áttu barna- láni að fagna og samtaka nutu þau hátíðarstunda. Allt um kring stendur systkina-, frænd- og vinahópur. Við höfum sameinast í bænum okkar og þar munum við ávallt mætast. Við biðjum góðan Guð að blessa Obbu okkar og allan hópinn henn- ar, gefa Jóni Arna og fjölskyldunni allri styrk. Ásdís Sigfúsdóttir. Elsku amma. Nú ert þú farin frá okkur eftir mikla og hetjulega bar- áttu við sjúkdóm sem allir áttu svo erfitt með að meðtaka og sætta sig við að einmitt þú, besta og yndisleg- asta amman í öllum heiminum, þyrftir að kljást við. Við munum alltaf hugsa til þess, elsku amma, hve vel þú tókst alltaf á móti okkur í sveitinni, alltaf svo glæsileg og góð við okkur. Þú vildir alltaf allt fyrir okkur gera og við munum meta það við þig alla ævi því þú hafðir svo góð áhrif á okkur. Við munum öll hvað þetta var erfiður tími þegar við fréttum skyndilega af sjúkdómnum, en þú auðveldaðir okkur að sætta okkur við orðinn hlut með eilífri bjartsýni og sterkum vilja. Já, amma, þú varst og ert alltaf langsterkust af okkur og við söknum þín mjög mik- ið en vitum jafnframt að núna líður þér vel og þú munt alltaf vera hjá okkur. Okkur finnst mjög erfitt að sætta okkur við að þú sért ekki lengur meðal okkar en við munum alltaf hafa þig hjá okkur í hjörtum okkar. Barnabörnin. Hví drúpir laufið á grænni grein? Hví grætur lindin og stynur hljótt? Það er vegna þess að Obba er dáin. Nú um hásumarið, þegar sól- in ætti að skína á blómgaða jörð frá morgni til kvölds og fylla okkur gleði, fer okkur líkt og lindinni og laufinu græna. Obba var falleg kona, alltaf vel til höfð. Heimilið var hlýlegt og persónulegt, gestrisni mikil og handbragð á öllu sem borið var fram sérlega fallegt. Hún vann verkin hljóð, var öllum góð. Við fylgdumst hvor með annarri gegnum ljósin í gluggunum okkar. Vissum ef önnur hafði brugðið sér af bæ. Samband okkar varð inni- legra með árunum, eftir því sem hljóðnaði í húsunum og börnin uxu úr grasi. Eg mun sakna Obbu svo sárt, að í huga mér hef ég búið mér til mynd, sem ég ætla að hafa mér til styrktar. Ég sé fyrir mér gróskulegan garð þar sem allt er fullt af ljósum og rósum. Þetta eru öll ljósin sem kveikt hafa verið fyrir Obbu í veik- indum hennar, rósirnar eru bænirn- ar mörgu sem beðnar hafa verið fyrir henni. í þessum yndislega garði sé ég ættingja og vini sem safnast hafa saman til að taka á móti henni, þegar hliðið opnast. Ljúfir tónar, hliðið opnast og þarna stendur Obba, eins og hún var fallegust. Kjóllinn hennar er úr svifléttu efni, dökka hárið vand- lega greitt. Hún hefur fengið sitt fyrra göngulag og svífur úr einum faðmi í annan. Þegar Frelsarinn breiðir út faðminn og Obba hverfur til hans, lýt ég höfði og sný frá. Nú eigum við, sem eftir sitjum, eftir að vinna úr þessari breytingu. Það munum við gera með Guðs hjálp og góðra vina. Ég kveð Obbu mágkonu mína og þakka henni vin- áttu og tryggð. Ég bið fyrir bróður mínum og fjölskyldu hans og fel þau Guði. Nína. Orð verða hjóm eitt þegar við stöndum andspænis andláti ætt- ingja og vina og þeim trega og söknuði sem því fylgir. Huggunar- orð mega sín lítils á slíkum stund- um. Minningin um hina látnu er það sem við höllum okkur að og þakklæti fyrir að hafa notið sam- fylgdar þeirra. Með fátæklegum orðum langar mig að þakka Obbu frænku minni fyrir samveru á góð- um stundum með þeirri von að slíkt verði Jóni Árna, Gísla Rafni og öðrum börnum Obbu og Jóns Árna styrkur á erfiðri stund. Það var mér ómetanlegt að heim- sækja frændfólk mitt í Víkurnesi veturinn 1994 þegar ég bjó í Mý- vatnssveit um tíma. Ég vissi alltaf að ég átti frændfólk í Mývatns- sveitinni og það að kynnast Obbu og fjölskyldu hennar nánar þennan vetur veitti mér mikla gleði og ánægju þetta tímabil. Jafnt að nóttu sem degi var ég velkomin að Víkurnesi. Obba hellti upp á kaffí, bakaði brauð og kökur, bauð mér í mat og var alltaf tilbúin til þess að setjast niður og ræða mál- in. Það var aldrei svo að hún væri of upptekin til þess að taka á móti mér. Aðrir fjölskyldumeðlimir ÞÓRLAUG ÓLAFÍA JÚLÍUSDÓTTIR + Þórlaug Ólafía Júlíusdóttir var fædd í Hafnarfirði 24. júlí 1926. Hún lést á Borgarspít- alanum 5. júlí sið- astliðinn. Þórlaug ólst upp á Brunn- stíg 2 hjá foreldrum sínum Júlíusi Þor- kelssyni málara- meistara og Mar- gréti Ólafsdóttur. Þau eru nú bæði látin. Þórlaug var elst í fimm systkina hópi. Eftirlifandi eru Eyþór, f. 26.9. 1928, Sigríð- ur Jóna, f. 17.8. 1930, Þorkell Sigurgeir, f. 11.11. 1931, og Guðbjörg Salvör, f. 29.1. 1934. Þórlaug giftist Marinó Aðal- steinssyni sjómanni frá Fá- skrúðsfirði 15. nóvember 1958. Hann andaðist 9. janúar 1979. Útför Þórlaugar fer fram frá Víðistaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku Lauga frænka, samveru- stundirnar verða ekki fleiri að sinni, en þú skilur eftir margar góðar og glaðar minningar, sem eiga eftir að hlýja okkur um ókomin ár. Lauga og Malli, eins og þau hjón- in voru ævinlega kölluð bjuggu mest allan sinn búskap á Álfaskeiði 86. Eftir að Lauga varð ekkja 1979 fluttist hún á Hringbraut 76 og bjó þar alla tíð síðan. í sama hús á Hringbraut 74 fluttist svo systir hennar Guðbjörg 1983 og býr þar enn. Milli þeirra var alltaf mjög mikill sam- gangur og missir hún því ekki bara góða systur og nágranna, heldur einnig mjög góða vinkonu. Lauga var mikil saumakona og vann mestan hluta ævi sinnar á saumastofum, en síðustu árin sem hún var útivinnandi vann hún á Hrafnistu í Hafnarfirði. Laugu var alltaf gott heim að sækja. Hún átti sér- staklega snyrtilegt og fallegt heim- ili, var barngóð og gestrisin og naut þess af lífi og sál að bjóða til sín og taka á móti gestum. Alltaf þegar maður kom til Laugu var borðið orðið fullt af kræsingum áður en maður vissi af. Það er komið að kveðjustund. Með söknuði kveðjum við elskulega frænku og erum þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Laugu svona vel og notið samvista við hana. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin Ijúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnastþér. (Ingibj. Sig.) Guð varðveiti elskulega frænku. Júlía Margrét og fjölskylda. sinntu mér ekki síður vel. Jón Árni, Gísli Rafn og Bryndís voru alltaf til staðar, svo og frændur mínir á Laxárbakka, Árni og Gísli sonur hans. Obba sagði mér sögur af því þegar hún var að alast upp í Mý- 'vatnssveitinni og með því móti kynntist ég daglegu lífi fólksins enn betur og ekki síður frændfólki mínu látnu og lifandi. Það er mér minnis- stætt þegar ég kom í Víkurnes í fyrsta sinn, eftir nokkrar mínútur var sem ég hefði þekkt þau öll til fjölda ára. Það var síðan eitt annað " kvöld sem við lögðum áætlanir um frekari tengsl innan fjölskyldunnar og ákváðum að halda ættarmót. Við sátum öll í stofunni í Víkur- nesi, horfðum yfir vatnið, með Hverfjallið í glugganum á móti. Nú var kominn tími til að treysta’*' fjölskyldubönd og ættarmótið skyldi að sjálfsögðu halda í Mý- vatnssveitinni. Og það varð ekki aftur snúið, skipuð var undirbún- ingsnefnd, tímasetningar stóðust og ættarmótið var haldið nokkrum mánuðum síðar. Mývetningar, með Obbu, Jón Árna og Siggu dóttur þeirra í fararbroddi tóku á móti okkur hinum með miklum glæsi- brag og skemmtunin var slík að enn er í hávegum haft. Minningin um ættarmótið er björt og hrein í huga mínum og ekki þá síst vegna þess að þar var Obba hress og kát eins og hennar var vani. Nokkrum mánuðum síðar heimsótti ég hana á sjúkrahús hér í Reykjavík, seinna frétti ég af henni heima í Víkur- nesi þó veik væri og ræddi einnig við hana í síma. Obba bar sig allt- af vel, þrátt fyrir þau veikindi sem að henni sóttu. Elsku Jón Árni, Gísli Rafn, syst- urnar og aðrir í fjölskyldunni, minningin um Obbu lifir í hugum okkar, missirinn er mikill og sorgin nístir hjarta okkar. En ég trúi því og vil deila því með ykkur að Obba lifi enn þó við sjáum hana ekki á hverjum degi. Hún fylgist með fólk- inu sínu frá nýjum dvalarstað, verndar ykkur og leiðir þar til þið mætist á ný. Sigríður Þrúður Stefánsdóttir. Vinkona mín, Þórlaug Júlíusdóttir er látin. Mig langar til að minnast hennar með nokkrum orðum. Við kynntumst fyrir þijátíu árum. Hún kom mér fyrir sjónir sem mjög snyrtileg kona. Viðhorf mitt reyndist rétt, allt var snyrtilegt í kringum hana, heimili hennar til sérstakrar fyrirmyndar. Fínlegheitin og hrein- lætið svo áberandi. Útsaumaðar myndir og stólar báru vott um hand- bragð hennar. Hún var fær sauma- kona, hafði unnið í Feldinum á yngri árum, seinna á saumastofu Magna í Hafnarfirði. Ætíð var skemmtilegt að heim- sækja hana, hún var ávallt glöð og jákvæð með sérstakt skopskyn. Átt- um við margar skemmtilegar sam- verustundir. Hún var hreinskiptin og sterkur persónuleiki, sagði sína skoðun um- búðalaust og mátti hver móðgast sem vildi. Þegar erfiðleikar létu á sér kræla, reyndi hún að slá á létt- ari strengi. „Að skella sér á gömlu dansana" var setning léttleika semr fór á milli hennar og okkar hjónanna. Fyrir um það bil tveimur árum gekkst hún undir mjög erfiðan hjartauppskurð sem heppnaðist. Samt náði hún ekki sínu fyrra þreki. ' Seigla hennar og dugnaður var ótrú- legur. Hún reyndi að halda sama lífsmynstrinu og áður, þótt erfitt væri oft á tíðum. Þijú slæm hjartaáföll fékk hún á árinu, hjarta og lungu gáfu eftir. Um miðjan júní leit ég til hennar en þá var hún komin á sjúkrahúsið. Enda þótt hún væri mjög veik brosti hún til mín og sagði: „Það verðuf ekki farið á gömlu dansana í bráð“. Húmorinn ávallt fyrir hendi. Von um að hún kæmist aftur heim rætt- ist ekki. Kæra vinkona, bestu þakkir fyrir samfylgdina frá okkur hjónunúm. Megirðu hvila í friði. Oddhildur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.