Morgunblaðið - 12.07.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1996 13
LAIMDIÐ
Morgunblaðið/Silli
GUNNLAUGUR Stefánsson við unninn við. SÉÐ yfir vinnslusalinn í Aldin hf.
Timburverksmiðjan Aldin hf. á Húsavík tekin til starfa
Tilraunaframleiðsla á borðviði
Húsavík - Aldin hf., timburverk-
smiðjan á Húsavík, hefur nú hafið
tilraunaframleiðslu á borðviði úr
furu og greni og hefur það gengið
samkvæmt áætlun. En síðar er
áformað að vinna mest úr hinum
dýrari efnistegundum, svo sem eik
og aski.
Framkvæmdastjóri Aldins hf. er
Gunnlaugur Stefánsson, og segir
hann framleiðsluferilinn þannig:
Timbrið er keypt óunnið frá
USA, sagað niður á Húsavík og
þurrkað og síðan er áformað að
selja það innanlands, en mestmegn-
is á Evrópumarkaði. Forsenda fyrir
þessari framleiðslu hér á landi er
ódýrari orka til þurrkunar viðarins
en víða annars staðar en það er
hitavatnsorka. Þurrktími timburs-
ins er mjög misjafn allt frá tveim
dögum og upp í nokkrar vikur.
Rakastig efnisins þá er við fáum
það er um 30-35%. En við sölu er
rakastigið misjafnt. Borðviður til
sölu er um 18-20% en efni til hús-
gagnaframleiðslu 6-8%.
Verksmiðjan er mjög vélvædd og
eru allar vélar til sögunar keyptar
frá Maine í Bandaríkjunum. En
starfsmenn frá fyrirtækinu fóru
þangað til kynningar og þjálfunar.
Einn þurrkklefinn, sem er stærðar
hús, er frá Frakklandi, en áformað
er að bæta öðrum við, því fram-
leiðsluhraðinn fer mikið eftir þurrk-
uninni. Koma fagmenn til uppsetn-
ingar á klefanum og til að þjálfa
starfsmenn.
Þetta er atvinnuaukandi því við
fyrirtækið starfa nú 7 menn að
nýrri framleiðslu.
Fyrsti timburfarmurinn sem
fluttur var inn var greni, sem unn-
in hefur verið í borðvið, en seinna
í þessum mánuði er von á næsta
farmi, sem verður harðviður.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Flaggað með
Sambandsfánanum
ENN er gamla Sambandsfánan-
um flaggað við Kaupfélag Fá-
skrúðsfirðinga. Fáninn er dreg-
inn daglega að hún yfir sumarið
á tveimur flaggstöngum. Nema
þegar einhver deyr, þá er ís-
lenski fáninn dreginn í hálfa
stöng á annarri fánastönginni.
Afmælisár á
Sauðárkróki
í ÁR og á næsta ári verða merk
tímabil í sögu Sauðárkróks. Nú í
ár eru liðin 125 ár frá því að byggð
reis á Króknum og á næsta ári eru
liðin 140 ár frá því að Sauðárkrók-
ur varð verslunarstaður, 90 ár frá
því að Sauðárkrókur varð sérstakt
sveitarfélag og 50 ár frá því að
Sauðárkrókur varð kaupstaður. Af
því tilefni hefur bæjarstjórn sam-
þykkt að tímabilið frá 20. júlí 1996
til 20. júlí 1997 verði afmælisár á
Sauðárkróki.
„í fréttatilkynningu segir: „Á
komandi afmælisári er ætlunin að
taka til hendinni og gera góðan
bæ betri. Afmælisárið verði því í
senn hátíðarár og átaksár. Hátíð-
arár þar sem Sauðkræklingar
fagna þessum tímamótum með því
að gera sér glaðan dag og átaksár
sem notað er til að auka styrk
bæjarins í ört vaxandi samkeppni-
þjóðfélagi. Litið verður yfir farinn
veg og lærdómur dreginn af fortíð-
inni og hann nýttur til að búa sig
undir framtíðina.
Laugardaginn 20. júlí er upp-
hafsdagur afmælisársins og því
hefur afmælisnefnd Sauðárkróks í
samvinnu við ýmsa aðila í bænum
sett saman afmælisdagskrá. Dag-
skráin er fjölbreytt og er von þeirra
er standa að dagskránni að allir
fínni eitthvað við sitt hæfi, jafnt
bæjarbúar sem aðrir.“
2 til 200
kílówatta
rafstöðvar
Húsavík - Á vélaverkstæði
Jóns Sigurgeirssonar, Ár-
teigi í Suður-Þingeyjarsýslu,
eru m.a. framleiddar raf-
stöðvar af stærðunum 2-200
kílówött.
Stöðvar frá Árteigi hafa
verið fluttar út bæði til
Grænlands og Færeyja.
Dýnamórinn er aðkeyptur en
vatnsvélin smíðuð eftir að-
stæðum, eftir því hvort
virkja skal á eða lítinn bæjar-
læk.
„Ég kem á verkstæðið en
það er lítið sem ég geri enda
75 ára. Synir mínir Eiður og
Arngrímur sjá nú alveg um
þetta og hafa meira en nóg
að gera. Það hefur aukist
mjög framleiðsla á litlum
rafstöðvum fyrir sumarbú-
staði, allt niður í 2 kw,“ sagði
Jón Sigurgeirsson í samtali
við Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Silli
„HÚN er ekki stór þessi en
framleiðir 2 kw“, sagði Eiður
Jónsson.
Afmælis-
hátíðí
Bolungar-
vík
Bolungarvík - Gert er ráð fyrir að
flöldi brottfluttra Bolvíkinga heim-
sæki átthaga sína um næstu helgi
er Bolvíkingafélagið í Reykjavík
heldur upp á fimmtíu ára afmæli
félagsins hér í Bolungarvík.
Af því tilefni hefur Bolvíkingafé-
lagið í samvinnu við Ferðamálafé-
lag Bolungarvíkur skipulagt þriggja
daga dagskrá sem hefst í dag,
föstudaginn 12. júlí, með því að
hátíðin verður sett í hinni fornu
verstöð í Ósvör. Þar verða flutt
ávörp og tónlist og safnvörður mun
veita leiðsögn um safnið. Að setn-
ingu lokinni hefst atskákmót sem
standa mun alla helgina og sama
dag verður einnig boðið upp á
gönguferð í surtarbrandsnámu í
Syðridal.
Dagskrá laugardagsins hefst
með veiðikeppni á brimbijótnum
fyrir börn og unglinga. Þá verður
svokallað Bjöggu- og Lassabikar-
mót í golfi og settur upp sölumark-
aður við íþróttahúsið. Nokkrar lista-
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
MYNDARLEGUR gróðurreitur hefur verið gerður í hjarta
bæjarins í tilefni af afmælishátíð Bolvíkingafélagsins.
konur frá Galleríi Kletti í Hafnar-
firði munu sýna verk sín í Drimlu,
húsi handverksfólks í Bolungarvík.
Hestamenn verða með hestadag
fjölskyldunnar við hesthúsin og
knattspyrnuleikur verður á íþrótta-
vellinum á Skeiði. Um kvöldið verð-
ur svo hátíðarkvöldverður og dans-
leikur í Víkurbæ og útidiskó fyrir
börnin. Á sunnudag verður messað
í Hólskirkju og að messu lokinni
býður kvenfélagið upp á kaffi.
Alla helgina verður opin sýning
á gömlum ljósmyndum frá Bolung-
arvík og hin landsfrægi ísbjörn, sem
nú er kominn heim, verður til sýnis.
Vinnuflokkar bæjarins hafa unn-
ið hörðum höndum við að snyrta
og fegra bæinn að undanförnu m.a.
hefur verið gerður skemmtilegur
gróðurreitur í hjarta bæjarins en
Skeljungur og Skógræktarfélag
Bolungarvíkur hafa gefið fjölda
tijáplantna í þennan gróðurreit í
tilefni af afmælishátíð Bolvíkinga-
félagsins.
V Skútuvogi 12a, sími 581 2530.
YANMAR
rafstöðvar
BROT AF ÞVI BESTA...
YANMAR díeselrafstöð — 220V 4,6 kW, rafstart kr. 230.000 án vsk.
YAMAHA bensínrafstöð — 220V 2,2 kW spameytin kr. 78.370 án vsk.
MASE traktorsdrifin rafstöð — 380V/220V12 kW kr. 149.000 án vsk.
Vönduð vara — viðurkenndir framleiðendur