Morgunblaðið - 12.07.1996, Side 10

Morgunblaðið - 12.07.1996, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Ásdís Spegill, spegill, herm þú mér. . . STJÚPA nokkur varð fræg fyrir að spyrja töfraspegil sinn sífellt álits á því hver fegurst væri á jörðu hér og kæti hennar var tryggð ef spegillinn sagði hana fegursta. Litla manneskjan á myndinni hefur vafalaust ekki svo hégómlegar ástæður fyrir að heillast af spegl- uninni. Kannski reynir hún bara að snerta skýin í rúðunni? Kfíl og INTÍS semja um alnetsþjónustu Morgunblaðið/Golli ÞÓRÐUR Kristinsson, sljórnarformaður INTÍS, og Þórir Ólafs- son, rektor KHÍ, skrifa undir samning um alnetsþjónustu. INTERNET á íslandi hf. og Kenn- araháskóli íslands undirrituðu í gær samning um alnetsþjónustu fyrir mennta- og menningarstofnanir sem tengjast íslenska menntanet- inu. Menntamálaráðuneytið keypti í vor þann hluta íslenska mennta- netsins sem sá um alnetsþjónustu við mennta- og menningarstofnanir í landinu. Ráðuneytið fól Kennara- háskóla Islands rekstur mennta- netsins og hefur KHÍ nú samið við Internet á íslandi, INTÍS, um teng- ingu við alnetið. Með samningnum fá þær mennta- og menningarstofn- anir sem kjósa að tengjast Islenska menntanetinu sameiginlegan að- gang að alnetinu og greiða hér eft- ir fyrir notkun þjónustunnar, en ekki fyrir fjölda notenda eins og verið hefur. Að sögn Jóns Eyfjörð, forstöðu- manns íslenska menntanetsins, hef- ur samningurinn mikla þýðingu fyr- ir menntanetið og þá sem því tengj- ast. „í fyrsta lagi geta þeir aðilar sem tengjast okkur fengið tækniað- stoð frá menntanetinu og þurfa því ekki að hafa hver sinn tæknimann. í annan stað sparast töluverðir fjár- munir með því að nýta hagkvæmni stærðarinnar, t.d. dreifist kostnaður á fleiri aðila ef þörf er á að stækka tenginguna. Með samningnum verður þannig fýsilegri kostur en ella að nettengja mennta- og menn- ingarstofnanirnar, í stað þess að vera með upphringiaðgang eins og verið hefur.“ Ibúar í Laugarneshverfi um framkvæmdir á Kirkjusandi Verið að bijóta reglu- gerð um hávaðamörk Morgunblaðið/jt NÝR Land Cruiser er fimm dyra, sjö nianna, með þriggja lítra dísilvél með forþjöppu eða V6 bensínvél. Nýr Land Cruiser kominn til landsins VERA Guðmundsdóttir, íbúi við Laugarnesveg, segir að við skipu- lagningu nýs hverfis við Kirkjusand í Reykjavík sé reglugerð um há- vaðamörk í íbúðahverfum brotin. Reglugerðin geri ráð fyrir að háv- aði við húsvegg megi ekki vera meiri en 55 db, en samkvæmt mælingum Almennu verkfræðistof- unnar sé hávaði við húsvegg blokk- anna sem fyrirhugað er að reisa allt að 70 db. Reglugerðin gerir ráð fyrir að ef um er að ræða endumýjun fyrri byggðar megi veita undanþágu frá mörkum um hávaðamengun. Vera sagði að uppbyggingin á Kirkju- sandi félli ekki undir þessa skil- greiningu. Verið væri að setja INNFLYTJENDUR grænmetis hafa áhyggjur af því að verndartoll- ar verði lagðir á innfluttan blaðlauk áður en framboð af íslenzkum blað- lauk verður verulegt. Þannig geti sagan frá því í fyrra enduríekið sig, en þá var hæsti leyfilegur toll- ur lagður á blaðlauk þótt framboð á innlendum væri nánast ekkert. Gunnar Þór Gíslason hjá Mata hf. segir að ofurtollar verði lagðir á blaðlauk frá 4. ágúst. „Mér sýn- ist að ráðuneytið byrji þarna aðeins of snemma, eins og venjulega," segir hann. „Fyrstu blaðlaukamir koma yflrleitt ekki fyrr en um miðj- an ágúst og að einhverju marki í byrjun september.“ Gunnar segir að innflytjendum hafi sömuleiðis þótt ráðuneytið setja •ofurtolla á rauða papriku sl. vor helzt til snemma. „Við fengum þau svör að ráðuneytið hefði upplýs- íbúðabyggð á land sem áður var iðnaðarhverfi. Mikill hávaði á leiksvæði Vera sagði að þeir sem keyptu íbúðir á þessum stað væru að kaupa svikna vöru. Það væri hægt að búa við þetta með því að hafa þrefalt gler í gluggum, loftpúða loftræst- ingu og með því að opna ekki glugga eða svalahurðir. Þetta væri í engu Samræmi við yfirlýsingu byggingar- aðila um að við hönnun yrði áhersla lögð á að hafa blokkimar vistvænar. Vera sagði að mælingar Almennu verkfræðistofunnar sýndu að hávaði á þeim hliðum húsanna sem sném að Sæbraut væri 65 og allt að 70 db. Aðrar mælingar sýndu aðeins ingar um að nægjanlegt framboð væri á leiðinni. Upplýsingarnar koma eingöngu frá framleiðendum og ráðuneytið virðist ekki ganga eftir því hvort þær séu réttar, veit ekki einu sinni nákvæmlega við hve miklu af innlendu vörunni má búast á tilsettum tíma.“ Verðum að hafa sjálfstæða skoðun Ólafur Friðriksson, hagfræðing- ur í landbúnaðarráðuneytinu, segir að býsna langt sé fram til 4. ágúst og sumarið hafi verið gott, þannig að grænmetisuppskera sé fyrr á ferðinni en í meðalári. „Við gengum frá reglugerð 21. júní, þar sem við áætluðum hvenær íslenzka varan kæmi inn. Fram að þessu hefur það passað vel,“ segir Ólafur. Ólafur segir að ráðuneytið hafi ekki einvörðungu samband við um 3ja db frávik frá þessum tölum. Leiksvæði bama væri á homi Sæ- brautar og Laugalæks þar sem þetta mikill hávaði mældist. Hávaði við nýbyggingarnar yrði 16-32 sinnum yfir þeim hávaðamörkum sem reglu- gerðin setur. Vera er ein þeirra sem hafði for- göngu um að safna undirskriftum íbúa í Laugarneshverfi gegn fram- kvæmdunum á Kirkjusandi og söfn- uðust á nokkrum dögum 550 undir- skriftir. Hún sagði að viðbrögð við mótmælum íbúanna hefðu engin verið. Svo virtist að miklir peninga- hagsmunir væm í húfí og borgar- yfirvöld tækju meira tillit til Ár- mannsfells og Landsbankans en íbú- anna. framleiðendur, þegar áætlað sé hvaða þörf sé fyrir grænmeti. „Oft og tíðum ber þeim ekki saman, og þá verðum við að meta staðreynd- irnar og hafa okkar sjálfstæðu skoðun. Tímabilin, þegar innlenda varan er að koma inn á markaðinn og þegar hún hverfur út af honum aftur, eru viðkvæm. Á vorin hafa fyrirtæki framleiðenda tilhneigingu til að segja að framleiðslan komi fyrr á markaðinn en raunin er. Á sama hátt segja innflytjendur að ekki sé nægilegt framboð þegar varan er að hverfa af markaðnum. Menn eru að beijast um hagsmuni og einhver verður að ákveða.“ Ólafur segir að til þess að bregð- ast við þessum vanda hafi ráðuneyt- ið stighækkað tolla þegar innlenda framleiðslan sé að koma inn á markaðinn en stiglækkað þá þegar hún sé að verða uppurin. TOYOTA P. Samúelsson ehf. kynnir í næstu viku árgerð ’97 af Toyota Land Cruiser, eða Land Cruiser 90, sem er millistór jeppi með fímm dyrum. Dísilvél bílsins er að grunni sú sama og í Toyota 4Runner, þriggja lítra, fjögurra strokka, átta ventla línuvél með forþjöppu og tölvustýrt olíuverk (EDI), sem er nýjung. Jafnframt verður Land Cruiser 90 fáanlegur með 3,4 lítra, 24 ventla V6 bensínvél, með tölvu- stýrðri innsprautun. Bíllinn er til í fimm litum; dökkgrænu, vínrauðu, dökkbláu, hvítu og drapplitu. Bíllinn er fáanlegur í fjórum gerð- um og fjórum verðflokkum, það er STD sem kostar 3.065.000, GX sem kostar 3.275.000, VX á 3.525.000 og loks Land Cruiser 3,4 VX, með bensínvél, sem kostar 4.194.000 krónur með sjálfskiptingu. Verð hinna þriggja er miðað við 5 gíra beinskiptingu og kostar bíllinn 200.000 krónum meira ef valin er fjögurra gíra rafeindastýrð sjálf- skipting. Gormafjöðrun og tannstangarstýri Bíllinn er með aksturstölvu sem sýnir meðalhraða, loftþrýsting og lofthita og sem dæmi um staðalbún- að má nefna ABS-hemlakerfi, ör- yggispúða fyrir ökumann og far- þega, forstrekkjara á sætisbeltum framsæta og bremsuljós í afturrúðu. Þá má nefna gormafjöðrun með efri og neðri spyrnum að framan og fjög- urra punkta gormafjöðrun að aftan. Auk þess er hann með tannstang- arstýri sem gefa á, ásamt fjöðrun- inni, mýkt og stöðugleika í akstri og sítengt aldrif. -----» ♦ ♦---- Handtekinn á Akureyri Grunaður um þjófnað og innbrot RANNSÓKNALÖGREGLAN á Ak- ureyri óskaði í gær eftir gæsluvarð- haldsúrskurði í eina viku yfír manni sem handtekinn var í vikunni. Maðurinn viðurkenndi þjófnað á utanborðsmótor í eigu siglinga- klúbbsins Nökkva. Hann er grunað- ur um innbrot í skóverslun MH Lyngdal þar sem stolið var skófatn- aði og peningum, en h'efur neitað því. Við yfirheyrslur viðurkenndi maðurinn að hafa brotist inn í golf- skálana í Ólafsfirði og á Dalvík um síðustu helgi og stolið golfsettum ogtölvubúnaði. I gær var kona handtekin á Akur- eyri grunuð um aðild að þessum málum. Innflytjendur telja blaðlauk tollaðan of snemma Segja ráðuneytið hafa ófullnægjandi upplýsingar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.