Morgunblaðið - 12.07.1996, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Vegaframkvæmdir á Fljótsheiði
Háfell vinnur verk-
ið fyrir 133 millj.
Starfsdagur í Laufási
Gömlu
handtökin
sýnd
STARFSDAGUR verður í Gamla
bænum í Laufási á morgun, laugar-
daginn 13. júlí, frá kl. 14 til 17.
Slíkur dagur hefur verið haldinn síð-
ustu tvö ár og fjöldi fólks lagt leið
sína að Laufási til að fylgjast með.
Hópur fólks tekur þátt í dag-
skránni, en sýnd eru gömul vinnu-
brögð sem nú heyra sögunni til. Inni
í bænum er kveikt upp í hlóðum og
bakað, i búri er mjólkin skilin og
strokkuð en einnig er gert skyr sem
gestir fá að bragða á. Þá fá gestir
að smakka á slátri, hangikjöti, ný-
strokkuðu smjöri og heimabökuðu
rúgbrauði. í baðstofu situr fólk á
rúmum við vinnu úr ull og hrosshári.
Úti við verður sláttur með orfi og
ljá, konur ganga í flekk og snúa og
raka, heyið verður bundið og sett
upp á klakka, því þar verður hross
með reiðing og klyfbera.
Á hlaðinu í Laufási verður harm-
onikkuleikur og stiginn dans.
Hátíðin er undirbúin af starfsfólki
gamla bæjarins í Laufási og Minja-
safnsins á Akureyri, en þeir sem
taka þátt koma víða að úr Eyjafírði
og Þingeyjarsýslu.
----♦ ♦ ♦
Framhaldsaðal-
fundi Foldu
frestað
FRAMHALDSAÐALFUNDI Foldu
hf. á Akureyri sem fram átti að
fara í gær, var frestað um óákveð-
inn tíma.
Að undanförnu hefur verið unnið
að endurskoðun á rekstri fyrirtæk-
isins og eru nýir aðilar að taka við
rekstrinum, eins og komið hefur
fram í fréttum. Þar sem þeirri vinnu
er ekki að fullu lokið var fundinum
frestað aftur.
VEGAGERÐIN hefur skrifað undir
samning við Háfell ehf. í Reykjavík
um framkvæmdir á veginum yfir
Fljótsheiði næstu þrjú árin. Hér er
um að ræða stærsta einstaka verk-
takasamning Vegagerðarinnar á
Norðurlandi frá því að unnið var
við göngin í Olafsfjarðarmúla. Að
sögn Sigurðar Oddssonar, yfir-
tæknifræðings, er stefnt að því að
framkvæmdir hefjist um næstu
mánaðamót.
Tilboð í verkið voru opnuð 10.
júní sl. og átti Háfell þriðja lægsta
tilboðið. Kostnaðaráætlun Vega-
gerðarinnar hljóðaði upp á 187,7
milljónir króna en tilboð Háfells var
upp á 133 milljónir króna eða um
71% af kostnaðaráætlun. Fyrirtæk-
in sem áttu lægri tilboð voru Hér-
aðsverk hf. á Egilsstöðum og Hafn-
arverk efh. á Svalbarðsströnd en
alls bárust 11 tilboð í verkið.
Verklok 1. ágúst 1998
Framkvæmdin nefnist Hringveg-
ur Fosshóll - Aðaldalsvegur og er
hér um tæpa 11 km að ræða, 9,9
km á hringveginum yfir Fljótsheiði,
um 200 m á Aðaldalsvegi og 700
m á Ingjaldsstaðavegi. Sem fyrr
segir tekur framkvæmd verksins
um þijú ár, sem helgast af þeim
fjárveitingum sem í það eru settar,
að sögn Sigurðar. Samkvæmt út-
boði skal því lokið 1. ágúst 1998.
Morgfunblaðið/Kristján
*
I túninu
heima
„VIÐ ERUM oftast úti að leika
okkur,“ sögðu vinirnir Eva,
Arnór, Erla og Tómas sem voru
með hundana Hring og Vask
úti á túni í Öxnadalnum eitt
kvöldið í vikunni, þegar ljós-
myndarinn átti leið þar um.
Krakkarnir fjórir eiga heima á
bæjunum Skógum, Auðnum I
og Auðnum II. Þau sögðust oft
fara á hjólunum sínum milli
bæja til að fá félagana út að
leika, en þau væru enn of ung
til að taka þátt í heyskapnum
á bæjunum. „Það er ekkert að
gera fyrir krakka, það eru bara
þau sem eru stærri, unglingarn-
ir sem kunna á vélarnar, sem
eru með í heyskapnum. Við setj-
um samt stundum bolta í vagn-
ana.“
/iSÍ&titHA*é9C
Eða þannig
í Deiglunni
VALA Þórsdóttir flytur einleik sinn
„Eða þannig" í Deiglunni í kvöld,
föstudagskvöldið 12. júlí og einnig
á morgun, laugardag, kl. 20.30. Ein-
leikurinn fjallar um nýfráskilda konu
um þrítugt, verkið er grátfyndið og
tekur á ýmsum þáttum í samfélag-
inu. Jafnréttisnefnd Akureyrarbæjar
styrkir leiksýningar Listasumars en
þær eru haldnar í samvinnu við
Kaffileikhús Hlaðvarpans og höf-
undarsmiðju Borgarleikhússins.
Ferill Kristjáns Péturs
KRISTJÁN Pétur Sigurðsson
fleytir ijómann ofan af tónlistarferli
si'num í Deiglunni annað kvöld, laug-
ardagskvöldið 13. júlí kl. 22.
Kristján Pétur hefur samið texta
og lög, sungið og spilað einn eða
með ýmsum hljómsveitum í ríflega
20 ár. Allt frá Kamarorghestum í
Kaupmannahöfn til Norðanpilta um
víðan völl. Sérlegur meðhjálpari
Kristjáns verður Haraldur Davíðs-
son.
------♦ -♦--♦---
Tréborg smíðar
kennslustofu
TRÉBORG ehf. átti lægsta tilboð í
smíði lausrar kennslustofu við Síðu-
skóla. Þijú tilboð bárust, en kostn-
aðaráætlun var 4,7 milljónir.
Tréborg smíðar kennslustofuna
fyrir tæpar 3,5 millj. sem er 73,5%
af áætluðun, Ösp ehf. bauð tæpar
3,7 millj., 77,2% af kostnaðaráætl-
un, en tilboð Hyrnu var rúmar 4,5
millj., eða 95,7% af áætlun.
Bæjarráð samþykkti á fundi sín-
um í gær að ganga til samninga
við lægstbjóðanda.
Messur
LAUFÁSPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta í Svalbarðskirkju
næstkomandi sunnudagskvöld,
14. júlí, kl. 21.
*
Akureyrarbær ákveður að selja helmingshlut sinn í Utgerðarfélagi Akureyringa
Heimamenn fá for-
kaupsrétt að hluta
Söluverðmæti hlutabréfanna er rúmur milljarður króna
MEIRIHLUTAFLOKKARNIR í
bæjarstjórn Akureyrar, Framsókn-
arflokkur og Alþýðuflokkur hafa
náð samkomulagi um hvernig staðið
verður að sölu á hluta af hlut bæjar-
ins í Útgerðarfélagi Akureyringa
hf. en bærinn á um 53% hlutafjár
í ÚA að nafnvirði um 410 milljónir
króna. Bærinn mun ekki nýta for-
kaupsrétt sinn í hlutafjárútboði sem
nú stendur yfir en felur bæjarstjóra
að ganga til samninga við stjórn
ÚA um framsal á forkaupsréttinum
til félagsins. Þá er bæjarstjóra falið
að bjóða til sölu hlutabréf í ÚA sem
nemi eftir hlutafjáraukningu allt að
24,6% af heildarhlutafé í félaginu
að nafnverði úm 225 milljónir króna.
Gengi hlutabréfa í ÚA hefur
hækkað mjög frá áramótum, en í
maí voru þau seld á genginu 5,30.
í forkaupsrétti í hlutafjárútboðinu
eru bréfin seld á genginu 4,50. Selji
bærinn bréfin á gengi kringum 5
að raunvirði má ætlað að bærinn
fái rúmlega 1,1 milljarð fyrir þessi
24,6%.
Jakob Björnsson bæjarstjóri lagði
fram tillögu þessa efnis á fundi
bæjarráðs í gær. Tillögunni var vís-
að til bæjarstjórnar þar sem hún
verður afgreidd nk. þriðjudag. Af
þessum 24,6%, sem ráðgert er að
selja, er gert ráð fyrir að ÚA verði
boðin til kaups 10% af heildarhlut-
afjár að nafnverði um 92 milljónir
króna. 14,6% hlutafjár að nafnverði
um 133 milljónir króna verði boðin
til sölu á almennum hlutabréfa-
markaði. Starfsfólki ÚA og almenn-
ingi á Akureyri verði veittur for-
kaupsréttur að hluta þessa hluta-
fjár. Söluandvirði bréfanna verður
notað til greiðslu skulda Fram-
kvæmdasjóðs og Bæjarsjóðs og til
verkefna á vegum bæjarfélagsins
eftir nánari ákvörðun við gerð næstu
fjárhagsáætlunar.
Komið til móts við sem
flest sjónarmið
Jakob Bjömsson bæjarstjóri segir
að þótt við afgreiðslu fjárhagsáætl-
unar hafi verið samþykkt að stefna
að sölu á öllum hlutabréfum bæjar-
ins í ÚA, sé þetta hins vegar niður-
staðan og að fyrir henni sé meiri-
hluti í bæjarstjórn. Það sé því ljóst
að bærinn verði áfram stór eigandi
í ÚA um óákveðin tíma.
„í þessari tillögu er reynt að koma
til móts við sem flest sjónarmið og
er sá farvegur sem lagt er til að
málið fari í núna. Ég lít þannig á,
eftir umræður í bæjarráði í morgun
(gærmorgun), að það geti verið víð-
tækur stuðningur fyrir þessari leið
í bæjarstjórn,“ sagði Jakob.
Hann segir að það sem menn
kalli seinagang hafi engan skaðað
enda tíminn verið notaður til að ná
fram línu í málinu sem menn gætu
verið þokkalega sáttir við og það
hafi tekist. „Eftir afgreiðslu málsins
í bæjarstjóm á þriðjudag verður
farið í að vinna málinu framgang
en menn hafa ekki sett nein tíma-
mörk í því efni. Þá kemur m.a. að
því að skoða hvernig menn ætli að
ná sem mestu út úr þessari sölu.
Það er líka alveg ljóst að lækkun
skulda Framkvæmdasjóðs og Bæj-
arsjóðs gefur aukið svigrúm til
ýmissa góðra verka og af nógu er
að taka,“ sagði Jakob.
Skrefin stigin af varfærni
Gísli Bragi Hjartarson, fulltrúi
Alþýðuflokks í bæjarráði, sagðist
ánægður með þá tillögu sem lögð
var fram af bæjarstjóra. „Þetta er
niðurstaðan, að bærinn verði áfram
eigandi af um 20% hiut í ÚA og ég
er hinn ánægðasti með það. Ekki
síst þar sem menn virðast vera að
gefast upp á þessari pólitísku bæjar-
útgerð, sem ég hef alltaf verið mjög
hrifínn af. En það eru aðrir tímar
nú og kannski önnur lögmál sem
ráða en áður. Með sinni eignaraðild
á bærinn þó áfram mann í stjórn
og getur því enn haft áhrif.“
Gísli Bragi segir að margir hafi
gagnrýnt meirihlutann fyrir seina-
gang varðandi málefni ÚA og enn
aðrir reynt að beita alls kyns þrýst-
ingi. Hann sagðist ekki geta séð að
bærinn hafi skaðast þótt skrefin
hafi verið stigin af varfærni, enda
hafi t.d. hlutabréfin í félaginu hækk-
að mikið í verði síðustu mánuði.
„Ég hef fulla trú á að það náist
breið samstaða í bæjarstjórn um
þessa niðurstöðu. Enda er hún skyn-
samleg og pólitískt mjög sterk eins
og við var að búast af þessum meiri-
hluta. Við höfum ekki látið undan
þessum stöðuga þrýstingi um að
gera eitthvað einhvern veginn og
um leið hækkað eign bæjarins um
einhver hundruð milljóna króna,“
sagði Gísli Bragi.
Ásættanleg aðferð
SIGURÐUR J. Sigurðsson, full-
trúi Sjálfstæðisflokks í bæjarráði,
sagði mikilvægt að komast út úr
þeim umræðum sem verið hefðu um
sölu hlutabréfa bæjarins í ÚA og
staðið hefði í á annað ár. „Það var
löngu ljóst að eina leiðin til að greiða
niður skuldir Framkvæmdasjóðs var
að selja einhvern hluta af hlutabréf-
um Akureyrarbæjar í Útgerðarfé-
lagi Akureyringa og lækka þá jafn-
framt skuldir bæjarsjóðs," sagði
Sigurður. „Það var hins vegar okkar
skoðun að ef menn ætluðu að selja
á annað borð væri skynsamlegast
að selja allt og fá sem hæst verð
fyrir bréfin."
Sigurður sagði að allt annað gengi
hefði verið á bréfunum þegar fyrst
var rætt um sölu þeirra, eða veru-
lega miklu lægra en nú. Sjálfstæðis-
menn hefðu talið innra virði félagsins
nær genginu 6, en gengið þá verið
um 3. „Aðstæður hafa gjörbreyst,
þannig að út af fyrir sig má segja
að þessi aðferð sem nú er verið að
tala um við sölu bréfanna sé ásætt-
anleg,“ sagði Sigurður.
Sigríður Stefánsdóttir, fulltrúi
Alþýðubandalags í bæjarráði, lagði
til á bæjarráðsfundinum í gær að
tillögunni yrði vísað til afgreiðslu í
bæjarstjórn Akureyrar, tillagan
hefði ekki verið send út til fulltrúa
í bæjarráði fyrir fundinn heldur lögð
þar fyrst fram. Henni hefði því ekki
gefist kostur á að kynna sér inni-
hald hennar fyrir fundinn. „Okkar
afstaða kemur fram á bæjarstjórn-
arfundi á þriðjudag, ég á eftir að
ræða tillöguna við mitt fólk,“ sagði
Sigríður. v
Önnur stefna
Hún sagði þó ljóst að með tillög-
unni væri meirihluti bæjarráðs að
taka aðra stefnu en kynnt hefði
verið við gerð Ijárhagsáætlunar fyr-
ir þetta ár þar sem ætlunin hefði
verið að selja öll hlutabréf bæjarins
í Útgerðarfélagi Akureyringa. Til-
lagan sem nú væri uppi á borðinu
væri nær því sem Alþýðubandalags-
menn hefðu á sínum tíma talið betri
kost, að selja ekki öll hlutabréfín í
einu.
Jón Þórðarson, formaður stjórnar
ÚA, fagnaði því að niðurstaða hefði
fengist í þessu máli og sagði að sér
litist vel á þær tillögur sem fyr*r
lægu.
h
\
I
>
I
t
ft
I
I
I
i.
ft
!
!
ft
I
I
I
!
í
i
1
t
I
|