Morgunblaðið - 12.07.1996, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 12.07.1996, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT Mikil launahækkun til breskra þingmanna Gremja og hneyksl- un meðal launþega London. Reuter. LEIÐTOGAR breskra verkalýðs- félaga sökuðu þingmenn í gær um hræsni en í fyrradag sam- þykktu þeir að hækka sín eigin laun um 26%. Var tekið undir þá gagnrýni í breskum fjölmiðlum, sem sögðu, að hækkunin væri einstaklega óábyrg nú þegar blik- ur væru á lofti á vinnumarkaði og mikið aðhald í launamálum hjá hinu opinbera. Árslaun breskra þingmanna eru með hækkuninni um 4,5 millj. ísl. kr. og hefur það vakið gremju meðal launþega, sem í besta falli hafa fengið örlítið meira en verð- bólgunni nemur en hún er 2,1%. Var hækkunin samþykkt á þingi þrátt fyrir varnaðarorð frá John Major forsætisráðherra og leið- togum stjórnarandstöðuflokk- anna. Segjast eftirbátar annarra Þingmenn halda því fram, að laun þeirra hafi dregist mjög aft- ur úr því, sem gerist hjá fólki með líka ábyrgð á öðrum sviðum samfélagsins, og skelltu þeir Sagt geta orðið olía ábál verkfalla skollaeyrum við áskorunum Maj- ors um að láta 3% launahækkun nægja. Sögðu 279 já en 154 nei við tillögum launanefndarinnar en á móti kom, að ríflegur styrk- ur vegna ferða til og frá kjördæm- unum var lækkaður. Rodney Bickerstaffe, fram- kvæmdastjóri Unison, stærsta verkalýðssambandsins í Bret- landi, sagði í viðtali við BBC, breska ríkisútvarpið, að venjulegt fólk, sem ætti erfitt með að láta enda ná saman, væri ævareitt þingmönnunum. „Hvað um allt það fólk, sem vinnur sín störf af trúmennsku fyrir skammarleg laun? Við krefj- umst þess ekki, að þingmenn séu einhverjir meinlætamenn en vilji þeir gefa öðrum gott fordæmi ættu þeir að fara hugsa sinn gang,“ sagði Bickerstaffe. Ken Cameron hjá sambandi slökkviliðsmanna minnti á, að tal- ið hefði verið nauðsynlegt að iáta 4% launahækkun til hjúkrunar- kvenna koma í áföngum til að ekki færi allt um koll. Verkföll yfirvofandi Samkvæmt tiilögum launa- nefndarinnar munu laun ráðherra hækka miklu meira en þingmanna og sem dæmi má nefna, að laun forsætisráðherra munu hækka um 70% eftir kosningar í maí nk. og verða þá um 15 millj. kr. á ári. Bresku dagblöðin gagnrýna þingmenn fíarðlega og Daily Ex- press segir hækkunina óábyrga á sama tíma og verkfall vofi yfir hjá starfsmönnum neðanjarðar- lesta í London og flugmönnum hjá British Airways. „Að samþykkja svona hækkun þegar verkalýðsfélögin virðast vera að uppgötva verkfallsvopnið á nýjan leik er einstaklega heimskulegt," sagði í blaðinu. Mótmælendur fengu að efna til göngu í Portadown írar saka Breta um hlutdrægni Portadown, Dublin. Reuter. Reuter MÓTMÆLENDUR ganga um hverfi kaþólskra í Portadown í gær, gönguleiðin er vörðuð bílum lögreglu og herliðs. Hörð átök hafa verið víða á Norður-írlandi undanfarna daga og óttast marg- ir að friðarviðleitni siðustu ára muni verða til einskis. IRSKA stjómin harmaði í gær þá ákvörðun lögreglustjórans á Norður- frlandi að leyfa göngu mótmælenda úr svonefndri Óraníureglu um hverfi kaþólikka í borginni Portadown. „Þetta er andstætt þeirri stefnu sem samkomulag náðist um milli beggja ríkisstjóma [írlands og Bretlands], um að gera báðum aðilum, mótmæl- endum og kaþólikkum, jafn hátt und- ir höfði," sagði í yfirlýsingu stjóm- valda í Dublin. Talsmenn mótmælenda á Norður- írlandi töldu að með þvf að banna gönguna, sem hefð er fyrir, væri breska stjómin að reyna að blíðka herskáa kaþólikka. Steinum og bensínsprengjum rigndi yfir lögreglumenn í gær er þeir héldu aftur af bálreiðum kaþól- ikkum sem vildu hindra göngumenn- ina, um 2.000 manns, í að fara um Garvaghy-veg í Portadown. Enginn mun þó hafa slasast að ráði. Lögreglustjórinn, sir Hugh Annesl- ey, sagðist hafa aflétt banninu vegna þeirrar hættu sem stafað hefði að öldu bílþjófnaða og tilraunum til að lama samgöngur um alit Norður- írland. Svo hefði getað farið að lög- regla og herlið, sem fékk 1.000 manna liðstyrk hermanna frá Bret- landi í gærmorgun, hefði orðið að beijast við tugþúsundir mótmælenda. „Ég var ekki reiðubúinn til að hætta mannslífum ... Ég iðrast einskis", sagði Annesley. Fulltrúar n-írskra kaþólikka, sem eru í minnihluta í héraðinu, voru beiskir í lund og sögðu að um herfi- leg svik væri að ræða. „Hvers vegna lætur breska stjómin undan Óraníu- reglumönnum sem hafa ásamt stuðn- ingsmönnum sínum í fjóra daga og fjórar nætur látið öllum illum látum um allt Norður-írland?" spurði Brend- an MacCionnaith, talsmaður kaþól- ikka í Portadown. Engar sekkjapípur Göngumenn fengu ekki að nota sekkjapípuleikara og aðeins eina trumbu en er þeir námu staðar sungu þeir breska þjóðsönginn. Efnt er til göngunnar ár hvert til að minnast sigurs mótmælenda á kaþólikkum í Bretlandi fyrir rúmum 300 árum en árið 1690 sigraði Vilhjálmur af Óran- íu innrásarher Jakobs annars sem var kaþólikki. I dag ná hátíðarhöld mótmælenda í héraðinu hámarki með göngum og miklum veisluhöldum, samkvæmt hefð er kveikt í bálköstum til.að minn- ast atburðarins. Hörð átök hafa verið undanfama daga vegna hátíðarhaldanna sem kaþólikkar telja ögrun við sig og geysilegt tjón hefur verið unnið á eignum í Portadown og víðar. Lög- reglan telur að liðsmenn vopnaðra sveita mótmælenda hafi ef til vill myrt kaþólskan bílstjóra, Michael McGoldrick, í Lurgan, skammt frá Portadown, á sunnudag en mótmæl- endur visa þeim ásökunum á bug. Mandela í brezka þinginu NELSON Mandela, forseti Suður-Afríku, hefur í opin- berri heimsókn sinni til Bret- lands hlotið fádæma góðar viðtökur gestgjafanna. í gær, á þriðja degi heimsóknarinn- ar, naut hann þess fágæta heiðurs að fá að ávarpa báðar deildir brezka þingsins. A myndinni sést hann í fylgd Bettyar Boothroyd, forseta neðri deildar þingsins, feta niður þrepin að hinum 900 ára gamla fundarstað, Westminst- er Hall. I ávarpi sínu minnti forsetinn á fortíð Bretlands sem nýlenduveldis - land- nám Breta í Suður-Afríku á 18. öld hafi verið upphafið að drottnun hvíta mannsins yfir heimalandi hans. Mandela er fyrsti erlendi stjórnmálaleiðtoginn sem fær að ávarpa sameinaðan þing- heim Breta frá því Charles de Gaulle gerði það í apríl 1960. Braton vill yfírþjóðlega Evrópulögreglu Lúxemborg. Reuter. JOHN Bruton, forsætisráðherra írlands, sem nú situr í forsæti ráð- herraráðs Evrópusambandsins, hyggst vinna að því að gera Euro- pol, lögreglusamvinnustofnun Evr- ópu, að raunverulegri Evrópulög- reglu, sem ekki sé háð landamær- um. Á leiðtogafundi Evrópska al- þýðuflokksins (EPP), þingflokks íhaldsmanna og kristilegra demó- krata á Evrópuþinginu, sem hald- inn var í Lúxemborg í fyrradag, var samstaða um að auka völd stofnunarinnar. Bruton sagði eftir leiðtogafund- inn að Evrópa þyrfti á að halda sambandslögreglu, sem hefði vald til að grípa til aðgerða hvar sem væri innan sambandsins. írland, sem tók við forsæti í ráð- herraráðinu um mánaðamótin, hef- ur sett baráttuna gegn glæpum ofarlega á stefnuskrá sína. Bruton sagði að eina leiðin til að beijast gegn skipulagðri glæpastarfsemi væri að setja á stofn skipulagða Evrópulögreglu. „Við erum sam- mála um hugmyndir um sambands- stofnun, sem hefði völd til að grípa sjálf til aðgerða," sagði Bruton. Evrópa þarf ájafngildi FBIaðhalda EPP er næststærsti þingflokk- urinn á Evrópuþinginu. Bruton sagði að á fundi leiðtoganna, en þeirra á meðal eru Helmut Kohl kanzlari Þýzkalands og forsætis- ráðherrar Belgiu, Spánar og Lúx- emborgar, hefði verið samstaða um að Evrópa þyrfti á að halda jafngildi bandarísku alríkislög- reglunnar FBI. „Á sama tíma og við sitjurn hér gætu vel skipulagðir glæpamenn verið að halda svipaða og jafnvel undirbúna leiðtogafundi," sagði Bruton. „Auka ætti völd Europol verulega til að berjast gegn glæpa- starfseminni.“ Bruton sagðist myndu hleypa áætlun um að efla Europol af stokkunum á næstu vikum. Stofn- unin, sem staðsett er í Haag, hefur til þessa einkum haft það hlutverk að samræma upplýsingar um fíkni- efnasmygl í álfunni. Hugmyndir um evrópska sam- bandslögreglu eru ekki nýjar af nálinni. Aðildarríki ESB hafa lengi deilt um það hversu langt skuli ganga í að veita Europol völd til að starfa hvar sem er innan sam- bandsins, elta glæpamenn yfir landamæri, krefja lögreglulið að- ildarríkjanna um upplýsingar o.s.frv. Bretar hafa ævinlega lagzt gegn því að veita stofnuninni meiri völd. Árangur fyrir næsta leiðtogafund Embættismenn segja niðurstöðu leiðtogafundar EPP þá eindregn- ustu til þessa og að líkurnar á að Europol verði efld hafi nú aukizt. Bruton sagði að á fundinum hefði ekki verið rætt nákvæmlega hvaða völd ætti að færa Europol og að útfæra þyrfti mörg smáat- riði nánar. Hins vegar sagðist hann vona að þoka mætti málinu áleiðis fyrir næsta leiðtogafund Evrópu- sambandsins, sem verður haldinn í Dublin í október.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.