Morgunblaðið - 12.07.1996, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1996 19
airyerdt'vönm.v.
iZnastí kmturinn. VnainnikM?tíU&**k‘
‘*un beirra efna t mat- eða drykkjarvö%m’?L™aJ - eða
" ' ' n‘ytanc/;/*Var.
hluttau F*“v y^juruorum, sem „
ab r\ba maU banJJ^jt^bagkvamtj^2
Durrmatur og margt fle
STUTT
ERLENT
Karpov
hélt
titlinum
BRESKI Verkamannaflokkurinn
hefur enn mikið forskot á íhalds-
flokkinn í skoðanakönnunum en
samt hefur dregið saman með
þeim. Samkvæmt könnun, sem
dagblaðið Guardian birti í gær
hefur fyrrnefndi flokkurinn
stuðning 45% kjósenda en sá síð-
arnefndi 30%. Tölurnar eiga við
þegar búið er að taka tillit til
tregðu margra til láta skoðanir
sínar í ljós en óleiðréttar tölur eru
50% hjá Verkamannaflokknum
og 25% hjá íhaldsflokknum.
Skólar
eyðilagðir
YFIRVÖLD í Alsír segja, að ísl-
amskir uppreisnarmenn í landinu
hafi eyðilagt 627 skólabyggingar
í þau fjögur ár, sem borgarastyrj-
öldin hefur staðið. 447 byggingar
hafa verið endurreistar og unnið
er við 61. Talið er, að 50.000
manns hafi fallið í óöldinni í land-
inu frá 1992.
Búist við
Berthu
FELLIBYLURINN Bertha
stefndi í gær upp að ströndum
Karólínu í Bandaríkjunum og
flýðu þá margir lengra inn í land-
ið. Óttast er, að Bertha geti farið
yfir fjögur ríki, Norður- og Suður-
Karólínu, Georgíu og Virginíu,
og er mikill viðbúnaður þar af
þeim sökum.
Reknir úr
landi
SJÖTÍU og fimm ólöglegir inn-
flytjendur voru reknir frá Frakk-
landi á miðvikudag og hefur þá
alls 14.572 verið vísað úr landi á
14 mánuðum. í nokkrum kirkjum
hefur verið skotið skjólshúsi yfir
ólöglega innflytjendur en Jean-
Louis Debre innanríkisráðherra
segir, að skoðanir kirkjunnar
manna muni ekki aftra stjórninni
frá því að framfylgja lögum.
Rothschild
erfingi látinn
AMSCHEL Rothschild, sem tal-
inn var líklegur til að erfa ríkið
í bankaveldi Rauðskjöldunganna
í Bretlandi, fannst látinn á hótel-
herbergi í París fyrr í vikunni.
Hafði hann hengt sig. Hann var
41 árs að aldri.
RÚSSNESKI stórmeistarinn
Anatolí Karpov hélt heimsmeist-
aratitli FIDE, Alþjóðaskáksam-
bandsins, í
skák með því
að gera jafn-
tefli við áskor-
andann, Gata
Kamsky, í 18.
skákinni í ein-
vígi þeirra.
Var Karpov þá
kominn með
10,5 vinninga
en Kamsky 7,5. Var einvígið háð
í Elísta, höfuðstað rússneska
sjálfstjórnarlýðveldisins Kalmúk-
íu. Ekki er víst, að Karpov fái
að hafa titilinn lengi því að fyrir-
hugað er að efna til nýs heims-
meistaraeinvígis undir lok ársins.
Er það tilraun FIDE til að endur-
heimta þau áhrif, sem það hafði
áður í skákheiminum.
Karpov
Forskotið
minnkar
Forsetahjón deila
í Argentínu
Budweiser
á oÁA
ENDAÐU DÆMIÐ MEÐ RETTRI ÚTKOMU!
n V * umboðiö
Buaweiser
Suöurlandsbraut 4A
Var sonur
Menems
myrtur?
Buenos Aires. Reuter.
DÓMARI í Argentínu úrskurðaði á
miðvikudag að grafa bæri lík Carlos
Menems yngri, sonar forseta lands-
ins, upp til að kanna með krufningu
hvort hann hafi verið myrtur. For-
setasonurinn lét lífið í mars í fyrra
er þyrla sem hann stjórnaði rakst
á raflínu.
Fyrr/erandi eiginkonu Menems
forseta, Zulemu Yoma, grunar að
eitthvað gruggugt sé við dauða son-
arins og telur að forsetinn hafi
hindrað að allar upplýsingar um
málið hafi komið upp á yfirborðið.
Hún segist telja að sonurinn hafi
verið fórnarlamb í pólitísku bak-
tjaldamakki eða manna er stundi
fíkniefnasölu.
„Þetta er hryggilegt en nauðsyn-
legt,“ sagði forsetafrúin. „Ég vona
að ég muni seint og um síðir kom-
ast að því hvað gerðist og sonur
minn geti hvílt í friði“.
Menem forseti fullyrðir sem fyrr
að um slys hafi verið að ræða og
grunsemdir móðurinnar séu ein-
göngu afleiðing þess að hún syrgi
son sinn svo mikið. Menem sam-
þykkti samt sem áður að líkið yrði
grafið upp.
Menem yngri er jarðsettur í graf-
reit múslima í Buenos Aires en for-
setinn og fyrrverandi eiginkona
hans eru bæði af sýrlenskum ætt-
um. Forsetinn gerðist sjálfur kaþ-
ólskur á yngri árum.
ALLT í ÚTILÍFIÐ!
öönguskóp, regnfðt,
bakpokar, pottasett,
fieece peysur, grill,
gðngutfðid, svetnpokar,
■
SH0ES E0R AOTIVES
/TTffimj
Gönguskór
í barna, dömu
og herrastærðum.
■ -
CSffW
MOUNIAIN
HOUSE®
Bragðgóður
og næringaríkur
frostþurkaður matur.
Ómissandi
í allar fjallaferðir.
Göngutjöld og
svefnpokar.
Norsk hágæðavara
prófuð við erfiðustu
aðstæður.
wmsmmmm
Löngu
heimsþekktur fatnaður
fyrir íjallafólk.
tsálif
mmuTiuFP iko^hí
CLÆSIBÆ . SlMI 881 8922
Myndln er úr leiöangri yfir Grænlandsjökul
Göngustafir með
stillanlegri lengd.
ÓDÝRARi