Morgunblaðið - 12.07.1996, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMNINGAR
FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1996 37
Nú ertu leidd, mín ljúfa,
lystigarð Drottins í,
þar áttu hvíld að hafa
hörmunga’ og rauna frí,
við Guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri en sól
unan og eilíf sæla
er þín hjá lambsins stól.
Dóttir, í dýrðar hendi
Drottins, mín, sofðu vært,
hann, sem þér huggun sendi,
hann elskar þig svo kært.
Þú lifir góðum Guði,
í Guði sofnaðir þú,
í eilífum andarfriði
ætíð sæl lifðu nú.
(H. Pétursson.)
Guð fylgi þér.
Þín barnabörn,
Hannes og Marta.
Nú legg ég augun aftur
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
Barnabarnabörn.
Ástríður Torfadóttir eða Ásta eins
og hún var kölluð, missti móður sína
við fæðingu og var skírð hennar
nafni. Amma hennar Vigdís Jóns-
dóttir í Deildartungu tók hana í fóst-
ur og var Ásta í hennar skjóli til sjö
ára aldurs er móðursystir hennar
Vigdís Hannesdóttir giftist Sigurði
Bjarnasyni frá Hömrum í Reyk-
holtsdal árið 1912. Flutti hún með
þeim hjónum að Oddsstöðum í Lund-
arreykjadal. Var hún þar fram yfir
fermingaraldur, fór þá í vistir og í
Kvennaskólann á Blönduósi.
Með Ástu er gengin mikilhæf
sómakona, sem alla tíð var að gera
öðrum gott. Ræktarsemi hennar við
frændfólk verður ekki gleymt. Alla
tíð voru kærleikar á milli heimila
hennar og systranna frá Oddsstöð-
um. Otaldar verða gistinætur
skyldra sem vandalausra um lengri
eða skemmri tíma á heimili Ástu og
Hannesar.
Að leiðarlokum er þetta skrifað
sem lítill þakklætisvottur fyrir vin-
semd og hlýhug við Oddsstaða-heim-
ilin frá fyrstu tíð til síðustu stundar,
með samúðarkveðjum til aðstand-
enda Ástríðar.
Oddsstaðasystur.
Ástríður Torfadóttir húsmóðir í
húsinu Norðtungu á Akranesi til
margra ára, síðast búsett á Dvalar-
heimilinu Höfða, er látin. Ástríður
var fóstursystir móður minnar og var
ákaflega kært þeirra á milli og reynd-
ar milli þeirra systra allra.
Ásta Torfa, eins og hún var yfir-
leitt kölluð, trúlega í upphafi til að-
greiningar frá Ástríði Sigurðardóttur
húsfreyju á Oddsstöðum, kom að
minnsta kosti einu sinni á sumri upp
að Oddsstöðum á æskuheimiii mitt
að heimsækja fóstursystur sínar og
frændfólk, en móðir mín Hanna Vig-
dís Sigurðardóttir og systir hennar
Ástríður bjuggu þá tvíbýli á Odds-
stöðum. Oddsstaðir voru jafnframt
æskuheimili Ástu Torfa, en hún var
í fóstri hjá ömmu minni og afa, Vig-
dísi Hannesdóttur og Sigurði Bjarna-
syni, frá sjö ára aldri og fram yfir
fermingu.
Oftar en ekki dvaldi Ásta í nokkra
daga á Oddsstöðum og mér rennur
seint úr minni gæska hennar og góð-
lyndi. Aldrei sá ég Ástu bregða skapi,
hún var alltaf ljúf og vildi öllum gott
gera eins og hún frekast mátti. Þann-
ig mun ég minnast hennar. Ég heim-
sótti hana af og til út á Akranes,
bæði á heimili hennar við Suðurgötu
og eins á Dvalarheimiiið Höfða. Allt-
af var við brugðið gestrisni hennar,
alltaf bar hún fram góðgerðir, nán-
ast hvernig sem á stóð. Síðast heim-
sótti ég Ástu í vor, ásamt móður
minni og dóttur, nöfnu Ástu. Ásta
hafði greinilega gaman af heimsókn
litlu nöfnu sinnar, þó heilsan væri
þá farin að gefa sig töluvert.
Ég og fjölskylda mín sendum að-
standendum Ástu innilegar sam-
úðarkveðjur um leið og við þökkum
fyrir að hafa fengið að kynnast mildi
hennar, góðvild og kærleika.
Olgeir Helgi Ragnarsson.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
SIGRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR,
Brúarflöt 1,
Garðabæ.
Fyrir hönd barna, tengdabama, barnabarna
og barnabarnabarna,
Birgir Kristjánsson.
t
Þökkum auðsýnda samúð, vináttu og
hlýhug vegna andláts elskaðs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður,
sonar, tengdasonar og afa,
SIGTRYGGS SNORRA
ÁSTVALDSSONAR,
Skógarási 7B.
Megi Drottinn blessa ykkur og launa
ríkulega alla aðstoð.
Sigríður Esther Birgisdóttir,
Snorri Sigtryggsson,
Kristbjörg Sigtryggsdóttir,
Eyþór Sigtryggsson,
Karl Sigtryggsson,
Guðrún Sigtryggsdóttir, Þröstur Rikharðsson,
Anna María Sigtryggsdóttir, Bjarki Guðlaugsson,
Kristbjörg Lúthersdóttir
Elín Pétursdóttir, Birgir Sigurðsson
og barnabörn.
HÆKW>AUGL ÝSINGAR
Kennarar
Áhugasama kennara vantar að Grunnskólanum
Hellu fyrir næsta skólaár.
Um er að ræða almenna kennslu og umsjón
með tölvukennslu.
Upplýsingar veita: Sigurgeir Guðmundsson,
skólastjóri, í síma 487 5943 og Helga
Garðarsdóttir, aðstoðarskólastjóri,
í síma 487 5027.
Járniðnaðarmenn
Óskum að ráða járniðnaðarmenn vana
reisingu stálmannvirkja.
Upplýsingar gefur Teitur Gústafsson í símum
562 2700 og 567 4002 á skrifstofutíma.
ÍSTAK
Skúlatúni 4.
Organisti
Óskum eftir að ráða organista og kórstjóra
til starfa á ísafirði frá og með 1. ágúst nk.
Um er að ræða fullt starf við ísafjarðarkirkju
og Hnífsdalskapellu.
Allar starfsaðstæður eru hinar ákjósanleg-
ustu: í kórnum eru um 30 manns. Orgel kirkj-
unnar var vígt um seinustu jól, en jjað er
af gerðinni P. Bruhn og 22 radda. I haust
verður hluti safnaðarheimilisins tekinn í notk-
un og verður þar sérstök aðstaða fyrir organ-
ista og kór.
Umsóknir skulu sendar ísafjarðarkirkju, póst-
hólfi 56, 400 ísafirði, fyrir 30. júlí nk.
í umsókninni skal tilgreina menntun og hugs-
anlega fyrri störf.
Sóknarprestur á ísafirði er sr. Magnús
Erlingsson.
Isafjarðarkirkja.
Tjaldmarkaður á Selfossi
Þeir aðilar, sem hafa áhuga á sölubásum í
Tjaldmarkaði á Selfossi dagana 20. júlí og
7. september, hafi samband í símum 482 2140
og 897 3615.
Sumarferð Varðar
í Landmannalaugar laugardaginn
13. júlí nk.
Brottför: Kl. 8.00 frá Valhöil við Háaleitis-
braut (mæting kl. 7.45).
Heimkoma: kl. 20.00 (áætluð heimkoma).
Leið: Hellisheiði, um Skeiðaveg, Þjórsárdal,
um Sigöldu til Landmannalauga. Til baka
verður farið um Dómadal, Landssveit, um
Holtin og til Reykjavíkur.
Miðaverð: 2.500 krónur fyrir fullorðna og
1.000 krónur fyrir börn 5 til 12 ára.
Miðasala: í Valhöll í dag milli kl. 9.00 og
19.00.
Ávarp: Davíð Oddsson forsætisráðherra.
Mikilvægt: Þátttakendur taki með sér gott
nesti fyrir heilan dag og skjólgóðan fatnað.
Ferðanefndin.
Skrifstofu-, verslunar-
og þjónustuhúsnæði
Til leigu 60-70 fm húsnæði á götuhæð í
miðbænum. Góð staðsetning. Næg bílastæði.
Jafnframt gæti verið til sölu í miðbænum
150 fm húsnæði á götuhæð, mjög vel stað-
sett. Næg bílastæði.
Áhugasamir sendi nafn sitt til afgreiðslu
Mbl., merkt: „Miðbær - 801“.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál.
Seyðisfjarðarvegur á Fjarðarheiði
Niðurstöður frum-
athugunar og úrskurður
skipulagsstjóra rfkisins
Skipulagsstjóri ríkisins hefur úrskurðað sam-
kvæmt lögum nr. 63/1993 um mat á um-
hverfisáhrifum. Fallist er á, með skilyrðum,
lagningu Seyðisfjarðarvegar um Mjósund á
Fjarðarheiði. Úrskurðurinn er byggður á
frummatsskýrslu Vegagerðarinnar, umsögn-
um og svörum framkvæmdaaðila við þeim.
Úrskurðurinn í heild liggur frammi hjá Skipu-
lagi ríkisins, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Úrskurðinn er einnig að finna á heimasíðu
Skipulags ríkisins: http://www.islag.is
Úrskurð skipulagsstjóra ríkisins má kæra til
umhverfisráðherra innan fjögurra vikna frá
því að hann er birtur eða kynntur viðkom-
andi aðila.
Skipulagsstjóri ríkisins.
výsingar
Hallvcigarstíg 1 • sími 5G1 4330
Dagsferðir 14. júlí
1. Kl. 10.30 Leggjarbrjótur; forn
leið á milli Hvalfjarðar og Þing-
vallasveitar.
Verð kr. 1.400/1.600.
2. Kl. 10.30 Nytjaferð, 4. ferð;
Þingvellir. Te- og lækningajurt-
um safnaö undir handleiðslu
Kolbrúnar grasalæknis.
Verð kr. 1.400/1.600.
Ath. nýtt fyrirkomulag í dags-
ferðum: Miðasala hjá BSI og til-
kynnt um brottför inni í sal.
Helgarf erð 12.-14. júlí
kl. 20.00 Básar. Fjölbreyttar
gönguferðir um eina af fegurstu
náttúruperlum landsins.
Verð kr. 4.900/4.300.
Fimmvörðuháls í miðri
viku, 17.-18. júlí
kl. 8.00. Ein stórfenglegasta
gönguleið landsins. Hægt að
framlengja dvöl í Básum.