Morgunblaðið - 12.07.1996, Page 42
42 FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AFMÆLI
GUÐMUNDUR
EINARSSON
Guðmundur Einars-
son Klettsbúð, Hellis-
sandi er 100 ára í dag,
12. júlí.
Guðmundur fæddist
í Klettsbúð á Hellis-
sandi 12. júlí árið 1896.
Hann hóf ungur sjó-
mennsku, stundaði sjó-
róðra á árabátum fyrir
1920 með Ólafi Jóhann-
essyni og var til sjós
eftir að vélbátarnir
komu til sögunnar,
fyrst með Siguijóni
Kristjónssyni og Hirti
Jónssyni.
Guðmundur fór fyrst
að heiman 1920 er hann réði sig á
kútterinn Segul frá Reykjavík. Var
hann þar tvær vertíðir. Hann vann
til sjós og lands suður með sjó, í
Hafnarfirði og Siglufirði. Guðmund-
ur sneri svo aftur heim á Sand. Þar
tók hann virkan þátt í verkalýðsbar-
áttunni fyrir 1930 og var m.a. for-
maður verkalýðsfélagsins á Hellis-
sandi í 2 ár.
Stærstan hluta starfsævinnar
stundaði Guðmundur fiskvinnu. Þó
starfaði hann við Lóranstöðina á
Gufuskálum 1961-1973.
Á borgarafundi á Hellissandi 1946
bar Guðmundur upp tillögu um stofn-
un sparisjóðs á staðn-
um. Tillagan var sam-
þykkt og var Guðmund-
ur í stjóm Sparisjóðs
Hellissands í 25 ár.
Guðmundur er bók-
hneigður. Hann er hag-
yrðingur góður og hef-
ur gjarnan svarað fyrir
sig með hnyttinni
stöku. Gmnnt er á
kímninni og hefur hann
ávallt verið til í „smá-
hrekki“.
Foreldrar Guðmund-
ar voru Einar Hákonar-
son frá Hellu á Hellis-
sandi og Jónína Sigfríð-
ur Jónsdóttir frá Haga á Barða-
strönd. Guðmundur lifir systkini sín
öll en þau vom Hákon, Guðrún,
Snæbjörn, Þórunn, Anna og Einar.
Guðmundur hélt heimili í Kletts-
búð með móður sinni þar til hún
lést eftir langvarandi veikindi árið
1946. Eftir andlát hennar hélt hann
heimili með Snæbimi bróður sínum
til 1977.
Guðmundur býr nú á Hrafnistu í
Reykjavík. Hugur hans reikar gjarn-
an vestur og hefur hann, af miklum
áhuga, fylgst með atvinnu- og
mannlífinu þar.
Hrafnhildur Óskarsdóttir.
IHA PPDRÆTTI
ae p%
Vinningaskrá
10. útdráttur 11. júlí 1996
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
47922
Kr. 100.000
4103
Kr. 200.000 (tvöfaldur)
12748
58027
74881
Ferðavinningar
Kr, 50,000 í ír. 100.000 (tvöfaldu rj
3178 9229 12248 17991 47048 54131
7198 11005 15294 24546 48014 54173
Húsbúnaðarvinningar
93 13374 20705 31552 40948 50898 61806 69894
141 13440 21252 31989 41211 51810 61980 70183
324 13680 21626 32326 41407 51910 62216 70641
539 13766 22482 32341 41457 52451 62293 71160
900 14163 22589 32586 42335 52715 62603 71730
1043 14419 22645 32776 42466 52992 62817 71813
1832 15295 22972 33371 42614 53679 62849 71974
1953 16174 23081 33842 42657 54277 63256 72283
2305 16469 23355 34281 42800 54458 63366 72607
2634 16580 23837 34439 43060 55757 64005 72948
2891 16794 24012 34584 43731 56147 64157 73004
2917 16849 24981 34778 44425 56219 64495 73243
3551 17196 25072 35557 44494 56240 64657 73845
3936 17285 25270 36248 44545 56252 64777 74400
3962 17372 25314 36719 45516 56411 65148 75408
5248 17462 25625 37191 45566 56632 65298 75603
5686 18466 26107 37260 46549 56761 65367 76021
5771 18763 26451 37533 46626 56794 65896 76092
6206 18872 26665 37542 47424 56914 66027 76822
6267 18952 26851 37750 47611 57160 66182 76936
7726 19055 26993 38036 47679 57164 66191 77049
8242 19346 27435 38400 48185 57516 66307 77655
8816 19569 28050 38634 48552 57533 66744 78234
9392 19628 28778 38751 48632 58651 67531 79017
10727 19657 29110 39043 48663 59347 67903 79368
11218 19761 29137 39876 48832 59429 68557 79633
11877 20104 29573 40075 48964 60273 69345 79835
12201 20151 30803 40531 49397 60399 69359 79985
12458 20229 30928 40616 50033 61298 69604
13044 20463 31226 40931 50628 61312 69665
HcímHsíða á íntcmeti - http://www.itn.is/dns/
IDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
ÞakkirtilITR
MIG LANGAR að þakka
íþrótta- og tómstundaráði
Reykjavíkur fyrir að starf-
rækja brúðubílinn. Ungir
jafnt sem aldnir hafa gam-
an af brúðubílnum ogþetta
er þakkarvert framtak.
Edda
Gæludýr
Kettlingur
EINLITUR dökkur kettl-
ingur, u.þ.b. þriggja mán-
aða, er í óskilum í Smá-
íbúðahverfi. Upplýsingar í
síma 553-5796.
Páfagaukur fannst
BLÁR gára-páfagaukur
með grænni slikju á bringu
og svartdeplóttan gulan
kraga fannst við Árbæjar-
laug sl. þriðjudag. Kannist
einhver við fuglinn er hann
beðinn að hringja í síma
552-0815 eftir kl. 17.
Hvolpar þurfa
heimili
MJÖG fallega, sex vikna
gamla hvolpa vantar fyrir-
myndarheimili. Þeir eru af
íslenskum ættum. Uppl. í
síma 553-4532.
Tapað/fundið
Gleraugu töpuðust
GLERAUGU í gylltri,
mattri, þunnri umgjörð af
gerðinni Oliver’s people
töpuðust í Reykjavík um
miðjan maí. Brúin yfir nef-
ið gæti litið út eins og
fuglsvængur og á þeim
voru festingar fyrir sólgler
utan yfir sjónglerin. Sölu-
kona tapaðist þessum gler-
augum þannig að þau
gætu hafa týnst í einhverri
verslun eða söluturni. hafi
einhver fundið gleraugun
er hann beðinn að hringja
í síma 587-3949 eða vinnu-
síma 587-1038.
Föt í IKEA-poka
STÓR poki merktur IKEA,
fullur af fatnaði og skóm,
var skiiinn eftir á verönd
við Byggðarenda fyrir
nokkru. Sá sem á pokann
getur vitjað hans í síma
568-6706.
Hálsmen týndist
HÁLSMEN í svörtu ieður-
bandi, með sporöskjulaga
járnplötu og ör sem vísar
upp týndist í miðbænum á
17. júní. Aftan á jámplöt-
unni stendur „Warrior".
Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 551-8575.
Skjalatösku sárt
saknað
EF einhver hefur orðið var
við svarta skjalatösku sem
í eru gömul sendibréf og
ættfræðipappírar er sá
hinn sami vinsamlegast
beðinn um að hafa sam-
band við Dóru í síma
551-3160. Á fimmtudegin-
um fyrir hvltasunnuhelg-
ina var brotist inn í íbúð á
Frakkastíg og þar var tek-
ið sjónvarpstæki og um-
rædd taska. Þar sem engin
„verðmæti" voru í tösk-
unni gæti verið að henni
hefði verið fleygt einhvers
staðar. Eigandi saknar
innihalds töskunnar sárt
og er fólk því beðið að láta
vita ef taskan finnst.
SKÁK
IJmsjón Margeir
Pétursson
STÖÐUMYND
Svartur Ieikur og vinnur
STAÐAN kom upp á alþjóð-
legu móti í Malmö í Svíþjóð
í júní í viðureign tveggja
alþjóðlegra meistara. J.
Agrest (2.485), Rússlandi,
hafði hvítt, en Svíinn Johan
Hellsten (2.475) var með
svart og átti leik. Hvítur lék
síðast 40. Hcl-el? í erfiðri
stöðu.
40. — Bxh3! 41. gxh3 —
Hf3 42. He3 - Hxf2+ 43.
Kxf2 - Df5 44. a3 - Kh7
45. Rd3 — Ha8 og svartur
vann örugglega á liðs-
muninum. Lokastaðan á
mótinu varð þessi: 1.
Kortsnoj 7'A v., 2. Miles
6 ‘A v. 3. Curt Hansen 6 v.,
4. Pia Cramling 4‘/2
v., 5. Bellon, Spáni 4
v. 6—8. Agrest, Hellst-
en og Jonny Hector
3'/2 v., 9—10. Bator og
Ziegler 3 v.
Kortsnoj var mjög
sigursæll í Norður-
landaför sinni. Eftir
þetta hélt hann beint
yfir Eyrarsund til
Kaupmannahafnar og
sigraði á stóra opna
mótinu þar.
Víkverji skrifar...
GAMAN er að ferðast um eigið
land og ótalmargt sem at-
hyglivert er að skoða í rólegheitum.
Gefa meiri gaum en tími er oft til
í amstri dagsins.
Víkveiji ferðaðist um Austurland
á dögunum og þrátt fyrir að veðrið
væri ekki jafngott og Austfírðingar
eiga oft að venjast á þessum árs-
tíma var greinilega sól í sinni
heimamanna og gesta þeirra. Vík-
veiji var ákveðinn að njóta dvalar-
innar og þykka vetrarpeysan og
regnstakkurinn komu í góðar þarf-
ir. Hann mundi það gamla heilræði
að á stundum sem þessum væri
lykilatriði að láta veðrið ekki fara
í skapið á sér.
Víða er ákaflega fallegt fyrir
austan. Egilsstaðir eru t.d. mjög
fallegur bær og næsta nágrenni
hans einnig. Nægir þar að nefna
Hallormsstað og raunar Fljótsdal-
inn allan, sem Víkveija finnst ætíð
jafn-glæsileg sveit.
xxx
TVENNT finnst Víkveija
ástæða til að nefna sérstak-
lega varðandi Egilsstaði; nýja sund-
laug og Minjasafn Austurlands sem
komið er í nýtt og glæsilegt hús-
næði. Laugin er afar góð, bæði til
sunds og leikja og sérlega gaman
var að heimsækja safnið. Hæst ber
etv. beinin sem fundust í kumlinu
austur þar á síðastliðnum vetri en
margt annað forvitnilegra hluta er
að finna á safninu, sem er mjög
vel skipulagt, skemmtilega upp sett
og skilmerkilega merkt.
xxx
MJÓIFJÖRÐUR er eftirminni-
legur staður en varla mjög
fjölfarinn. Vegurinn þangað benti
að minnsta kosti ekki til þess! En
fjörðurinn er fallegur, og þangað
var gaman að koma. Líka að heim-
sækja Seyðisfjörð; þar er mjög
snyrtilegt og greinilega mikið lagt
upp úr að hafa bæinn hreinan.
Enda eins gott: fyrstu spor fjöl-
margra útlendinga hérlendis eru
einmitt stigin í bænum, eftir að
feijan Norræna leggur að landi.
xxx
ALSVERT er af hjólreiðafólki
á vegunum. Víkveiji hitti einn
íslenskan fyrir austan, sem sagðist
hafa verið í um það bil mánuð í
hjóltúr um landið. Áðspurður kvaðst
hann engan landa hafa hitt sem
ferðaðist á sama máta enda væri
hann ávallt ávarpaður á þýsku þeg-
ar aðrir hjólreiðagarpar mættu hon-
um. Langflestir sem ferðuðust með
þessum hætti um landið væru Þjóð-
veijar og Austurríkismenn, og íjóð-
veijar teldu sig hreinlega „eiga“
þennan ferðamáta hérlendis.
xxx
LÍTILRÆÐI sem vert er að
benda ferðafólki á er skúr við
veginn út Hérað skammt utan Eg-
ilsstaða, nokkurn veginn á mótum
Eiðaþinghár og Hjaltastaðaþing-
hár. Þar dvaldi Jóhannes S. Kjarval
eitthvað á hveiju sumri á árunum
1948-1968; hafði þar bækistöð er
hann vann að listsköpun sinni í
grenndinni. Skúrinn er merktur
þannig að hann ætti ekki að fara
fram hjá neinum. Og fjallasýnin er
fögur þannig að ekki þarf að undra
að Kjarval hafi dvalið þarna.
xxx
PETRA Sveinsdóttir á Stöðvar-
firði er kona sem líklega hefur
ekki verið mikið í sviðsljósinu, en
gaman var að heimsækja. Hún hef-
ur í áratugi safnað steinum, aðal-
lega á Austurlandi, og komið fyrir
glæsilegu safni á heimili sínu. Safni
hennar verður vart með orðum lýst
en berlega kom í ljós eftir að hafa
gengið um hús hennar og garð að
gijót er ekki bara gijót. Óhætt er
að hvetja alla sem eiga leið um að
láta ekki hjá líða að sækja Petru
heim, þar er margt sem kemur á
óvart og eflaust margir sem verða
hissa að sjá hvers konar dýrgripir
leynast í íslenskri náttúru.
EGAR sunnar dregur er líka
margt að sjá; fjöllin og foss-
ana og jöklana, klettadrangana og
eyjarnar. Talsvert var af fólki víð-
ast hvar sem Víkveiji stoppaði,
hvort sem það var í Almannaskarði
- þar sem sér yfir Höfn í Horna-
firði og jöklana - við Jökulsárlón,
í Skaftafelli, við Reynisdranga og
Dyrhólaey, _ Skógafoss eða Selja-
landsfoss. Útlendingar voru greini-
lega í meirihluta og þeir sem Vík-
veiji ræddi við voru stórhrifnir og
sumir höfðu verið á ferðinni á þess-
um slóðum áður. Enda er ísland
glæsilegur staður, en jafnframt við-
kvæmur og því mikilvægt að gæta
hans og fara vel með. Um það sann-
færðist Víkveiji enn einu sinni í
þessari ferð.
xxx
KUNNINGI Víkveija, mikill
KR-ingur, hefur oft verið orð-
inn heldur framlágur á þessum árs-
tíma síðasta áratuginn eftir mikla
hamingjutíð að vori og fram á mitt
sumar. Nú iðar hann hins vegar í
skinninu af spenningi yfir því hvort
„hans menn“ ná að halda sínu striki
og verða íslandsmeistarar í knatt-
spyrnu karla í fyrsta skipti frá
1968, og hefur í fyrsta skipti í lang-
an tíma trú á því fyrir alvöru að
það geti gerst.
Víst er að KR-liðið hefur leikið
mjög vel í sumar - best allra liða í
1. deild í sumar að mati margra
og m.a. þriggja þjálfara í deildinni
sem rætt var við í blaðinu í gær.
Þeir bentu hins vegar á að ekki
mætti afskrifa Islandsmeistara
Skagamanna sem eru í efsta sæti
eins og er þrátt fyrir að hafa ekki
leikið eins vel og oft áður. Það er
því skemmtileg tilviljun að í síðustu
umferð íslandsmótsins í ár mætast
ÍA og KR á Akranesi. Þar gæti
orðið fjörugt ef svo fer sem horfir
og einvígi liðanna um meistaratitil-
inn heldur áfram!