Morgunblaðið - 12.07.1996, Síða 52
Jíem£d
-setur brag á sérhvern dag!
HEIMILISLÍ NAN
- Heildarlausn ájjármálum
einstaklinga
0 BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
MORGUNBIAÐIÐ, KKINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Flug Flugleiða og þýska flugfélagsins LTU til Hamborgar
ÞÝSKA flugfélagið LTU býður mun
ódýrari flugfargjöld milli Islands og
Þýskalands í sumar en Flugleiðir.
Á leiðinni til Hamborgar er verð-
munur milli flugfélaganna í mörgum
tilfellum yfir 50%. Þannig kostar
apex-fargjald með flugvallarskatti
fyrir fullorðna 22.700 krónur með
LTU, en 46.430 krónur hjá Flugleið-
um. Apex-fargjöld þarf að bóka með
minnst viku fyrirvara og þau gilda
í einn mánuð. Farþegar Flugleiða
sem kaupa slíkan miða þurfa að gista
aðfaranótt sunnudags, en hjá LTU
þarf að gista minnst sjö daga.
Mestur verðmunur er á fargjöldum
fyrir ungt fólk, ríflega 60%. Hjá LTU
býðst apex-flugmiði fyrir 12 til 21 árs
á 17.450 krónur og pex-miði þar sem
bókunarfyrirvari er enginn 26.450.
Hjá Flugleiðum kostar hoppfargjald
44.130 krónur, sem er ódýrasti farmið-
Allt að 60%
verðmunur
inn sem býðst ungu fólki innan við
25 ára aldur. Hámarksdvöl er eitt ár
en lágmarksdvöl er engin og ekki er
hægt að bóka far með meira en viku
fyrirvara. Helmings afsláttur býðst 12
til 18 ára unglingum hjá Flugieiðum
sem ferðast með einhveijum á apex-
fargjaldi.
LTU, sem er næst stærsta flug-
félag Þýskalands, flýgur áætlun-
arferðir vikulega milli íslands og
þriggja borga; Hamborgar, Miinchen
og Diisseldorf. Áætlunarferðum
LTU-flugfélagsins hingað til lands
lýkur 16. september.
Samvinna um ferðir
Hamborg er eini áfangastaðurinn
þar sem LTU og Flugleiðir eru í beinni
samkeppni. Guðrún Harðardóttir á
söludeild utanlandsdeildar Ferðaskrif-
stofu Austurlands, sem er umboðsað-
ili LTU, segir að flugi flugfélagsins
til Hamborgar verði hætt frá 6. ág-
úst vegna lélegrar sætanýtingar. „Um
hálfgert tilraunaflug var að ræða en
LTU jók í vor sætaframboð um 400
milli landanna frá því í fyrra. Auk
þess hefur slæmt efnahagsástand í
Þýskalandi haft sitt að segja.“
Áfangastaðir Flugleiða í Þýska-
landi eru auk Hamborgar, Berlín,
Miinchen og Frankfurt. Flugfélögin
tvö eiga í samvinnu um flug til
Munchen og Berlínar.
Símon Pálsson, markaðsstjóri
Flugleiða, segir farmiðasölu til
Þýskalands hafa gengið vel að und-
anförnu. „Við sjáum því ekki ástæðu
til að lækka fargjöldin í bráð. Hins
vegar verðum við með margs konar
tilboð á ferðum í haust, meðal ann-
ars til Halifax, Boston, Amsterdam,
Glasgow og fleiri borga.“
Héraðsdómur Reykjavíkur í máli lyfsala á Siglufirði
Ríkissjóður kaupi
apótek og lyfsalaíbúð
HERAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur dæmt að ríkissjóði sé skylt að
kaupa húsnæði Siglufjarðarapöteks
og íbúð lyfsala, innréttingar, lyija-
búðaráhöld og lyfjabirgðir apóteks-
ins, eins og þær eru þegar afhending
fer fram. Þá var ríkissjóði jafnframt
gert að greiða lyfsalanum, Ástu Júl-
íu Kristjánsdóttur, 500 þúsund krón-
ur í málskostnað.
Ásta Júlía lagði lyfsöluleyfi sitt
inn í febrúar og kvaðst þá vera til-
neydd til að gera það því hún hefði
keypt apótekið og þær eignir, sem
því fylgdu, á um það bil fimm millj-
ónir yfir markaðsverði, miðað við
markaðsverð fasteigna á Siglufirði.
Kaupverð eignanna, þegar Ásta Júl-
ía tók við þeim í apríl 1994, var
rúmar 12 milljónir króna. Ásta Júlía
vísaði til þess að áður hefði það
kerfi verið við lýði, að ef eitthvert
apótek seldist ekki, bæri lyfsölusjóði
að kaupa það upp. Með nýju lyfsölu-
lögunum væri þessari verðtryggingu
skyndilega kippt út.
Höfðaði Ásta Júlía mál til að fá
staðfestingu á því að ríkissjóði væri
skylt að leysa til sín eignirnar, þar
sem enginn hefði sótt um lyfsölu-
leyfi hennar. Af hálfu ríkisins var
þessu hafnað, þar sem lyfsölusjóður
hafi verið lagður niður frá 1. júní
1995.
Önnur lagaákvæði
enn í fullu gildi
í dóminum segir, að þrátt fyrir
að felld væru niður ákvæði um lyf-
sölusjóð hefðu enn verið '\ gildi lög
um lyfjadreifingu, þegar Ásta Júlía
lagði inn leyfi sitt, þar sem sagði í
6. málsgrein 3. greinar að þegar
enginn sækti um tiltekin lyfsöluleyfi
væri lyfsölusjóði skylt að kaupa við-
komandi lyfjabúð og annast rekstur
hennar með þeim réttindum og
skyldum er því fylgdi samkvæmt
lögunum. Einnig hefði 11. grein lag-
anna verið í gildi, en í 1. málsgrein
hennar var þeim lyfsala, sem tók
við rekstri, gert skylt að kaupa vöru-
birgðir og 2. málsgrein kvað á um
skyldu til að kaupa húseign lyfjabúð-
arinnar og íbúð lyfsala. Þrátt fyrir
að kafli um lyfsölusjóð í lyfjalögum
hefði fallið úr gildi 1. júní 1995 hefði
það ekki haft áhrif á þessa tilhögun,
enda ný ákvæði ekki tekið gildi fyrr
en 1. mars 1996.
Ekkí rök fyrir að
leggja sjóðinn niður
Dómurinn segir að telja verði að
ekki hafí verið rök fyrir því að leggja
lyfsölusjóð niður á meðan hann hafði
enn hlutverki að gegna. Jafnframt
er vísað til þess, að náist ekki sam-
komulag um kaupverð skuli gerðar-
dómur úrskurða í málinu.
Sigríður Ingvarsdóttir, héraðs-
dómari, kvað upp dóminn.
Tólf ára drengur bjargar yngri bróður sínum frá driikknnn
I sumarút-
söluskapi
SUMARÚTSÖLUR hófust í
mörgum verzlunum í Kringlunni
í gær. Víða var heldur betur
handagangur í öskjunni þar sem
ötulir neytendur bitust um beztu
bitana. Drengurinn á myndinni
virðist hafa fundið bol, sem hann
telur fara sér — og á hálfvirði.
Morgunblaðið/Ásdís
„Ósjálfráð viðbrögð“
Siglufirði. Morgunblaðið.
ÞAÐ var fyrir snarræði tólf ára
drengs, Sigurjóns Ásgeirssonar,
að ekki fór verr þegar yngri
bróðir hans, Guðni Brynjólfur,
tveggja og hálfs árs, var hætt
kominn í Langeyrarljörn í Siglu-
firði, sem er skammt frá heimili
þeirra bræðra.
Sigurjón var inni við er móðir
drengjanna, Erla Gunnlaugs-
dóttir, kom inn og bað hann að
taka við og líta eftir Guðna, en
Sigurður er í vist hjá mömmu
sinni við að passa litla bróður.
Ekki liðu nema um það bil tvær
mínútur þar til Sigurjón kom út.
Þá sá hann að Guðni var kominn
út að tjörninni. Sigurjón kallaði
í hann, en í einhverjum ærsla-
gangi óð Guðni litli út í og eftir
að hafa vaðið aðeins tvö til þrjú
skref, kom hann á aukið dýpi.
Guðni flaut frá landi á meðan
loft var í fötunum, en sökk síðan
og snerist þá á grúfu, svo andlit-
ið var undir vatni. Siguijón sá
þetta gerast á hlaupunum, óð út
í vatnið upp að mitti og náði að
teygja sig í bróður sinn. Þrátt
fyrir að Guðni hafi verið holdvot-
ur og mjög kaldur þegar hann
var dreginn upp úr vatninu, varð
honum ekki meint af volkinu og
sagði hann fréttaritara Morgun-
blaðsins á Siglufirði að stóra
vatnið tæki litla stráka.
Sigurjón sagðist eiginlega
ekkert hafa hugsað á meðan at-
burðirnir áttu sér stað. „Þetta
voru bara ósjálfráð viðbrögð, en
sjokkið kom eftir á.“
Erla, móðir drengjanna, setti
sig strax í samband við bæjar-
sljóra og bað um að girðing yrði
sett upp við vatnið, þar sem íbúð-
arhúsin eru skammt undan, enda
er þetta ekki I fyrsta sinn sem
slys af þessu tagi á sér stað
þarna. Þegar er hafin smíði nýs
grindverks. Sigurjón sagðist
verða feginn þegar girðingin
yrði komin upp, því hann vildi
ekki lenda í þessu aftur.
Morgunblaðið/Sigriður Ingvarsdóttir
Starfsmenn
Landmælinga
Hyggjast
hnekkja
ákvörðun
ráðherra
STARFSMENN Landmælinga
íslands hafa ákveðið að ein-
beita sér að því að reyna að
hnekkja ákvörðun umhverfís-
ráðherra um að flytja stofnun-
ina til Akraness. Jafnframt
ætla þeir fyrst um sinn að
leggja til hliðar álitaefni um
réttindi opinberra starfsmanna
við flutning ríkisstofnana.
Hrafnhildur Brynjólfsdóttir
talsmaður starfsmanna segir,
að á fundi með fulltrúum stétt-
arfélaga sinna hafi verið ákveð-
ið að knýja fram rökstuðning
ráðuneytisins fyrir ákvörðun
sinni, fara fram á fund með
þingmönnum og borgarfulltrú-
um í haust og óska eftir laga-
áliti laganefnda BHMR og
BSRB.
Sérstök áhersla verður lögð
á að safna gögnum um reynslu
af flutningi systurstofnana
Landmælinga í Noregi og Sví-
þjóð. Hrafnhildur segir að þá
hafi komið upp margvísleg
vandamál og ókostir við flutn-
ing hafi verið fjölmargir. í ljósi
þeirrar reynslu hafi Danir
t.a.m. ákveðið að hætta við
áform um flutning kortagerð-
arstofnunar sinnar.
■ Markmið starfsmanna/4
*
Islendinga-
sögurnar á
geisladiski
GEISLADISKUR með öllum ís-
lendingasögunum og orðstöðu-
lykli var afhentur forseta ís-
lands, frú Vigdísi Finnbogadótt-
ur, við hátíðiega athöfn á Bessa-
stöðum í gær.
Hópur fræðimanna við Há-
skóla íslands vann orðstöðulykil-
inn, en texti sagnanna er að
stofni til sá sem prentaður var
í íslendingasagnaútgáfu Svarts
á hvítu fyrir um tíu árum. Bóka-
forlag Máls og menningar gefur
geisladiskinn út.
■ Fyrsti geisladiskurinn/20