Morgunblaðið - 23.07.1996, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUÍXENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNÁRSTRÆTI 86
ÞRIÐJUDAGUR 23. JULI1996
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
Sjúkrahús
Patreksfjarðar
Þinginenn
beðnir um
fund
ÞINGMENN Vestfjarðakjördæmis
munu eiga fund með stjórn Sjúkra-
húss Patreksfjarðar kl. 14 í dag.
Steindór Ögmundsson, stjórnarfor-
maður sjúkrahússins, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að stjórnin
hefði farið þess á leit við þingmenn
kjördæmisins að þeir ættu slíkan
fund með henni. „Ég ætla að vona
að þeir komi allir, því þetta er mikið
alvörumál," sagði Steindór.
Steindór sagði óráðið hvort fyrir-
^^hugaður stjómarfundur Sjúkrahúss
'"Patreksfjarðar yrði haldinn í dag.
Enn væri beðið eftir endurskoðuðum
ársreikningum sjúkrahússins fyrir
árið 1995. Fyrir stjórninni liggja til-
lögur um breytingar á rekstri sjúkra-
hússins, en viðvarandi halli hefur
verið á rekstri þess í tvö ár. Af hálfu
heilbrigðisráðuneytisins er þrýst á
stjórnina að taka afstöðu til tillagn-
anna sem fyrst.
....-------
66% af
kostnað-
aráætlun
Morgunblaðið/Sverrir
í afmælisskapi
ÞÆR voru í sannkölluðu af-
mælisskapi hnátumar tvær á
Þórshöfn nú um helgina, enda
var verið að halda upp á 150
ára verslunarafmæli Þórshafn-
ar og við sama tækifæri var
nýr flugvöllur Þórshafnar
vígður. Fyrsti farþeginn sem
lenti á vellinum var Vigdís
Finnbogadóttir, forseti Ís-
lands, en hún var jafnframt í
sinni síðustu embættisferð.
■ Súrt og sætt/26
Neyslukönnun Félagsvísindastofnunar HÍ
43,7%faraífrí
til útlanda
43,7% AÐSPURÐRA í nýrri
neyslukönnun Félagsvísndastofn-
unar Háskóla íslands sögðust hafa
farið í frí til útlanda á sl. 12 mán-
uðum. í eina ferð fóru 31,1%, í
tvær ferðir fóru 8,3% og 4,3% fóru
í þijár ferðir eða fleiri. í úrtakinu
voru 1200 manns á aldrinum
14-80 ára. Könnunin var send út
til um 1.200 manns og bárust svör
frá 882, sem er heldur minna en
í fyrri könnunum.
Margir til Bretlands
Af þeim sem fóru í frí til út-
landa fóru 38,4% á tímabilinu maí
til september 1995, 25,6% fóru á
tímabilinu október til nóvember
1995, 9,9% í desember til janúar
1996, 10,4% í febrúar til mars og
15,7% á tímabilinu apríl til maí
1996. Flestir fóru til Bretlands eða
írlands, eða 25,3%. Til Norður-
landa fóru 20,7%, til Spánar
12,8%, til annarra Evrópulanda
fóru 12,2% og 8,8% fóru til Banda-
ríkjanna.
Flestir í heimsókn
Tilgangur ferðarinnar var heim-
sókn í 24,3% tilfella, 19,5% fóru
í stórborgarferð, 19,4% fóru í sól-
arlandaferð og 15,7% fóru í versl-
unarferð. í skipulagða hópferð
fóru 38,9%, en 59,4% fóru á eigin
vegum, og hjá 1,7% var um hvort
tveggja að ræða. Ferðin var keypt
hjá Flugleiðum í 30,8% tilfella, hjá
Samvinnuferðum-Landsýn keyptu
30,3% ferðina og 15,9% keyptu
ferðina hjá Úrval/Útsýn.
38,9% tók þátt í skipulagðri
hópferð en 59,4% ferðuðust á eig-
in vegum.
Klakkur á leið
í Smuguna
Viðgerð-
armenn
TILBOÐ í fyrsta áfanga vegtengingar
Hvalfjarðarganga, hringveg og Akra-
fjallsveg, voru opnuð hjá Vegagerð-
inni í gær. Lægsta tilboð í verkið
átti Ræktunarsamband Flóa og
Skeiða, 323 milljónir króna eða tæp
66% af kostnaðaráætlun sem hljóðaði
upp á rúmar 489,6 milljónir króna.
Frávikstilboð Borgarverks ehf.
nam 336,421 mkr., tilboð Háfells
ehf. og Loftorku, Reykjavík, 377
mkr., tilboð Valar hf. 382,128 mkr.,
tilboð Ingileifs Jónssonar á Svína-
vatni rúmum 383 mkr., tilboð Borg-
arverks ehf., Borgarnesi, rúmum 392
mkr., tilboð ístaks hf. rúmum 402,5
mkr., tilboð Suðurverks hf. á Hvols-
velli og Klæðningar í Hafnarfirði
418,8 mkr., frávikstilboð Skóflunnar
hf., Akureyri, og Jónasar Guðmunds-
sonar, Bjarteyjarsandi, rúmum 451
mkr., tilboð sömu aðila tæpum 473
mkr. og tilboð JVJ í Hafnarfirði
tæplega 554,7 mkr.
Eitt skip á rækju
við Svalbarða
JÓHANN A. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar, segist gera ráð fyrir
að útgerð hans sendi skip til rækju-
veiða á Svalbarðasvæðinu og nýti
þannig heimild í nýrri reglugerð
Norðmanna fyrir eitt íslenzkt skip
að stunda veiðar við Svalbarða.
Skip hraðfrystistöðvarinnar, Stak-
fell, hefur eitt íslenzkra skipa gert
tilraun til að veiða þar rækju.
Rækjuveiði á Svalbarðasvæðinu
hefur ekki verið háð takmörkunum
til þessa. Nú taka Norðmenn hins
vegar upp kerfi, sem þeir segja
sniðið eftir sóknarstýringarkerfi,
sem viðhaft er við rækjuveiðar á
Flæmska hattinum; hveiju ríki sem
rétt hefur til veiða er úthiutað
ákveðnum fjölda skipa, sem mega
veiða á svæðinu hveiju sinni.
Sveinn Hjörtur Hjartarson, hag-
fræðingur Landssambands ís-
lenzkra útvegsmanna, segir að ís-
lenzkir útgerðarmenn hafi að und-
anförnu haft í huga að brygðist
þorskveiði í Barentshafi væri mögu-
leiki að reyna fyrir sér á rækju við
Svalbarða. „Það er engin spurning
að Norðmenn hafa flýtt sér að gera
þetta vegna þess að þeir hafa ótt-
azt að við færum að reyna fyrir
okkur í rækju ef þorskurinn brygð-
ist,“ segir Sveinn Hjörtur.
■ Smugu Iokað/6
fóru um
borð
Morg'unblaðið/Valdimar Kristinsson
Seinni sláttur hafínn
á Suðurlandi
HEYSKAPUR er yfirleitt vel
á veg kominn á landinu að
sögn Olafs Dýrmundssonar
landnýtingarráðunauts hjá
Bændasamtökunum. Sums
staðar, sérstaklega á Suður-
landi, eru bændur góðum
hálfum mánuði á undan og
aðeins farið að slá seinni
slátt.
Sagðist Ólafur ekki muna
eftir því að byrjað hafi verið
svo snemma á seinni slætti.
Margir væru búnir með fyrri
slátt og væri heyfengur mjög
góður það sem komið væri,
bæði að magni og gæðum. Á
Norðurlandi væri ástandið
gott þótt bændur þar væru
skemur á veg komnir með
heyskapinn.
Bændurnir á Heiði í Bisk-
upstungum, þeir Sigurður
Þorsteinsson og sonur hans,
Brynjar, hófu seinni slátt um
helgina en þeir höfðu lokið
fyrri slætti fyrir viku. Heyj-
uðu þeir á 110 hekturum en
gerðu ráð fyrir að taka fyrir
20 hektara í seinni slætti.
Heyin eru mikil og góð að
sögn Sigurðar, líklega aldrei
verið svona góður heyskapur
fyrr á Heiði.
VIÐGERÐARMENN frá Fiskiðj-
unni Skagfirðingi hf., útgerð
togarans Klakks frá Grundarfirði,
fóru um borð í skipið um helgina
þar sem það lá fyrir utan fjögurra
mílna lögsögu Noregs og gerðu
við bilun í spili skipsins, en skip-
inu hafði verið meinað að koma
til hafnar í Tromsö til að fá gert
við bilunina. Ingimar Jónsson,
fjármálastjóri Fiskiðjunnar Skag-
firðings, vildi í samtali við Morg-
unblaðið ekki greina frá því með
hvaða hætti viðgerðarmennirnir
komust út í skipið né hvenær
viðgerðin hefði farið fram.
Klakkur er á nýjan leik farinn
til veiða í Smugunni þar sem
skipið hefur verið við veiðar að
undanförnu.
„Sérfræðingar á okkar vegum
fóru til Noregs og fóru um borð
í skipið og ásamt vélstjórum skips-
ins gerðu við það sem aflaga hafði
farið, en viðgerðin tók nokkrar
klukkustundir. Eg get í sjálfu sér
ekkert sagt um það hvaðan þeir
fóru um borð eða hvernig,“ sagði
Ingimar.
íslenskum skipum fjölgar
í Smugunni
Hann sagði að aldrei hefði feng-
ist heimild fyrir Klakk til að koma
að landi og fljótlega eftir að bilun-
in hefði komið í ljós hefði verið
búið að skipuleggja ferð viðgerðar-
manna héðan til Noregs.
íslenskum skipum í Smugunni
fer fjölgandi og sagði Ingimar
ástæðu til að búast við því að
einhver skipanna ættu eftir að
bila eða lenda í öðrum vandræð-
um.