Morgunblaðið - 08.08.1996, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1996 9
____________FRETTIR_________
Búddistar sækja um lóð
fyrir musteri í Reykjavík
Morgunblaðið/Ásdís
DHAMMANANDO Bhikkhu, búddamunkur á íslandi.
BÚDDISTAFÉLAG Reykjavíkur
hefur sótt um lóð undir musteri í
borginni. I erindi sem sent var til
borgarráðs er spurt hvort áhugi
sé á að slík bygging verði reist í
Reykjavík og þá hvar hugsanlegir
byggingastaðir séu. Dhamman-
ando Bhikkhu, búddamunkur á
íslandi, segir að fyrirspurnin komi
í kjölfar heimsóknar systur Tæ-
landskonungs til íslands í sumar.
„Menn í fylgdarliði drottningar
hvöttu til þess að hér yrði reist
musteri. Tælendingar hafa stutt
slíkar byggingar víða erlendis og
þeir lofuðu stuðningi við okkur.
Útibú flugfélagsins SAS í Bang-
kok fylgist líka með og mun hugs-
anlega aðstoða okkur.“ Dhamm-
anando hefur safnað fé og fyrir-
heitum síðastliðið ár. Lítið hefur
enn safnast af peningum en ýmis
félög Búddatrúarmanna í Evrópu
hafa sýnt málinu áhuga.
Musterið myndi þjóna 242 með-
limum Búddistafélags íslands og
öðrum þeim sem áhuga hafa á
Búddatrú. Flestir hinna trúuðu eru
Tælendingar og Víetnamar en
Dhammanando telur ekki útilokað
að áhugi Islendinga myndi aukast
ef af musterisbyggingunni yrði.
Hingað til hefur hann aðeins haft
aðstöðu í húsnæði fyrir nýbúa í
Faxafeni 12 í Reykjavík.
Flókið að byggja
á Islandi
Dhammanando segir að það sé
ólíkt flóknara að byggja musteri
hér og annars staðar í Evrópu en
í Tælandi. „Þar er einfaldlega
byijað að grafa strax og safnast
hefur fyrir fyrsta sementspokan-
um. Hér þarf allt að fara fyrir
skipulagsnefndir og ýmsar stofn-
anir.“
Flest musteri Búddatrúar-
manna í Evrópu eru venjuleg íbúð-
arhús sem eru löguð að hlutverk-
inu. í London er hús sem sérstak-
lega var reist í þessum tilgangi
þannig að sennilega yrði íslenska
Sumarleikur
1996
Vinningsnúmerið
þann 6. ágúst var:
13812
)
musterið annað í röðinni af slíkum
byggingum í Evrópu. Upphaflegar
fyrirætlanir gerðu ráð fyrir um
150 fermetra húsi en nú er gert
ráð fyrir að það verði nokkru
stærra.
UTSALA
HEFST Á MORGUN
B O G N E R
sérverslun v/Óðinstorg, sími 552 5177
Andorra Við bjóðum þér í -| rQ-éstt
afmæli
10% afsláttur
af öllum vörum
í dag og á morgun
Ný haustsending
frá Daniel D.
TESS
t neö
neðst við
Dunhaga,
sími 562 2230
Opið virka daga
kl.9-18,
laugardaga
kl. 10-14.
Lokað í dag.
— Opnum —
á morgun.
Úrval af nýjum vörum.
Blu di blu'
Laugavegi 83 - Sími S62 3244
b-young- CHOISE* Cindelella
PrdnuJsitufuUr&f SfPan*rt4$r itiimi */»