Morgunblaðið - 08.08.1996, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1996 11
FRÉTTIR
Lögregla leggur stöðugt hald á meira magn af eiturlyfjunum amfetamíni og e-pillu
3,1 kílóaf
amfeta-
míni tek-
ið fyrri
hluta árs
ÞRÓUNIN sem orðið hefur á neyslu
fíkniefna hérlendis endurspeglast í
því magni sem lögregla leggur hald
á af efnunum. í yfirliti, sem lögregl-
an í Reykjavík hefur tekið saman,
kemur fram að hald hefur verið lagt
á aukið magn amfetamíns og e-pillu
undanfarin ár.
Ólafur Guðmundsson, hjá for-
varnadeild lögreglunnar í Reykja-
vík, varar þó við því að draga of
miklar ályktanir af tölum tveggja
til þriggja síðustu ára, horfa verði
á fleiri ár saman til að hægt sé að
ráða marktækt í breytingar.
Tölurnar í meðfylgjandi töflu
segja til um stærstan hluta þeirra
fíkniefna sem hald hefur verið lagt
á í landinu síðustu 16 árin, sam-
kvæmt skráningu Fíkniefnadeildar
lögreglunnar í Reykjavík. Ekki er
um tæmandi yfirlit að ræða vegna
þess að ekki senda öll lögregluemb-
ætti landsins upplýsingar um hald-
lagningar til fíkniefnadeildarinnar í
Reykjavík.
Að sögn Ólafs Guðmundssonar
finnst stærstur hluti ólöglegra fíkni-
efna við tollskoðanir í Leifsstöð og
í skipum sem hingað koma frá öðr-
um löndum. Það liggur í hlutarins
eðli að þá finnast einnig stærstu
skammtarnir. Yfirleitt er búið að
búta sendingarnar niður í neyslu-
eða söluskammta þegar efni finnast
á götunni eða við húsleitir.
Heróín vofir yfir
í töflunni sést að tvö grömm af
heróíni hafi fundist árið 1993 en
hvorki fyrr né síðar. Ólafur Guð-
mundsson segir skýringuna liggja
að hluta til í því að þeir sem háðir
séu heróíni verði að fá sinn skammt
á nokkurra klukkustunda fresti,
annars verði þeir fárveikir. Markað-
urinn hériendis sé of lítill til að
hægt sé að halda uppi stöðugu fram-
boði þannig að þeir íslendingar sem
háðir séu efninu séu þvi annaðhvort
erlendis eða þeir fara í meðferð.
Hann telur hins vegar hættuna á
aukinni heróínneysiu vofa yfir, þrátt
fyrir að efnið sé mjög dýrt, vegna
þess að amfetamínneysla hefur auk-
ist og þeir sem sprauti sig með
amfetamíni séu margir hveijir mjög
móttækilegir fyrir heróíni og tilbún-
ir til að skipta yfir í neyslu þess.
Þá segir Ólafur haldlagninga-' á
heróín hafa aukist í öllum löndum
í kringum okkur.
Alþýðuflokkurinn í
Hafnarfirði
Fulltrúaráð
fundar 15.
ágúst
STJÓRN fulltrúaráðs Alþýðuflokks
Hafnarfjarðar hefur ákveðið að boða
til fundar í ráðinu þann 15. ágúst
næst komandi.
Jóna Ósk Guðjónsdóttir, formað-
ur fulltrúaráðs Alþýðuflokksins,
segist reikna með að staða bæjar-
mála verði almennt rædd og vænt-
anlega verði rætt um framhald
meirihlutasamstarfs við Jóhann G.
Bergþórsson í bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar.
Þau félög sem eiga aðild að Full-
trúaráði Alþýðuflokksins eru Al-
þýðuflokksfélag Hafnarfjarðar,
Kvenfélag Alþýðuflokksins og Félag
ungra jafnaðarmanna.
Olögleg fíkniefni sem yfirvöld hafa lagt hald á síðastliðin 16 ár
FÍKNIEFNI
1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996
Hass, arömm 5.283 6.059 21.096 7.089 8.906 10.383 14.916 19.170 9.321 6.760 5.167 20.650 17.699 20.235 10.933 2.299
Marijúana, grömm 2.766 189.070 3.329 65 574 273 236 55 48 74 94 332 86 93 305 549
Hassolía, grömm 32 342 295 430 0 0 963 105 4 0 8 0 42 0 0 0
Kannabisfræ, grömm 0 0 0 0 0 0 30 10 6 43 50 1 69 6 491 101
Kannabisplöntur, stk. 15 57 0 112 27 0 16 31 13 15 40 36 53 109 221 65
Amfetamín, grömm 51 74 624 1.348 970 1.698 365 640 198 199 1.563 1.638 3.375 783 5.146 3.121
Amfetamíntöflur, stk. (la/dar með amfetamíni til 1995) 808
E-töflur, stykki 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 8 1 22 1.820 59
Kókaín, grömm 5 7 26 19 24 8 534 100 747 206 206 1.295 14 317 143 32
LSD-skammtar, stykki 0 4 0 775 2.223 2 0 6 694 58 5 91 69 369 11 231
Heróín, grömm 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 2 0 0 0
Sveppir, grömm 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 91 144 743 813 158 47
Lvf, stk. 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 4.196 357 1.235 16.232 47.644 631
Sterar, stk (taldirmeð lyfjum til 1995) 62
HABITAT
UTSALAW 1
£R HAFIN
10-jo% afsláHur
af útsó'l'uvó'ruin
>ú átl erin<íi í
Laugavegi 13 Sími 562 5870
þar sem hönnun o? ha^kvæmni haldast hönd í hönd
- kjarni málsins!