Morgunblaðið - 08.08.1996, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1996 13
LANDIÐ
Brautryðjendur hittast
Kirkjubæjarklaustri - Það var
sögulegur fundur haldinn á hjúkr-
unarheimilinu Klausturhólum á
Kirkjubæjarklaustri nú í vikunni.
En þar hittust 6 menn sem héldu
upp á það að nú eru 50 ár liðin
frá því að þeir, ásamt nokkrum
öðrum, gerðu fyrstu bílslóðina á
Fjallabaksvegi nyrðri.
Þetta voru þeir Guðmundur
Sveinsson, Gísli Sveinsson, Jón
Björnsson, Karl Magnússon, Páll
Sveinsson og Bergur Lárusson
sem nú er vistmaður á Klaustur-
hólum og því var tilvalið að hitt-
ast þar.
Það var ekki að tilhlutan yfir-
valda að þeir lögðu þetta þrekvirki
á sig fyrir 50 árum, heldur hug-
sjón og framsýni. Það voru 2 hóp-
ar sem störfuðu, annar byijaði
vestan frá en hinn að austan og
eftir meira en sólarhring samfelld-
an vinnutíma hittust hóparnir rétt
fyrir framan Eldgjá.
Á þessum tíma var tæknin ekki
mikil, járnkarlar, hakar og skóflur
voru aðal tækin. Að sögn eins leið-
angursmannanna, Jóns Björnsson-
ar þurftu þeir meðal annars að
höggva inn í berg og hlaða garð
út í vatn, allt að hálfa bílbreidd,
þar sem verst var. Má geta nærri
að þar hefur verið erfitt verk að
vinna enda sagði Jón að það hefði
verið betra en moka upp úr gil-
skorningum.
Það voru þreyttir en ánægðir
menn sem fyrir hálfri öld, komu
niður að Búlandi eftir tveggja
sólarhringa vökur við erfið störf.
Bílstjórar í þessari ferð voru
vestan frá Guðmundur Sveinsson
og Bergur Lárusson en að austan
komu Jón Björnsson og Gísli Sig-
urðsson.
Þeir sem nú aka Fjallabaksveg
nyrðri geta m.a. þakkað þessum
frumkvöðlum að þessi vegur er fær
og fjöldi fólks getur ár hvert notið
stórbrotinnar náttúru svæðisins.
Morgunblaðið/Silli
Þú ert afi
tafla í kirkju
kaþólskra í
Keflavík
Keflavík - NÝ altaristafla hefur
verið sett upp í kapellu heilagrar
Barböru í Keflavík, en það er
sóknarkirkja kaþólskra á Suður-
nesjum. Sunnudaginn 4. ágúst var
taflan blessuð í upphafi messu af
sóknarprestinum, séra Hjalta
Þorkelssyni á Jófríðarstöðum.
Auk hans þjónuðu fyrir altari
þeir Kjell Arild Pollestad O.P.,
sem er sóknarprestur í Tönsberg
í Noregi og vel þektur rithöfund-
ur á Norðurlöndum og Atli G.
Jónsson djákni, en hann verður
prestvígður af Jóhannesi Gijsen
Reykjavíkurbiskup þann 7. sept-
ember næstkomandi.
Höfundur altaristöflunnar, sem
er gerð í íkonastíl, er systir Else
Marie Norland af reglu heilags
Dominukusar, en séra Kjell er
einnig dominikani. Aðalmyndefni
töflunnar er Kristur Drottinn alls-
herjar, sem er miðhluti töflunnar.
Öðrum megin þeirrar myndar eru
Jóhannes skírari og Páll postuli,
en hinsvegar María guðsmóðir og
Pétur postuli. Neðst á hinum
ýmsu hlutum töflunnar eru svo
myndir úr lífi og ferli Krists.
Áletranir á íslensku skýra mynd-
efni hinna ýmsu hluta töflunnar.
Systir Else Marie Norland, sem
er þekktur íkonamálari, lagði síð-
ustu hönd á verk sitt að lokinni
messu.
Kapella heilagrar Barböru var
þéttsetin við þessa athöfn og
sömuleiðis var fjöldi gesta sem
kom í kirkjukaffi á eftir og hittu
hina norsku gesti sem þarna voru.
Voru þar meðal annars gestir úr
söfnuðunum í Reykjavík og Hafn-
arfirði.
Sigurður H. Þorsteinsson
SYSTIR Else Marie Norland
er þekktur ikonamálari og
lagði hún síðustu hönd á verk
sitt að messu lokinni.
Ikonaaltaris-
ÞEIR ruddu Fjallabaksveg nyrðri fyrir 50 árum,
Morgunblaðið/Hanna Hjartardóttir
Húsavík - „Ég heiti Gunnar
Jón, ég heiti Arnar Már, ég
heiti Sævar Guðmundur og þú
ert afi,“ sögðu þessir ungu 2ja
ára þríburabræður við ljós-
myndara Morgunblaðsins þeg-
ar hann hitti þá einn heitan
og sólbjartan sumardag fyrir
utan brauðgerðina á Húsavík.
En slíkir dagar hafa verið
margir á líðandi sumri og
bræðurnir voru því hinir kát-
ustu þar sem þeir sátu í vagnin-
um sínum og gæddu sér á
brauði. Foreldrar þríbura-
bræðranna eru Kristjana S.
Sævarsdóttir og Ólafur J. Jóns-
son á Húsavík.
"7"
- fijrirfJölsktfldiiHa-