Morgunblaðið - 08.08.1996, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1996 41
BRÉF TIL BLAÐSINS
Enn ráðist á
láglaunahópana
Frá Lárusi Hermannssyni:
ÉG SEM hefi lifað áttatíu árin eða
| vel það, hefi átt þess kost að fylgj-
ast nokkuð vel með landsmálunum,
og þá líka á hinu pólitíska sviði. Og
í þá gömlu góðu daga, sem okkur
hinum eldri er jafnan títt að vitna
til, langar mig til að nefna að fyrst
í stað voru það aðeins tveir flokkar
í þessu landi, sem um var kosið til
alþingis, framsóknar og íhalds, og
þá virtust skoðanir flokkanna og
stefnuskrá þeirra vera svo gjörólík-
ar, að alls ekki kom til greina nein
málamiðlun, í það minnsta á meðan
á kosningabaráttunni stóð. Hvað
| svo sem um þessa flokka má segja
eftir að kosningar voru afstaðnar
og baráttan um stólana fór að
skipta sköpum hjá þeim sem inn
komust á þing. Og enn þann dag
í dag upphefst grimm barátta fyrir
hveijar alþingiskosningar, þar sem
hver flokkur þykist hafa ákveðin
málefni til að berjast fyrir, og upp-
hefjast deilur, sýnilega málamynd-
arskoðanamunur, til þess að rugla
og sáldra ryki í augu kjósendanna,
j svo rækilega að fjöldinn hefur enga
I hugmynd um hver sé að segja satt
og ætli sér að standa við gefin lof-
orð. En þó að það séu nú orðin
mörg ár síðan þessir tveir fiokkar
voru allsráðandi á stjórnmálalega
sviðinu, og aðeins um þá tvo kosið
til þings, hafa þó tímarnir breyst í
áranna rás, hinir svokölluðu vinstri
, flokkar hafa iátið til sín taka og
oft gert stóran usla í þessum töldu
íhaldsflokkum, framsókn og íhaldi,
j undanfarin mörg ár. En sem því
' miður hefur ekki auðnast að sam-
einast í eina heild gegn íhaldsöflun-
um, sem ríða húsum nú í dag. Og
til þess að reyna að vera hreinskil-
inn, þá verð ég nú að segja það,
að ég hefi aldrei alla mína tíð kynnst
slíkri framsóknarstefnu, sem for-
usta flokksins rekur nú í dag og
, hefur gert síðan þessi ríkisstjórn
var mynduð. Sést best á því, hvern-
ig íhaldið notar sér óspart að ota
j framsóknarráðherrunum í allskonar
óvinsælan málatilbúnað. Sem þeir
sjálfir hafa ekki treyst sér til að
framfylgja mörg undanfarin ár. En
samvinna og samhjálp virðast líta
út sem skammaryrði að minnast á
hjá miklum þorra þingmanna í dag.
En í staðinn vilja framsóknar-
menn kappkosta eflingu frjáls-
hyggju og hlutafélagastefnu með
gegndarlausum niðurskurði og
harkalegum aðförum að varnar-
lausum þegnum þessa lands, eins
og öryrkjum, eldri borgurum og
allskonar veikburða fólki, sem mun
verða þessari ríkisstjórn til ævar-
andi skammar, sem ætti helst að
nægja til þess, að fólkið í landinu
vaknaði til vitundar um það, að það
er og verður ekki nauðsynlegt að
þessir flokkar fái öllu lengur að
ráðskast með fjöregg þjóðarinnar,
og allt fólkið í þessu landi, með
þeim afleiðingum, að stöðugt verða
þeir ríku ríkari en hinir margir ölm-
usuþegnar. Og að lokum væri gam-
an að fá svar við því, frá einhveijum
sem telja sig vera í forsvari fyrir
framsóknarflokkinn, hvort Asta
Ragnheiður sé núna að öllu leyti
ómerk orða sinna. Þar sem hún
hefur lengi undanfarið deilt hart á
þau vinnubrögð framsóknarmanna
gagnvart niðurskurði í heilbrigðis-
kerfinu og víðar, sem og áráttu
þessara stjórnarherra að rýra stöð-
ugt kjör hinna lægst launuðu og
umkomulausra í þessu landi. Sem
að allra dómi eiga að lifa algjörlega
við sultarlaun? Var það þetta sem
kosningakjörorðið með fólk í fyrir-
rúmi átti að þýða? Vonandi verður
framsóknarmönnum ekki skota-
skuld úr að svara því.
LÁRUSHERMANNSSON
frá Ysta-Mói í Fljótum.
BUÐIN
Kringlunni 8-12 • Sími 568 9066
- Þar fœrðu gjöfina -
full búð af nýjum haustvörum
Nýi Hennes & Mauritz
haust/vetrar póstlistinn er
kominn - 300 blaðsíður
af fallegum fatnaði fyrir alla
í fjölskyldunni á góðu verði.
Hringdu í síma
588 44 22
og við sendum þér póstlistann
um hæl. Aðeins 350 kr. og
ekkert póstburðargjald.
.. FYRIR ALLA f
► FJOLSKYLDUNNI4
Náðu þér í nýja
haust/vetrar listann
og þú ert vel sett/ur
fyrir veturinn.
RCWELLS
í Húsi verslunarinnar
Hugbúnaðarfyrirtæki
10 ára gamalt hugbúnaðarfyrirtæki er til sölu.
Sterk viðskiptavild dreifð á margar starfs-
greinar. Selst skuldlaust.
Fyrirspurnir sendist til afgreiðslu Mbl.,
merktar: „HUG - 1065“.
Til sölu í Reykjanesbæ
fasteignin Básvegur 1, Reykjanesbæ (fisk-
vinnsluhús). Grunnflötur fasteignarinnar er
440 fm með 110 fm millilofti (samtals 550
fm). Lofthæð (þar sem ekki er milliloft) er
5,40 m.
Tilboð óskast send til Markaðs- og atvinnu-
málaskrifstofu Reykjanesbæjar, Fitjum, 260
Reykjanesbæ, fyrir 22. ágúst nk.
Frekari upplýsingar veitir Jón Björn Skúlason
eða Friðjón Einarsson í síma 421 6200.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
Gotttækifæri
Til sölu er eignarhluti í hlutafélagi sem vant-
ar aukið rekstrarfjármagn. Fyrirtækið er í
sérhæfðum rekstri, tengdum vörusölu og
dreifingu á neysluvörum. Fullkominn tölvu-
búnaður er fyrir hendi og gott leiguhúsnæði.
Hér er um að ræða gott tækifæri fyrir dug-
mikið fólk, sem vill skapa sér sjálfstæða,
arðvænlega og trygga framtíðaratvinnu.
Vinsamlegast sendið fyrirspurnir til af-
greiðslu Mbl. fyrir 13. ágúst, merktar:
„AE - 2500“. Farið verður með þær sem
trúnaðarmál og þeim öllum svarað fljótt.
i
I
I
3Rtet0ititiibibílb
- kjarni málsins!
Kl. 20.30 kvöldvaka.
Ingibjörg Jónsdóttir talar.
Happdrætti og veitingar.
Allir velkomnir.
Dagsferð 10. ágúst
kl. 9.00 Hekla.
Dagsferð 11. ágúst
kl. 10.30 Reykjavegurinn,
6. áfangi, Bláfjöll - Kolvióarhóll.
Gangan hefst að nýju eftir sum-
arfrí í júlí.
9. -11. ágúst Fjölskyldu-
helgiíBásum
kl. 20.00. Hin árlega fjölskyldu-
hátíð Útivistar í Básum. Frítt fyr-
ir börn. Gönguferðir við allra
hæfi og náttúran er einstök.
Verð 4.300/4.900.
10. -11. ágúst Fimmvörðu-
háls, trússferð
kl. 8.00. Verð 6.100/6.600.
10.-11. ágúst Fimmvörðu-
háls, norður niður
kl.8.00. Verð 6.100/6.600.
Netfang:
http://www.centrum.is/utivist
FERÐAFÉLAG
@ ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Helgarferðir
9.-11. ágúst:
1) Kl. 20.00 Þórsmörk.
2) Kl. 20.00 Yfir Fimmvörðuháls.
Sunnudagur 11. ágúst:
Kl. 10.30 Reykjavegur 6. ferð.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofunni, Mörkinni 6.
Ferð til
Kirkjubæjarklausturs
Farið verður frá BSÍ kl. 17.00
föstudaginn 9. ágúst. Unniö
verður við stígagerð lau. og sun.
og farið frá Klaustri kl. 12.45 á
mánudag. Utanfélagsmenn sem
og félagsmenn velkomnir í hóp-
inn. Upplýsingar hjá Jóhönnu í
síma 487 4840 og Kömmu í síma
565 6436.