Morgunblaðið - 08.09.1996, Side 1
96 SIÐUR B/C/D
204. TBL. 84. ÁRG.
SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1996
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Barnabók seld
undir borðið
HARÐAR deilur eru komnar upp í
Bretlandi vegna ásakana um að
Harrods-stórverslunin selji barnabók-
ina um litla svarta Sambó undir borðið
en hún er af mörgum talin innihalda
kynþáttahatur af versta tagi. Hópur
fólks sem berst gegn kynþáttahatri
hafði samband við verslunina fyrir
skömmu og spurðist fyrir um bókina.
Var þeim þá sagt að biðja yrði sérstak-
lega um hana þar sem hún væri ekki
frammi í bókahillum. Talsmaður
Harrods vísaði þessu síðar á bug og
sagði bókina í almennri sölu. Tveir
blaðamenn lögðu leið sína í verslunina
og gátu báðir keypt bókina. Náð var í
hana inn á lager og hún afhent með
þeim orðum að hún væri ekki höfð
frammi þar sem efni hennar þætti ekki
samrýmast pólitískri rétthugsun. Hins
vegar væri hún töluvert vinsæl. Um
8.000 eintök seljast árlega í Bretlandi.
>
Italir gráta mest
ÍTALSKIR karlmenn gráta mest allra
karla og ítalskar konur eru í fimmta
sæti yfir grátgjörnustu konur heims.
Svo virðist hins vegar sem búlgarskir
karlmenn felli aldrei tár og það gera
nigerískar konur ekki heldur. Þetta
kemur fram í könnun sem Brabant-
háskóli í Tilburg í Hollandi lét gera.
Náði könnunin til 30 þjóða í Evrópu,
Afríku og Ameríku. Samkvæmt henni
gráta ítalskir karlmenn að jafnaði 2,5
sinnum i mánuði en ítalskar konur 3,57
sinnum. Þá kom fram í athuguninni að
ólíkir hlutir verða til þess að græta
konur og karla; konur gráta oftar af
vonbrigðum og þegar þær rífast, en
karlar gráta fyrst og fremst þegar
þeir missa einhvern sér náinn, eða
horfa upp á aðra þjást. Mest er grátið
í svefnherberginu á kvöldin, þegar fólk
er þreytt og gefur sig tilfinningunum
á vald. Þá er einnig mikið grátið í
kirkjugörðum, á járnbrautarstöðvum
og í einkabifreiðum.
Bann við
hvítum sokkum
STJÓRN dönsku járnbrautanna (DSB)
hefur séð sig knúna til þess að banna
starfsmönnum sínum að ganga í hvítum
sokkum, vegna kvartana fjölmargra
farþega sem þykja hvítir sokkar í dökk-
um skóm stinga svo í augu að við það
verði ekki unað. DSB mun sjá starfs-
mönnum fyrir dökkum sokkum en ekki
er gert ráð fyrir að sérstöku sokkaeft-
irliti verði komið á, heldur treystir yfir-
stjórn DSB því að starfsmenn hlíti hin-
um nýju reglum.
Uppstokkun á
Meira mann-
tjón af völd-
um fellibyls
AÐ MINNSTA kosti tveir menn drukkn-
uðu og tólf sýslur í Vestur-Virginíu voru
lýstar hamfarasvæði eftir að ár flæddu
yfir bakka sína í aust.urhluta ríkisins
síðla á föstudag. Flóðin urðu í kjölfar
fellibylsins Fran, sem gengið hefur yfir
austurströnd Bandarikjanna.
Verst er ástandið í Pendleton-sýslu
en þetta er í fjórða sinn á árinu sem
flóð verða í Vestur-Virginíu. Mikið úr-
helli hefur verið í kjölfar Fran en í gær
var því spáð að fellibylurinn væri í rén-
un og að stytta myndi upp.
Myndin er tekin á Topsail-strönd í
Norður-Karólínuríki, þar sem óveðrið
lyfti þessum báti og bar hann langt upp
á land.
Rússar mótmæla
hlutlausu svæði
Moskvu, Ankara, Bonn. Reuter.
RÚSSAR lýstu í gær yfir þungum áhyggjum
vegna áætlana Tyrkja um að koma upp hlut-
lausu svæði á svæðum Kúrda í norðurhluta
írak. Segja Rússar þessar áætlanir alvarlega
atlögu að fullvalda ríki og vegna þess hversu
eldfimt ástandið sé á svæðinu, auki slík
ákvörðun enn á óstöðugleikann.
Tyrkir hafa safnað miklum her við landa-
mærin að Norður-írak til að tryggja hlut-
lausa svæðið, sem þeir segja að eigi að ná
um 10 km inn í Irak. Bandarísk yfirvöld
kváðust á föstudag ekki andvíg fyrirætlunum
Tyrkja, þar sem þeir hefðu lofað því að um
tímabundna aðgerð væri að ræða.
Warren Christopher, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, gaf í gær til kynna í viðtali
við þýskt dagblað, að Bandaríkjamenn kynnu
að hefja að nýju árásir á íraka ef Saddam
Hussein, leiðtogi landsins, skildi ekki þau
„skilaboð“ sem hefðu falist i eldflaugaárás
Bandaríkjamanna í byijun vikunnar.
Hvelja til heilags stríðs
Stjórnvöld í írak láta hins vegar engan
bilbug á sér finna og hvatti málgagn þeirra
landsmenn í gær til þess að taka þátt í „heil-
ögu stríði“ á hendur Bandaríkjamönnum og
beíjast við þá til síðasta blóðdropa.
Reuter
Rannsókn
á flugflota
forsetans
Orlando. Reuter.
HVÍTA húsið hefur fyrirskipað umfangsmikla
öryggisrannsókn á flugflota Bandaríkjafor-
seta í kjölfar fjölda slysa og óhappa sem orð-
ið hafa á vélum úr honum. Á föstudag urðu
tvö óhöpp sem tengdust þyrlum fylgdarliðs
forsetans með stuttu millibili.
CH 46-E þyrla fór á hliðina og varð alelda
í lendingu í Orlando, þar sem Bill Clinton
Bandaríkjaforseti var á kosningaferðalagi.
Enginn slasaðist alvarlega. Önnur þyrla af
sömu gerð varð að nauðlenda stuttu síðar.
Óhöppin á föstudag voru þau síðustu í röð
slysa sem orðið hafa síðasta hálfa árið á flug-
flota forsetans. I ágúst fórst flutningavél í
Wyoming og níu manns sem um borð voru.
Sikorsky-þyrla, sem átti að bæta við flugflot-
ann, hrapaði við flugvöll í Connecticut í mars
og Ron Brown viðskiptaráðherra og 34 manna
föruneyti fórst er CT-43-flugvél flaug inn í
fjallshlíð í Króatíu í apríl sl.
-----» ♦ «----
Olga í Kasmír
Srinagar. Reuter.
YFIRVÖLD í Kasmír á Indlandi sögðu í gær
að ólga hefði verið í héraðinu og komið hefði
til skotbardaga við landamærin.
Gengið var til kosninga í Kasmír í gær og
eru það fyrstu kosningarnar í héraðinu frá
því að uppreisn gegn indverskum stjórnvöld-
um hófst fyrir sex árum. Eru þær taldar
mikilvægur liður í þeirri ætlun stjórnvalda
að koma á Iýðræði að nýju í héraðinu en um
20.000 manns hafa látið lífið í átökunum þar
frá 1990.
Fremur hið STÓRA
en hið smáa
BRÝRNAR