Morgunblaðið - 08.09.1996, Síða 8
8 SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Samningur um ferða-
kynningu á alnetinu
Morgunblaðið/Kristján
HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra og Pétur J. Eiríksson
frá Flugleiðum takast í hendur eftir að hafa undirritað sam-
starfssamning um sameignilegan gagnagrunn íslenskrar ferða-
þjónustu á alnetinu.
SAMNINGUR milli Flugleiða og
samgönguráðuneytis um samstarf
allra stærstu aðila í ferðaþjónustu
og landkynningu á íslandi á alnet-
inu var undirritaður á Akureyri á
föstudag. Gert er ráð fyrir að
gagnagrunnurinn verði tilbúinn
síðar á þessu ári og er um að
ræða þriggja ára átaksverkefni.
Tilgangurinn er að kynna ís-
land og íslenska ferðaþjónustu á
alnetinu með því að setja þar upp
stóran og fullkominn gagnagrunn.
Verður smærri fyrirtækjum í
ferðaþjónustu gefinn kostur á að
taka þátt í samstarfinu.
Hugmyndin að sameiginlegum
gagnagrunni íslenskrar ferðaþjón-
ustu á alnetinu vöknuðu fyrir
nokkrum misserum.
Á heimasíðu Flugleiða eru á
sjötta hundrað síður með upplýs-
ingum og fræðslu og hefur sam-
gönguráðuneytið nú gert samning
við fyrirtækið um að sérfræði-
þekking og undirbúningsvinna
fyrirtækisins nýtist við gerð alls-
herjarupplýsingagrunns ferða-
þjónustunnar.
Um verður að ræða almennt
upplýsinga-; fræðslu- og skemmti-
efni tengt Islandi og er ritstjórn
þess á vegum Iceland Review-
útgáfunnar. Þessar síður verða
tengdar beint við hinn hluta upp-
lýsingagrunnsins, sem eru heima-
síður íslenskra ferðaþjónustufyrir-
tækja, sem geta keypt aðild að
grunninum. Þessi grunnur gefur
fyrirtækjunum kost á að selja
þjónustu sína beint á netinu. Ice-
land Review og Ferðamálaráð
vinna saman að kynningu á upp-
lýsingagrunninum til fyrirtækja
og ferðaþjónustu.
Styrkir ferðaþjónustu
Miðheimar aðstoða fyrirtækin
við síðuhönnun og mun ásamt Pósti
og síma veita alla tæknilega ráð-
gjöf og bera ábyrgð á því að not-
endur hafi greiðan aðgang að þeim
upplýsingum sem geymdar eru á
grunninum.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra sagði samstarfið styrkja að-
ila í ferðaþjónustu og opna þeim
aðgang að mikilvægu fréttaneti
auk þess að stuðla að því að menn
vissu betur hver af öðrum.
Pétur J. Eiríksson hjá Flugleið-
um nefndi að um 50 þúsund manns
FORSVARSMENN Iceland Travel
Net segja að með samningi Flug-
leiða og samgönguráðuneytis um
landkynningu á alnetinu sé ríkið
að taka þátt í samkeppni við einka-
aðila.
Hermann Ottósson hjá Auglýs-
ingastofu Reykjavíkur sagði að
gagnagrunnurinn Iceland Travel
Net hefði verið rekinn frá því
snemma á árinu 1996 og gerður
hefði verið samningur um málið
við Ferðamálaráð sem gildi til árs-
hefðu skoðað heimasíðu fyrirtæk-
isins á fyrstu þremur mánuðunum
sem hún var við lýði. Hann sagði
íslendinga þurfa að auk hlut sinn
á netinu og efaðist ekki um að
gagnagrunnurinn yrði smærri aðil-
um í ferðaþjónustu lyftistöng.
loka 1997. Hermann sagði að
þarna kynni allar stærstu ferða-
skrifstofur landsins starfsemi sína
á alnetinu. „Þennan gagnagrunn
hafa um milljón manns skoðað síð-
an í fyrra, eða um 6 þúsund manns
á dag. í því ljósi finnst okkur samn-
ingurinn sem gerður var á Akur-
eyri skringilegur og enn eitt dæm-
ið um að ríkið er að setja fjármagn
í verkefni sem eru í beinni sam-
keppni við einkaaðila," sagði Her-
mann.
Ríkið að keppa
við einkaaðila
Þing evrópskra jarðskjálftafræðinga
Hin sérstöku ein-
kenni Islands móta
umfj öllunarefnið
Ragnar Stefánsson
Fjögur HUNDRUÐ
sérfræðingar á ýms-
um sviðum sem
tengjast jarðskjálftum og
jarðskjálftárannsóknum
setjast á rökstóla á Hótel
Loftleiðum í fyrramálið
þegar þar hefst 25. alls-
heijarþing samtaka evróp-
skra jarðskjálftafræðinga.
Ráðstefnan er haldin á
vegum Veðurstofu íslands,
Háskóla íslands og um-
hverfisráðuneytisins.
Ragnar Stefánsson jarð-
skjálftafræðingur er for-
maður framkvæmdanefnd-
ar íslenskra vísindamanna
sem unnið hafa að undir-
búningi ráðstefnunnar
undanfarið ár. Hann segir
að lega íslands á Mið-Atl-
antshafshi-yggnum og á
heita reitnum svokallaða muni
setja mark á ráðstefnuna.
- Hvað er heiti reiturinn?
„íslands-heiti reiturinn stafar
af því að heitt efni streymir neðan
úr möttli jarðar og kemur upp
undir miðju íslands af mörg hund-
ruð kílómetra dýpi. Við tölum um
möttulstrókmn; þetta er hin djúpa
undirstaða íslands og er eins og
skorsteinn sem sendir heitt efni í
áttina til yfirborðs. Ur þessu heita
efni verða til efni í eldgos, úr því
kemur jarðhitinn og heiti reiturinn
hefur einnig mikil áhrif á plötu-
hreyfingarnar. Svo má segja að
möttulstrókurinn hafi áhrif á
hvernig Mið-Atlantshafshryggur-
inn liggur í gegnum ísland.“
- Hvers vegna er þessi ráð-
stefna haldin á ísiandi nú? Eru
einhver fræðileg atvik eða aðstæð-
ur sem hafa áhrif á það?
„Þetta er regluleg ráðstefna
evrópskra jarðskjálftafræðinga.
Þær hafa verið haldnar á tveggja
ára fresti og nú er hún haldin
hér. Aðalástæðan fyrir því að ís-
land er valið sem staður fyrir
þessa ráðstefnu er sú að ísland
er Evrópuland. Hins vegar má
segja að vegna þess að ráðstefnan
er haldin hér þá hafa þessi sér-
stöku einkenni íslands talsvert
mikil áhrif á það um hvað er fjall-
að.
Ráðstefnan verður haldin þann-
ig að margir fundir um mismun-
andi efni fara fram samtímis. Alls
verða kynnt um 500 rannsóknar-
verkefni í erindum og með vegg-
spjöldum."
Eins og fyrr sagði hafa meira
en 400 sérfræðingar hafa skráð
sig til þátttöku og Ragnar segir
að sjálfsagt verði þeir talsvert
fleiri en það. Flestir komi frá
Evrópu en einnig frá N-Ameríku
og öðrum hlutum heims. „Þetta
eru ekki aðeins jarðskjálftafræð-
ingar; þessi ráðstefna
er líka sótt af eldfjalla-
fræðingum, jarðfræð-
ingum og ýmsum hóp-
um verkfræðinga. Það
eru um 60 íslendingar
búnir að skrá sig, þann-
ig að næststærsti hópurinn kemur
héðan, ítalir eru 65.“
- Verður Suðurlandsskjálfti tii
umræðu á ráðstefnunni með bein-
um eða óbeinum hætti?
„Það verður aðallega með
óteinum hætti. Það verður fjallað
um hann í sambandi við jarð-
skjálftaspár og jarðskjálftatjón.
Skjálftar á íslandi koma þarna
nokkuð oft við sögu hvort sem er
Suðurlandsskjálfti eða skjálftar á
Norðurlandi. Sjálfur held ég þarna
erindi á miðvikudagsmorgni um
hvernig við stefnum að jarð-
skjálftaspám á íslandi og viðmiðið
► Ragnar Stefánsson er 58 ára,
fæddur 14. ágúst 1938. Hann
lauk fil. kand. prófi í stærð-
fræði og eðlisfræði frá Upp-
salaháskóla í Svíþjóð árið 1961
og hlaut licenciat-gráðu árið
1966 fyrir ritgerð á sviði jarð-
eðlisfræði um upptakaeðli jarð-
skjálfta. Hann hefur síðan
starfað á Veðurstofu íslands og
er forstöðumaður jarðeðlissviðs
Veðurstofunnar. Eiginkona
Ragnars er Ingibjörg Hjartar-
dóttir rithöfundur.
er alltaf þeir skjálftar sem geta
valdið tjóni hér á landi.“
- Hvaða þýðingu telur þú að
þessi ráðstefna hafi?
„Fyrir utan það hvað svona ráð-
stefna er lærdómsrík á margan
hátt fyrir íslendinga held ég að
hún geti hjálpað okkur til að fjár-
magna áfram stórt rannsóknar-
verkefni sem við höfum forystu
um hér og köllum „Rannsóknir sem
miða að jarðskjálftaspám í nátt-
úrulegri rannsóknarstofu". Þar
vinna saman, til þess að reyna að
skilja betur eðli jarðskjálfta og
reyna að segja fyrir um þá, sér-
fræðingar í ýmsum greinum frá
íslandi, Svíþjóð, Bretlandi, Frakk-
landi, Þýskalandi og Ítalíu. Við
höfum fengið fjármagn til þessa
verkefnis frá Evrópusjóðum og það
verða haldin nokkuð mörg erindi
á ráðstefnunni sem fjalla um fyrstu
skrefín sem við erum að stíga í
þessu verkefni og það verður Iíka
haldinn sérstakur skipulagsfundur
í sambandi við það.“
AHsheijarþing evrópskra jarð-
skjálftafræðinga stendur frá
9. - 14. september og tekur til
allra þátta jarðskjálftafræði, m.a.
verður fjallað um leiðir til að
minnka hættu sem stafað getur
af jarðskjálftum. Jarðskjálftaspár
og jarðskjálftaverk-
fræði verða mikilvægir
þættir, og einnig vamir
almennings gagnvart
náttúrahamförum. Auk
Ragnare flytja inn-
gangserindi á ráðstefn-
unni Páll Einarsson, Ólafur Fló-
venz, Raoul Madariaga frá Frakk-
landi, Lev Vinnik frá Rússlandi
og Nicholas Arnbraseys frá Bret-
landi. Klukkan níu á þriðjudags-
kvöld flytur Guðmundur E. Sig-
valdason erindi, opið almenningi,
um eidfjöll og eldfjaliafræði á Is-
landi. Fyrir ráðstefnuna kemur
út bókin Seismology in Europe
þar sem birt eru 114 erindi, einn-
ig verður gefin út bók með út-
dráttum allra erinda sem flutt
verða. Nýir þátttakendur geta
skráð sig til þátttöku á ráðstefnu-
stað, Hótel Loftleiðum.
, Skjálftar á
íslandi koma
oft við sögu