Morgunblaðið - 08.09.1996, Qupperneq 10
10 SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1996
Morgunblaðið/Þorkell
SKÓLASTARF er hafið
samkvæmt nýju skipulagi
í Grannskóla Hornafjarð-
ar. Nýja tilhögunin felur
meðal annars í sér að grunnskólinn
er allur einsetinn en þrískiptur.
Þannig er yngstu börnunum, 1. og
2. bekk, ekið í Nesjaskóla sem er í
7 km fjarlægð frá Höfn, 3.-7. bekk-
ur verður í Hafnarskóla og 8.-10.
bekkur í Heppuskóla á Höfn.
Þessar breytingar hafa í för með
sér aukinn kostnað vegna skóla-
aksturs en jafnframt mun húsnæði
og starfskraftar nýtast betur.
Markmið bæjarstjórnar Horna-
fjarðar með þessari uppstokkun er
að bæta innra starf skólanna og
umhverfi þeirra, nýta fyrirliggj-
andi fjármagn sem best, auka sam-
skipti barna og unglinga í Horna-
firði og auka þjónustu við foreldra,
ekki síst þá sem eru útivinnandi,
að sögn Halls Magnússonar, for-
stöðumanns nýstofnaðrar
Fræðslu- og fjölskylduskrifstofu
Suðausturlands.
Á skrifstofunni er sameinuð á
einum stað sú þjónusta sem skóla-
skrifstofu ber að veita frá 1. ágúst
sl. og þá þjónustu sem nú er veitt
af ýmsum aðilum sem tengjast
félagsþjónustu og fjölskyldumálum
á Suðausturlandi. Skrifstofan er
alfarið rekin á ábyrgð Horna-
fjarðarbæjar en önnur sveitarfélög
í Austur-Skaftafellssýslu sem og
Djúpavogshreppur fá fullan að-
gang að þjónustunni gegn gjaldi
samkvæmt samningi.
Áður var skólahaldi í Hornafirði
þannig háttað að á Höfn gengu
börn í 1.-7. bekk í Hafnarskóla og
í 8.-10. bekk í Heppuskóla. í Nesja-
skóla var 1.-10. bekkur fyrir börn
af Nesjum í heimangöngu og heim-
anakstri. Auk þeirra komu þangað
nemendur úr Óræfum og Suður-
sveit í 8.-10. bekk og voru þá í
heimavist. Þeir munu búa áfram á
heimavistinni en verður nú ekið
þaðan daglega í Heppuskóla á
Höfn. Nemendur í Mýrahreppi voru
í Mýraskóla í 1.-7. bekk og fóru
síðan í Nesjaskóla í 8.-10. bekk
og var ekið daglega. Það eina sem
eftir stendur algerlega óbreytt er
að 1.-7. bekk verður áfram kennt
í Mýraskóla. Þar eru 16 nemendur
og er þeim kennt í tveimur bekkjar-
deildum.
Bæjarstjórnin sammála en
íbúarnir ekki
Þó að einhugur hafi verið um
breytingarnar í bæjarstjórn er ljóst
að Hornfirðingar eru ekki allir á
eitt sáttir um þær. Þannig kærði
til dæmis hópur foreldra afgreiðslu
bæjarstjórnar á málinu til félags-
Uppstokkun á skóla-
starfi í Homafirði
Miklar breytingar hafa verið gerðar á skipu-
lagi skólahalds í Homafirði í kjölfar yfir-
færslu grunnskólans til sveitarfélaganna 1.
ágúst sl. Margrét Sveinbjömsdóttir fór
austur og kynnti sér málið.
málaráðuneytis með vísan til
stjórnsýslulaga á þeirri forsendu
að þrír bæjarstjórnarmenn sem
jafnframt era skólamenn hefðu
verið vanhæfir og þess vegna átt
að víkja sæti í atkvæðagreiðslu.
Niðurstaða bæjarstjórnar var
einnig kærð til umboðsmanns
barna fyrir brot á barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna. Foreldrarnir
töldu grundvallarréttindi barnanna
fyrir borð borin, með því að þeim
hefði ekki verið gefinn kostur á
að koma sjónarmiðum sínum á
framfæri og þeim væri ekki tryggt
sem þægilegast og öruggast um-
hverfi.
Enn hefur ekki borist svar frá
umboðsmanni barna og að sögn
Þórhildar Líndal hefur enn ekki
verið ákveðið hvort málið gefi til-
efni til frekari meðferðar.
Félagsmálaráðuneytið úrskurð-
aði í málinu þann 19. ágúst sl.
og var niðurstaðan sú að stjórn-
sýslukærunni var vísað frá, þar
sem atkvæðagreiðslan hafði þá
nýlega verið endurtekin með vara-
mönnum skólamannanna þriggja
sem álitnir voru vanhæfir. Aftur
var hin nýja skólastefna samþykkt
samhljóða. Með frávísuninni hefur
ráðuneytið í raun ekki tekið af-
stöðu til hæfis eða vanhæfis skóla-
manna almennt til setu í sveitar-
stjórnum en hinsvegar hefur það
leitað álits ríkislögmanns á mál-
inu.
Sameining sveitarfélaga og
yfirfærsla grunnskólans
Upphaf endurskipulagningar
skólahalds í Hornafirði má rekja
til þess þegar sveitarfélögin Höfn,
Nesjahreppur og Mýrahreppur
vora sameinuð í eitt sveitarfélag
með alis um 2.200 íbúum, Horna-
fjarðarbæ, í júní 1994. í framhaldi
af því og með tilliti til fyrirstand-
andi yfirfærslu grunnskólans til
sveitarfélaganna var ráðist í undir-
búning að endurskipulagningu
skólahalds í byggðarlaginu. Einnig
var ljóst að vegna fyrirhugaðrar
einsetningar grunnskólans og
lengingar skóladags þurfti að gera
ráðstafanir.
Starfshópur skipaður fulltrúum
úr skólanefnd Hornafjarðar hófst
síðla árs 1994 handa við að gera
yfirlit um skólamál í sveitarfélag-
inu og gera tillögur til skólanefnd-
ar um stefnumótun í þeim mála-
flokki. Starfshópurinn skilaði af
sér skýrslu og tillögum í marslok
1995.
Bæjarstjórn tók tillögurnar til
umfjöllunar og leitaði umsagnar
fjölda aðila sem málið varðaði, svo
sem foreldrafélaga, kennara og
annarra starfsmanna skólanna,
menntamálaráðuneytis, fræðslu-
stjóra og Heimilis og skóla. Haldn-
ir voru kynningarfundir fyrir for-
eldra auk almenns borgarafundar
vorið 1995.
Á fundi bæjarstjórnar í maí var
samþykkt sú meginstefna að
skipta grunnskólanum í Hornafirði
í þrennt og var sú samþykkt að
miklu leyti byggð á tillögum ofan-
greinds starfshóps. í samþykktinni
er þrískiptingin sett þannig upp
að 1.-4. bekkur verði í Nesjaskóla,
5.-7.bekkur í Hafnarskóla og 8.-
lO.bekkur í Heppuskóla.
Skipuð var verkefnisstjórn til
að fylgja stefnumörkun bæjar-
stjórnarinnar úr hlaði og með hlið-
sjón af tillögum verkefnisstjórnar-
innar var stefnumörkunin ítrekuð
með nánari útfærslum og minni-
háttar breytingum í mars síðast-
liðnum. Samkvæmt þeim eiga þrír
Fyrsti morgunninn
í skólabílnum
Morgunblaðið/Þorkell
KLUKKAN nálgast átta á
þriðjudagsmorgni. Það er held-
ur svalt í veðri, enda tekið að
hausta. Út úr ótal húsum á Höfn
í Hornafirði koma lítil börn með
stórar skólatöskur á bakinu,
mörg þeirra í fylgd með foreldr-
um eða systkinum. Flest eru þau
stundvís og standa prúð á þar
til gerðum biðstöðvum og bíða
eftirvæntingarfull eftir skóla-
bílnum sem er væntanlegur á
hverri stundu.
Ferðinni er heitið inn í Nesja-
skóla sem á eftir að verða
vinnustaður þeirra næstu þrjú
árin. Rútan kemur og upp í
liana klifra ungir nemendur
með þungar skólatöskur.
Gæslukonan í rútunni, Guðný
Svavarsdóttir, sem jafnframt
er bókavörður í Nesjaskóla,
aðstoðar börnin við að koma sér
inn í bílinn, finna sæti og
spenna öryggisbeltin.
Vinir og vinkonur hittast,
seljast saman og fara að stinga
saman nefjum og bera saman
innihald nýju pennaveskjanna.
Sumir eru ennþá með stírurnar
í augunum og ekki alveg tilbún-
ir að vakna.
Fyrr en varir rennir skólabíll-
inn í hlað Nesjaskóla og út úr