Morgunblaðið - 08.09.1996, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1996
I DAG
Arnað heilla
Or|ÁRA afmæli. Á
Ov/morgun, mánudag-
inn 9. september, verður
áttræð Guðrún Pálmfríð-
ur Guðnadóttir, Ránar-
götu 8, Flateyri. Hún tek-
ur á móti gestum í félags-
heimili Rafmagnsveitu
Reykjavíkur við Rafstöðv-
arveg í dag, sunnudaginn
8. september, kl. 15.
SKAK
(Imsjón Margcir
Pétursson
Erling Ó. Aðalsteinsson, Ijósm.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 20. júlí í Vídalíns-
kirkju af sr. Braga Friðriks-
syni Ásgerður Guðmunds-
dóttir og Gunnar Om
Erlingsson. Þau eru búsett
í Danmörku.
Erling Ó. Aðalsteinsson, ljósm.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 17. ágúst í Garða-
kirkju af sr. Braga Friðriks-
syni Ragna Árný Lárus-
dóttir og Björn Árnason.
Þau eru búsett í Lúxem-
borg.
HVÍTUR leikur
og vinnur
STAÐAN kom upp á
„Foxtrot" mótinu í London
í ágúst. Pia Cramling
(2.545) var með hvítt og
átti leik, en Boris Spassky
(2.555), fyrrum heims-
meistari, hafði svart og lék
síðast 37. - Rf6-g4. Hann
lék klaufalega af sér peði
í byrjuninni og nú vann Pia
annað og tryggði sigurinn:
38. Rxf5! - Rxh3 (Eða
38. - Kxf5 39. Hd5+ og
vinnur manninn til baka)
39. e4 og Spassky gafst
upp, því hann getur ekki
bæði varist hótuninni 40.
Kxh3 og 40. Hxd6+.
Þetta var ekki fyrsta
tvöfalda hótunin sem kom
Spassky í opna skjöldu í
þessari skák. Byijunin var
þannig: 1. d4 — Rf6 2. d4
- e6 3. Rf3 - Bb4+ 4.
Rbd2 - c5 5. a3 - Bxd2+
6. Dxd2 - b6? 7. dxc5 -
bxc5 8. Dg5! (hótar bæði
c5 og g7) 8. - d6 9. Dxg7
og svartur fékk engar bæt-
ur fyrir peðið.
HÖGNl HKEKKYÍSI
COSPER
ÞETTA hefurðu upp úr því að gefa honum svona
mikið jám.
ORÐABOKIN
Skemmra - skemur
ISLENZKUKENNARI
hefur vakið athygli mína
á því, að í fjölmiðlum
virðast menn farnir að
rugla saman merkingum
ofangreindra orðmynda.
Benti hann mér á eftir-
farandi dæmi úr Mbl. 23.
júlí sl., þar sem borinn
er saman sláttur á Suð-
ur- og Norðurlandi. Orð-
rétt segir þar: „Á Norð-
urlandi væri ástandið
gott þótt bændur þar
væru skemur á veg
komnir með heyskap-
inn.“ Hér er ruglað sam-
an staðar- og tímamerk-
ingu. Kennarinn segir
stutt síðan hann fór að
taka eftir þessu. Ábend-
ing hans er hárrétt. Er
því sjálfsagt að benda á
mismunandi notkun
þessara orðmynda og
ekki sízt fyrir það, að
máltilfinning manna
virðist eitthvað orðin
brengluð í þessu sam-
bandi. Hér er sem sé
munur á, hvort talað er
um tíma eða stað. Við
segjum sem svo, að mað-
urinn hafi verið skemur
á leiðinni en búizt hafði
verið við. Þá er átt við
tímann. Aftur á móti er
sagt sem svo, að maður-
inn hafi komizt
skemmra með verk sitt
en hann hafði áætlað.
Þá er um eins konar
staðarmerkingu að
ræða. Um þennan mun,
vona ég, að flestir geti
verið sammála mér og
kennaranum. Óþarft á
að vera að blanda þess-
um merkingum saman
og sjálfsagt er að greina
hér skýrt á milli. Fyrr-
greint dæmi úr Mbl.
hefði því átt að orða sem
svo, að norðlenzkir
bændur væru skemmra
á veg komnir með hey-
skapinn en sunnlenzkir
bændur.
- J.A.J.
STJÖRNUSPA
MEYJA
Afmælisbarn dagsins:
Þú vinnur vel með öðrum,
en þér hentar betur að ráða
ferðinni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Fjárhagurinn fer batnandi,
en ágreiningur getur komið
umm milli vina um peninga.
Sinntu heimili og fjölskyldu
í kvöld.
Naut
(20. apríl - 20. maí) It^
Þótt fjárhagsstaðan sé góð
er óþarfi að eyða úr hófi.
En þér er óhætt að taka
þátt í spennandi mannfagn-
aði með vinum í dag.
Tvíburar
(2Í.maí-'2ö.jöRÍ) ÆÍ?
Það væri við hæfí að skreppa
í skoðunarferð um nágrennið
í dag með ástvini eða fjöi-
skyldu. Ættingi er eitthvað
miður sín.
43
---1
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Taktu með varúð tilboði um
viðskipti, sem geta verið
áhættusöm. Kannaðu málið
vel, og hafðu gott samráð
við ástvin.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) <et
Það hentar þér betur í dag
að bjóða heim góðum gestum
en að skreppa í heimsókn tii
vina. Njóttu svo kvöldsins
með ástvini.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) Si
Vertu ekki að flýta þér um
of við skyldustörfin í dag.
Vönduð vinnubrögð skila ár-
angri. Þér berast mjög
ánægjulegar fréttir.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú finnur leið til að bæta
afkomuna í dag, og viðræður
við áhrifamenn ganga vel.
Ástvinir taka mikilvæga
ákvörðun saman.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Nýttu þér vel þau tækifæri
til afþreyingar,_ sem standa
til boða í dag. f kvöld verða
hagsmunir fjölskyldunnar
efstir á baugi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Þú þarft að taka mikilvæga
ákvörðun varðandi Qöl-
skyldu og heimili í dag. Það
er vissara að hafa gott sam-
band við þína nánustu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) &
Reyndu að bæta samstöðuna
innan fjölskyldunnar í dag í
stað þess að eyða frístundun-
um til einskis í leit að afbrev-
ingu-____________________
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Félagslífið hefur upp á
margt að bjóða í dag, en
reyndu að hafa hemil á
eyðslunni. Ferðalag er í
vændum fljótlega.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Láttu ekki freistast til að
segja frá leyndarmáli, sem
vinur trúði þér fyrir. Ástvin-
ir eiga saman rólegt kvöld
heima.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Ásmundur
Heildarjóga
Jógafyrir alla
Kröftugt vetrarstarf hjá stærsta jógaskóla landsins.
Næstu námskeiö:
Grunnnámskeiö: 10. sept. -1. okt. (7 skipti) þri. & fim.
kl. 20-21.30.
Leiðbeinandi: Pétur Valgeirsson.
Grunnnámskeið: 16. sept. - 7. okt. (7 skipti) mán. & mið.
kl. 20-21.30.
Leiðbeinandi Anna Dóra Hermannsdóttir.
Grunnnámskeið: 25. sept. - 16. okt. (7 skipti) mán. & mið
kl. 16.30-18.
Leiðbeinandi: Ásmundur Gunnlaugsson.
Jóga á meðgöngu: 16. sept. - 7. okt. (7 skipti) ntán. &
mið. kl. 18.30-19.45. Lóttar og styrkjandi jógaæfingar,
öndun og slökun fyrir bamshafandi konur.
Lciðbcinandi: Anna Dóra Hermannsdóttir.
Jóga gegn kvíða: 1.-22. okt. (7 skipti) þri. & fim.
kl. 20-22.15.
Leiðbeinandi: Ásmundur Gunnlaugsson.
Opnir timar alla daga nema sunnudaga:
>■ i
.1
Lísa
Pétur
Tími Mánud. 7:30-8:30 Þriöjud. Miövikud. Fimmtud. Föstud. Laugard.
Lísa Pétur
10:30-11:30 Anna • Dóra Anna Dóra Á-P-AD til 11:45
12:10-13:10 Ásmundur Ásmundur Ásmundur
16:10-17:10 Anna Dóra Anna Dóra
16:40-17:40 Pétur Pétur ■
17-15-18:15 Pétur Ásmundur Pétur Asmundur
17:45-18:15 Hugleiösla
18:20-19:35 Ásmundur Anna Dóra Ásmundur An.ta 'Asrrsurtcfur Dóra
Fyrsta ilokks aðstaða, sauna, bóð og nudd. Einnig bækur,
tóniist. náttúrulegar snyrtivörur, kærieikskort, reykelst o.fl.
Tilboð á 4 mánaða kortum til og með
13. september, kr. 11.400.
YOGA
STUDIO
Hátúni 6A,105 Reykjavík, sími 511-3100.
BEST SOTTA ATRIÐIÐ A LISTAHATIÐ
OPERA
í Þ R E ITI U R
EFTIR jón ÖSCEÍRSSOn
„Sýningin á Galdra-Lofti í íslensku óperunni er
fágætur listviöburður."
„Jón Ásgeirsson er heilsteypt tónskáld, sjálfum
sér samkvæmur og þorir aö semja tónlist sem
hljómar vel í eyrum.“
„Þorgeir vann stóran söng- og leiksigur meö
frammistööu sinni í Galdra-Lofti.u
Þ.P., Mbl.
„Frammistaöa Þorgeirs Andréssonar í hlutverki
Lofts telst til tíðinda."
F.T.St., DV
/■
Niðurstaöa: Sýning sem teist til stórviðburða í
íslensku listalífi. Höfundurinn Jón Ásgeirsson
hefur unniö þrekvirki og öll vinna aöstandenda er
þeim til mikils sóma.
A.B., Abl.
7. sýning laugardaginn 14. sept. kl. 20:00
8. sýning laugardaginn 21. sept. kl. 21:00
AÐEinS FAAR SYnmGAR
mÍÐASÖLA OPÍn DACL.
15-19 Sími 551-1475
, inii
ISLKNSKA OPERAN
___iiiii