Morgunblaðið - 15.09.1996, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 15.09.1996, Qupperneq 8
8 SUNNUDAGUR 15. SEFfEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR A ÞÚ þarft ekki að búast við að það verði barn í brók svona einn, tveir og þrír Ágúst minn. Hann getur verið ansi þrálátur þessi pólitíski höfuðverkur . . . Upplýsingar um norrænar kvikmyndir Samið um útgáfu á geisladiski ÍSLENSKA fyrirtækið Nova Media- nýmiðlun ehf., hefur undirritað samning við Norræna kvikmynda- sjóðinn um framleiðslu á geisladisk- um, ætluðum blaðamönnum og sjón- varpsstöðvum, sem fjalla um nýjar norrænar kvikmyndir. Jón Hjaitalín Magnússon, stjórn- arformaður og einn af eigendum fyrirtækisins, segir að geisladiskur- inn sé samstarfsverkefni Nova Me- dia, norska fyrirtækisins Sygna og Háskólans í Bergen. „Á geisladiskin- um er að finna upplýsingar um nýj- ar norrænar kvikmyndir, ljósmyndir og hljóð úr kvikmyndunum og mynd- band, þar sem söguþráður kvik- myndanna er rakinn í stórum drátt- ,um.“ „Síðar er ætlunin að dreifa ná- kvæmari upplýsingum um kvik- myndirnar á alnetinu en þar sem ennþá er seinvirkt að dreifa há- gæðamyndum og myndböndum á netinu þá nýtist geisladiskurinn gagnrýnendum betur,“ segir Jón Hjaltalín. Geisladiskurinn fer í almenna dreifingu í desember og Jón Hjalta- lín segir að frumútgáfan hafi fengið góðar viðtökur hjá kvikmyndagagn- rýnendum og kvikmyndaframleið- endum á Norðurlöndunum. Morgunblaðið/Halldór NEMENDURNIR sýndu skemmtiatriði á skemmtikvöldinu í Álftamýrarskóla. Danskir unglingar heimsækja íslenska jafnaldra Hvetjandi í dönskunáminu TVEIR danskir unglingabekkir úr Lajtegárdskóla í Kaupmannahöfn eru nú í heimsókn hjá jafnöldrum sínum í Álftamýrarskóla. Þau eru að endurgjalda heimsókn íslensku krakkanna til Danmerkur í vor. Þessi nemendaskipti eru til- raunaverkefni á vegum norrænu ráðherranefndarinnar og styrkt af Reykjavíkurborg. Kennarar ís- lensku unglinganna segja að heim- sóknirnar séu mjög hvetjandi í dönskunáminu og gefi því nýtt gildi. Danirnir verða í viku. Þeir búa heima hjá íslenskum félögum sínum og fara með þeim í ferðalög. I fyrra- dag var haldið skemmtikvöld með veitingum í boði foreldra íslensku nemendanna. Nemendur beggja þjóða sýndu skemmtiatriði. Á myndinni eru íslendingar að skemmta en Danirnir horfa hug- fangnir á. Aðspurðir vildu þeir sem minnst láta hafa eftir sér um dans- list Íslendinga en voru hrifnir af dönskukunnáttu þeirra. Sjálfír höfðu þeir ekki mikið lært í ís- lensku, annað en „hvað“, „egg“ og nokkur óprenthæf orð. Samtök hjjúkrunarfræðinga Baráttan hefur ver- ið hörð undanfarið Dagana 17. og 18. september verður haldið norrænt þing í Reykjavík um kjör og vinnuaðstæður hjúkr- unarfræðinga á Norður- löndum. Sextíu og fimm hjúkrunarfræðingar og starfsmenn samtaka þeirra frá Danmörku, Nor- egi, Svíþjóð og Finnlandi koma til landsins af þessu tilefni. Samtök hjúkrunar- fræðinga á Norðurlöndun- um halda ráðstefnu um kaup og kjör á fimm ára fresti til að skiptast á upp- lýsingum, fræðast og meta hvað hefur áunnist í bar- áttunni. Vigdís Jónsdóttir hagfræðingur annast skipulagningu hennar núna fyrir hönd Félags hjúkrunarfræðinga. - Hver verða aðalmálin á ráð- stefnunni? „Þijú viðamikil mál verða á dagskrá. í fyrsta lagi verður glímt við spurninguna: Hvernig verða launin til? Undir þeim mála- flokki verður til dæmis reynt að kanna hvaða áhrif framboð og eftirspurn hafa á laun. Einnig hvaða þýðingu það hefur að iaun eru ákvörðuð á mismunandi hátt, hvort þau eru að fullu ákveðin í miðstýrðum kjarasamningum stéttarfélags og atvinnurekenda eða hvort starfsmaðurinn hafi möguleika á að semja beint við yfirmenn sína á þeirri stofnun sem hann vinnur. Annar málaflokkurinn fjallar um jafnréttismál og starfsmat. Spurt verður hvort og þá hvernig nýta megi jafnréttislöggjöfina til að bæta launin. Líka hvernig starfsmat á vinnustöðum geti nýst hjúkrunarfræðingum. Vandamáiið snýst um hvernig hægt sé að mæla vinnuna á hlut- lægan hátt; er til dæmis hægt að mæla og meta andlegt álag í starfí? Þriðja umræðuefnið er um bar- áttuna fyrir bættum kjörum. Rýnt verður í aðferðir sem notað- ar hafa verið, eins og verkföll, en þess má geta að undanfarin tvö ár hafa hjúkrunarfræðingar á Norðurlöndum, nema á íslandi, staðið í verkföllum. Undir þriðja lið er líka spurt hvort verkföllin hafi skilað ár- angri og hvaða aðferðir beri að nota í framtíðinni. Að lokum mun Jón Kalmansson frá Siðfræði- stofnun flytja erindi um siðfræði kjarabaráttunar." - Hvort er talið æskilegra að laun séu ákveðin í miðstýrðum kjarasamningum eða að einstakl- ingar semji um kjör sín við yfirmenn sína. „Svörin við þessari spurningu eru ekki á eina leið. í Svíþjóð ___________ semja hjúkrunarfræð- ingar við vinnuveitendur sína um svokallaðan rammasamning, um lágmarkslaun og launahækkanir til heildarinnar. Samningurinn er síðan útfærður á vinnustöðum, bæði milli fulltrúa félagsins og vinnuveitenda og milli einstakl- inga og vinnuveitenda. Danskir hjúkrunarfræðingar hafa hins vegar ekki viljað færa launaá- kvarðanir í svo miklum mæli frá miðstýrðum kjarasamningum til vinnustaðanna. Laun íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa verið frekar miðstýrð, en þó er það misjafnt eftir vinnustöðum. Hér á landi hafa opinberir vinnuveitendur lýst áhuga á að færa launaákvarðanir frá mið- VIGDÍS JÓNSDÓTTIR ► VIGDÍS Jónsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1965. Hún varð stúdent frá Flensborgarskólan- um í Hafnarfirði árið 1984 og viðskiptafræðingur af iiag- stjórnarsviði Háskóla íslands árið 1991. Hún hefur starfað sem hagfræðingur Félags hjúkrunarfræðinga síðastliðin fjögur ár. Eiginmaður hennar er Daníel Helgason og eiga þau þijú börn. stýrðum kjarasamningum inn á stofnanir. I dag fá margir hópar ríkisstarfsmanna greiddar yfir- borganir umfram lágmarksá- kvæði kjarasamnings og það er mjög misjafnt hvernig þessar greiðslur dreifast á starfsmenn og hver tekur ákvörðun um að greiða þær. Við höfum haldið því fram að hjúkrunarfræðingar, eins og aðrar kvennastéttir og reyndar konur almennt hjá ríkinu, njóti ekki yfirborgana í sama mæli og aðrir hópar með sambærilega menntun og ábyrgð og úr þessu þarf að bæta.“ - Getur þú nefnt dæmi um hvað hefur verið aðgerast í kjara- málum hjá gestunum sem koma á ráðstefnuna? „Norskir hjúkrunarfræðingar hafa staðið í baráttu til að hækka laun sín til jafns við aðrar starfs- stéttir sem bera sambærilega ábyrgð í starfí, en verulega hefur vantað upp á að svo sé. Þeir fóru í verkfall '94 og '95. Sænskir hjúkrunarfræðingar voru í verkfalli á síðasta ári og reyndu að nýta jafnréttislögin um að greiða skuli jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf. Danskir hjúkrunarfræðingar nýttu sér verkfallsvopnið í maí á síðasta ári. Verkfallinu lauk með -------- lagasetningu þar sem ákvæði var um það að kjör og starfsaðstæður hjúkrunarfræðinga skyldu athuguð af sér- stökum starfshópi. Síð- an var aðilum gefinn einn mánuð- ur til samninga sem tókust ekki, en sáttasemjari skar úr þeim ágreiningsefnum sem stóðu eftir og ákvarðaði dönskum hjúkr- unarfræðingum heldur meiri launahækkun en aðrir launþegar fengu á þessu tímabili. Finnskir hjúkrunarfræðingar voru líka í verkfalli í fyrra. Það stóð í mánuð en 5.000 króna launahækkun fékkst á föst mán- aðarlaun.“ - Hvernig ætlið þið svo að skemmta ráðstefnugestunum? „Við ætlum að koma þeim á óvart og bjóða þeim á hestbak í Laxnesi og í viðeigandi veiting- ar.“ Ráðstefna um kjör og vinnu- aðstæður

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.