Morgunblaðið - 15.09.1996, Side 38

Morgunblaðið - 15.09.1996, Side 38
38 SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ fBRIDSSKÓUNN-~~ <*)(?♦) Síðustu innritunardagar. Námskeið í byrjenda- og framhaldsflokki hefjast eftir helgi. Upplýsingar í síma 564 4247. Byrjendur: 10 þriðjudagskvöld, byrjar 17. september. Framhald: 10 fimmtudagskvöld, byrjar 19. september. Bæði námskeið fara fram í húsnæði BSÍ, Þönglabakka 1 í Mjódd. Næstu námskeið ■ p-r-TA um næstu helgi DANSSVEIFLU Á TVEIM DÖGUMi Áhugahópur um almenna dansþátttoku á íslandi 557 7700 hringdu núna í sátt við umhverfíð Aurion Barnagrautar * hrein náttúruafurð úr lífrænt ræktuðu korni * bragðgóðir og næringaríkir demeter gæðavottun útsöiustaðir: Yggdrasill, Kárastíg 1, Hagkaup, Kringlunni, Heilsuhúsið, Kringlunni. fullorðinsfræðslan Matshæft eininganám: skólanám eða fjarnám Grunnnám, fornám og fyrstu 4 áfangar framhaldsskóla i kjarnagreinum allt árið og enska, þýska og þýska f. ferðaþjón., spænska, norska, danska, sænska, tölvugrunnur, kynning á interneti, stærðfr., eðlisfr., ICELANDIC. NÁMSAÐSTOÐ: öll stig. mp-r-"Tt fullorðínslpæðslan Sími 557 1155 tlU I Ijl Qerðubergi 1 Heimasíða: http://www.ice.is/f-f Netfang: f-f@ice.is JAPÖNSK BOGFIMI KYUDO Þriggja mdnaöa ndmskeiö hefst 18. sept. n.k. Kyudo, hin aldagamla japanska bogfimi er ósvikin Budo-hefð sem endurspeglar það göfugasta í arfleifð samurai- anna. Lögð er áhersla á rétta líkamsstöðu, öndun og einbeit- ingu, sem leiðir til þess að örin flýgur áreynslulaust af strengnum. Kennari: Tryggvi Sigurðsson Renshi 6.dan frá Japanska Kyudosambandinu. Upplýsingar og skráning í síma 553 3431 (Elsa) IDAG SKAK Umsjón Margcir Pctursson SVARTUR leikur og vinnur Staðan kom upp á litlu alþjóðlegu skákmóti í Árós- um í Danmörku í ágúst. Ungverski alþjóðlegi meistarinn E. Anka (2.400) var með hvítt, en Daninn Mads Boe (2.340) hafði svart og átti leik. 45. — Hg2! og hvítur gafst upp. Drottningin getur ekki vikið sér undan án þess að riddarinn á e4 falli og 46. Dxg2 er auðvitað svarað með „röntgenskák- inni“ 46. — Db7+. Þá verð- ur hvíti kóngurinn að víkja sér undan og drottningin fellur. Þar með tryggði Mads Boe sér sigur- inn á mótinu með 6 vinninga af 9 möguleg- um og áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. 2. Piigaard 5 'A v. 3-4. Ja- snikowski, Pól- landi og U. Ni- elsen 5 v. 5—6. Anka og Rödgaard, Fær- eyjum Ó'A v. o.s.frv. OLYMPÍUSKÁKMÓTIÐ er sett í dag og fyrsta um- ferðin hefst á morgun. Þeir sem hafa aðgang að Inter- netinu geta fylgst með því á heimasíðu mótsins. Slóðin þangað er http://www.arm- inco.com/Armenpress- /olimp.html Með morgunkaffinu Ast er.. að skipuleggja brúðkaupið. TM Rag. U.S. PM.Oft - U rtghta ra IÖT71 ÞÚ hefur farið of langt, veiðimennirnir eru á sjöttu himnahæð. ÞÚ þarft að borga þetta við kassann, bjáninn þinn. HINSTA ósk mín er sú að lögfræðingur minn, sá mæti og góði maður, erfi allar eigur minar. VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: lauga(á)mbl.is 50 ára afmæli Melaskóla HINN 5. október næst- komandi eru liðin 50 ár frá því að Melaskóli tók til starfa. Af því tilefni er fyrirhugað að efna til myndasýningar í skólanum. Allmikið er til í skólanum af mynd- um frá þessu tímabili, en þó eru þar eyður í. Hér er fyrst og fremst átt við bekkjarmyndir og aðrar hópmyndir frá því fyrir 1960. Það væri því þegið með þökkum ef „gamlir" nemendur, kennarar og aðrir sem tengst hafa skólanum og eiga slíkar myndir vildu lána þær um tíma. Hafið samband við Rögnu Ólafsdóttur, skólastjóra Melaskóla, í síma 5513004 eða 5510630 milli kl. 16 og 17 síðdegis. Ragna Ólafsdóttir. Tapað/fundið Frakki tapapist NÝR ljósdrapplitaður herrafrakki með beinu sniði var tekinn í misgrip- um úr fatahengi í félags- og þjónustumiðstöðinni á Vesturgötu 7 á miðviku- daginn 4. september sl. Annar frakki var skilinn eftir. Sá sem kannast við þetta mál er beðinn að hafa samband í síma 562-7077 á Vesturgötu 7. Hanskar og myndarammi tapaðist TVENNIR ónotaðir hanskar og lítill silfur- plettmyndarammi töpuð- ust á Laugaveginum fyrir nokkrum dögum. Munirn- ir voru í hvítum plast- poka. Finnandi er vinsam- lega beðinn að hringja í síma 565-8618, Kristín. COSPER EN sú ósvífni. Guðríður er enn að njósna um okk- ur. Hún er að horfa hingað með sjónauka. Víkveiji skrifar... AÐ ÞYKJA ekki lengur tíðindi að konur eru dijúgum fleiri en karlar í Háskóla Íslands. Þannig er það og í flestum framhaldsskól- um. Trúlega kemur þó á óvart að af 34 nemendum við Bændaskólann að Hólum í Hjaltadal eru 28 konur. Sunnan heiða er staðan heldur lak- ari, frá sjónarhóli kvenna séð. Við Bændaskólann á Hvanneyri i Borg- arfirði eru konur aðeins þriðjungur nemenda. Mennt er máttur, segir gamalt máltæki. Menntun og þekking verða ómissandi vopn í lífsbaráttu fólks í flóknu samfélagi á nýrri öld sem komin er í hlaðvarpann. Vík- veiji hefur það fyrir satt að mennt- un og starfsréttindi muni mestu ráða um skipan fólks á kjarabekki næstu áratugi. Svo er að sjá sem karlar megi herða menntaróður sinn ef þeir ætla standa konum á sporði næstu áratugi! XXX BJARNI F. Einarsson fornleifa- fræðingur segir í grein í Sveit- arstjórnarmálum að fornleifaskrán- ing hér á landi sé 100 árum á eftir skráningu hjá grannþjóðum. Orð- rétt segir í grein hans: „Saga okkar er að hluta til skráð í umhverfi okkar, umhverfí sem við höfum skapað smátt og smátt í ald- anna rás. Sjálf skilgreinum við okk- ur sem einstaklinga gegnum um- hverfið og þjóðin sem slík skilgrein- ir sig út frá þessu umhverfi og því sem þar kann að leynast. Við berum öll ábyrgð á sögu okkar og menn- ingu og þar eru fornleifarnar engin undantekning." Þetta eru íhugunarverð orð. Ekki sízt fyrir sveitarstjórnarmenn. Þeir ættu að hafa forgöngu um forn- leifaskráningu (og reyndar einnig örnefnaskráningu og lýsingu á staðháttum) í viðkomandi byggðar- lögum. Þetta er ekki sízt brýnt í þéttbýlisbyggðarlögum, sem eru að leggja sífellt stærri svæði undir malbik og steinsteypu! xxx ERU ÍSLENZK heimili enn að auka skuldir sínar? Þessi spurning leitaði á Víkveija þegar hann las Hagvísa um mánaðamótin síðustu. Þar segir að útlán banka- kerfisins til heimila í landinu hafi farið vaxandi undanfarið og reynzt 11,5% meiri í endaðan júlí þetta ár en á sama tíma í fyrra. Þar segir og að „töluverð aukning hafi orðið í kreditkortaviðskiptum á fyrsta og öðrum ársfjórðungi [1996] miðað við sama tíma í fyrra.“ Þessi kredit- kortaaukning var reyndar meiri í kaupum erlendis er innanlands. Getur það verið að byrjandi efna- hagsbati, sem reyndar er sýnd veiði en ekki gefin hjá mörgum, veki upp í okkur eyðsluhvötina (bílar, ferða- lög o.s.frv.); að við hömumst við að eyða lánsfé í von urn betri tíð með blóm í haga? Hætt er þó við þeir finni þessa margumræddu „betri tíð“ fyrr og varanlegar sem nota uppsveifluna til að greiða nið- ur skuldir sínar. xxx ORVALDUR Gylfason prófess- or ritar grein í Vísbendingu um hagþróun í ríkjum Afríku en þar búa rösklega fimmtíu fullvalda þjóðir. Fróðlegt er að lesa um það hvernig Tansaníumenn, sem „stunduðu áæltunarbúskap að sovézkri fyrirmynd," reyndu þann veruleika, að „þegar fjárfestingin er rofin úr sambandi við markaðinn hrynur framleiðslan". Orðrétt segir prófessor Þorvaldur í grein sinni: „Það er eftirtektarvert, að áætl- unarbúskapur undir forustu Nyer- eres forseta, fágaðs menntamanns, sem hefur auk annars þýtt tvö leik- rit Shakespeares á svahíli, hefur valdið meiri og langvinnari skaða í efnahagslífi Tansaníu en ofboðsleg skemmdarverk villimannsins Amíns og vina hans í Úgöndu. Eyðilegg- ingarmáttur misheppnaðrar hag- stjómar er ægilegur." Afríkuríkið Botswana á heims- met í hagvexti, segir greinarhöf- undur. Þau eru þó fleiri Áfríkulönd- in „þar sem allt er í kalda koli vegna misheppnaðrar hagstjórnar".

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.