Morgunblaðið - 06.10.1996, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 1996 13
nánu samstarfi við NATO á mörgum
sviðum, að ganga einfaldlega í
bandalagið og fá þau áhrif, sem
fylgja aðild? Svar sænsku ríkisstjórn-
arinnar við þessu er nei. Svíþjóð
hyggst ekki breyta þeirri stefnu að
standa utan hemaðarbandalaga.
Astæðurnar eru kannski fyrst og
fremst sögulegar; Svíar líta almennt
svo á að hlutleysisstefnan hafi þjónað
þeim vel og haldið Svíþjóð utan styij-
alda í Evrópu í tvær aldir. Mikill
meirihluti almennings er á móti
NATO-aðild, samkvæmt skoðana-
könnunum. Sænskir viðmælendur
Morgunblaðsins voru sammála um
að umræður um það, hvort Svíþjóð
eigi að ganga í NATO, væru ákaf-
lega litlar og fyrst og fremst tak-
markaðar við ákveðinn hóp fræði-
og stjórnmálamanna.
Lars Rekke bendir á að í nýlegri
skýrslu varnarmálanefndar sænska
þingsins hafi allir flokkar lýst stuðn-
ingi við óbreytta stefnu. „Að standa
utan hemaðarbandalaga og form-
legra öryggistrygginga veitir okkur
ákveðið frelsi til athafna,"
segir ráðuneytisstjórinn.
Þótt gagnrýnin á núver-
andi stefnu sænskra
stjórnvalda sé ekki hávær,
á hún sér engu að síður
allmarga fulltrúa. Einn
þeirra er Ann-Sofíe Dahl, doktor í
stjórnmálafræði sem starfar við há-
skóla sænska hersins. Dahl segist
þeirrar skoðunar að Jafnaðarmanna-
flokkurinn, sem nú heldur um stjórn-
artaumana, haldi NATO-umræðunni
niðri vegna ótta við að hún kunni
að kljúfa flokkinn. Borgaraflokkarn-
ir, sem ættu að vera búnir að taka
málið upp, þori það ekki heldur, af
ótta við að jafnaðarmenn noti tæki-
færið til að saka þá um tilraunastarf-
semi og ábyrgðarleysi í öryggis- og
varnarmálum. „Jafnaðarmanna-
flokkurinn lítur á sérhveija greiningu
á ástandinu sem árás á sig, en ekki
sem innlegg í umræðuna,“ segir
Dahl.
Hlutleysisstefnan goðsögn?
Dahl og fleiri stuðningsmenn
NATO-aðildar benda á að í fyrsta
lagi sé það goðsögn, en ekki veru-
leiki, að Svíþjóð hafi alltaf fylgt hlut-
leysisstefnu. Stefna sænsku stjórnar-
innar í seinni heimsstyijöld hafi að
vísu haldið Svíþjóð utan við hernað-
arátök, en sumar ákvarðanir hennar,
til dæmis um að leyfa þýzka herflutn-
inga yfir sænskt land, hafi ekki ver-
ið nein hlutleysisstefna. Dahl bendir
líka á að það hafi í raun alltaf verið
opinbert leyndarmál að kæmi á ann-
að borð til styijaldar, myndu Svíar
treysta á að fá aðstoð frá Vesturlönd-
um - frá NATO.
„Varnir Svíþjóðar byggjast á því
að við munum fá hjálp að utan ef
stríð brýzt út,“ segir Eva Flyborg,
þingmaður hins fijálslynda Þjóðar-
flokks, en það er einkum úr röðum
Þjóðarflokksmanna, sem heyrzt
hafa tillögur um að Svíar íhugi kosti
aðildar að NATO. „Það er miklu nær
að ganga frá tengslum okkar við
NATO á friðartímum heldur en í
stríði. Viðurkenni menn á annað
borð að við þurfum utanaðkomandi
aðstoð, er betra að segja það opin-
skátt og undirbúa stríðsvélina fyrir
það. Það er miklu betra að ganga
beint inn, en að sniglast við bak-
dyrnar."
Flyborg bendir líka á þá ábyrgð,
sem Svíþjóð beri í því samfélagi lýð-
ræðisríkja, sem landið tilheyri: „Ef
ráðizt er á önnur lýðræðisríki hljótum
við að axla ábyrgð á sameiginlegum
vörnum eins og aðrir."
Hindrun í vegi annarra?
Bo Hugemark, ofursti hjá Kon-
unglegu herfræðistofnuninni, er einn
af NATO-sinnunum. Hann segir þá
skoðun sína, að Svíþjóð eigi að skoða
möguleikann á að ganga í bandalag-
ið, ekki fyrst og fremst byggða á
sænskum hagsmunum, þar sem
Svíum stafí nú tæplega ógn af neinu
öðru ríki, heldur hags-
munum Finnlands og
Eystrasaltsríkjanna.
„Finnland er í vonlausri
stöðu ef Svíþjóð er ekki
með. Þetta er í raun aftur-
hvarf til ástandsins 1939-
1940, þegar Vesturlönd vildu hjálpa
Finnum, en Svíar neituðu þeim um
að fara yfir sænskt landsvæði. Hin
landfræðilega afstaða er einfaldlega
þannig að standi Svíþjóð utan hem-
aðarbandalaga, á Finnland mjög erf-
itt með að sækjast eftir NATO-aðild.
Sama á að sumu leyti við um
Eystrasaltsríkin.“
Hugemark segir að hins vegar sé
það einnig í þágu sænskra hagsmuna
að ganga í NATO. „í kalda stríðinu
stóðum við vissulega utan hernaðar-
bandalaga, en gengum alltaf út frá
því að það væri líklegt að við fengjum
hjálp frá NATO vegna þess að banda-
lagið myndi vilja veija Noreg. Það
er ekki sjálfgefið að þetta verði svona
áfram og að við fáum að vera
laumufarþegar hjá NATO. Það þarf
að undirbúa þá hjálp, sem við viljum
að berist. Fyrst og fremst er þetta
þó siðferðileg spurning. Við hindrum
NATO-aðiId annarra en gerum sjálf
ráð fyrir að fá aðstoð."
Fastir í gömlum hugtökum
Umræður um NATO-aðild Sví-
þjóðar fá tæplega byr undir vængi
nema breytingar verði í Jafnaðar-
mannaflokknum. Eva Flyborg segir
að jafnaðarmenn séu hins vegar í
sjálfheldu í málinu: „Þeir hafa barið
það inn í höfuðið á almenningi að
sú stefna að standa utan hernaðar-
bandalaga hafi verið, sé og verði sú
eina rétta fyrir Svíþjóð. Ætli þeir sér
að breyta einhveiju, fá þeir almenn-
mgsálit, sem þeir hafa sjálfir skapað,
upp á móti sér og eru þannig fallnir
á eigin bragði.“
Sumir þykjast þó merkja lítið eitt
sveigjanlegri afstöðu hjá jafnaðar-
mönnum á síðustu misserum. „Sumir
kratar eru tilbúnir að ræða málið -
yfir koniakinu," sagði einn af við-
mælendum Morgunblaðsins. Reynd-
ar fannst krati, sem reyndist reiðubú-
inn að ræða málið við Morgunblaðið
yfir kaffibolla, Gunnar Lassinanti,
sem starfar að friðar-, öryggis- og
afvopnunarmálum hjá Stofnun Olofs
Palme. Lassinanti segir að það séu
bæði kostir og gallar við hlutleysis-
stefnuna: „Annars vegar hefur hún
tryggt að við höfum lifað í friði í
tvær aldir. Hins vegar er kominn
dálítill helgiblær á hana og það virð-
ist hindra getu manna til að láta sér
detta eitthvað nýtt í hug. Nokkuð
margir af þeim, sem ræða um örygg-
is- og varnarmál, eru fastir i gömlu
Evrópu, eins og hún var fyrir 1989.
Nú er heimsmyndin hins vegar breytt
og það má segja að hér í Svíþjóð
hafi stefna stjómvalda tekið nokkurt
mið af því, þótt almenningsálitið
hafi ekki breytzt jafnhratt.
Áheyrnaraðildin að VES, þátttakan
í IFOR og í friðarsamstarfinu eru
stór skref, sem hefðu verið óhugs-
andi fyrir nokkrum árum.“
Lassinanti segist- hafa reynt að
heQa máls á umræðum um NATO-
aðild innan Jafnaðarmannaflokksins,
en rekið sig á marga veggi. Hann
segist þó þeirrar skoðunar að reynsl-
an af því samstarfí, sem Svíar taka
nú þegar þátt í, muni hafa áhrif á
afstöðu manna. „Samstarfíð við
NATO mun áfram aukast. Ég held
að margir af þeim, sem hafa verið
neikvæðir í garð NATO hafi verið
fastir í gömlum hugtökum. Ég hef
kynnt mér starfsemi NATO náið
undanfarið og gert mér grein fyrir
að bandalagið hefur breytzt mikið
frá því á tíma kalda stríðsins. Örygg-
ishugtakið hefur líka breytzt og vikk-
að út. Við það hafa bætzt barátta
gegn umhverfísspjöllum og glæpum
og efnahags- og lýðræðisþróun. I þvi
verður þó áfram harður hernaðar-
kjarni, sem menn geta ekki litið
framhjá. Reynslan frá Júgóslaviu
sýnir þetta. Þegar öll önnur ráð
bregðast, er þörf á öflugum varnar-
samtökum, sem geta tryggt frið og
öryggi.“
Breytt NATO meira aðlaðandi
Aðrir viðmælendur Morgunblaðs-
ins taka undir að breytingarnar, sem
hafa átt sér stað innan Atlantshafs-
bandalagsins, þ.e. aukin áherzla á
friðargæzlu og fyrirbyggjandi að-
gerðir en minni áherzla á varnir gegn
árás að austan, muni með tímanum
gera bandalagið meira aðlaðandi í
augum Svía. Jan Foghelin, deildar-
stjóri hjá Rannsóknarstofnun varnar-
mála í Stokkhólmi, segist sjá fyrir
sér tvenns konar ástand, sem gæti
gert það að verkum að Svíar sæju
ástæðu til að ganga í NATO í fram-
tíðinni: „Annars vegar er sá mögu-
leiki að Rússland verði smátt og
smátt meiri ógnun við Evrópu og þá
Helgi hlut-
leysisstefnu
hindrar nýjar
hugmyndir
K Okkar árlega $
borddúkaúÉsala
hefst á mánudag - opnum kl. 9
Mildö úrval af matar- og kaffidúkum, blúndu-
dúkum, liandunnum dúkinii, flauels,,l0berum“,
flauelsstofupúöum og joladúkum allskonar.
Ódýr straufrí borðdúkaefni
690 kr. m. 10 litir
Tilbúin vöggusett aðeins 1.500 kr. settið
U ppsetningabúðin
2S Hverfisgötu 74, sími 552 5270, póstsendum.
kannski fyrst og fremst við okkar
hluta af álfunni. Við slíkar kringum-
stæður kynnum við að sjá okkur hag
í því að sækjast eftir aðild og það
sama ætti væntanlega við um Finn-
land og Eystrasaltsríkin, fái þau á
annað borð að vera með. Við þessar
aðstæður gæti mönnum fundizt að
þeir hefðu meiri þörf fyrir NATO og
Bandaríkin en svo að hægt sé að
vona að hjálpin komi hvort sem er,
burtséð frá því hvort við eigum aðild
að bandalaginu eður ei.
Hins vegar er hægt að hugsa sér
andstæða þróun; að þróunin í Rúss-
landi verði jákvæð og verkefni NATO
þróizt smátt og smátt enn frekar
yfír í alþjóðlegar aðgerðir, frið-
argæzlu og fleira af því tagi, þ.e.
að NATO verði verkfæri í þágu ÖSE,
Sameinuðu þjóðanna eða annarra
alþjóðastofnana. Þá hefur orðið til
nýtt NATO og í slíku bandalagi
gæti Svíþjóð vel hugsað sér að vera.
A milli þessara möguleika eru hins
vegar margir aðrir, sem eru þess
eðlis að við ættum fremur að bíða
og sjá hvemig málin þróast. Mín
skoðun er sú að við verðum að fylgj-
ast vel með og skapa okkur sjálf
þann möguleika að geta gengið í
NATO, reynist það nauðsynlegt."
ríjfy
[QQjpPl
Lærdí ímsrit
Bókmenntafélagsins
Lærdómsritin eru merkisrit
í aðgengilegri útgáfu, með vönduðum
inngangi og skýringum. Þau eru fjölbreytt,
skemmtileg og fræðandi og við allra hæfi.
„Skyldu vera til hamingjusamari menn en
þeir, sem almennt eru kallaðir fífl, heimsk-
ingjar, bjálfar og einfeldningar?“
Hver er heimssýn heimskunnar og hvaða
hlutverk ætlar hún sjálfri sér? Höfundurinn,
Erasmus frá Rotterdam (1469-1536), lætur
heimskuna rausa gáleysislega um alvarleg
efni. Hún sér margt kyndugt í fari manna og
skopast að áráttu þeirra til að sýnast
merkilegri en þeir eru. Heimskan ríður ekki
við einteyming, en undir niðri býr boðskapur-
inn um fegurra mannlíf og andlega spekt.
lÍÍWA U
Síðustu dagar
Sókratesar
í bókinni birtast þrjú af ritum Platóns, eins
áhrifamesta hugsuðar allra tíma, þar sem
hann lýsir ævilokum kennara síns! Ritin eru
Málsvörn Sókratesar, ræða hans fyrir dóm-
stólnum sem dæmdi hann til dauða; Krítón,
rökræða hans í fangelsinu um réttmæti þess
að bijóta ranglát lög; og Faídón, rökræða
hans og lærisveina hans um líf og dauða
og lífið eftir dauðann.
Höfundurinn, Max Weber, var einn merkasti
þjóðfélagsfræðingur sem uppi hefur verið.
Hér ræðir hann um hlutverk fræðimanna
og hlutleysi þjóðfélagsfræða og um hlutverk
stjómmálamanna með tilliti til eðlis ríkisvald
sins. í inngangi er rætt um mótmælendasið
og auðhyggju.
......-
Birtíngur
RTING
™ kniH ma*n<-av4\ m>
Birtíngur Voltaires er ein víðfrægasta
og skemmtilegasta bók sem skrifuð hefur
verið, hún er einnig ein hin viturlegasta.
Birtíngur er bjartsýnin uppmáluð, sama
hvað á gengur. Bókin er í senn ádeiluverk,
ástarsaga og heimspeki. Snilldarleg þýðing
Halldórs Laxness á þessari ágætu skemmti-
sögu rígheldur lesandanum við efnið frá
upphafi til enda.
Leikgerð Birtíngs verður frumsýnd
11. október n.k. í Hafnarfjarðarleikhúsinu.
Þessar bækur viltu eignast!
Það er engin spurnmg.
Mundu áskriftarklúbbinn
SSIDFNAÐ^
il8160á
HIÐISLENSKA BOKMENNTAFEIAG
SÍÐUMÚLA 21 • 108 REYKJAVÍK • SfMI 588 9060 • FAX 588 9095
-€3-