Morgunblaðið - 06.10.1996, Page 38
38 SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Rósakvistur
KVISTIR
KVISTIR eru vinsælir og blóm-
sælir skrautrunnar. Þeir eru auð-
veldir í ræktun og gera ekki mikl-
ar kröfur til jarðvegs, þó þeir vilji
gjarnan vera sólarmegin í lífinu.
Þeirra sem blómstra hvítum
blómum njótum við fyrri hluta
sumars en nú eru þeir síðblóm-
strandi upp á sitt besta. Þeir eru
að vaxa og blómstra fram að
fyrstu frostum og
vegna þess að þeir
hafa þá ekki búið sig
undir veturinn kala
þessir runnar oftast.
Þeir eru þá klipptir
niður síðla vetrar
eða að vori og
blómstra jafndug-
lega næsta sumar,
því þessir kvistir
blómstra á árs-
sprota. Ef birkikvist-
ur er hinsvegar
klipptur niður að
vetri blómstrar hann
ekki sumarið á eftir
og þannig er það
með fleiri kvisti.
Runnamir þéttast
einnig við niðurklippinguna og
verða fallegri. Blóm flestra síð-
blómstrandi kvista eru í bleikum
litum og eru á enda greinanna í
klösum eða skúfum. Þeir eru fal-
legir til afskurðar í blómvendi.
Þessir kvistir eru helstir:
Rósakvistur eða japanskvistur
(Spiraea japonica), sem er ættað-
ur frá Japan. Af honum eru til
nokkur yrki, m.a. „Anthony Wat-
erer“ og „Froebellii", sem
blómstra mismunandi dökkbleik-
um blómum. Hann brotnar oft
undan snjóþunga, því greinar
hans eru grannar og stökkar. Það
kemur ekki að sök, því hann vex
fljótt upp aftur næsta sumar.
Hæð hans verður 0,5-1 metri. Til
eru yrki af rósakvisti sem eru
dvergvaxin, „Alpina“ og „Little
Princess“. Þeir bera ljósari blöð
og blóm og vegna smæðar fara
þeir vel m.a. í steinhæðum.
Víðikvistur (Spiraea salicifolia)
ber hvít eða ljósbleik
blóm í löngum klös-
um. Hann hefur upp-
rétt vaxtariag og
verður allt að 1,5
metrar að hæð.
Dögglingskvistur
(Spiraea douglasii)
ber dökkbleik blóm í
klösum og er vaxtar-
lag og hæð svipuð
og hjá víðikvisti.
Úlfakvistur
(Spiraea x billiardii)
er blendingur af víði-
og dögglingskvisti.
Hann ber bleik blóm
í klasa. Víði-, döggl-
ings- og úlfakvistur
mynda mikil rótar-
skot sem hægt er að stinga burt
ef þeir fara að verða fyrirferðarm-
iklir. Allir þessir kvistir eru falleg-
ir nokkrir saman og jafnvel í lim-
gerði.
Þegar plöntur hafa lokið vexti
og blöð fara að gulna má færa
plöntur til og grisja, því oft er
það svo, að í upphafi er gróður-
sett of þétt þegar plönturnar eru
smáar. Á haustin sjáum við líka
vel hvar má endurbæta í garðin-
um. Haustið er líka tími gróður-
setninga á til dæmis víði og skó-
garplöntum og skapar m.a. rign-
ingin góðar aðstæður. KoFi
6L0M
VIKUNNAR
354. þáttur
Umsjón Ágústa
Björnsdóttir
■ BIBLÍUSKÓLINN við Holta-
veg heldur námskeið um kristniboð
nútímans og hefst það nk. mánu-
dag. Leiðbeinandi verður Kjartan
Jónsson, kristniboði. Fjallað verður
m.a. um biblíulegan grundvöll
kristniboðsins. Hvað sé efst á baugi
í kristniboðsmálum í víðri veröld í
dag. Hvaða afleiðingar það hafi að
þungamiðja kristninnar hefur færst
frá Vesturlöndum til þriðja heims-
ins. Fjallað verður um kristniboðs-
hreyfínguna í löndum þriðja heims-
ins. Aðferðafræði og stefnu kristni-
boðsstarfs. Minnst verður á kirkju-
vaxtarhreyfinguna og nokkra mikil-
væga kristniboðshugsuði og það
hvaða vandamálum kristniboðinn
mætir í starfi sínu. Hvemig er að
lifa og starfa í framandi menningu
fjarri ættingjum og fóstuijörð?
Hvaða áhrif hefur það á fjölskyldu-
líf, trúarlíf og geðheilsu kristniboð-
ans? Kennt verður næstu fjögur
mánudagskvöld kl. 20-22. Nám-
skeiðsgjald er 1.200 kr. og lýkur
innritun um hádegi á mánudag.
Dagbók
Háskóla
Islands
RAUNVÍSINDASTOFNUN Há-
skólans heldur málþing um grunn-
rannsóknir í raunvísindum í Odda
kl. 13.15 til 17. Tilefnið er að 30
ár eru frá því Raunvísindastofnun
tók til starfa. Að loknum stuttum
inngangserindum verða pall-
borðsumræður. Þeir sem halda er-
indi verða Sveinbjörn Björnsson
háskólarektor, Þorkell Helgason
orkumálastjóri, Eiríkur Baldursson
sérfræðingur, Davíð Lúðvíksson
Samtökum iðnaðarins, Guðrún Ey-
jólfsdóttir fréttamaður, Gísli Már
Gíslason prófessor, Ari Arnalds
framkvæmdastjóri og Rögnvaldur
Ólafsson vísindafulltrúi. Eggert
Briem setur þingið og Sigmundur
Guðbjarnason stýrir umræðum.
Námskeið á vegum Endur-
menntunarstofnunar HÍ.
Mán. 7. okt.-25. nóv. kl. 20.15-
22.15 (8x). Hugsjónir stjórnmál-
anna: Frelsi, réttlæti, lýðræði og
jöfnuður. Kennari: Dr. Vilhjálmur
Árnason dósent í heimspeki.
Mán. 7. okt. -9. des. kl.
17-19.30. Danska fyrir ríkisstarfs-
menn. Kennarar: Ágústa Pála Ás-
geirsdóttir og Bertha Sigurðardótt-
ir, kennarar við VÍ.
Mán. og mið. 7. okt -11. des.
kl. 17-19.30. „Wir sprechen De-
utsch“ Þjálfun talmáls fyrir lengra
'ph FASTEIGNA
fcéi MARKAÐURINN ehf
ÓÐINSGÓTU 4. SÍMAR 551-1540. 5S2-170Q. FAX 562-0540
HLÍÐARSMÁRI 12, KÓP.
Vorum aö fá í sölu einingar í þessu glæsilega húsi í Smárahvanimslandi sem Faghús hf. byggir. Hús
og sameign er fullfrágengið. Lyfta. Bílastæði verða malbikuð og lóð hellulögð fyrir framan hús.
Snjóhræðsla. Að innan afh. tilb. u. innr. mjög fljótlega.
Eftirfarandi er til sölu:
Jarðhæð norðurendi, verslunarhúsnæði 372 fm sem getur skipst í þrjár einingar 65,4 fm, 146,9 fin
og 159,4 fm.
2. hæð norðurendi, skrifstofuhúsnæði 387,7 fm.
4. hæð skrifstofuhúsnæði (öll hæðin) 781,2 fm sem getur selst í tveimur einingum 390,6 fm hvor.
Mikil lofthæð. Húsnæðið hentar hvort heldur sem er fyrir skrifstofur eða félagsaðstöðu fyrir
félagasamtök.
Allar nánari uppl. veittar á skrifstofu.
FASTEIGNAMARKAÐURINN ehf
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540,
J)
Hár- og fata-
tíska í Loft-
kastalanum
INTERCOIFFURE á íslandi held-
ur sýningu mánudaginn 7. október
í Loftkastalanum ásamt Spak-
mannsspjörum undir stjórn Kol-
brúnar Áðalsteinsdóttur. Er þetta
sameiginlegt átak til að kynna ís-
lenska hönnun. Húsið verður opn-
að kl. 19.30 með fordrykk og ilm-
vatnskynningu.
Intercoiffure er alþjóðlegur fé-
lagsskapur með aðalstöðvar í Par-
ís. 35 lönd og um 200 stofur eru
í samtökunum.
■ Á VEGUM Endurmenntunar-
stofnunar Háskóla íslands hefst
mánudaginn 7. október námskeið
um nokkur lykilhugtök heimspeki
stjórnmálanna. Sérstaklega verður
fjallað um réttlæti, lýðræði, frelsi
og jöfnuð. Hugað verður að ólíkum
kenningum um hvernig skilja ber
þessar hugsjónir og um innbyrðis
tengsl þeirra. Megináhersla verður
INTERCOIFFURE kynnir
nýja strauma í hártískunni í
Loftkastalanum á mánudag.
lögð á að kynna helstu stefnur um
þessi efni í stjórnmálaheimspeki
samtímans. Námskeiðið er haldið
á mánudagskvöldum frá 7. októ-
ber til 25. nóvember kl. 20-22 og
er öllum opið. Þátttökugjald er
8000 kr. Fyrirlesari verður dr.
Vilhjálmur Árnason, dósent í
heimspeki.
komna á ýmsum starfssviðum.
Kennarar: Oddný Sverrisdóttir dós-
ent HÍ og Danfríður Skarphéðins-
dóttir þýskuk. MR.
Þri. 8. okt.-3. des. 20.15-22.15
(9x). 2. Vesturheimsferðir og
mannlíf í Nýja Islandi. Umsjón:
Gísli Sigurðsson, sérfr. á SÁM.
8.-9. okt. kl. 8.30-12.30. Unix
fyrir almenna notendur. Fyrri hluti.
Kennari: Helgi Þorbergsson PhD.
tölvunarfræðingur hjá Þróun hf.
8. okt. 13-17. Gæðastjórnun í
ráðstefnuhaldi - Frá hugmynd til
framkvæmdar. Haldið í samstarfi
við Gæðastjórnunarfélag íslands.
Kennari: Amey Einarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Gæðastjórnunarfé-
lags Islands.
9. okt. kl. 12.30-17. Grunnur
að gæðastjórnun og mótun gæða-
stefnu. Kennari: Davíð Lúðvíksson
verkfræðingur Samtökum iðnaðar-
ins.
9. -11. okt. kl. 8.30-16. Aukið
öryggi í Unix og á Internetinu.
Kennari: Rik Farrow, einn virtasti
sérfræðingur heims um öryggi á
Interneti og í Unix. Hann heldur
fjölda fyrirlestra og námskeiða um
öryggismál árlega og hefur einnig
skrifað bækur um efnið, t.d. „Unix
System Security“, Addison Wesley,
1991.
9. okt. kl. 15-19. Meðferð eftir-
launa- og tekjuskattsskuldbindinga
í reikningsskiíum fyrirtækja. Kenn-
arar: Alexander G. Eðvardsson og
Sæmundur Valdimarsson, báðir
löggiltir endurskoðendur hjá KPMG
Endurskoðun hf.
Mið. 9. okt.-4. des. kl. 20-22
(9x). Byijendanámskeið í kín-
versku. Kennari: Hjörleifur Svein-
björnsson, nam við Pekingháskóla
’76-’81.
10. og 11. okt. kl. 8.15-16.
Stjómun fyrir hjúkrunarfræðinga.
Með áherslu á fjármál og nýjungar.
Kennarar: Anna Stefánsdóttir
hjúkrunarfrkvstj., Birna Flygenring
HÍ, Hrund Sch. Thorsteinsson HI,
Ingibjörg Þórhallsdóttir hjúkmn-
arfrkvstj., Ágústa Benný Herberts-
dóttir verkefnastjóri Sjúkrahúsi
Rvk. og Helga Bjarnadóttir verk-
efnastj. Lsp.
Fim. 10. okt. - 14. nóv. kl.
16.30-19 (6x). Rannsóknaraðferðir
í félags- og heilbrigðisvísindum.
Sérstök áhersla á spurningakann-
anir. Kennari: Þorlákur Karlsson
dósent við HÍ.
Haldið á Akureyri 10. okt. kl.
13-18 og 11. okt. kl. 9-16. Neyslu-
vatn og vatnsveitur. Vatnsból,
vatnstaka, verndun. Umsjón: Frey-
steinn Sigurðsson vatnajarðfr. á
Orkustofnun og Hafsteinn Helga-
son verkfr. Vatnshreinsun hf.
Fim. 10. okt.-28. nóv. (14. nóv.
fellur niður) kl. 20.15:22.15 (7x).
Endurreisnartíminn á Ítalíu 1400-
1600. Listasaga, hugmyndasaga og
samfélagsgerð. Kennari: Olafur
Gíslason blaðamaður og listgagn-
rýnandi.
Fös., 11. okt. - 6. des. kl.
15.15-17 (9x). Skipulag og úr-
vinnsla rannsóknaverkefna. Hagnýt
tölfræði. Kennari: Magnús Jó-
hannsson prófessor HÍ.
11 .......... . —1—
OPIÐ HÚS í DAG
Kjarrhólmi 12, 2h t.h. Kóp.
75 fm íbúð á 2. hæð. Björt og góð íbúð með endurnýjuðu eld-J
húsi, parket á stofu. Útsýni yfir Fossvoginn. Þvottahús í íbúð.
Áhvíl. góð byggsj. lán. Afb. um 20. þús á mánuði. EKKERT
GREIÐSLUMAT. Opið hús í dag. kl. 14:00-16:00.
FASTEIGNASALAN
FiNNBOGI KRISTJÁN5SON LÖGG. FASTEIGNASAU
SÍÐUMÚLA 1
SÍMI 533 1313
FAX 533 1314