Morgunblaðið - 27.10.1996, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 27.10.1996, Qupperneq 6
6 SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1996 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Geislalækning'ar íÓsló Skammt- arnir of stórir? Ósló. Morgunblaðið. HUGSANLEGT er talið að allt að 1.200 konur, sem voru til meðferð- ar vegna bijóstakrabbameins á Geislalækningasjúkrahúsinu í Ósló á árunum 1975 til 1985, hafi feng- ið hættulega stóran geislaskammt. Flestar kvennanna eru nú látnar en að sögn Aftenposten hefur Gud- mund Hemes, heilbrigðisráðherra Noregs, skipað sjúkrahússtjórninni að fara yfir allar skýrslur og hafa samband við þær konur sem enn eru á lífi úr þessum hópi. Aðeins tvær konur hafa enn sem komið er höfðað mál af þessum sökum og voru þeim dæmdar skaða- bætur. Fékk önnur konan um 3,3 millj. ísl. kr. Sjúkrahússtjórnin telur að enn séu á lífi 150-200 konur úr fyrrnefndum hópi og áætlar að 30-35 hafi hlotið skaða af geisla- meðferðinni. Ekki brugðist við Stenar Kvinnsland, deildaryfir- læknir á Geislalækningasjúkrahús- inu, segir, að minnka hefði átt geislaskammtana 1982 en það hefði ekki verið gert. „1982 fórum við að fá upplýs- ingar um að ekki væri allt með felldu og þá hefði átt að minnka skammtana. Það er hins vegar auð- velt að vera vitur eftir á,“ sagði Kvinnsland. Sagði hann einnig að sjúkrahúsið hefði átt að fylgjast betur með konunum, sem voru til meðferðar, eftir að aukaverkanim- ar komu í ljós. ------»--♦.♦----- Slóvakía Fallið frá lögum gegn andófi Bratislava. Reuter. STJÓRN Slóvakíu hefur látið af áformum um að knýja fram á þingi frumvarp, sem hafði verið harðlega gagnrýnt fyrir að minna á löggjöf gegn andófi á valdatímum komm- únista. Samkvæmt hinum fyrirhuguðu lögum hefði verið hægt að refsa fólki fyrir að skipuleggja mótmæli gegn stjórninni og birta „rangar uppiýsingar" erlendis. Bandaríkjamenn og Evrópusam- bandið höfðu gagnrýnt Slóvaka og sakað þá um að draga lappimar í því að koma á lýðræði í Slóvakíu. £9) SILFURBÚÐIN x-*-/ Kringlunni 3-12 • Sími 568 9066 - Þar fœröu gjöfina - kjarni málsins! STROM Thurmond í ræðustól. Ellin verst í ríki æsk- unnar í Bandaríkjunum hefur það löngum þótt líklegt til árangnrs að hafa yfír sér ímynd æsku og athafnasemi. Asgeir Sverrisson segir frá íhaldsmanninum Strom Thur- mond sem gefur lítið fyrir þessa speki og stefnir að því að verða 100 ára á þingi. SKUDÝRKUN hef- ur löngum þótt einkenna banda- rískt samfélag og gildir það um flest svið mánnlífs- ins. Þeir sem hyggjast „ná langt“ vestra þurfa oftar en ekki að hafa yfir sér ímynd æsku og virð- ast þróttmiklir í framgöngu allri, ekki síst sá stóri hópur manna sem á allt sitt undir íjölmiðlum. Þetta hefur og einkennt banda- ríska stjórnmálabaráttu á undan- förnum áratugum og má trúlega m.a. rekja þessa þróun til forsetakjörs John F. Kennedy árið 1960. En engin er regla án undantekninga og slíkar alhæf- ingar eiga ekki fyllilega við í Bandaríkjunum frekar en annars staðar. Nú sækist Bob Dole, frambjóðandi Repúblíkana- flokksins, eftir því að verða elsti maðurinn sem búið hefur í Hvíta húsinu en hann telst þó tæpast fullþroska við hlið öldunga- deildarþingmannsins Strom Thurmond sem stefnir að því að halda hátíðlegt hundrað ára af- mæli sitt á þingi Bandaríkjanna. I bandarískri stjórnmálaum- ræðu á undanförnum árum hefur athyglin mjög beinst að hugmynd- um um að takmarka fjölda kjör- tímabila fulltrúa almennings og að þeirri yfirburðastöðu sem þeir njóta sem sækjast eftir endurkjöri vestra. Bill Clinton lagði á það þunga áherslu í kosningabarátt- unni 1992 að „nýtt upphaf" væri tímabært í Bandaríkjunum. Nú kveðst forsetinn vera boðberi „nýrra hugmynda" og fjendur hans í röðum repúblíkana tjá sig gjarnan um nauðsyn þess að „ný andlit“ taki að gera sig gildandi í bandarískum stjórnmálum. Þetta á hins vegar ekki við í Suður-Karólínu þar sem hinn 93 ára gamli Strom Thurmond sæk- ist eftir endurkjöri til sex ára í öldungadeildinni. Og flest bendir til þess að almenningur sé tilbúinn til að tryggja kjör þessa aldna stjórnmálaskörungs. Nautþijóskur methafi Thurmond hefur nú setið sjö kjörtímabil í öldungadeildinni eða samtals í 42 ár. Hann verður 94 ára í desember og ætti því að geta náð því að blása á kertin 100 á afmælisköku sinni á skrifstof- unni árið 2002. Snemma á næsta ári mun Thurmond að líkindum slá sögulegt met en þá mun hann hafa setið lengur á þingi en Carl Hayden frá Arizona sem starfaði þar í 42 ár. Annað met á hann nú þegar sem trúlega verður seint slegið. Árið 1957 hélt hann uppi málþófi í öldungadeildinni með því að tala stanslaust í 24 klukku- stundir og 18 mínútur. Höfðu menn þá á orði að þvagblaðra þingmannsins væri ekki síður rannsóknarefni en þijóska hans. Ábyrgðin og fyrirgreiðslan Thurmond og undirsátar hans blása á allt tal um að þingmaður- inn sé hugsanlega orðinn full gamall til að sinna þessu ábyrgð- arstarfi. Það sama virðast kjós- endur í Suður-Karólínu gera enda hefur Thurmond verið sérdeilis duglegur við að gæta hagsmuna ríkisins á ferli sínum. Gagnrýn- endur hans segja að eftir hann liggi engin merk lög eða frum- vörp, hann hafi ævinlega litið á það sem helsta hlutverk sitt að sinna fyrirgreiðslu. Þótt Thurmond eigi að baki svo langan feril á þingi í Washington gæti hann auðveldlega verið tunglbúi þegar haft er í huga hversu mjög viðhorf hans eru ólík þeim sem ríkja í þessari háborg stjórnmálanna í Bandaríkjunum. Bill Clinton hefur nú ráðið ríkjum í Hvíta húsinu í fjögur ár og telst til ungmenna í því starfí þótt for- setinn sé nú nýlega orðinn fimm- tugur og hafí af speki hins þrosk- aða manns látið þess getið við þessi tímamót að hann mætti vænta þess að fleiri afmælisdagar væru að baki en þeir sem í vænd- um væru. Clinton fylgdi herskari ungra manna og kvenna sem hóf störf í Hvíta húsinu. Haft hefur verið á orði að ýmsir þeir sem lengi hafa starfað í Washington hafi fyllst skelfíngu er skeggjaðir menn, klæddir vinnuskyrtum, tóku að renna í hlað Hvíta hússins á hjólhestum sínum á upphafsdög- um stjórnar Bill Clinton. Sumir þeirra munu m.a.s. hafa verið síð- hærðir. „Hvers eiga hinir eldri að gjalda?“ Mökkur aðstoðarmanna fylgir að sönnu Strom Thurmond enda er heyrnin tekin að bila og hann er ekki jafn hvikur í skrefí og áður. Þá heyrir það til undantekn- inga að hann veiti fjölmiðlum við- töl. En hann kveðst engum háður og heyrnartækið sé einungis til að létta honum lífið. Thurmond kveðst líta svo á að umræður um aldur hans og annarra og efa- semdir um hæfni hans sökum þessa feli í sér grófa mismunun. „Hvers eiga hinir eldri að gjalda þegar fólki er ekki mismunað á grundvelli kynferðis, kynþáttar eða trúar?" spyr hann. Þingmaðurinn hikar ekki við að lýsa því yfir að hann skeri sig nokkuð úr í röðum eldri borgara. „Ég passa línurnar og stunda lík- amsrækt," segir hann aðspurður um hvernig honum hafi fram til þessa tekist að halda vopnum sín- um í glímunni við Elli kerlingu. Andstæðingar Thurmonds segja að sókn hans í æskubrunn- inn hafi ekki síst birt í óhóflegri kvensemi þingmannsins. Thurm- ond hefur tvívegis gengið í það heilaga, í fyrra skiptið var sú lukkulega 23 árum yngri en hann en í það síðara leiddi hann konu eina upp að altarinu sem leit dags- ins ljós um það bil sem Thurmond hélt hátíðlegt fimmtugsafmælið. Nú er sagt að hann sé enn á ný á biðilsbuxunum en fjendur hans halda því fram að ekki sé óhætt að skilja stjórnmálamanninn ald- urhnigna einan eftir í herbergi með kvenmanni sökum stjórn- lausra hneigða hans. Sagt er að kona ein sem vann við ónefndan háskóla hafí fyrir nokkrum árum leitað eftir liðsinni Thurmonds við að afla styrkja til ótilgreindra verkefna. „Þú ert öldungis bráð- hugguleg kona“, var svar þing- mannsins. Milljónir á móti reynslu ~Cr' Mótframbjóðandi Thurmonds þessu sinni er Elliot nokkur Springs Close. Sá er milljónamær- ingur sem stenst allan bandarísk- an samanburð og var borinn í þennan heim árið 1954, sama ár og Thurmond tók sæti í öldunga- deildinni. Aukinheldur hefur hann enga reynsiu af stjórnmálastörf- um. Close og vinir hans í Demó- krataflokknum hafa gætt þess í hvívetna að sýna hófstillingu í kosningabaráttunni og hafa ekki reynt beinlínis að gera sér mat úr háum aldri andstæðingsins; vita sem er að slíkt gæti auðveld- lega komið þeim í koll. Þá hefur það viðhorf komið fram hjá kjós- endum að Thurmond hafí sinnt sínum störfum fyrir Suður-Karól- ínu af stakri trúmennsku og hann eigi „rétt á því“ að fá að „gefa upp öndina í þingsölum" kjósi hann svo. Hinir kaldhæðnu hafa sagt að þetta sýni ljóslega að kjós- endur hafi af því áhyggjur að Thurmond myndi ekki lifa það af að vera hafnað í kosningum. Þeir hyggist kjósa hann því þeir geti ekki hugsað sér að lifa við slíkt samviskubit. Thurmond er hins vegar of önnum kafinn til að leiða hugann að kraftbirtingarformum tilfinn- ingaseminnar. Hann segir baráttu sína og Close snúast um reynslu annars vegar og fjármagn hins vegar. „Hann á seðlana, en ég bý yfir reynslunni og við munum gjörsigra hann.“ Ef marka má kannanir mun þessi spádómur þingmannsins aldna koma á daginn. Hann hefur nú mikla forustu á unglambið sem sækist eftir sæti hans og getur ótrauður stefnt að lokatakmark- inu; að halda 100. afmælisdaginn hátíðlegan á þingi Bandaríkjanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.